Færsluflokkur: Bloggar

EHF. Skattar!

Það er loksins kominn tími að einkahlutafélögin skili einhverju til baka þá er ég að meina þau sem að greiða arð til sinna hluthafa sem að svo borga sem fjármagnstekjuskatt 10% Þetta er ekki rétt að fá arðgreiðslu úr einkahlutafélagi upp á segjum eina milljón og borga bara eitt hundrað þúsund krónur á meðan að almúginn borgar hversu mikið af sömu milljón? Ekki minna en 375þúsund krónur! Svo bætast á þetta ýmis gjöld og þá fer nú restin kannski í eitthvað útsvar og kannski aukaútsvar og svo framvegis! Almúginn er búinn að blæða nóg fyrir þessa EHF kalla og líka þessa sem að stofnuðu EHF og skiptu svo um kennitölu þegar að allt var komið í þrot með hjálp gömlu bankana því þar á bæ var það ekki sama hvort að það var Jón eða séra jón! Hafið þetta bara hugfast Íslendingar!

Það er komið að skuldadögum hjá þeim  sem að kollvörpuðu Íslandi vegna sölu á bönkum til einkavina! Þá er ég að meina sjálfstæðisflokkinn og framsókn og enn þann dag í dag er spurt út af hverju var alþjóð ekki spurð? Nú það sýndi sig bara þegar að þessir blessaðir menn komu Íslandi á lista með elsku vini sínum Bush sem fékk þá til að segja já við Innrás í Írak! Nú ekki fékk alþjóð að kjósa og eða vita um þetta fyrr en seint og síðarmeir! Nei helv... leynimakkið hjá þessum flokkum í gegnum áratugina er ógeðslegt og svo er ennþá gjallandi formaður sjálfstæðisflokksins  sem að þolir ekki að það skuli vera að skerða kjörin hans blessuðum hátekjumanninum og líka einn af hluthöfum í N1! Það er ekki verið að segja frá því hvað er verið að vernda en hann blessaður formaðurinn skal minnast þess að oft gellur í Tómri tunnu!!! 

Örninn


mbl.is Hluti arðgreiðslna skattlagður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjómannaafslátturinn og það sem almenningur ekki veit!

Jæja nú á að afnema sjómannaafsláttinn. Ekki skil ég þann ógjörning því að ég held að blessaðir alþingismennirnir yrðu nú svolítið hissa á einu sem að almenningur veit ekki: Það er að sjómenn taka þátt í ýmsu sem að viðkemur útgerðinni það er þáttaka í umbúðarkostnaði og svo mörgu fleyra sem að kemur niður á tekjum sjómannsins. Ekki held ég að almenningur yrði hrifinn að því að taka þátt í rekstri fyrirtækis með því að borga af launum sínum ýmsan rekstrarkostnað fyrirtækisins af sínum launum. En með sjómannaafsláttinn þá er hann gerður til þess að sjómenn fengju örlítið fyrir sinn snúð með fjarveru frá fjölskyldu og vinum. Ekki fara sjómenn í land til að fara í bíó út að skemmta sér og svo framvegis. Vonandi athuga þessir háu herrar sem að ætla að fella niður sjómannaafsláttinn sinn gang því að það verður algjört stríð og í því stríði þá kemur sú krafa að fella niður allt sem að sjómenn þurfa að taka þátt í með útgerðinni og það verður líka gerð krafa um ríflegar launahækkanir til að mæta niðufellingu sjómannaafsláttarins! Og ekki verður það gott fyrir ríkið að missa af tekjum þegar að rimman um launakjör sjómanna kemur fram og jafnvel sigla sjómenn í land. Og vona ég að mínir kollegar geri það til að sýna það í verki að það þýðir ekkert að troða á sjómönnum á skýtugum skónum. Held að þessir menn sem að ætla að fremja þetta illvirki með sjómannaafsláttinn ættu að hugsa sig tvisvar um og lækka launin hjá þessu hátekjufólki bæði í ríkisstjórn og bönkunum það myndi þá kannski rétta af kjörin svo að ekki yrði hreyft við sjómannaafslættinum. En sjómenn Siglið í land og mótmælið þessum gjörningi ekki láta það líðast að það sé troðið á ykkur oftar það er búið að troða nóg á ykkur af hendi LÍÚ í gegnum áratugina og það er kominn tími til að þið rísið upp á afturlappirnar og það skal tekið fram að ekki fá þessir Galgopar sem jafnvel hafa aldrei migið í saltan sjó og vita ekkert um sjómennsku ekki fá þeir atkvæði sjómanna í næstu kosningum svo mikið er víst. Skammist ykkar landkrabbar sem allt þykjast vita það ætti að senda ykkur alla á sjóinn þingmenn og ráðherra og láta ykkur kynnast sjómannslífinu þá yrðuð þið fljótir að skipta um skoðun eftir kannski 30-40 daga á sjó!

Örninn


Hverjir eru að upphefja sjálfa sig?

ÆÆ er nú Framsókn að reyna eitthvað? Það skildi þó ekki vera til að reyna að upphefja sinn flokk til atkvæðasmölunar eftir bankasöluna í næstu sveitarstjórnarkosningum! Nei það er sama undir þeim blessuðum stjórnmálaflokkum sem að seldu Bankana og komu með sínum gjörðum til vina, vinavina og vandamanna Íslandi í Þetta Helvíti já skammast mín ekkert að nota þetta orð þó það fari fyrir brjóstið á einhverjum Guðhræddum manninum, en það var ekki Guð sem kom Íslandi á hausinn heldur einstakir menn sem að kunnu að nota sér Kerfið og áttu mikinn þátt í því að koma upp kerfi sem að kallast Svikamilla í dag! En að vera með yfirlýsingar sem að formaður Framsóknarflokksins er búinn að útlista í viðtölum ekki er það nú gott þegar að það kemur ekki rétt fram! En allt í lagi þá kemur spurning til Bjarna formanns Sjálfstæðisflokksins og þín Sigmundur viljið þið ganga að eignum þessarra manna og þeirra afkomenda sem að þeir færðu yfir á hin og þessi nöfn? Nei ég veit það viljið þið ekki vegna þess að þá eru allar villurnar farnar og miklu fleira  en því miður ef að þetta væri Almúginn þá væri löngu búið að Hirða allt af því og jafnvel dæma í Fangelsi miðað við dóma undanfarin ár en því miður eru alltaf þeir sem að hafa Peningana undanskildir frá reglunni út af vinskap og kunningsskap við hina og þessa! Og líka eitt af hverju má ekki breyta Hegningarlöggjöfinni sem að sett var með breytingum? Nú það má ekki hegna þeim Ríku út af Þjóðfélagsstöðu gæti víst óvart Skaðað afkomendur!!! Nú hvað hafa dómar  gagnvart almúganum gert? Þyngri dómar en ekki yfir hinum sem að hafa virkilega brotið af sér samanber svik og pretti! En það sem að Íslenska þjóðin er að velta fyrir sér Af hverju er ekki þetta fólk ekki í Farbanni þeir sem að komu Íslandi á hausinn. Ætla mætti að þessir menn hafi verið gerðir Friðhelgir af fyrrverandi Dómsmálaráðherra, getur það verið?

Örninn

 


mbl.is Hærra lán ekki í boði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland í DAG! Ömurlegt því miður

Jæja nú fara skattarnir að hækka á hinn almenna Íslending eftir fjármálasukk Útrásarvíkinganna og hinna sem að studdu þá og gerðu það mögulegt með EinkaVæðingu Bankanna! Nú Bankarnir voru seldir hæstbjóðendum? Og allir græddu, en það hefur ekki komið fram hvað fór undir Borðið ef að það hefur gerst? Ef svo hafi verið þá vona ég að það hafi farið í Ríkishýtina? Nú Íslendingar eru farnir að leggja saman tvo og tvo og fá ekki út fimm eins og sumir af sölumönnum Bankanna. Ekki veit ég hvar þessir menn hafa lært reikning og eða reikningsskil, en því miður þá var allt þaggað niður þegar að þessi mál komu til tals, það mátti ekki hallmæla Bankasölunni! Nú allt Hrunið og Billjónirnar farnar og skrýtið að þessir menn skuli ennþá ganga lausir en það verður vonandi fljótt að þessir menn skýti á sig þegar að vissir aðilar birtist á tröppunum hjá þeim hvar sem er í veröldinni og taki eignirnar yfir, skiptir engu máli þó svo að eignirnar hafi verið settar á konu, börn, ömmu afa og veit ekki hvað, En úti í heimi var eign sett á dána manneskju til að stela undan! En það verður til þess að konur og börn fara á götuna og þurfa allt í einu að prufa að lifa af já kannski 150000 á mánuði! Skrýtið nei en þetta er í vændum og ekki öfunda ég fólkið sem hefur lifað í Vell,istingum þegar að það þarf kannski að fara í Mæðrastyrksnefnd og eða Fjölskylduhjálp Íslands til að fá eitthvað til að snæða og klæða börnin! En svona er lífið í dag hjá þorra Íslendinga því miður út af græðgi og Hugsunarleysi vissra manna því miður og HINN ALMENNI HARÐVINNANDI ÍSLENDINGUR ÞARF AÐ PUNGA ÚT MIKLU MEIRA NÓG ÞURFA BARNAFJöLSKYLDUR AÐ ÞOLA Á NÆSTA ÁRI; EN ÞAÐ ER MINNA EN SKERÐINGIN SEM AÐ BANKASÖLUMENNIRNIR SETTU Á BARNAFÓLKIÐ Á SÍNUM TÍMA! EN ekki nóg með það Almenningur með 150000 á að svelta er hissa á því að Elliheimilin samanber Grund ofl,muni bera sig fjárhagslega þegar að ástandið verður eins og úti í Bretlandi að ellilífeyrisþegar haldi sig bara einhversstaðar og éti katta og hundamat úr dósum, því það er svo dýrt að vera inni á elliheimilum í Bretlandi og gamla fólkið deyr unnvörpum þar frýs í hel út af Lífeyrirnum! Þetta er sama sagan hérna á Íslandi nema að við höfum Hitaveituna ennþá en hvað verður þegar að búið er að selja auðlindirnar samanber söluna til MAGMA Energy sem stofnaði leppfyrirtæki í Svíþjóð til að komast inn á EES og Borgarstjórn undir stjórn hverra? samþykkti SÖLUNA! Nú þetta er bara sama með PERLUNA og RÁÐHÚSIÐ þá ljótu byggingu, hverjir RÉÐU ÞÁ? Eitt er nú þegja einhverjir. 

Örninn

Ps. Íslendingar mútuðu Nígeríumönnum svo að skreiðin okkar kæmust á markað á þeim tíma en svo hrundi skreiðarsalan út af við höfðum ekki nóg af Dollurum Í MÚTUR!

öRNINN


Skattahækkanir framundan!

Jæja það á að halda áfram að skattpína almenning! Heyrði fréttirnar áðan og þar var talað um að afturkalla þessar skattalækkanir undanfarinna ára! En mikið svíður mér það að þetta sé til umræðu núna ekki er búið að hundelta þessa Fjárglæframenn sem að komu Íslandi á kúpuna. Þeir ganga frjálsir ferða sinna og halda áfram að koma milljarðahundruðunum í öruggt skjól á meðan að Ríkisstjórnin aðhefst ekkert. Það átti að fangelsa þessa menn strax en ekki klappa þeim á bakið! Og talandi um skattahækkanirnar það má ekki verða neitt um það fyrr en að peningar fjárglæframannanna eru komnir heim aftur sem að ég efast um að finnist út af Handvömm Ríkisstjórnarinnar og líka Löggæsluaðila ogf sérstaklega fyrrverandi dómsmálaráðherra sem að gerði Ekkert til að reyna að stöðva fjármagnsflóttann úr landi honum blessuðum hefði ekki verið skotaskuld að láta setja lög sem að frystu eignir þessara manna en NEI það mátti ekki hrella flokksbræður og vini!!! En það þarf að hundelta þessa menn og hirða mest allar tekjur af þeim eins og var gert við almenning ef að það skuldaði, fólkið hafði þegar upp var staðið varla fyrir nauðsynjum. Þannig að hundeltið þessa menn og í fangelsi með þá og Finnið peningana. Svona Slóða Ríkisstjórn er ekki langlíf ef að það verður að veruleika með skattahækkanir. Þá ætti Ríkisstjórnin að hugsa um þær fórnir sem að almenningur með lágu launin hefur Fórnað launalega séð það er ekki tekið tillit til þess og þá held ég að Ríkisstjórnin ætti að frysta allt verðlag eins og að ég benti á fyrir löngu síðan í blogginu mínu. Eltast við breiðu bökin eins og Steingrímur ráðherra sagði í fréttum í gær og láta láglaunafólkið vera! Almenningur er að verða algjörlega kolvitlaust eftir þessar fréttir! Skammist ykkar Ríkisstjórn ef að þið ætlið að hækka skattana og hugsið barasta um athvæðin ykkar þið viljið kannski missa allt út úr höndunum á ykkur í hendurnar á Íhaldinu sem að hefur gert sín miklu skammarstrik!

Örninn 


Hvaða spilling og Fjárglæframenn spyrja sumir!!

Hvernig í andsk... stendur á því að þessir Fjárglæframenn ganga Lausir? Það er engin furða með vina og ættartengsl samanber úti í Ameríku þar sem að Peningarnir skipta máli og flokksfélagarnir Ljúga fyrir valdamestu menn Þjóðarinnar samanber öll viðtölin við Bláu höndina sem að kúgaði? En svo hrundu bankarnir og EKKI MÁTTI RANNSAKA MÁLIN VEGNA FLOKKSPÓLÍTÍSKRA ÁREKSTRA! Nú það veit hver maður að það eru nokkrir flokksgæðingar í vissum flokki sem að græddu og fengu milljarðalán en almenningur fékk ekki einu sinni 25 þúsund króna lán!!! Nema með VEÐI EN HINIR HÁU HERRAR VORU VEÐLAUSIR UPP Á FLEiRI MILLJARÐA SEM AÐ STUDDU VISSA RÍKISSTJÓRNARFLOKKA SEM AÐ SELDU BANKANA Í EINKAEIGN!!!! Þetta er skrýtið en BANKARNIR OG FJÁRFESTINGARFYRIRTÆKIN ÞRÁTT FYRIR BEIÐNI RÍKISSTJÓRNARINNAR AÐ GANGA EKKI AÐ FÓLKI MEÐ OFFORSI, NEI LÝSING, FRJÁLSI, OG ÖLL HIN ERU BÚIN OG ERU AÐ GANGA AÐ FÓLKI OG ÞAR ER ENGIN MISKUNN HJÁ ÞEIM!!!! ÞANNIG AÐ ÞAÐ ÞARF AÐ STÖÐVA VITLEYSUNA ÞARNA STRAXX! LÖGFRÆÐINGANA Á ÞEIRRA VEGUM LÍKA EF AÐ ÞEIR KUNNA EKKI AÐ LESA!!!

 Þannig að farið að vakna XD og XB OG BIÐJIÐ ÍSLENDINGA AFSÖKUNAR Á BÖLVUÐU GRÓÐABRALLINU Í YKKAR RÖÐUM SEM HAFA VIÐGENGIST UNDANFARNA ÁRATUGI OG KOMU SVO ÍSLANDI Á HAUSINN, OG EKKI ER SÁ NÝI FORMAÐUR BLÁU HANDARINNAR SAKLAUS AF AÐ HAFA NÝTT SÉR INNHERJAVIÐSKIPTI MEÐ SÍN HLUTABRÉF Í VISSU FYRIRTÆKI SAMANBER FRÉTTIR HELD AÐ SÁ ÆTTI AÐ SEGJA AF SÉR SEM FORMAÐUR VEGNA HAGSMUNA Í SAMBANDI VIÐ GJALDEYRI, ICESAVE OG ANNARRA HAGS MUNAÁREKSTRA ÞANNIG AÐ HANN GETUR EKKI VERIÐ Í NEINNI NEFND VEGNA SÉRHAGSMUNA! BLÁA HÖNDIN GELLUR HÆST NÚNA EN SÁ FLOKKUR ÆTTI AÐ GERA HREINNA FYRIR SÍNUM DYRUM! Því miður halda allir kjafti á þeim bæ nema leka keyndarmálum til að koma höggi á Ríkisstjórnina þannig að það sé hægt að fela spillinguna áfram samanber skýrslu sem birt var um spillingu á Íslandi og þar vorum við með litla spillingu enda engin furða þegar að það var bara rætt við Kónginn og samflokksmenn hans!!! En í dag er Umheimurinn búinn að sjá hversu spillt þjóðfélag þetta hefur verið undanfarin ? ár þannig að við Íslendingar skulum rísa upp og Hrækja á þessa eymingja hvar sem að til þeirra næst en ekki skemma eignir, heldur ef að þið hittið einhverja af þessum Útrásarvíkingum þá endilega bara hrækið á þá, en ekki láta þetta bitna á Börnum þeirra og annarra! Börnin eru saklaus!

Örninn


Björgunaraðgerð kannski á síðustu dropunum?

Nú skrifa ég þetta frá Svíþjóð og ég held að blessaðir Ríkisbubbarnir sem að sviku milljarðana og komu þeim undan ættu nú að sjá sóma sinn í því að skila einhverjum milljörðunum til baka þannig að það þurfi ekki að fá peninga inn í þjóðarbúið með leigu á Landhelgisæslu Þyrlu, Skipa og Flugvélakosti til Noregs þá er ég að meina Nýju flugvélina okkar allra og hið nýja Skip!!! Sem að er komið mikið fram úr áætlun en enginn veit um það nema BB! Nú Það var samið um það á sínum tíma þegar að fyrrverandi Dómsmálaráðherra og fyrrverandi ríkisstjórn sömdu við Norðmenn um að Leigja þessi tæki!! Þess vegna fer ég fram á það sem Íslendingur að öllum svoleiðis samningum verði RIFT þangað til að þessir vesalings menn sem að komu Íslandi Á HAUSINN VERÐI TEKNIR OG SETTIR Í GÆSLUVARÐHALD! ÞVÍ ÞAÐ ER EKKI SAMA DAVÍÐ ODDSON OG KOMPANÍ OG ALMENNINGUR Á ÍSLANDI!!!!  NÚ ER KOMIÐ NÓG FÓLK TAKIÐ VÖLDIN ÞVÍ  BLÁA HÖNDIN VERÐUR AFHÖGGIN MEÐ ALLRI SINNI SPILLINGU SÍÐUSTU 65 ÁR! OG ÖLL GÖGN VERÐI BIRT ÞANNIG AÐ ALÞJÓÐ FÁI AÐ SJÁ HVAÐ VAR VERIÐ AÐ FELA!!!

Örninn


mbl.is Flókin þyrluaðgerð við Patreksfjörð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER BÚIÐ AÐ FRYSTA EIGNIR ÞEIRRA SEM KOMU ÍSLANDI Á HAUSINN?

Nei það var ekki gerti strax eftir bankahrunið vegna þess að vinir þáverandi meirihluta í Ríkisstjórn RÉÐU! Þannig að það var hægt að millifæra milljarðana alla úr landi og hinir sem að voru í meirihluta í Ríkisstjórn litu fram hjá öllum þessum ósköpum bara út af vinskap? Skýtt með fólkið í landinu ef að eitthvað gerist þá borgum allir undir aumingjana sem að kom Íslandi á HAUSINN! Er ekki kominn tími til að Haraldur Johanessen RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI óski eftir kyrrsetningu blessaðra öreiganna þannig að þeir fari nú ekki úr landi með krónurnar sínar, en það er of seint í rassinn gripið þegar að Kóngurinn sagði Bíddu! Og allir peningarnir farnir! Skrýtið NEI! Það er ekki sama í hvaða flokki þú ert pólitískt skipaður og eða almúginn! Ekki fær almúginn sem að sagt hefur verið upp störfum BIÐLAUN! Þetta er barasta Helvítis ÓRÉTTLÆTI OG Á AÐ AFNEMA! Nei því miður var það ekki hægt samkvæmt samningum en það er hægt að rifta samningum og reglugerðum ef að það verði til hagsbóta fyrir LAND OG ÞJÓÐ Á HÁSKATÍMUM! NÚ LÖGSPEKINGAR finnið þetta út úr lögum bæði Íslenskum og Alþjóðalögum! Lesið lögin fyrir utan þessi sem að lærð voru í HÍ og  eða hvar? 

Örninn

 


Mótmæli Íslendinga

Íslendingar það er búið að koma því til skila fyrir utan Alþingishúsið okkar mótmælum. En af hverju ekki að storma að heimilum þeirra allra sem að komu þessu öllu af stað það held ég að sé mikið viturlegra og líka að leggja hendur á eignir þessara manna táknrænt þannig að þessir blessaðir eymingjar vita það þá að þeir eru ekki óhultir! Hvergi nokkursstaðar í heiminum! Nú Íslenska Þjóðin (ég og þú) eigum þessar eignir og hvers vegna ekki að fá þá umráðarétt yfir þeim? Almenningur á Bankana og hvað? Nú eru þessir eymingjar sem að skutu undan milljarðahundruðum og settu eigur á nöfn eiginkvenna og barna til að sleppa, eru þessir menn saklausir? Nei þeir höfðu góða kennara samanber alla spekúlantana hjá vissum flokk sem réð og fóðraði almenning með lyginni á meðan að milljarðahundruðin voru færð úr LANDI! Nei hingað og ekki lengra og ég held að Formenn flokkanna í andstöðu við Ríkisstjórnina  ættu að einbeita sér í því að tala við sína flokksmenn til að fá þá Formenn á þeim tíma til að viðurkenna mistökin sem að þeir gerðu þegar að Bankarnir voru seldir EinkaVinum! Nei það má ekki heldur rífa þessir Nýju flokksformenn kjaft í þinginu til að reyna að breiða yfir mistök þeirra fyrrverrandi flokksforingja! Hvers skonar pungtak hafa þeir á ykkur spyr ég viljið þið Spillinguna áfram? Er ekki komið nóg?  Ég held að þeir ættu þá að reyna að einbeita sér að því að koma skikkan á sína flokksgæðinga sem að fengu peninga eftir þessi Eignarskipti því að það getur ekki verið að þessir menn á þeim tíma hafi ekki fengið neitt fyrir sinn snúð í sölunni á Bönkunum! Þetta þarf líka að rannsaka niður í kjölinn og það er ekki hægt á meðan að  Ríkissaksóknari er í sínu embætti pólítískt skipaður? er svo samdauna spillingaröflunum á Íslandi að það hálfa væri nóg! Það er engin furða að Eva Joly vilji losna við hann en hans valdamiklu vinir vilja það ekki vegna þess að þá kemur eitthvað óhreint upp sem að kannski hefur verið stimplað Algjört Ríkisleyndarmál! En eitt skal ég segja ykkur Íslendingar að fullt af  skjölum er búið að Eyða hjá Löggjafanum og það heldur áfram og vorkenni ég starfsfólki Ríkissaksóknara þegar að þeir lenda í Yfirheyrslum í framtíðinni!

Örninn


Olíufélögin skulda núna hundruð milljóna eða milljarða og Bláa höndin ráðandi!

Nú sama sagan með olíufélögin í dag og hefur verið síðustu áratugina að hækka um leið og heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað þá hækkuðu Olíufurstarnir strax þó svo að Birgðirnar sem að voru ekki búnar og vantaði 2-3 mánuði upp á það markmið!! Nú á þeim tíma voru stjórnvöld sem að kynntu undir spillingunni og að stórgrosserarnir vinir þeirra gætu nú grætt á almúganum. Þegar að þessum stórbokkum var bent á það að hækkunin ætti ekki að taka gildi þá var öllum utan vissra flokka og FÍB  sagt að halda kjafti til að viðhalda stöðugleika í Þjóðfélaginu á meðan þessir stórbokkar fluttu hundruðir milljarða úr landi til að þóknast hverjum? Nei ekki gerði fyrrverandi Ríkisstjórn neitt í því þó svo að Samfylkingin hafi verið kúguð af þeirri bláu hönd vildi gera eitthvað gagnvart spillingunni en sama sagan VIÐ erum Stóri  flokkurinn og VIÐ RÁÐUM! Nú hverjir voru það sem skitu á sig? En  svo í dag eru blessaðir nýju forkólfar flokkanna sem að seldu bankana í einkaeigu til útvaldra að rífa kjaft! Held að þeir ættu að líta sér nær og mótmæla þessum hækkunum og láta sína flokksmenn vita af ábyrgðinni út af hverju flokksgæðingarnir Gátu flutt svona mörg hundruð MILLJARÐA úr landi! Og láta alla Félagsmenn ekki útvalda  njóta allra hlunnindanna og þá leyfa okkur almúganum að flytja flytja inn hitt og þetta! Einkaleyfi jú varð varð við það þegar að viss félagi átti hlut í vissu fyrirtæki þá þurfti ég að borga 24% virðisaukaskatt en eftir að hann sá blái bauð mér  þurfti ég bara að borga 7,5 % með loforði að ég kjaftaði ekki frá! Og ég gæti líka fengið svarta vinnu! Nú ekki er ég atvinnulaus en það lá í orðunum hvort að ég gæti reddað? Nei þannig að bókhald Olíufélaganna til almennings var ekki í lagi og er ekki ennþá þannig að almenningur getur gert kröfur upp á fleiri hundruð milljónir út af vitlausum virðisaukaskatt sem að almenningur greiddi í þeirri trú að fyrirtækin hefðu nú uppfært hugbúnað (nema með vilja) Nú ef að ég ætlaði í bisness þá þarf ég að fara í gegnum strangt eftirlit svo að ég sé nú ekki að rugla margra áratuga einkaleyfum vissra hagsmuna manna og enda fengi ég ekki leyfi til þess út af peningaleysi! Og ef að þeir birgjar vissu hvað þessir menn hafa gert Íslensku Þjóðinni þá væri löngu búið að skrúfa fyrir öll viðskipti! Nei því miður Ríkislögreglustjóri er ekkert fyrir það að birta Alþjóðlegar upplýsingar  um Glæpamenn í blöðunum með myndum samanber Schengen Svæðið og Upplýsingar frá Interpol og FBI þannig að fólk geti varast fólkið en það á bara að vera Leyndó samanber það sem að var á hans gömlu vígstöðvum nema þegar að það á við! Sorry en það var álit margra á þeim tíma að núverandi Ríkislögreglustjóri hefði aldrei átt að gegna svo viðamikilli stöðu ekki stóð hann sig á öðrum vígstöðvum. Þess vegna var það að fólk fékk upp í kok af FlokksPólítískri Ráðningu hans, en því miður má ekki birta mistök blessaðs Ríkislögreglustjóra þegar að hann splundraði fjölskyldum í Barnavernd! Hann hefur kannski unnið sig upp þannig hjá Bláu höndinni? Hver veit! Því miður hafa öll skrif um þau mál verið þögguð niður því að það mátti ekki skrifa um þau mál opinberlega og þau voru ekki opinber þegar að hann var ráðinn (skipaður) Ríkislögreglustjóri) Nema að það hafi verið litið framhjá umsögninni hjá BB?

Örninn


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Örn Ingólfsson
Örn Ingólfsson

Er í mjög góðri vinnu. En get verið með ýmsar hressilegar skoðanir sem öðrum finnst stangast á við þeirra skoðanir og ég virði skoðanir annara þrátt fyrir bölv og ragn!

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 12274

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband