Færsluflokkur: Fjármál

Landeyjarhöfn ofl!

Bölvað framapotið hjá þáverandi samgöngumálaráðherra sem tók ekki mark á tillögum alls fólksins á svæðinu! En einhverjir burgeisar ásamt stjórnendum Vegagerðarinnar þá ákváðu að Landeyjarhöfn skyldi reist þarna, þrátt fyrir allar mótbárur! Enda kostnaðurinn sem er kominn hátt í nýja Sæbrautarstokkinn sem almenningur er löngu búinn að borga, en því miður þá er það versta að ALMENNINGUR sem hafa margir jafnvel lítið á milli handanna að þurfa að borga fyrir glæfraskap misviturra manna, sem segja bara ég veit og ég ræð! Sama með Ráðherra sem er kannski dýralæknar, og eða eitthvað annað og hafa ekki hundsvit á málaflokkinum sem tilheyrir þeirra starfi! Samgöngumálin eru sér á parti, og bölvaður verði Sigurður Ingi vegatollur ( Tók við af Jóni Vegatoll ) ef að Sigurður ætlar í vegferð með vegatollana! Þá er ágætt að minna Sigurð Vegatoll á að Íslendingar eru löngu búnir að borga öll gjöld í VEGAFRAMKVÆMDIR og þá er komið að Katrínu Jakobsdóttur að ná inn öllum hundruða milljörðunum sem almenningur á inni fyrir afnot af AUÐLYNDINDINNI OKKAR ALLRA OG TALA NÚ EKKI UM HÁTEKJUSKATTINN OG BANKASKATTINUM! En það má ekki því sú stutta brosir bara sínu besta og segir að allt sé í lagi! Og þá er það spurningin, er flokkurinn hennar að þurrkast út? Vanhæfni hennar? Fylgistap út af sviknum loforðum? Allavegana þá er það að sú stutta styður allt sem að henni er sagt að styðja, enda engin furða að peningarnir (vesæla krónan) flæði úr landi! En í næstu kjarasamningum verður vonandi farið fram á það að allir ÍSlenskir launþegar fái greidd sín laun í Evrum, því það á að ganga jafnt yfir alla, samanber margt hátekjufólk sem semur um sín launakjör í Evrum!

Örninn


mbl.is Bilanir og höfnin oft ófær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mér kvíðir fyrir að verða ellismellur

Núna styttist í að ég verði ellismellur. Og það versta við er að þegar að ég tek út minn lífeyri þá fæ ég að borga skatt, og þá tala ég um séreignasparnaðinn! Og þá koma þær tillögur frá BB að lækka greiðslur Tryggingastofnunar til Lífeyrisþega eftir áramótin eða hvenær sem það verður, vegna? Nú það er erfitt fyrir lífeyrisþega sem hafa unnið alla sína hunds og kattartíð að þurfa að fá minni greiðslur frá TR ( Ríkinu ) og margir hverjir af þeim hafa kannski aldrei greitt í lífeyrissjóð, enda var hann ekki til á tíma margra! Og vonandi verður það krafa Verkalýðsfélaganna til BB að hann endurskoði krónu á móti krónu skerðingunum, og koma á hátekjuskattinum aftur sem BB lækkaði, og líka að Auðlyndin okkar allra sé Verðlögð upp í topp með sköttum á Arðgreiðslur þeirra sem hafa notið okkar AUÐLYNDAR! Bankaskatturinn var lækkaður af hverju? Erlendir eigendur hvað? En Bjarni Benediktsson þarf líka að taka tillit til eigenda ökutækja, því alltaf hækka vildarvinir eldsneytisverð á Íslandi þó það lækki erlendis! Bensínlíter kostar núna í Svíþjóð 239 krónur Íslenskar og hefur hækkað um 3 krónur síðasta mánuðinn!Hverjir eiga olíufélögin og hverjir eiga SEÐLABANKANN????? Og ef ekki á að vera stríð á vinnumarkaðinum þá þarf BB að taka sig saman í andlitinu og koma á friði með þessu sem að ofan greinir!

Örninn 


Hækkun stýrivaxta

Ef að Seðlabankinn fer í frekari stýrivaxtahækkanir, þá er það til að hella olíu á eldinn í komandi kjaraviðræðum sem eru á döfinni! Og þá er ein ábending til Seðlabankans að hætta að sleikja afturendann á fjármagnseigendum þá meina ég Banka, fjárfesta og stóreignamenn, sem græða á geðveiki Seðlabankans! Þá ætti Seðlabankastjórinn að einblína á stóreignamenn sem margir hverjir borga ekki skatta á Íslandi, ýmis Álfyrirtæki líka og tala nú ekki um skatt á fjármagnstekjur sem að gætu bjargað efnahaginum á Íslandi ásamt AUÐLYND ALLRA ÍSLENDINGA sem að grosserarnir borga bara 10% af afnotagjaldi AUÐLYNDARINNAR og borga sér svo tugi milljarða í ARÐ! Seðlabankastjórinn ætti að fara að hætta að tala um HÓFLEGAR LAUNAHÆKKANIR hins almenna launþega, ætti sá hinn sami að leggja spilin á borðið hvað hann fékk í launagreiðslur samkvæmt LÍFSKJARASAMNINGUM,og hvort að þær launagreiðslur hafi nú ekki verið ríflegri hjá honum og öllum ráðherrum,þingmönnum ofl! Gaman væri að sjá frá Seðlabankastjóra útreikning á launahækkunum á ALMENNUM VINNUMARKAÐI og hjá hinu opinbera! Verðtryggð laun?  En það er gott að vera með talandann og ekki skemmir fyrir að hafa Samtök atvinnulífsins gjammandi með sér! En það besta er að það er almenningur sem HELDUR ÍSLANDI UPPI með sínu vinnuframlagi! Því miður virðast ekki margir gera sér grein fyrir því, þá meina ég ofurlaunafólkið! Og ef að verður hörð barátta í vetur í sambandi við kjarasamninga, þá þarf ríkisstjórnin að byrja á að ná inn peningum, ekki prenta, heldur frá þeim sem eiga peningana! Alls ekki selja hluti í bönkunum nema með ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLU! Því gamli Landsbankinn var seldur til einhverra og almenningur tapaði á því gerræði! Og svo hurfu 500 milljarðar í lán til Arionbanka sem hafa ekki fundist ennþá og mestur hluti GULLFORÐA Íslands fór í að borga erlendar skuldir! Það má ekki segja frá þessu, en svona var þetta og er enn! Þeir halda kjafti yfir leyndarmálunum, og ALMENNINGUR ER ENNÞÁ AÐ BORGA SKULDIRNAR EFTIR HRUNIÐ! Mér kvíðir fyrir að fara á eftirlaun, því það verður ekkert eftir ef að greiðslur Tryggingarstofnunar verða skertar til ellilífeyrisþega, bara til að hjálpa stóreignaöreigunum sem má ekki hrófla við út af aumingjaskap og sleikjugangi ráðherra fjármála, því þá hætta allir að borga í flokkssjóðinn!!!

ÖRNINN     


mbl.is Stýrivextir hækka líklega meira
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Löggæslan, Heilbrigðismál ofl

Sem betur fer þá var komið í veg fyrir áætluð hryðjuverk, og má Lögreglan hafa þökk fyrir að hafa komist á snoðir um þá áætlun.

Þá er spurningin um fjármagn til að efla Löggæsluna, sem kostar peninga sem ekki virðast liggja á lausu nema í einhverjum leyniskúffum ráðuneytis Fjármála, sem getur prentað peninga í ýmislegt? En það sem hefur verið í umræðunni að fækka í Löggæslunni, þá held ég að ráðherra fjármála ætti að endurskoða fjármálaáætlunina til að ná inn fjármagni þá meina ég ekki frá almenningi sem er skattpíndur í topp, heldur að ná inn arði af AUÐLYNDINNI okkar allra með hækkun veiðigjalda, hækka skatta á fjármagnstekjur og arðgreiðslur banka og einstaklinga sem eru með í laun yfir 1.5 milljónir í tekjur á mánuði! Það væri gaman að fjármálaráðherra útskýrði fyrir alþjóð hversu mikið af skatttekjum almennings síðan 2013 hafa farið í að borga upp skuldir ríkissjóðs gagnvart Lífeyrissjóðs opinberra starfsmanna (LSR) því þær voru rosalegar og vonandi lækkað eitthvað? En þá er það heilbrigði Íslendinga, sem kostar peninga, en það er óþarfi að skera niður þjónustu sem er í lamasessi út af fjársvelti!! Af hverju? Jú það kemur ekki nóg í ríkiskassann til að standa undir heilbrigðiskerfinu! Af hverju ekki? Góð spurning, en þá kemur ein hugmynd að þjóðnýta allar aflaheimildir af sjávarafurðum og ef að þeir sem hafa grætt á þjóðareigninni í áratugi verða brjálaðir þá geta þeir bara hypjað sig til Namibíu! Og þá kemur að eldsneytisverði þá kostar bensínlíterinn í Svíþjóð 235 krónur Íslenskar í sjálfsafgreiðslu og 245 á þjónustustöðvum og fer lækkandi, sá um daginn þegar að ég var úti í Svíþjóð að það voru hækkanir og lækkanir um einhverja aura daglega! Nóg komið af skrifum núna :) :)

Örninn


Bjarni Ben, vildarvinir ofl!

Hvenær ætlar silfurskeiðungirinn,ásamt Sigurði Vegatoll ( aka Jón vegatollur) að átta sig á því að það er komið nóg að skattpíningu almennings! Af hverju í andskotanum getur hann vesalíngs Bjarni ekki krafið sína vildarvini og stórstuðningsmenn í spillingunni um að færa svolítið meiri krónur í þjóðarbúið? Tugmiljarða arðgreiðslur banka, tala nú ekki um þá hluti sem silfurskeiðungurinn seldi fyrir spottprís til vildarvina! Nei Bjarni Ben er skíthræddur við auðvaldsmafíuna, sem að hann ofl hafa verið samgrónir síðan fyrir hrun! Og nú ætlar sá hinn sami Bjarni Ben að selja hluti í bönkum, ásamt hækkunum á hinu og þessu sem kemur niður á almenningi! Af hverju í andskotanum er gleiðbrosandi glyðran Katrín ekki löngu búin að slíta stjórnarstarsamstarfinu? Katrín er búin að hanga á horriminni, svíkjandi sína hollustu og kjósendur!  Nei það er svo gott að vera með sín laun og tala nú ekki um Lífeyririnn, sem er VERÐTRYGGÐUR eða hvað? ( LSR ) Og það er frábært að hafa kaupmátt sem jafngildir meðallaunum 850 þúsundum++ miðað við keyptar skoðanarkannanir. En eitt skal segja að ef að á að breyta einhverju stórkostlegu þá er eitt ráð að fara í ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLU! En því miður þá er Bjarni Ben ofl á móti öllu slíku, því það yrði rothögg fyrir spillingaröflin! Og þá er eitt af hverju eru ALMENNINGUR að borga  verndartolla  af innfluttu kjöti sem að kjötvinnslur kaupa á niðursettu verði erlendis frá, og almenningur þarf að borga 75% meira en það kostar út í búð erlendis, td: Svíþjóð!Nei svona er bara Ísland í dag, og það versta er að Íslendingar eru svo samdauna spillingunni, því það þorir enginn að kvarta!Mótmæla nei þetta hlýtur að reddast! En eitt get ég sagt að sem betur fer erum við ekki tengd með rafmagnsstreng til Evrópu, þar sem að skortur er á rafmagni, því Íslendingum myndi bregða allhressilega að þurfa að borga 52 krónur fyrir kw rafmagnstundina!En það voru gróðapúngar hérna heima sem vildu leggja rafstreng til Evrópu, og margir hverjir sem eru og voru innan Ríkisstjórnarinnar! Græða meira? En ef að hlutur almennings verður seldur í Landsbankanum og Íslandsbankanum þá vill ég að almenningur fái að kjósa um það, því almenningur ræður! Ekki neinir gróðapúngar! Og ítrekun um Reykjavíkurflugvöll Íslenska þjóðin á Reykjavíkurflugvöll og, því miður þá skrifaði einhver Siggi vegatollur undir eitthvað samkomulag við daginn sem hefur eyðilagt Reykjavíkurborg með frumhlaupi! Þannig að vonandi rísa einherjir upp og mótmæla allri spillingu, en það er borin von því miður fyrir eymingjans Íslendinginn sem þorir engu!! Og líka væri ágætt að vita hversu margir vildarvina og ættingja ættu hlut í Olíufélögunu? Borguðum í dag 227 krónur í Svíþjóð fyrir bensínlíterinn! En nóg um það mafían vill sitt!!!

Örninn


Vegatollar framtíðarinnar ofl.

Sem betur fer eru Íslendingar löngu búnir að borga mörg jarðgöng með öllum sköttum sem ríkið hefur tekið af bifreiðaeigendum undanfarna áratugi! Nú Jón Gunnarsson kom með þá tillögu um að skattleggja bifreiðaeigendur með vegatollum, og fékk viðurnefnið Jón Vegatollur! Nú það féll ekki vel í Íslenskan almenning þá, og áður en að þingi var slitið í vor kom Sigurður Ingi með að setja vegatolla á öll jargöng á Íslandi sem eru í dag til að bjarga vegabótum! En blessaður gerir sér ekki grein og eða hefur ekki spurt blessaðann ráðherra fjármála í hvað gjöldin hafa farið sem áttu að renna til Vegagerðarinnar um það bil 70% en varð um 11% á endanum? Kannski fór eitthvað af peningunum í að borga skuldir ríkisins í A og B hluta LSR? Því undanfarinn áratug hefur almenningur þurft að súpa seyðið af ofurlífeyrisskuldbindingum sem renna inn í LSR! Og Seðlabankinn þegir, því stjórnendur þar eru með sín réttindi hjá LSR og líka sérstakan Seðlabankasjóð sem enginn má vita af! Þannig að nú þarf vesalings ráðherra fjármála að skera niður allstaðar og segja upp öllum flokksbitlingum svo hægt sé að spara í RÍKISÚTGJÖLDUM! Bara 390 milljónir á ári,og borga fyrir matinn líka eins og almenningur þarf að gera!! Og hafa venjulegt orlof ca 30 daga, en ekki á fullum launum við að gera ekki neitt í nokkra mánuði, þegar að sumir hverjir  eru að skemmta sér erlendis á fullum launum í einhverja mánuði?

Örninn


Innflutningur eldsneytis ofl!

Mikið hafa hækkanir eldsneytirverðs verið rosalegar á Íslandi undanfarnar vikur og hækkar verðið jafnt of þétt! Og lækkar líka ERLENDIS?! Og sem betur fer græðum við skattgreiðendur með hækkandi álögur á eldsneyti í dag til VEGAMÁLA sem verður í dag til þess að Íslendingar þurfa ekki að borga eitt né neitt og fá krónutölu niðurfellingu á tilvonandi VEGATOLLA því Íslenska Ríkið skuldar tugi milljarða til vegaframkvæmda! En einkavinavæðingin er STERK!! Spurning eru rafbílar undanþegnir sliti á götum og Bifreiðagjöldum? Kannski eitthvað skítamix þeir peningar færu kannski til að bjarga skítmixi í vildarvinapoti líka svo að RÍKISSTJÓRNIN skili einhverjum 250 milljarða arði síðan 2013 frá ýmsum fyrirtækjum? til þjóðarinnar, þannig að almenningur þurfi ekki að borga aftur annað ÍSLANDSBANKAHRUN með hjálp SEÐLABANKANS!!!!

Örninn


Kjördæmapot Landeyjarhafnar ofl

Já Landeyjarhöfn hefur kostað íslenska alþýðu um 34 milljarða, og sér ekki fyrir endanna á kostnaði! En því miður voru til vitringar sem að hlustuðu ekki og tóku alls ekki við ábendingum fólksins á svæðinu, því vitringarnir vissu betur, heldur var allt keyrt í gegn á alþingi! Nú Vaðlaheiðargöngin, sama þar 100 milljarðar farnir með ríkisábyrgð? En svo á aftur að láta almenning finna fyrir hækkunum framundan, og blessaðir kvótakóngarnir eru FRIÐHELGIR, þó svo sumir fari á hausinn, ekkert finnst í búinu, samt keypt sér risahús einhversstaðar! Það borgar sig að vera í póliTÍK í ýmsum flokkum!!

ÖRNINN


mbl.is Göng slegin af vegna kostnaðar og óvissu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eldsneytisverð

Jæja kæru Íslendingar. Nú hef ég tekið eftir 8 króna hækkun á eldsneyti undanfarna daga hjá öllum olíufélögunum! Og þess ber að gæta að þessar byrgðir voru keyptar og afhentar fyrir rúmum  mánuði síðan! Nema að það hafi komið eldsneytisflugvélar með 8900 tonn síðasta mánuðinn!! En því miður þá er víst ekki hægt að hrófla við verðhækkunum á eldsneyti vegna fjölskyldutengsla margra innan ríkisstjórnarinnar sem hafa dulin eignarhaldstengs í kaupum á ýmsum aðdráttum! Og því miður vill einn alls ekki að ríkið tapi neinu, en samt 35 miljarðar gefins til? Þannig að ég held bara að sá sem ræður fjármálum ætti að sjá sóma sinn í því að setja stopp á ofurgróða olíufélaganna og kannski þjóðnýta arðinn til hagsmuna fyrir alþjóð. En það má ekki því miður þá verða Íslenskur alenningur ríkari en BB mafían og allt sem er í kringum hann! Þvílíkur hroki sem ég sá á fundinum, er þá ekki gott að láta þennan skratta standa skil á undirskriftun í Sjóvá skjölunum sem hafa farið leynt og ekki mátt minnast á í sambandi við Pabba? Nei BB er ekki heilagur og að Kata litla ásamt Sigga Vegatolli skuli sytja áfram er hneyksli! Margir norrænir ráðherra hafa sagt af sér fyrir miklu minna, en Vellygni Bjarni segist ekkert hafa gert og er frjáls með stuðningi Kötu litlu og Sigga vegatolls! Það er komin tími til að Katrín axli ábyrgð og slýti þessu ástarsambandi við BB enda hefur hún ekki spurt sína félaga innan VG hvernig það fór eftir síðustu kosningar þar sem að hún sveik marga af sínum kjósendum! Og til að botna þetta þá þufa Íslendingar ekki að borga eina einustu krónu í Vegatolla, því Íslendingar eru löngu búnir að borga malbikun allan hringinn í kringum Ísland og líka vegaslóða að Býlum! Þeir peningar sem hafa farið í hitt og þetta hjá ríkisstjórninni fóru ekki á rétta staði, heldur í bruðl á ýmsum sviðum! Fjölga í stjórnsýslunni, koma bitlingum að og tala nú ekki um pólítískt skipaða sendiherra ( konur ) sem hafa ekki hundsvit á hinu og þessu! En svona er póliTíkin á Íslandi og þetta vill fólk spillinguna áfram og almenningur mergsoginn svo Íslenska auðvaldsmafían græði meira!!

Örninn


Af hverju?

Hverjir eru að vernda þjóðina fyrir öllu þessu fári? Það eru sóttvarnayfirvöld, og Þórólfur hefur lagt fram ótal minnisblöð til ráherra síðan að þetta fár lagðist yfir okkur Íslendinga ofl! Og jú það eru skiptar skoðanir innan ríkisstjórnarinnar um sóttvarnareglur! Því miður innan ríkisstjórnarinnar þá eru hagsmunir annarra sem ráða ríkjum heldur en lýðheilsa! Þórólfur talaði um að fresta skólastarfi, en Katrín J vildi halda skólastarfinu óbreyttu! Nú eru skólabörn og foreldrar farnir að súpa seiðið af vanvitahætti og aumingjaskap ríkisstjórnarinnar, að hafa ekki hlustað á Þórólf ofl! Peningar skipta máli og þá er ágætt að herða róðurinn í tekjuöflun til ríkissjóða að skattleggja auðmenn eins og BB ofl og innheimta hundruðir milljarða frá kennitöluflakkara vinum ýmissa! Og líka hækka auðlyndagjaldið svo almenningur fái að njóta þess á elliárunum  þá er ég að tala um unga fólkið í dag sem við því miður Íslendingar fáum ekkert af, bara arður til vildarvina!

Örninn

 


mbl.is „Skólar loka ef ekki er hægt að halda úti mannskap“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Örn Ingólfsson
Örn Ingólfsson

Er í mjög góðri vinnu. En get verið með ýmsar hressilegar skoðanir sem öðrum finnst stangast á við þeirra skoðanir og ég virði skoðanir annara þrátt fyrir bölv og ragn!

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 9858

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband