Landeyjarhöfn ofl!

Bölvað framapotið hjá þáverandi samgöngumálaráðherra sem tók ekki mark á tillögum alls fólksins á svæðinu! En einhverjir burgeisar ásamt stjórnendum Vegagerðarinnar þá ákváðu að Landeyjarhöfn skyldi reist þarna, þrátt fyrir allar mótbárur! Enda kostnaðurinn sem er kominn hátt í nýja Sæbrautarstokkinn sem almenningur er löngu búinn að borga, en því miður þá er það versta að ALMENNINGUR sem hafa margir jafnvel lítið á milli handanna að þurfa að borga fyrir glæfraskap misviturra manna, sem segja bara ég veit og ég ræð! Sama með Ráðherra sem er kannski dýralæknar, og eða eitthvað annað og hafa ekki hundsvit á málaflokkinum sem tilheyrir þeirra starfi! Samgöngumálin eru sér á parti, og bölvaður verði Sigurður Ingi vegatollur ( Tók við af Jóni Vegatoll ) ef að Sigurður ætlar í vegferð með vegatollana! Þá er ágætt að minna Sigurð Vegatoll á að Íslendingar eru löngu búnir að borga öll gjöld í VEGAFRAMKVÆMDIR og þá er komið að Katrínu Jakobsdóttur að ná inn öllum hundruða milljörðunum sem almenningur á inni fyrir afnot af AUÐLYNDINDINNI OKKAR ALLRA OG TALA NÚ EKKI UM HÁTEKJUSKATTINN OG BANKASKATTINUM! En það má ekki því sú stutta brosir bara sínu besta og segir að allt sé í lagi! Og þá er það spurningin, er flokkurinn hennar að þurrkast út? Vanhæfni hennar? Fylgistap út af sviknum loforðum? Allavegana þá er það að sú stutta styður allt sem að henni er sagt að styðja, enda engin furða að peningarnir (vesæla krónan) flæði úr landi! En í næstu kjarasamningum verður vonandi farið fram á það að allir ÍSlenskir launþegar fái greidd sín laun í Evrum, því það á að ganga jafnt yfir alla, samanber margt hátekjufólk sem semur um sín launakjör í Evrum!

Örninn


mbl.is Bilanir og höfnin oft ófær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Afhverju ættu launþegar að semja um að fá greitt í erlendum gjaldmiðli gefnum út af hlutafélagi í Frankfürt sem við höfum enga stjórn yfir sem er þar að auki óstöðugri en sá sem við þegar höfum?

Það myndi ekki lækka verðlag á Íslandi að umreikna verðin yfir í aðra mynteiningu, þvert á móti hafa verð víðast hækkað í löndum þar sem evra hefur verið tekin upp, til dæmis í Hollandi.

Hvaða hátekjufólk semur um sín launakjör í evrum? Ef þú ert að meina fólkið sem skammtar sér launin sín sjálft, þá er það ekki venjulegt launafólk og alls engir þáttakendur í kjarabaráttu almennings.

Vertu feginn að Ísland er ekki hluti af meginlandi Evrópu miðað við hvernig ástandið er þar núna og fer bara versnandi.

Guðmundur Ásgeirsson, 15.10.2022 kl. 14:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Örn Ingólfsson
Örn Ingólfsson

Er í mjög góðri vinnu. En get verið með ýmsar hressilegar skoðanir sem öðrum finnst stangast á við þeirra skoðanir og ég virði skoðanir annara þrátt fyrir bölv og ragn!

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 9861

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband