Færsluflokkur: Bloggar

Hækkanir á hækkanir ofan!

Jæja þá fær nú almenningur skellinn frá ríkisstjórninni samanber fréttir í Rúv kl 18,00. Þá ætti Ríkisstjórnin að hunskast til þess að Frysta allt vöruverð strax því allar þessar gegndarlausu hækkanir allt frá bankahruninu hafa nú skilað milljörðum til þeirra sem grætt hafa en engu nema eyðslu á þessum örfáu krónum sem að almenningur fær í laun til að kaupa brýnustu nauðsynjar til að lifa af.  Ég hef bloggað um að frysta vöruverð en það hefur ekkert verið gert og á meðan bláa höndin var við völd þá hefur örugglega ekki mátt minnast á það vegna flokksgæðinganna sem reka hin og þessi fyrirtæki sem flytja inn matvæli og ótalmargt annað! Nei nú er komið nóg og verkalýðsforkólfarnir sleikja sig bara upp við þessa ríkisstjórn nú ekki eru verkalýðsforkólfarnir búnir að lækka launin sín!!! Og við almenningur tökum ekkert annað í mál að fá hækkunina á launin okkar strax sem að verkalýðsforkólfarnir samþykktu að fresta án þess að spyrja sína félagsmenn. Takið til höndunum og hreyfið rassgatið upp af stólunum og mótmælið þessu verkalýðsforkólfar annars verður allt vitlaust í þjóðfélaginu og hækkunina okkar strax. Nóg er komið og eins setjið Hátekjuskattinn á nú þegar þá mætti kannski lækka þessar hækkanir en það má kannski ekki minnast á það að setja hátekjuskattinn á strax því að ég held að Íhaldið sé ennþá með puttana í öllu með öllum sínum kjaftagangi á Alþingi og utan þess. Það má víst ekki hrófla við íhaldinu. Nú sjáið hvað blessað íhaldið gerði í Reykjavík hækka leikskólagjöld! Það var vitað hvað íhaldið ætlaði sér með að komast aftur í Borgarstjórn enda hefur það verið þeirra stefna að hækka á almenning en ekki hrófla við vinum sínum. Sjáið bara bruðlið í íhaldinu og spillinguna sem hefur komið upp á yfirborðið undanfarna mánuði!

Örninn


Ofsaakstur?

Nei aldeilis ekki vegna þess að það eru til Tölvuleikir sem að heita Grand Theft Auto í allar tölvur þar sem að það er gert út á hraða og jafnvel manndráp til að safna? Og krakkar og unglingar lifa sig inn í leikinn og finnst það kannski sjálfsagt eftir að foreldrar og aðrir forráðamenn hafa kannski leyft þeim að keyra bíl 12-15 ára í götunni heima hjá sér lokaðri eða ekki! Nú þurfa foreldrar að vakna og ég hef séð keyrandi um göturnar í Æfingarakstri Stóra Jeppa með merkið aftan á þar sem að unglingurinn fær ekki réttindi til að keyra þann stóra bíl fyrr en eftir vissan tíma og viss réttindi! Þess vegna finnst mér það lágmark að Lögreglan og Umferðarstofa ættu að einbeita sér í því hverskonar ökutæki væru á heimilinu og hafa þá aðgreiningu á litum það er að segja að unglingur í æfingarakstri og forráðarmaður mætti ekki vera á kraftmeiri bíl en kannski 1200 cc, ca 75 hestöfl eða samanber reglur úti í Noregi! En að sjá 17 ára krakka á mörg hundruð hestafla bílum er algjör fásinna, nú hverjum er það að kenna? Löggjöfin! Nei nú er komið nóg enda hafa margar fjölskyldur blætt mikið fyrir mistök ýmissa sem að hafa kitlað pinnan og margir af þeim sem að hafa lent í því að hafa deytt fólk sloppið ótrúlega vel því miður út af Íslenskum Lagagloppum sem að Tryggingafélögin hafa nýtt sér í gegnum árin og Sjóvá verið þar verst því miður! Enda blessaðir hafa pínt fólkið alveg fram á það síðasta en sem betur fer þá fá þeir ekki meira frá fólkinu spilling hvað? Nú Ríkið borgaði þegar að allt var í tapi og samt hækkuðu Bílatryggingar og samt gátu Tryggingafélögin greitt arð til sinna fjárfesta! Ætli að formaður sjálfstæðisflokksins hinn nýi hafi vitað af þessu? Nei Kóngurinn sagði Leyndó! Hækka svo að peningarnir myndu streyma inn í kassann til Vildarvina!!!! 

Örninn


mbl.is Umferðarslys vegna ofsaaksturs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eiturlyfjasmyglarar

Jæja það var nú einn gripinn í Brasilíu um daginn ungur maður sem að lenti á glapstigum hér heima fyrir einhverjum árum? Nú ég verð að segja það að ég er ekki harðbrjósta maður en ef að eiturlyf koma við sögu þá verð ég vondur! Ég er ekki fíkill á svoleiðis efni samanber þjóðþekktar persónur og ekki veit ég það hvort að það hafi verið fínt að hafa verið í svoleiðis jukki kannski var þetta tískan á þeim tíma og ennþann dag í dag veit ekki samanber þjóðþekkta persónur! En fyrir utan það þá er þessi ungi maður heppinn að vera í Brasilíu ekki í Mið Austurlöndum þar eru aftökur daglegt brauð yfir fíkniefnasmyglurum. Nú það á eftir að ganga dómur í málinu en ég segi bara eins og meirihluti þeirra sem að ég hef talað við að láta hann sitja af sér dóminn úti í Brasilíu því hann fór út í þetta til að hans sögn að losna við fíkniefnaskuld! Nú af hverju talaði hann ekki við Lögregluna hérna heima svo að hægt væri að ná toppnum? Nei honum var hótað og hann píndur til að fara þessa leið! Já ekki er honum vorkunn við á Íslandi erum með virkilega góða Fíknó og að það skuli koma fólk frá ýmsum löndum til að læra af Fíknó það segir sína sögu! En fyrir utan það þá eigum við Íslendingar ekki að vera að stofna einhverja sjóði og eða bankareikninga til hjálpar eins og einn faðir sagði þegar að strákurinn hans var tekinn utanlands fyrir fíkniefnasmygl: Þetta eru hans mistök hann verður að taka afleiðingum gjörða sinna! Ekki var þessi faðir harðbrjósta hann elskaði soninn og benti bara á það rétta! En ekki á almenningur að borga undir drenginn og fjölskylduna hans í kreppunni Íslendingar eiga nóg með sjálfa sig! Væri ekki nær að safna fyrir fleiri Fíkniefnahundum og eða þá að safna fyrir Hjálparstofnanir fyrst að farið er með söfnun af stað, hver króna skiptir máli. Því miður er ég bara svona!

Örninn


Svínaflensa? Inflúensa af A eða B stofni? Og skrif um hitt og þetta

Allt í lagi með svínaflensuna en gæti það nú ekki verið að þetta séu kannski afleiðingar Eiturefnatilrauna stórveldanna á þeim tíma sem að kalda stríðið stóð yfir og líka eftir það! Gæti það verið að þessum vírus(um) hafi verið plantað vísvitandi til að athuga útbreiðslu? Samanber Lyfjafyrirtæki? Ekki nema að einhverjir hryðjuverkamenn hafi komist yfir Sýkla sem að hægt er að dreyfa um allt og enginn sér til! Nú Bush stjórnin í USA kallaði á róttæka sókn gegn Terroristum eftir árásirnar 11 september 2001 en það skal tekið fram að ég styð ekki Íslamska öfgamenn sem að heilaþvo sína þegna sem að kunna ekki að lesa og eða skrifa og þurfa að hlusta á bölbænir gegn öllum sem að  aðhyllast ekki Kóraninum í gegnum útvarp og eða fjölfaldaða Jihad geisladiska!hlusta á enda sannast það að allt þetta fólk sem að hefur sprengt sig í loft upp til að drepa aðra þar voru allt að 98 prósent af körlum og konum ólæst og óskrifandi en lenti í klónum á þeim sem að kunnu að lesa og skrifa og þá var Kóraninn lagður út á eitt að allir aðrir en Íslamistar væru Glæpamenn og þá ætti bara að gera JIHAD!  Samanber Réttdræpir? Heilaþvottur?  Nei en fyrir utan það að Bush fór í stríð í Írak og Afganistan en af hverju mátti ekki fyrrum Bandamaður Bush Sr og Jr lifa? Nei hann vissi of mikið um leynimakkið í CIA og NSA! Bandarísk stjórvöld studdu Saddam Hussein á sínum tíma og líka Osama Bin Laden þegar að Osama var að berjast gegn Rússum í Afganistan og Usa lét smygla vopnum í gegnum Pakistan  en það versta við þetta er að meirihluti vopnanna sem að Usa lét Osama í té er í felum! En svo fór Saddam að hreinsa til með efnavopnum sem að efnafræðingar Saddams lærðu í efnafræðitilraunum hjá CIA, NSA og fleirum óopinberum skuggastofnunum á þeim bæ! Nú hvað gerðist nema að aftökur til að hylma yfir mistökin hjá stjórninni í Usa og aftökur mátti víst ekki minnast á í forsetatíð feðganna! Til upplýsinga þá var Bush Jr sá afkastamesti Ríkisstjóri í Texas í aftökum, og síðast þegar að ég vissi var Jeff Bush Ríkisstjóri í Texas! En það eru mörg mál í gangi í Texas og fleiri fylkjum Bandaríkjanna eftir embættisafglöp dómara og líflát saklauss fólks! Því miður er það svo skrítið með fólk á þeim bæ það er: Skjóta og spyrja svo! Ekki myndi ég vilja vera saklaus Íslendingur skotinn inni í garði fyrir að vera að leita að ánamöðkum! En það eru ekki mörg ár í þetta hérna heima því engin refsing og  ekkert fangelsi! Kannski sleppt út eftir? Smá hvítflibbabrot og sendur á Kvýjabryggju í fullu sambandi á Internetinu! í 2-3 ár? Nú það ætti kannski að senda gamla BB og eftirmann BB til USA og láta hann kynnast því sem þar fer fram í refsingum! Þar er ekki nettenging bara algjör einangrun frá umheiminum nema að fangarnir fá að lesa blöð og horfa kannski ef að tíminn leyfir á valdar rásir í sjónvarpi! Ef að þú hefur brotið af þér þar og þa ertu lokaður inni í Fangelsi. Glæpamenn koma til Íslands til að stunda sína iðju vegna þess að það er svo léttir dómar og bara slegið á handarbökin á þeim og þessir hafa ekki landgönguleyfi næstu 5 árin! Nú hvar er Fangelsi? Do í Seðlabankanum byggði ofan á Perluna og þetta forljóta kofaskrifli við Tjörnina! Peningarnir sem að áttu að fara í Fangelsisbygginguna uppi á Ártúnshöfða þeir fóru í Borgarhítina þegar að Do var Borgarstjóri! Nú grunnurinn var tilbúinn í mörg ár en það eru ekki svo mörg ár síðan að þessi húsgrunnur var seldur og eða gefinn? Og ekki er Fangelsið komið og Útlenskir glæpamenn settir í farbann sem að heldur varla neinu vegna fjárskorts og Manneklu í eftirlitinu eftir að Sýslumaðurinn Í Suðurnesjabæ  tók yfir Vopna og allt hitt, og samt sleppa þessir krimmar úr landi! Skrýtið? Nei, Tollgæslan hefur líka lent í niðurskurði þannig að það flæða inn efni vegna hundaeklu! Spara á röngum vígstöðvum! Nei það mætti kannski fækka aðstoðarmönnum Alþingismanna til að hafa nokkra Fíkniefnahunda, ( Vinir og vandamenn) en veit að það mátti ekki hjá BB, en skrýtið að eftir að BB fór þá hvað gerðist í sambandi við fíkniefnin? Fjölgaði ekkieinhverjum handtökum? Nú er almenningur spenntur hvaða forkólfar í skattaskjólunum fjármögnuðu þetta til að fela hin afbrotin!

Örninn

 

 


mbl.is Svín greind með flensu í Kanada
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnmálaauglýsingar á Leikjasíðu!

Það kom mér á óvart í gærkvöldi þegar að börnin mín voru að leika sér á einni leikjasíðu og inni á þeirri leikjasíðu voru Stjórnmálaauglýsingar! Nú áreiti er bannað en að þetta skuli vera inni á svoleiðis síðu þá er mér nú nóg boðið! Nú það kostaði miklar spurningar frá börnunum og varð fátt um svör. En samt þá fannst mér þetta ekki skemmtilegt. Sendi samt vefstjóra þessarar síðu sem er Leikjanet.is ábendingu og lét hann vita af því að þetta væri óæskilegt! Hver viðbrögðin verða veit ég ekki en kannski reyna stjórnmálaflokkarnir allt en því miður eru flestallir skjólstæðingar Íslensku leikjasíðanna börn!

Örninn


Sjálfstæðisflokkurinn að riða til falls og Vinnustaðir líka undan kjaftagangi?

Jæja nú eru allar hendur uppi í X-d að finna lekandann sem að kjaftaði frá leyndó! En það er orðið of seint því miður lekandinn er kominn upp á yfirborðið og jú allir sverja af sér nema Geir! Þetta sýnir bara aumingjaskapinn hjá ykkar flokki að láta bráðveika manneskju sem að jafnvel á ekki langt eftir taka á sig sök fyrir aumingjana sem að þora ekki að svara fyrir enda kannski undir smásjá fyrir það sem að ekki þolir dagsljósið! Nú það kemur að því að hestarnir hesthúsin og sumarvillurnar þó svo að það hafi verið sett á konuna, börnin og jafnvel húsdýrin nú þetta verður gert upptækt allt saman fyrir utan börnin þau blessuð verða að hafa húsaskjól jafnvel hjá vandalausum! Þannig að það verður sama hjá almúganum að fara að betla mat hjá ýmsum hjálparstofnunum og þá þýðir ekkert að líta niður á almúgann, ég er í vinnu og fyrrverandi yfirmaður ekki í dag (Hrokagikkur) lenti í því óvart að líta upp til mín þegar að ég þurfti að sækja manneskju niður í Mæðrastyrksnefnd, og þessi tiltekni fyrrverandi yfirmaður bað um far! Ég spurði hann bara af hverju tókstu mark á einni manneskju og spurðir ekki hinar manneskjurnar í kring! Nú hann svaraði því að þessi tiltekna manneskja væri alltaf kvartandi út af því að ég sýndi henni ekki áhuga! Nú ekki fékk hann farið!

Nú þetta er svona á mörgum vinnustöðum í dag og það er alltaf hægt að eitra svo fremi sem að það séu útlendingar á staðnum sem skilja jafnvel litla sem enga ensku og Yfirmaður er til í að hlusta á  kvartanir sem að vissir einstaklingar eru tilbúnir að reyna að þýða illskiljandi ensku! yfir á Íslensku bara til að halda sinni stöðu á vinnustað get allt veit allt betur en?

Örninn

 


Geir Hilmar Haarde að taka á sig sök Davíðs og KÓ

Nú er fokið í flest skjólin hjá Bláu höndinni að láta Geir taka ábyrgð á eymingjaskap fyrrverandi Seðlabankastjóra! Nú það voru miklar vangaveltur um Seðlabankastjórann í hans veikindum á þeim tíma, en kom þar nokkur staðar fram um að hann væri Fær um að Gegna svona mikilvægu embætti! Nei Bara SKIPAÐUR AF Alþingi? NEI FLOKKSPÓLÍTÍK JÁ. Enda Meirihlutinn sem kaus (X-D) og  sagði  Framsókn að halda kjafti ella væri þeim kennt um ef að illa færi! Nú Því miður er þetta svona í dag í þeim litlu plássum úti á landi þar sem að eignamennirnir eru! Þú skalt halda  kjafti og haltu áfram að vinna! Og vinna þig upp í 156,500 á mánuði í bónus! Bara í Rétta flokkinn til að vera SKIPAÐUR(uð) SEÐLABANKASTJÓRI (stýra)og jafnvel fá  ódýra  SENDIHERRASTÖÐU , en Íslenska Þjóðin þarf að bíta í það súra epli út af Vesalingum sem að Kompaníið í Ríkisstjórninni sem að seldu Bankana til Sinna FLOKKSFÉLAGA gegn vægu Gjaldi,  Framsókn og Sjálfsstæðisflokkurinn! Á ALMENNINGUR að borga skuldir eymingjanna? Nei enda þurrkast út allir leynireikningar á næstunni þegar að Tugir þúsunda  Lögregluþjóna storma inn í Banka í Skattaskjólum um víða veröld til að ná í Grilljónir Evra og Dollara!

Nú skattaskjólin eru fyrir bý hér á Íslandi! Það sýndi bara 30 milljónir til X-D og að  Geir.H Haarde þurfi að taka á sig ábyrgð fyrrverandi veikindaseðlabankastjóra er nú full langt gengið! Það sýnir bara eitt að fyrrverandi Seðlabankastjóri hefur ekki verið með rænu og eða ekki viti, samanber  gerræðislegra yfirlýsinga í ýmsum fjölmiðlum um æfina!


mbl.is Geir segist bera ábyrgðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samtök Atvinnulífsins, Lífeyrissjóðirnir ofl!

Nú held ég að Gróðapungarnir innan Samtaka Atvinnulífsins ættu að gera grein fyrir sínum fjármálum, það þýðir ekkert að vera að bauna á hina og þessa heldur ættuð þið sjálfir innan ykkar samtaka að skipta um talsmann sem að væri ekki flokksbundinn, en það sýndi sig hvernig málin stóðu eftir ræðu fyrrverandi Seðlabankastjóra á landsfundi viss flokks sem að ég held að ég held að hann viti meira en hann vill segja frá?? Var kannski sannleikskorn í því sem að hann sagði sem að kom við taugarnar á Samtökum Atvinnulífsins?? En hvað um það þá verður ekki hjá því komist að allir þessir stjórnendur hvort sem er hjá Bönkum, Lífeyrissjóðum, Sparisjóðum og ekki síður Ábyrgðarmenn á sölu á Bönkunum til einhverra vildarvina verði dregnir til ábyrgðar skítt með það hvort að það hafi verið Ráðherrar og eða einhverjir Alþingismenn innan vissra flokka sem að samþykktu þessa sölu á Bönkunum. Sannleikurinn kemur í ljós það mátti fela hann á 19-20 öldinni á meðan að X-D réði en því miður fyrir þennan flokk X-D þá skitu þeir upp á bak í Bankaósoma , því það mátti ekki segja frá leyndarmálum (Bankaleynd) sem að eru að koma í ljós í dag og eiga eftir að koma í ljós og þetta verður svipað með Svíana sem að voru hlutlausir í seinni heimstyrjöldinni en samt sendu Svíar Gyðinga til Auswitch að beiðni Þjóðverja nú þetta er opinbert leyndarmál þar en það má ekki minnast á hvað Sjálfstæðimenn voru hræddir við utanaðkomandi fólk hér á Íslandi þeim tíma og eftir það og allan tímann þangað til í dag, nú þeir Ráðherrar sem að sleiktu upp Bandaríkjamenn til að halda þeim hér með engum árangri nú hverjir voru það sem að fóru á fund með G.W. Bush til að biðja og grátbæna að þeir færu ekki bara til að missa ekki spón úr aski sinna flokksgæðinga! Nú ekki vildi Bush þýðast  og enda eftir að Herinn fór þá varð allt vitlaust og X-Dflokkurinn varð nánast höfuðlaus því að þeirra flokksmenn gátu nú ekki staðið undir að borga sjálfir fyrir mistökin sem að þeir blessaðir höfðu gert á árum áður og svo var GULLGÆSIN FLOGIN! ÆÆ Pína fólkið með sköttum og lækka Hátekjuskattinn þannig að Flokksgæðingarnir tapi nú ENGU! Og koma Milljarðahundruðunum í öruggt skjól þannig að það væri hægt seinna meir hægt að ganga að þeim! Nei nú er þetta að breytast og þessir Fjárglæframenn verða hundeltir um víða Veröld!

Er það furða að almenningur treysti ekki Sjálfstæðisflokknum með alla þessa spillingarforkólfa innan sinna vébanda og að afhenda Gullgæsirnar Frítt!

En það hefði nú verið ágætis útspil að selja íbúðirnar á Vellinum en ekki setja Keilir yfir þær því þar eru nú Gróðapungar innan X-D og hafa það nú flott þannig að þetta þarf allt að skoða því að þarna VAR MAÐKUR Í MYSUNNI!!!! Þetta kemur allt í Ljós Þegar Mrs. Joly sendir sitt lið til starfa og þá er eins gott að allt sé á hreinu því engum verður hlíft!!!!!

Örninn


Blaðamenn skildir eftir í réttaróvissu

Nú óvart gluggaði ég í Fréttablaðið og þar lýsa ýmsir yfir furðu með dóm sem nýkveðinn var upp og kemur þar fram að Hæstiréttur með dómnum samanber yfirlýsingu vissra blaðamanna og eða? Nú Dagblaðið Vísir birti þann 19 desember 2003 á einni síðum sínum að ég bloggari væri grunaður um íkveikju á meðan að konan mín fyrrverandi og börn sváfu! Það kom nú ekki fram í þeirri grein að ég hinn grunaði var í vinnunni og það sem að á eftir kom þá þurfti ÉG hinn grunaði að sanna sakleysi mitt og Ég hinn grunaði þurfti að leggja fram gögn vegna Leti Lögreglunnar til að sannreyna hvar ég var á þeim tíma skrítið nei nú ég var bara Jón en ekki séra Jón.Nú sú manneskja sem að kveikti í (ósannað út af tengslum manneskjunnar við einn uppljóstrara Lögreglunnar og fyrrverandi? núverandi fanga?) seldi DV sögu sem að manneskjan heyrði Lögregluþjóna vera að tala sín á milli og þá Kokgleypti DV og borgaði manneskjunni 5000 krónur fyrir fréttaskot! Nú það tók mig og mína fyrrverandi ansi langan tíma að fá DV til að tala við okkur en það tókst á endanum og átti Helgi Seljan sem var blaðamaður á DV á þeim tíma ágætis viðtal við okkur hjónin. En þessi skrif DV  kostaði okkur hjónin andskoti mikið og nú það er allt í lagi að blaðamenn fái á Kjaftinn það verður vonandi til þess að blaðamenn vandi vinnubrögð sín og Hlusti á allar hliðar málsins ekki bara einblína á Eina hlið heldur kanna málin til hlýtar áður en að farið er út í öfgar sem að kannski seljast sem frétt en svo er fréttin Röng!!

Hugleiðið þetta blaðamenn. 

Örninn


Frestun Launahækkana almennings af hverju!

Nei það er ekki tími til að fresta launahækkunum almennings af hverju hefur þessi svokallaða Verkalýðsforysta frá þeim degi sem að allt fór til andskotans ekki risið upp með fordæmi og heimtað verðstöðvun á allt? Nei það má kannski ekki þessir Verkalýðsforkólfar sem að Félagsmenn kusu með sín ofurlaun og ekki samþykkti ég sem almennur launþegi þessi laun, en þá held ég að alþýðan ætti að fara að flykkjast á fundi hjá Verkalýðsfélögunum svo að það verði komið í veg fyrir spillinguna, meðalmæting flokksfélaga á fundum undir 40 prósentum og aðalfundur samþykkir með meirihluta athvæða! En hvað um það vísa í bloggin mín eru Verkalýðsforkólfarnir tilbúnir til að taka á sig launaskerðingu þannig að það tapist sem minnst upp í Lífeyrisréttindi félagsmanna? Nei því miður ekki og Formaður Alþýðusambands Íslands ætti þá að ganga fram og segja við sína aðildarmenn af hverju hann fór þá ekki fram á frystingu verðlags, en það skipti hann blessaðann kannski engu máli með sín ofurlaun á kostað ASÍ félaga og hinna Verkalýðsforkólfanna að semja bara upp á hitt og þetta og allt í lagi skýtt með félagsmenn ég hef mín Ofurlaun! En lesið bloggin mín og ekkert hefur verið gert eða hlustað! En það skal tekið fram að yfirbygging Verkalýðsfélaganna með alla sína bitlinga á skrifstofum er of mikil þannig að það er kominn tími til að taka til þar líka til að Spara! Það mætti örugglega fækka allt að helming á sumum stöðum en kannski má það ekki frænka eða frændi eru að vinna hjá okkur?

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Örn Ingólfsson
Örn Ingólfsson

Er í mjög góðri vinnu. En get verið með ýmsar hressilegar skoðanir sem öðrum finnst stangast á við þeirra skoðanir og ég virði skoðanir annara þrátt fyrir bölv og ragn!

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 12274

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband