Færsluflokkur: Kjaramál

ÚTBOÐ HVAÐ

Það þarf ekkert útboð, koma þessu fólki af stólunum til að sinna sinni vinnu, og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar með hversu marga starfsmenn og aðstoðarmenn ( konur) á fullum launum sem hafa svo kanski ekki hundsvit á Heilbrigði! Það þarf bara eitt að Íslenska ríkið taki yfir þennan málaflokk fyrir allt landið,ekki einhverja sem hafa ekki hundsvit á hvernig á að meðhöndla kjöt, fisk og vinna við afurðirnar! Efast um að starfsmenn hafi komið nálægt því að þurfa að taka upp og meðhöndla hræ að dýrum, kannski aðstoðarmenn (konur)sjái um skítverkin? Nei upp úr stólunum, og Einar borgarstjóri segðu stopp við kjéllingarnar hans DAGS. Láttu þær fara að vinna útávið með almenningi, sópa götur ofl! En ææ nýju 200 þúsund króna neglurnar brotna óvart!

Komið nóg Einar með bruðlið og ósómann, fækkaðu aðstoðarfólkinu svo hægt sé að spara, húsleigan hjá mér hækkaði um nokkur þúsund um mánaðarmótin! Hefði kannski ekki hækkað nema fyrir eymingjaskap og dugleysi, hræðslan við kjérlingarnar hand Dags? Bara spyr? Kjarasamningarnir nýyfirstaðnir!!

Örninn


mbl.is Kerfi heilbrigðiseftirlitsins úrelt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er gróðafýknin að drepa lónið?

Nú er komið að því að jarðvísindamenn og stjórnvöld: Almannavarnir loki lóninu í ótilgreindan tíma! Nógu mikið af almannafé fóru í að byggja varnargarða,og það svíður mest að bjarga lóninu til að bjarga stöðvarhúsi með famhjáhlaupi í varnargarði svo lónið yrði ekki fyrir skemmdum! Vonandi í framtíðinni borgar eigandi lónsins til baka þá fjármuni sem hann fékk frá Ríkissjóð í formi ýmissa hlunninda og niðurfellingu á VSK! En það er borin von að Íslenskur almenningur fái eitthvað til baka frá lóninu nema? Má bjóða yður 5% afslátt?!

Svona er sala á eignum sveitafélaga og Ríkisins , og peningapúkarnir stökkva á bitann og okra svo á almenningi og ferðamönnum!

 

Örninn 

 


mbl.is Skammur fyrirvari veldur áhyggjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað varð um aðgreiðslunrnar?

Nú á að klára sölu Íslandsbanka, hvað sem heitir! Vellygni Bjarni var saklaus af sínum syndum, og skipti um stól, en gleymdi alltaf áður en að hann settist á ráðherrastól að gera grein fyrir eignarhaldsstengslum við fyrri sölu til ættingja og vildarvina! Nú skal ganga hart fram í sölu HLUT ALMENNINGS á ÍSLANDSBANKA TIL  VILDARVINA! ER EKKI KOMIÐ NÓG? 28 milljarðar sem voru greiddir í ARÐ til svokallaðra hluthafa í Arionbanka, 30 milljarðar í arð í Íslandsbanka, því miður er Seðlabankinn sem er fjárhirðir Landsbankans ekki kominn með opinberar tölur fyrir arðgreiðslur 2023 og opinber laun þingmanna og fleiri bitlinga í stjórnarsetu  LANDSBANKANS!!

Þjóðaratkvæðagreiðslu um sölu á Bönkum ofl!! 

Kjérlíngin tók við af Púngnum til bjargar ættinni!!

Nei enga sölu á einum né neinum bönkum, 98 milljarðar tapaðir af sölu BANKAHLUTA til erlendra fjárfesta undanfarin 3 ár sem ALMENNINGUR VARÐ AF MEÐ EINOKUN BANKAÞJÓNUSTU OFL!Engin furða að Seðlabankinn sé með vextina í hæstu hæðum, því ERLENDIR AUÐKÝFINGAR EIGA ÍSLENSKA  BANKAKERFIÐ MEÐ HJÁLP ÞINGMANNA OG RÁÐHERRA SEM BYRJUÐU AÐ SELJA OG VILJA SELJA MIKLU MEIRA, LANDSBANKINN FER KANNSKI UNDIR EINHVERJA AÐRA GREIÐSLUMIÐLUN SEM VERÐUR UNDIR SEÐLABANKANUM OG EÐA ERLENDUM BÖNKUM?

KOMINN TÍMI TIL AÐ ALMENNINGUR VAKNI OG FARI AÐ HÆTTA AÐ NOTA DEBIT OG EÐA KREDITKORT TIL GREIÐSLU, ÞVÍ Á ÞESSU GRÆÐA BANKARNIR! En eitt gott ráð fyrir þá sem komast ekki í banka og nota ekki nein kort er að fara í bankaútibúið sitt, ef þú kemst ekki,fá hjálp frá bankanum til að sinna erindinu í gegnum símann,sem kostar peninga: Númer 295 í röðinni!! 

Það versta er að þá koma ribbaldarnir sem margir eru til að sigta út þá sem eiga peningana falda undir koddanum! Því miður er seðlabankanum ekki treystandi fyrir mínum krónum, jú kannski ef að ég ætti eitthvað erlendis í skattaskjólum og tala nú ekki um kennitöluflakk!!

Örninn


mbl.is Stefnir á útboð í Íslandsbanka í ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Laun Þingmanna og frítími á fullum launum ofl

Mikið væri nú gott að þingmenn hugsi um kjör aldraðra og öryrkja á sínum ofurlaunum með AÐSTOÐARMENN og KONUR sem við almenningur borgum fyrir!! Ekki var gert fyrir öllum aðstoðarmönnum ( konum, hvár osfrv )þegar að ríkisstjórnin byrjaði annó 2013! En það er gott að hafa bitlingana ( vini, ættingja ofl ) sem á eftir að kosta RÍKISSJÓÐ í ellilífeyri til bitlinganna allra 560 milljónir, og veit ekki hvort að Tryggingastofnun gangi rosalega hart gegn bitlingum stjórnarflokkanna, eins og Tryggingarstofnun gengur hart fram gagvart ALMENNINGI! Því miður þá eru ÞINGMENN ( Sumar Kjérlingar ) ekki að vinna fyrir ALMENNING, heldur vildarvini oG AUÐVALDIÐ ÞAR MEÐ TALIÐ BANKANA!! Og spurning af hverju er auðvaldið sem á Ísland á móti Þjóðaratkvæðagreiðslum  um ýmis mál, og Þjóðin fékk ekkert um það að segja Þegar að Gunnar Bragi Sveinsson flaug óvænt út til Brussel með bréf og ætlaði að enda aðildarumsókn Íslendinga um aðild að Evrópusambandinu! Sem tókst ekki, og þá kom í ljós að jarðskjálfti varð innan Auðvaldsmafíunnar, og Seðlabankans! Því ef að við værum í ESB, þá hefðum við ekki verið í þessum sporum í dag, með óstjórn í Fjármálum! Því það má ekki kafa í gjörninga og spillingu sem er ennþá, og almenningur borgar ennþá til Auðvaldsmafíunnar sem á Ísland, eftir hrunið 2008 og græða ennþá! Ábyrgð? Nei það hefur enginn þurft að taka ábyrgð á sig, og 500 milljarða lán til banka, hvert fóru þeir? Kannski upp á Hádegismóa og eða Sviss, Tortóla, Bresku Jómfrúareyja bara skattaskjól! Þá er kominn tími til að nýtekin við Fjármálaráðskona fái óháða erlenda rannsakendur til að kanna hvað varð um 500 milljarða ásamt því sem hefur lekið út út fjárhirslum ríkisins allt fram á daginn í dag! Þarf Íslenska þjóðin að fara í mál gegn Ríkinu? 

Og ef svo er þá verða ekki keyptir Lögfræðingar sem fara í þá vinnu, og það verður dýrt fyrir Íslenska Ríkið, og þá verður sá kostnaður borgaður úr A og B hluta í LSR sem almenningur er að borga í út af handvömm einhvers sem gleymdi einhverju, og skrifaði upp á pappíra fyrir Pabba, og sá hinn sami er kominn með elligöp, því það má ekki segja FRÁ!! Gamla Sjóvá 15 milljarðar hver veit?

 

 

 


Almenningur?

Hver er veruleikafyrrtur almenningur eða Fjármálaráðherra? Blessaður gerir sér ekki grein fyrir vanda almennings, sem blessaður vildarvinurinn hans í Seðlabankanum hefur gert almenningi! Og frábært að minna kjósendur hversu mikið tjón sem ráðherran hefur valdið alþýðu með vesalingshætti, og aumingjaskap ásamt undirlægjuhætti með vildarvinum innan alls geira atvinnulífsins með að hafa ekki sett á stöðvun yfirgengilegra hækkana vildarvina í innflutningsgeiranum og líka eitt að hjálpa ekki almenningi með að styrkja kjör aldraðra og öryrkja! Sá blæs sér á brjóst um hitt og þetta en getur ekki svarað því með að kjör aldraðra og öryrkja hafa ekki fylgt almennum launakjörum síðan 2013! Katrín brosir og segir að allt sé í lagi! Fólk sem er á almennum leigumarkaði hefur þurft að borga 20-90+ þúsundum meira eftir síðasta gerræði Seðlabankastjóra! Mín leiga hækkaði um 32 þúsund! Þannig að það er gott að vera með milljón+ á mánuði í tekjur eftir skatt, en það er slæmt að vera með kannski 250 þúsund eftir skatt og húsaleiga 198 þúsund+ og geta ekki gefið börnunum að borða!!

Svona er raunveruleikinn sem því miður að margir milljónamæringarnir á Alþingi á sínum launum  sjá ekki og margir vilja ekki kannast við því að það er ekki til fátækt á Íslandi!!!! 

Örninn

 


mbl.is „Þá væri ég eini flokkurinn á Alþingi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verðbólgan og Seðlabankinn

Andskotans bölvaðir sauðir sem almennur launþegi er! Að sögn milljónamæringsins sem stjórnar Seðlabankanum þá er almenningi um að kenna VERÐBÓLGUNNI!! Og básúnaði um eyðslu almennigs og talaði um táslumyndir frá TENE í sambandi við bruðl almennings! En sá hinn sami sagði ekki frá eyðslu Seðlabankans og ráðuneyti fjármála í kostnaði ýmissa ferða erlendis á kostnað SKATTGREIÐENDA! Vonandi eru til opinberir reikningar fyrir öllum útgjöldum þannig að almenningur geti séð í hvað okkar skattpeningar fara! Það verður vonandi ekki einhver forseti alþingis sem vill ekki opinbera spillinguna samanber Lindarhvolsmálið, sem á víst að þagga niður, eins og var gert með ýmis skjöl sem mátti ekki birta, en eftir kosningar þá voru skjölin birt, og þá kemur það að ALÞJÓÐ mátti ekki vita um innihald skjalanna, því þá hefði þessi óríkisstjórn aldrei verið komið á koppinn! Og þess vegna segi ég það að í næstu kjarasamningum næsta haust, þá verður stríð, því almenningur er búinn að fá upp í kok á sinnuleysi Stjórnvalda gagnvart almenningi, og það versta er að hlusta ekki á Verkalýðsforystuna! Samtök Atvinnulífsins verða í harðri baráttu, en kannski setur ríkisstjórnin einhverja milljarða loforð um hitt og þetta sem verður svikið eins og venjulega! 25% síðustu 6 1/2 ár og restin á næstu 100 árum? Nei Bjarni Ben þarf að fara að girða sig í brók og ná í peningana frá vildarvinum og BÖNKUM!Því bankarnir græða með hjálp Seðlabankans, og ráðherra fjármála vill ekki hækka Bankaskattinn, því þá hætta vildarvinir ofl að græða! Sama með hátekjuskattinn, og auðlyndagjaldið!! Þá tapa allir vildarvinirnir og ekkert kemur í flokkssjóðinn ofl? Bara spyr?

Örninn  


Er dómsmálaráðherra starfi sínu vaxinn?

Vegatolls Jón ætlar að skera niður kannski með hjálp Sigurðar vegatolls? Hvernig væri það að hyskið í Ríkisstjórn færu að hugsa um almenning, ekki vildarvini sem eiga Ríkisstjórnina! Það má víst ekki mótmæla fjármálaráðherra, svo hann reiðist ekki! Útlendingarfrumvarp sem háttvirtur dómsmálaráðherra setti fram og hefur tekið tíma Alþingis vegna ágreinings um frumvarp Dómsmálaráðherra! Það er ekki í lagi með Ríkisstjórnina, því verðbólgan sem hækkar allt í boði Ríkisstjórnarinnar, þá vogar fjármálaráðherra að segja það opinberlega að hækkanir um síðustu áramót séu bara 0,02% af Verðbólgunni! Kaupmáttur launa hefur ekki batnað hjá almenningi heldur þvert á móti!Sá kaupmáttur launa sem fjármálaráðherra vísar alltaf til er EKKI kaupmáttur almennings sem er ekki á Elítuplánetunni! Af hverju má þá ekki hækka skatta á þá sem eiga peninga,og af hverju má þá ekki hækka auðlyndagjald og hækka bankaskattinn? Og af hverju druslast fjármálaráðherra ekki til og segir Alþjóð sannleikann með Sjóvá ævintýrið ásamt fléttum í sambandi við Engeyjar gjaldþrotin! Nei það má víst ekki! Enda hræddur við að sannleikurinn komi í ljós þegar að allt verður rannsakað eftir hans ofl tíma er lokið á þingi! ESB bíður eftir að komast í gögnin hjá Seðlabankanum ofl og þá kemur kannski eitthvað skítugt í ljós? Ríkisstyrktir stjórnmálaflokkar?

Örninn

 


mbl.is Ákvörðun um söluna verði mögulega dregin til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Almenningur að borga aftur

Jæja bankahrunið hafði af Íslenskum almenningi 2500 milljarða, og því miður þá komu bara ? milljarðar í ríkiskassann eftir einkavinavæðingu bankanna þá! Íbúðalánasjóður er aðal sökudólgur eftir hrunið að koma fólki á götuna með ákvörðunum og atbeina sýslumanna og braskara sem keyptu eignir á spottprís á nauðungaruppboðum! Og margir braskaranna eru stóreignamenn í dag, og fela auðinn í steypu og uppkaupum á ýmsum eignum til að halda fjármagninu gangandi. Því miður þá er ekki til mannskapur eftir niðurskurð til Skattrannsóknarstjóra, því það má víst ekki rannsaka vildarvini og KENNITÖLUFLAKKARA vini fjármálaráðherra! En svona vilja Íslendingar hafa þetta að halda kjafti og láta troða á sér endalaust! Og það er ágætt að fá vildarvin sem er löggiltur? fasteignasali að meta fasteign niður um 50% ! En það gekk ekki því sá fasteignasali fékk á baukinn í sambandi við það mat!

Bara hver er ábyrgur? Enginn sem ræður, en ef að manneskja stelur 4500 krónum og tekin og fær svo dóm upp á 30 daga skilorð í 2 ár þá hefði sá sami sloppið við allt, ef að flokkurinn hefði verið réttur! Nei Íslenska dómskerfið er rotið, steldu sem mestu og þú færð klapp á kinnina (Svíktu sem mest undan skatti fáðu gjafagjörning á veiðiheimildum og farðu svo á hausinn ) Og byrjaðu upp á nýtt með nýrri kennitölu!

Þetta er hægt og ekkert mál almenningur borgar allt saman fyrir þurfalingana ( arðgreiðslur upp á tuga eða hundruð  milljóna og eða milljarða ) sem tíma ekki að borga mannsæmandi laun fyrir sína erlendu starfsmenn í vinnunni og lifa mjög hátt og tala nú ekki um einhver efni?

PS: Hvernig væri nú að taka af verðtryggingu launa, lífeyris ofl hjá Ríkisstarfsmönnum og setja á krónutöluhækkanir til að viðhalda stöðugleika í lífeyrismálum! Ríkið skuldar LSR (Lífeyrissjóður starfsmanna Ríkisins) lífeyrisgreiðslur í dag 22 milljarða, voru 45 milljarðar fyrir einhverjum árum þanniga að almenningur borgar ennþá undir lúxusinn hjá þurfalingunum sem líta niður á almenning!

Örninn 

 


mbl.is Lífeyrissjóðirnir í samstarf vegna stöðu ÍL-sjóðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íbúðalánasjóður?

Jæja nú er komið að skuldadögum!Fjármálaráðherra vill slíta Íbúðalánasjóði og kemur þá upp sama spurningin hjá almenningi annað Icesave, Landsbankinn gefinn aftur, Íslandsbankinn seldur í pörtum til vildarvina og ættingja? Svo segir sá ráðherra að það þurfi samningaviðræður við eigendur ríkisskuldabréfa sem fjárfestu í Íbúðalánasjóði! En það versta er að ráðherrann hefur gleymt ýmsum gjörningum frá því fyrir bankahrunið, eða veit ekki neitt? En eitt verður ljóst að ef kemur til skerðinga í almenna lífeyriskerfinu út af handvömm sem að ráðherrann samþykkti á alþingi 2005 í sambandi við Íbúðalánasjóð ásamt fleyrum, þá kostar það Íslenska bitlinga vonandi að lífeyrir þeirra allra sem eru með ævilífeyri frá ríkinu verðtryggðan skerðist um 85%, því það er ekki sama að vera með lífeyrir útborgaðann eftir skatt hjá almenningi 290 þúsund -+ og allt eftir að borga til dæmis húsaleigu. En því miður þá þurfa sumir ráðherrar að vera með þjónustufólk og aðstoðarmenn á okkar kostnað og við getum ekki fengið aðstoðarmennina lánaða þó ekki væri nema til að ryksuga! Þá er kominn tími til að verðtryggja laun almennings aftur, því það bítur ýmsa!

Örninn


Landeyjarhöfn ofl!

Bölvað framapotið hjá þáverandi samgöngumálaráðherra sem tók ekki mark á tillögum alls fólksins á svæðinu! En einhverjir burgeisar ásamt stjórnendum Vegagerðarinnar þá ákváðu að Landeyjarhöfn skyldi reist þarna, þrátt fyrir allar mótbárur! Enda kostnaðurinn sem er kominn hátt í nýja Sæbrautarstokkinn sem almenningur er löngu búinn að borga, en því miður þá er það versta að ALMENNINGUR sem hafa margir jafnvel lítið á milli handanna að þurfa að borga fyrir glæfraskap misviturra manna, sem segja bara ég veit og ég ræð! Sama með Ráðherra sem er kannski dýralæknar, og eða eitthvað annað og hafa ekki hundsvit á málaflokkinum sem tilheyrir þeirra starfi! Samgöngumálin eru sér á parti, og bölvaður verði Sigurður Ingi vegatollur ( Tók við af Jóni Vegatoll ) ef að Sigurður ætlar í vegferð með vegatollana! Þá er ágætt að minna Sigurð Vegatoll á að Íslendingar eru löngu búnir að borga öll gjöld í VEGAFRAMKVÆMDIR og þá er komið að Katrínu Jakobsdóttur að ná inn öllum hundruða milljörðunum sem almenningur á inni fyrir afnot af AUÐLYNDINDINNI OKKAR ALLRA OG TALA NÚ EKKI UM HÁTEKJUSKATTINN OG BANKASKATTINUM! En það má ekki því sú stutta brosir bara sínu besta og segir að allt sé í lagi! Og þá er það spurningin, er flokkurinn hennar að þurrkast út? Vanhæfni hennar? Fylgistap út af sviknum loforðum? Allavegana þá er það að sú stutta styður allt sem að henni er sagt að styðja, enda engin furða að peningarnir (vesæla krónan) flæði úr landi! En í næstu kjarasamningum verður vonandi farið fram á það að allir ÍSlenskir launþegar fái greidd sín laun í Evrum, því það á að ganga jafnt yfir alla, samanber margt hátekjufólk sem semur um sín launakjör í Evrum!

Örninn


mbl.is Bilanir og höfnin oft ófær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Örn Ingólfsson
Örn Ingólfsson

Er í mjög góðri vinnu. En get verið með ýmsar hressilegar skoðanir sem öðrum finnst stangast á við þeirra skoðanir og ég virði skoðanir annara þrátt fyrir bölv og ragn!

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 113
  • Frá upphafi: 9827

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 107
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband