Færsluflokkur: Bloggar

Jæja þá er stórkjaftur kominn inn!

Nú er ég og mikill hluti Íslendinga hneykslaður! Til hvers er verið að Púkka upp á Ögmund í ríkisstjórn? Nú það er fínt fyrir hans gömlu félagsmenn í BSRB og líka aðra vini! Skítt með almenning svo fremi sem að hans félagsmenn fengju umtalsverðar hækkanir á launum enda sást það með kennarana þá skitu allir á sig og samþykktu hitt og þetta til að róa kennara en því miður kemur það niður á börnum og foreldrum! Samanber STARFSDAGA Í SKÓLA NÚ HÉLT AÐ KENNARAR ÆTTU AÐ VERA Í SKÓLANUM TIL AÐ UNDIRBÚA NÁMIÐ EN NEI ÞEIR GETA HANGIÐ HEIMA Á FULLUM LAUNUM ÞÖKK SÉ ÖGMUNDI! EKKI GETUR ALMENNINGUR VERIÐ Á FULLUM LAUNUM Í SUMARFRÍI VIÐ AÐ GERA EKKI NEITT EN ÖGMUNDUR GRÉT ÁSAMT FORMANNI KENNARASAMBANDSINS UM LAUN EN SAGÐI EKKI RÉTT FRÁ LÁGMARKSLAUNUM KENNARA Á ÞEIM TÍMA OG FRÍÐINDUM SEM AÐ ERU TEKJUSKILDAR 349 ÞÚSUND Á MÁNUÐI Nei Ögmundur hefði ALDREY ÁTT AÐ FARA Í RÍKISSTJÓRN AFTUR EFTIR LEKANDANN SEM AÐ HANN LÉT LEKA Í FJÖLMIÐLA? Dómsmálaráðherra GUÐ hjálpi ÍSLANDI og Öðrum löndum líka þá verða Búrkur bannaðar og ég veit ekki hvað kannski allir útlendingar líka? Nei þetta var það versta embætti sem að hann fékk því miður þá er Skeleggur ÓpÓlítískur ráðherra farin út af heimtufrekju VG(Óróadeildinni) þannig að þá held ég að það ætti að slíta Stjórnarstarfinu strax og boða til KOSNINGA því ég veit að það verða XD og XB sem halda áfram að láta sína flokksgæðinga græða á kostnað Íslendinga en fjandinn það getur ekki verið verra en það sem er í vændum 50% launahækkun hjá almúganum og (hækkun á sköttum á þá sem að eru með yfir 650 þúsund á mánuði) eða þá hækka skattana hjá almenningi upp í 50% svo að Samtök Atvinnulífsins séu ánægð til að borga tap þeirra fyrir allt bruðlið þeirra sjálfra nú ekki skulum við (eins og að einn útrásarvíkingurinn orðaði það við skítum ekki í sama klósett og hinir) nú er þessi sami ekki að verða AFTUR RÍKASTI MAÐUR ÍSLANDS! HVERSKONAR HELVÍTIS FJÁRMÁLASTJÓRN ER ÞETTA NÚ ÞÁ Á AÐ FELLA ALLAR SKULDIR NIÐUR HJÁ ÍSLENDINGUM FYRST AÐ ÞAÐ SÉ HÆGT AÐ AFSKRIFA SKULDIR HJÁ EINHVERJUM FJÁRGLÆFRAMÖNNUM! EF AÐ BANKARNIR Á ÍSLANDI VILJA VIÐSKIPTI ÞÁ ER EINS GOTT AÐ ÞEIR FARI AÐ SÍNA HÖRKU Á MÓTI ÞESSUM FJÁRGLÆFRAMÖNNUM EN AF HVERJU ERU ÍSLENSKU BANKARNIR OG SEÐLABANKINN HRÆDDIR VIÐ ÞÁ? ER ÞAÐ BLÁA HÖNDIN EÐA VINSKAPUR OG EÐA HRÆÐSLA? NEI NÚ ENGA SAMNINGA BARA ALLT UPP Á BORÐIÐ GERA UPP ACTAVIS SKÍTT MEÐ ÞÝSKA BANKANN NEMA AÐ HANN EIGI KANNSKI 65% Í ÍSLENSKUM KVÓTA SEM AÐ VINIR BLÁU HANDARINNAR SETTU SEM VEÐ? NEI SANNLEIKANN UPP Á BORÐIÐ STRAX OG ENGANN FAGURGALA FRÁ SAMHERJA OG FLEYRUM ÍSLENSKUM ÚTGERÐARFYRIRTÆKJUM!

ÖRNINN

 


Hækkanir á hækkanir ofan eftir Fjármálabruðl!

Jæja nú eiga heimilin að taka á sig meiri hækkanir eftir fjármálabruðl fyrrverandi stjórnenda OR. Ég held að þessir blessaðir burgeisar sem að stjórnuðu OR ættu nú að fara að viðurkenna mistök sín, þá er ég að meina borgarstjórnarflokkarnir á árum áður, því að nú þegja þessir vesalingar og kannast Örugglega ekki við neitt. Þeir gerðu ekkert rangt að þeirra sögn! Nei stopp á hækkanirnar, því ég held að bæði Ríki og borg ættu að gera Sér grein fyrir því að það eru að koma kjaradeilur í haust og þar verða kröfur upp á tugi prósenta launahækkunar vegna allra þessara hækkana á almenning undanfarin ár sérstaklega eftir að fjárglæframenn komu Íslandi á kúpuna og mikið andskoti sleppa þeir vel þessir já ég segi hreint út sagt Fjárglæframenn! Nú ekki kvörtuðu fyrirtækin með fólkið sitt á lágmarkslaunum nema stjórnendur á tíma XD og XB þá voru til Fullt af peningum til að borga milljónir í laun á mánuði til stjórnenda en almenningur sat eftir! Það verður ekkert gefið eftir í samningum Fólk er búið að fá nóg og það að Ríkisstjórnin ætli að hækka skatta aftur nú þá skal Ríkisstjórnin hækka skattana á þá Tekjuhæstu en láta láglaunafólkið sleppa og líka þá sem að eru með miðlungslaun. Því Ríkisstjórnin er að tapa fylgi út af því hversu linlega þeir hafa tekið á þessum tekjuháu þeir sleppa allta vel en það gerir almenningur ekki. Nei ekkert helv... kjaftæði lengur OR sækið peningana eitthvað annað þið getið sjálfum ykkur um kennt þetta fjármálabruðl ykkar ekki er Almenningur í stjórn OR!! Látið þetta bitna á ykkur sjálfum og SELJIÐ EIGNIR AF NÓGU ER AÐ TAKA HJÁ YKKUR líka þessi fínu dýru málverk ykkar þar eru peningar líka!!!

Örninn


mbl.is Gjaldskrárhækkun ekki lokasvar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÆÆ búin yfirheyrslan og ekki Gæsluvarðhald?

Nú er ég einn af 98% heiðvirðra Íslendinga sem að kom ekki nálægt þessu hruni á Íslandi en þurfti að taka afleiðingunum af því á ýmsan hátt! Nú kemur Sigurður Einarsson glaðhlakklegur fram í fjölmiðlum og segist vera með hreina samvisku! Nú blessaður sakleysinginn var eftirlýstur af INTERPOL og breska löggan gerði ekki neitt ja held bara af hræðslu við fjárglæframenn innan Bretlands og utan því ekki gerðu þessir Bresku löggæslumenn Neitt og kemur það örugglega út af fjárstuðningi til breskra flokka sem að eru í ríkisstjórn á hverjum tíma! Nú ok Sigurður er búinn að hafa allan þennan tíma til að gera áætlanir ásamt sínum lögfræðing og ekki veit ég hversu margar ferðir ef svo er lögfræðingur hans hefur farið út til hans með gögn? Og það væri gaman að sérstakur Saksóknari gerði strax grein fyrir því opinberlega hverskonar samning hann gerði við Sigurð því á ekki JAFNT yfir alla að ganga? Nei það virðist ekki vera, ekki var blessaður ódámurinn settur í Járn við komuna til landsins og ekki heldur  Gæsluvarðhald eins og aðrir í kringum þetta mál og ég held sem Íslendingur að það sé Svakaleg skítalykt af þessu öllu saman!!! Nú það er gott að geta sammælst við hina ódámana til að tala sig saman þetta er bara eins og í amerískum glæpareyfara og eða bíómynd. Nei svör strax til hinnar Íslensku þjóðar því þjóðin á heimtingu að vita hverskonar samning ódámnum var boðið annars verður embætti sérstaks Saksóknara ekki trúað og eða treyst. Upp með sannleikann og inn með Sigurð í gæsluvarðhald strax enga helvítis linkind við svona fólk, almenningur fær ekki svona meðferð ef að eitthvað gerist þá er gæsluvarðhald strax út af einhverjum rannsóknahagsmunum! En breska löggan hún á bara skít og skömm skilið út af vandræðagangi krúnunnar og held bara að dómarar og lögmenn í Bretlandi ættu að fara að koma sér til nútímans og leggja niður hárkollurnar og lögin sem að eru sum frá sautján hundruð og ég veit ekki hvað. En hvað með það þetta með Sigurð sýnir bara hversu misskipt þetta er á milli Almúgans og svikahrappa en almúginn er dæmdur í hæstu refsingu en hvítflibbarnir sem eiga peningana þeim er liggur við klappað á bakið og fá kannski einhverja málamynda refsingu!!

Nei réttlætið skal vera jafnt yfir alla ekkert helvítis hálfkák já ég blóta og vill bara að Rétt sé bara Rétt.

Örninn


mbl.is Yfirheyrslu lokið í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kæra hvað?

Mikið finn ég til með stúlkunni en því miður gerast meinleg slys og ekki er það við Fjölskyldu og húsdýragarðinn að sakast! Nú þetta tæki er búið að vera í notkun í nokkurn tíma og engin slys sem Vitað er um!? En þá er að benda á eitt að fyrst að stúlkan missti hárið þá hefur hún ekki verið með bundið hár og ekki fer þetta leiktæki á það miklum hraða að hárið Á ekki að fara inn í snúningsás nema að sídd hársins sem að hefur kannski ekki verið bundið upp!Ef að hárinu hefur verið flaksað til dæmis fyrir myndatöku þegar að foreldrar eru að taka myndir af viðkomandi það geri ég yfirleitt með mína stráka þá getur verið að hárið hafi farið í snúningsásinn! Nú veit ég ekki hversu sítt hárið á blessuðu barninu var sítt á þessum tíma og það er svolítið sem að stingur almenning í þessari frétt að Rannsóknarlögreglumaður hafi hvatt foreldrana til að kæra!! Ef svo er þá er sá ekki starfi sínu vaxinn nema að sá rannsóknarlögreglumaður hafi einhverja hagsmuna að gæta hjá þessum fyrirtækjum sem að Innheimta slysabætur? Nei þetta kemur í ljós og það sem er að starfsfólk slysstaðar er búið að læra Skyndihjálp og þess vegna kemur mörgu fólki þetta á óvart þessi saga því ég hef þurft að leita eftir aðstoð hjá starfsfólkinu með börnin mín og annarra börn því foreldrar fylgjast ekki nóg með sínum börnum og þess vegna eru margir foreldrar vel vakandi, alltaf með augun opin fyrir umhverfi sínu og vilja vita hvar börnin og taka eftir ef að eitthvað óvænt gerist en eru ekki bara að senda börnin til að kaupa sér kók og pylsu og svo framvegis svo að foreldrarnir þurfi ekki að hafa vakandi auga með börnunum sínum! Allt í lagi en ég óska þessari ungu snót alls hins besta og vonand þarf hún ekki að fara í hárígræðslu en tíminn leiðir það í ljós þegar að hún eldist því þá koma efnaskiptin fram. Skýrslan frá Vinnueftirlitinu er ekki komin fram um þetta ákveðna slys en ekkert er hægt að gera fyrr en að hún verður send hlutaðeigandi aðilum, þá má kannski fara að íhuga málaferli ef að tilefni er til þess og einnig læknisfræðilegar rannsóknir sem að taka langan tíma!

Örninn


mbl.is Ætla að kæra Húsdýragarðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hryðjuverk já af hverju?

Nú ég veit ekki betur en að þessir hryðjuverkamenn sem að tóku fólkið af lífi séu þeir sömu sem að bönnuðu konum og börnum að stunda lærdóm! Nú það hefur sýnt sig og mikið er ég feginn að það sé búið að banna Búrkurnar og að hylja andlit sín! Nú 9 af sjálfsvígssprengjukonum sem hafa sprengt sig upp undanfarið reyndust þegar að betur var að gáð með eystu! En það er engin furða að þessir blessaðir vesalingar sjái ekkert út úr eymdinni heilaþvegið út af fákunnáttu samanber mín fyrri blogg, nú það má segja að það sé heilagt að drepa fólk út af því að vissar bókmenntir segja svo og allt í lagi en af hverju vilja sumar fyrrverandi þjóðir ekki viðurkena sinn aumingjaskap og reyna að uppfræða sitt fóllk! Nei það má ekki út af örfáum stríðsherrum jafnt í Írak og sérstaklega Afganistan þar sem að Takibanar réðu með sínu trúarofstæki að hálfa væri nóg! Pakistan þar þurfa allir að vera á verði því þar er Spillingin viðlíka og hérna á Íslandi! Nema að við halanegrarnir eigum ekki neina sprengju!

En Guð hjálpi okkur þegar að það gerist því það verða ekki vesturveldin heldur drottnunarstefna vissra klerka í heiminum hvort þeir heiti Khomeini eða já næsta nafn?

 Örninn


mbl.is Gerðu sér grein fyrir hættunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÆÆ þarf ég virkilega að henda Microsoft forritunum mínum?

Þannig er mál með vexti að ég átti tölvu með Windows XP og allt í lagi. Svo fékk ég mér nýja tölvu sem að er með Windows Vista. Og ekki var ég ánægður þegar að nýja tölvan neitaði að setja forritin í gang eftir að hafa hlaðið inn á tölvuna sem gengur vel, en svo gerist ekkert og ætla ég að nefna Microsoft Picture It 2000 nú þá er bara: Access denied! Er þó með upprunalegu diskana!  Önnur Microsoft forrit virka ekki þá er ég að meina að árinu 2004. Er búinn að spyrja út til Microsoft og einnig Microsoft Ísland en fékk aldrei svar og eru ca 2 ár síðan! En Kannski númer 7 reddi þessu veit það ekki en slæmt er að fá ekki svör bæði að utan og hérna að heiman. Kannski að fólkið úti í Amríku og eða hérna heima sé svo upptekið við að naga neglurnar ég veit ekki en allavegana þá hef ég gefist marg oft upp á biðinni hjá Íslensku deildinni hjá fyrirtækinu sem að ofan greinir. Nógu andsk... eru forritin DÝR!!!

Örninn


Árni og Runólfur.

Jæja þá er bara eitt að gera að báðir víki strax því það er ekki nóg að spillingin ráði ríkjum núna frekar en hjá fyrrverandi stjórn! Ég hélt sem ÍSLENDINGUR að þetta væri búið en Öðru nær! Burtu með ykkur strax og að vita að umboðsmaður SKULDARA væri í feninu ásamt öðrum útrásarvíkingum og ráðinnn samkvæmt einhverju mati nú var það hlutlaust mat eða keypt? Nei nú er komið að skuldaskilum hjá þessari stjórn hreinsa allt í burtu þá á ég við vina og kunningjaráðningar og TAKA STARFSLOKASAMNINGA OG HENDA ÞEIM ÚT Í HAFSAUGA því eins og ég hef sagt áður í bloggi hjá mér þá NÝTUR ALMENNINGUR EKKI ÞESSARA KJARA nema að það verði sett inn í NÆSTU KJARASAMNINGA OG LEGG ÉG ÞAÐ TIL NÚNA eftir alla niðurlæginguna sem AMENNINGUR HEFUR ÞURFT AÐ ÞOLA UNDANFARNA áratugina með að taka þátt í einhvejum Þjóðarsáttum sem hafa bara skilað Almenningi litlu sem engu í launahækkunum því  allt hefur verið RIFIÐ af fólkinu STRAX með ÝMSUM HÆKKUNUM Skatta ofl! Nú Orkuverðið fór nýlega upp úr öllu valdi og eitt skil ég ekki hvernig útreikningar á kaupmætti er reiknaður því ÉG SÉ VÖRUR LIGGUR VIÐ HÆKKA Á HVERJUM DEGI ALLSTAÐAR og af hverju er BENSÍN OG OLÍUVERÐ EKKI KOMIÐ NIÐUR UM 15-20% eins og á flestu byggðu bóli á jarðarkringlunni? Nú slektið þarf sitt til að lifa en ÞAÐ ER ÞVÍLÍK SVÍVIRÐA FYRIR SAMTÖK ATVINNULÍFSINS OG ALÞÝÐUSAMBANDIÐ AÐ BERA SAMAN LÍFSKJÖR OG KAUPMÁTT NÁGRANNALANDANNA VEGNA ÞESS AÐ LÁGMARKSLAUN VERKAMANNS TD. Í NOREGI ER UM 2100 ÍSLENSKAR KRÓNUR á TÍMANN OG ER ÞAÐ LAND EKKI ÞAÐ ÓDÝRASTA Í EVRÓPU! Þannig að hættið að halda svona helv.... kjaftæði fram því ég get sagt það að hálfur líter af hreinu jóghúrt það kostar úti í Noregi 110 íslenskar og er þó kaupmátturinn miklu meiri! Held bara að Alþýðusambandið sé á samning við SA! Annars væri kaupmátturinn miklu meiri á Íslandi! Nú er komið nóg og Íslendingar FARIÐ AÐ LEGGJA SAMAN 2+2 OG EKKI FÁ ÚT 5 KOMIÐ SKILABOÐUM ÁFRAM AÐ NÚ SÉ NÓG KOMIÐ OG KOMINN TÍMI Á RÉTTLÆTI! OG ENGAN UNDIRLÆGJUHÁTT LENGUR!

ÖRNINN


mbl.is Vissi að Runólfur tapaði fé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórnin að hjálpa glæpafyrirtækjum!

Jæja nú er fokið í flest skjól hjá okkar Ríkisstjórn! Gera þeir sér ekki grein fyrir því að þessar fjármögnunarleigur ofl, sem að veittu þessi svokölluðu gengistryggð lán eru tryggð af tryggingafélögum úti í heimi fyrir skakkaföllum! Þannig að nú ætti Ríkisstjórnin að FRYSTA ALLAR EIGNIR ÞESSARA SEM AÐ VEITTU ÞESSI SVOKÖLLUÐU MYNTKÖRFULÁN OG ÖNNUR GENGISTRYGGÐ LÁN ÁÐUR EN AÐ ÞESSI FYRIRTÆKI OG JAFNVEL BANKAR FARI Í GJALDÞROT! Kannski má það ekki út af einhverjum hræðsluáróðri einhverra en bara!! FRYSTA ALLT STRAX! OG ALÞINGI OKKAR ÍSLENDINGA FARIÐ ÞIÐ AÐ VINNA VINNUNA YKKAR SUMARIÐ ER EKKI BÚIÐ, ÞAÐ MÁ VINNA LENGUR EINS OG ALMÚGINN HEFUR GERT Í GEGNUM ALDIRNAR!!! SUMARFRÍ ÆTTI BARA AÐ VERA EINS OG HJÁ ALMÚGANUM EKKI 2-3 MÁNUÐIR Á ÁRI Á FULLUM LAUNUM OG NÆST EKKI Í MEIRIHLUTA ALÞINGISMANNA VEGNA SUMARLEYFA EF AÐ ÞARF AÐ RÆÐA MÁL SEM AÐ KOMA ÞEIM VIÐ ÞÁ ER VIÐKVÆÐIÐ ER Í FRÍI TALIÐ VIÐ MIG ÞEGAR ALÞINGI BYRJAR!! ÞETTA ER EKKI GOTT ÞETTA ERU MENN OG KONUR SEM AÐ FÓLKIÐ KAUS OG ÞAÐ ÆTTI ALLAVEGANA AÐ VERA HÆGT AÐ TALA VIÐ ÞÁ SEM AÐ FÓLKIÐ KAUS OG JÚ ÞESSIR ALÞINGISMENN ÞURFA SITT SUMARFRÍ EN EKKI ÞENNAN ÓSKAPA TÍMA SEM EKKI NÆST Í ÞÁ MEÐ ÞESSU VIÐKVÆÐI EINS OG AÐ OFAN GREINIR! NÚ OK BARA EIN ORLOFSLÖG FYRIR ALLA HVERNIG VÆRI ÞAÐ NÚ?  ÞÁ FÆRU ÞAU EFTIR ALDRI OG HVERSU SÁ AÐILI HEFUR VERIÐ LENGI Á VINNUMARKAÐINUM ÞANNIG AÐ ÞÁ VERÐUR ENGIN KERGJA, REIÐI OG ÖFUND! BENDI LÍKA Á Í ÞESSU TIVIKI LÍKA Á KENNARA ÞAR ER ÞAÐ SAMA UPPI Á TENINGUNUM FRÁBÆRT SUMARFRÍ OG NÆST EKKI Í ÞÁ: SUMARFRÍ!!

ÖRNINN


Veiðibjallan farin á kreik!

Jæja varð vitni að því rétt áðan að veiðibjalla lét sig flakka inn á milli trjáa til að ná sér í æti! Ég veit sem skotveiðimaður að það er farið að þrengja að fæðunni hjá þeim, vegna þess að offjölgun hefur átt sér stað bæði hjá veiðibjöllunni og sílamáfinum! Því miður í dag þá má víst ekki fækka þessum tegundum út af einhverjum umhverfisverndarsinnum, en þessir aumingjans umhverfisverndarsinnar gera sér ekki grein fyrir gangi náttúrunnar! Svo eftir 2-3 ár þá verða engvir skógarþrestir og tala nú ekki um allar hinar tegundirnar! Mikið vildi ég óska þess að þessir svokölluðu umhverfissinnar tækju þá að sér að fóðra þessa máva með öllum sínum óværum kannski salomonellu og ég veit ekki hvað! En í den þá gerði ríkið út á það að fækka vargfugli og gekk það vel að halda þessum stofnum niðri það er að segja veiðibjöllunni og sílamávinum og þá fækkaði salómonellusmiti um allt land! En í dag er þessu smiti farið að fjölga því miður og ég segi bara líka að minkum og refum hefur fjölgað óheyrilega vegna þess að það hefur ekkert verið gert til að farga og það er bannað (AÐ)( þessum fallegu dýrum, fuglum að sögn stækustu umhverfisverndarsinna sé ÚTRÝMT!) Nei held að þessir svokölluðu náttúruverndarsinnar ættu að læra um offjölgun stofna samanber að ofan og kynna sér náttúruleg afföll á öllu sem kvikt er í staðin að vera með einhverjar kenningar og hafa svo þar að auki kannski aldrei séð mink og eða tófu í náttúrulegu umhverfi með lambsskrokk og eða eitthvað annað í kjaftinum!

ÖRNINN


Já flott!

Frábært!! Hvernig væri nú að yfirmaður fangelsismála á Íslandi hefði nú samband við Angelu Merkel kanslara Þýskalands til að fá leigð fangelsisrými fyrir þá Íslendinga sem nauðsynlega þurfa að komast í vistun og búið er að kvarta yfir og ganga enn lausir! Nú þá væri hægt að koma einhverju af hvítflibbagenginu sem kom landinu á hausinn í GÆSLUVARÐHALD og láta þá svitna! Nú en með flutninginn nú fangarnir þyrftu að borga sjálfir með auknum dómi eða samfélagsþjónustu á Reynslulausn þangað til að væri búið að borga upp fargjald ásamt öllum þeim gjöldum sem hljótast út af dómum þar með taldar skaðabætur ofl! Er þetta óraunhæft? Já og Nei en er ekki viss um að það yrðu nein Lúxusfangelsi eins og á Litla Hrauni og fangarnir yrðu ekki hrifnir af því að missa lúxusinn sem að þeir ættu kannski von á Hrauninu!

 

ÖRNINN


mbl.is Fangar velkomnir til Þýskalands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Örn Ingólfsson
Örn Ingólfsson

Er í mjög góðri vinnu. En get verið með ýmsar hressilegar skoðanir sem öðrum finnst stangast á við þeirra skoðanir og ég virði skoðanir annara þrátt fyrir bölv og ragn!

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband