Barnavernd í Sandgerði?

Hef heyrt ýmsar sögur um offors nefndarinnar þar sem eru víst ekki allar fallegar. Þar á víst að vera einhver eineltisstefna gagnvart vissum fjölskyldum en sumar fjölskyldur njóta frelsis vegna fjölskyldutengsla við stjórn og flokkstengsla við vissa flokka og þegar að talað er um einelti, misnotkun og svo miklu meira þá á að þagga niður misferlið og skrítið nokk að alltaf situr óreynt fólk í stólunum sem veit ekkert hvernig það á að snúa sér í málunum sem að ofan greinir!Enda hafa mörgum  fjölskyldum verið splundrað út af kjaftagangi og svo þegar að mistökin koma í ljós hjá embættinum þá er ekki einu sinni afsökunar að vænta! Því miður hafa einhverjar afdánkaðar kerlingar sem eru rótgrónar og kannski ríkar í samfélaginu og vilja ekki börn nálægt sér og þola ekki hávaða í börnum og eða fullorðnum. Það má víst ekki kalla á börn höstum rómi: Komdu strax! Þá er komin kæra!! Fólk þarf að líta sér nær og ég veit og þekki mikið af fólki í Sandgerði sem að hefur lent illilega í þessu félagsmálaveseni en ég segi eitt aftur að það er kominn tími til að fá fólk með reynslu á Félagslega sviðinu ekki einhverja amatöra(áhugamenn) sem þykjast vita og hafa jafnvel aldrei kynnst VESENI og ákveða að taka börn af heimili!!!!


Flóttafólk og Íslendingar

Jæja nú ætla ég að tjá mig um flóttamenn! Ég hef ekki neitt á móti flóttafólkiog það svíður mig sárast að það séu svo rosalega MARGIR ÍSLENDINGAR SEM VILJA TAKA VIÐ FLÓTTAMÖNNUM EN LÍTA SÉR EKKI NÆR! Við höfum ekki efni á að taka við flóttafólki því VELFERÐARKERFIÐ GETUR ÞAÐ EKKI FREKAR EN MEÐ ALDRAÐA EÐA ÖRYRKJA!!! Nema að þeir ríkustu setji upp flóttamannabúðir og haldi þeim uppi með öllu uppihaldi? Er þá ekki kominn tími til að Bjarni Ben, Sigmundur Davíð og Eygló vakni og byrji á réttum enda að hugsa um Íslendinga áður en þau gefa út einhver digurbarkalegar yfirlýsingar á alþjóðavettvangi! Og er þá ekki kominn tími til að upplýsa Sameinuðu Þjóðirnar um fátækt á Íslandi sem hefur verið falin af stjórnvöldum undanfarin 20 ár og þeir græða mest sem kúga launafólkið með lágum launum með hjálp ríkisstjórnar Íslands í dag og vilja bara flytja inn erlent vinnuafl sem borgað yrði lágmarkslaun með þrælavinnutíma og í lélegu húsnæði þetta er að verða eins og fyrir hrun aftur allir Íslendingar að flýja skerið en ég hel áfram því þegar að ég kemst á ellilífeyririnn þá verð ég leitandi í ruslinu eftir matarbita því allur minn lífeyrir upp á 75 milljónir verður uppétinn af græðgispésum í lifeyrissjóðunum það væri kannski best fyrir mig að gulltryggja mig með að kaupa tryggingu fyrir ættingja mína og ekki láta Doninn í seðlabankanum vita af því en ég get komist framhjá þessum Don með þvi að láta ættingja og vini fá aura út sem að Doninn hans Davíðs veit ekki um það verða einhver afföll en græði samt fyrir fjölskylduna vegna þess að þau fæ smáaura hjá Íslensku tryggingarfélögunum en margfalt meira á Norðurlöndunum! Nú hvernig er þá með allar millifærslur erlendra starfsmanna á Íslandi! 

Nei skítt með Ísland við höfum rosa laun segja erlendu austantjaldsþrælarnir sem eru með undir 900 krónum á tímann í svartri en svona er þetta bara Ísland í dag og verður áfram!!! Ok er þá ekki kominn tími til að hafa einn Lífeyrissjóð og spara einhverja milljarða í launakostnað veit að það verður ekki tekið vel í það en samt þá væri hægt að hífa upp lífeyrisgreiðslur hins almenna lífeyrisþega upp um 45% og samt vantar 24% upp á skerðingarnar undanfarin ár og ekki eru gulltryggður, verðtryggður lífeyrir eins og hjá Lífeyrissjóð Starfsmanna Ríkissins sem HEFUR ALDREY ÞURFT AÐ TAKA Á SIG SKERÐINGU LÍFEYRIS sem við borgum með aukasköttum í staðinn fyrir lækkun auðlegðar og veiðigjaldaog það væri gaman að sjá þetta fólk taka á sig skerðingu upp á 69% á 4 árum og þá er ekki talað um aukafríðindin hjá þessu fólki sem falið er fyrir alþjóð kannski einkabíll og bílstjóri, eða leigubíll ofl!!

Eru Íslenskum stjórnmálamönnum og dómurum mútað svo svakalega að þeir geta liggur við selt ömmu sína?

Stórt er spurt en því miður fást ekki svör við þessum spurningum nema að óháðir erlendir rannsakendur sem þeir vita ekki um kanni málin en lekandi getur bætt eitthvað enda Icehot1 sá til þess að fá nafnið sitt skráð í sögubækurnar!!

Örninn


Þetta er algjör katastrófa

Jæja nú vælir allt auðmannskerfið og kvótakóngarnir út af vitleysisgangi ríkisstjórnarinnar vegna viðskiptabanns Rússa! ÆÆ en því miður þá verður allt tap þessara veslings þurftarfyrirtækja borgað úr vasa almenns skattgreiðanda sem hefur ekki fengið afskrifaða milljónir eða milljarða og almenningur fær ekki einu sinni lækkun á sínum litla auðlegðarskatti á 70 þúsund króna innistæðu um áramót skattur skal borgaður upp í topp á meðan að elsku grátkór ríkisstjórnarinnar fær auðlegðarskattinn lækkaðan um milljarða og greiða sér milljarða í arð! En skítt með það nú er kominn tími til að Íslenskir kjósendur sem kusu þetta yfir sig VAKNI og mótmæli þessu gerræði sem að ég held að sé runnið undan rifjum einhverra Dona fyrir norðan en veit ekki og að þessi blessaður ráðherra segi að það hafi verið einhugur um að styðja hitt og þetta á bágt með að trúa því en svo ætlar þessi hinn sami ráðherra að fara BETLANDI til Brussel eftir afhendingu bréfsins um aðildarumsókn Íslands gagnvart ESB!Það er eins og það vanti eitthvað í suma því það verða engin grið gefin og við þurfum bara að borga tolla af okkar afurðum eins og lönd sem eru utan ESB! Nei aulahátturinn og fyrirhyggjuleysið sínir bara að hvernig þessi ríkisstjórn starfar hygla sínum vinum númer 1-2 og 3 . Þetta er bara helvítis fokking fokk og kjósendurnir sem kusu þetta yfir sig aftur þið eigið eftir að vakna upp við miklu verri draum heldur en að þessi er núna! Sjáið bara til!!Og þá er alveg kjörið fyrir ríkisstjórnina að setja á auðlegðarskattinn aftur og hækka afturvirkt veiðigjöldin á stórútgerðir svo hægt sé að borga atvinnuleysisbætur fyrir allt fólkið sem missir vinnuna og nota svo afganginn til að hækka lífeyririnn og lækka lífeyririnn hjá LSR til jafns við allar lækkanir undanfarinna ára til almennings sem hefur numið yfir 30 prósentum en ríkisstarfsmenn tapa engu allt gulltryggt með okkar sköttum!

ÖRNINN


mbl.is „Þetta er algjör katastrófa“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skólarnir að byrja!

Jæja núna eru skólarnir að byrja en þá kemur ein spurning til Fræðsluyfirvalda? Eru kennarar settir í stöðupróf eins og svo margir aðrir til að meta hvort að hæfni þeirra sé eins og á að vera? Það er ekki nóg að vera kennari með áskrift að launum sínum hversu lélegur kennarinn er! Þannig að ég legg til að ráðuneyti þessara mála fari í það að útbúa stöðupróf svo hægt sé að sigta út kennara sem eru ekki starfi sínu vaxnir og fari að fyrirmynd Norðurlandaþjóðanna ofl til að sigta hismið frá þar eru nokkuð miklir fjármunir í húfi kannski gefa kennarar einhverjum nemendum úrvalseinkunnir fyrir? Þannig að ég legg til að Ráðuneyti þessara mála athugi þetta strax þannig að það verði ekki sama ástand og í sumar að skólar viðurkenni ekki einkunnir úr skólum!

Nóg borgar almenningur fyrir einhverja kennara sem eru ekki starfi sínu vaxnir og þiggja samt laun með hjálp SKÓLASTJÓRNENDA öðru nafni KLÍKA!!! Það er engin furða að heimta góð laun fyrir vinnuna en það þarf þá líka að vinna hana sómasamlega þá er ég að tala um þá sem nenna ekki að vinna hangsa og kæra sig kollótta um árangurinn!

ÖRNINN


Björgunarsveitirnar okkar!!

Nú er ég búinn að vera björgunarsveitaramaður í mörg ár en er kominn á eftirlaun eða þannig sko. En las í Fréttablaðinu um daginn góða grein um að Ferðamenn borgi fyrir björgun! Þar tjáði sig formaður okkar Smári um okkar aðstæður og fjölskyldur okkar! Þetta er sjálfboðavinna og eins og ég hef sagt áður að velvilji vinnuveitenda skiptir höfuðmáli að hafa manneskju innan okkar raða jafnvel á útkallsvakt og sem betur fer þá hefur þessi hugsjón hjá okkar björgunarsveitafólki smitað út frá sér hjá mörgum atvinnurekendum!! En betur má ef duga skal því eins og hefur komið fram í mörg ár og Smári formaður Landsbjargar bendir réttilega á það er löngu komið að þolmörkum hjá Björgunarsveitafólki á Íslandi! Því eins og ég veit að og segi það er níðst á fólkinu okkar til að bjarga einhverjum og við Björgunarsveitafólk fáum engar þakkir frá yfirvaldinu en frá þeim sem við björgum það er æðisleg tilfinning sem ekki er hægt að lýsa fyrir einhverjum skrifstofublókum sem hafa ekki hugmynd um hvað björgun er hvort sem er á sjó eða landi! Nú þegar að ég byrjaði í okkar frábæra starfi þá þurfti maður að fjármagna allan sinn búnað sjálfur og gat svo kríað einhverjar krónur (BETL)til að kaupa eitthvað annað en það gat tekið 2-3 ár að hafa fullan búnað! En allavegana þá er það skrítið að ríkisstjórnir sem hafa verið undanfarna áratugi hafa ekki getað séð sóma sinn í því að setja smá fjárhæð í málefni leitar og björgunar (SAR) en geta samt spreðað milljörðum í niðurfellingu skulda hinna og þessa! Skrýtið? Nei þessir sem hafa ráðið ríkjum undanfarna áratugi ganga að okkur Björgunarsveitafólkinu sem  vísu og traðka á okkur því miður! Nú ef að eitthvað gjald yrði innheimt fyrir björgun segjum 10000 þá verða eftir kannski 1850 krónur þegar að ríkishýtin er búin að taka sitt og þá á eftir að borga eitthvað annað!! Kannski 600 krónur þegar upp er staðið því það vantar alltaf í hýtina meira til að spreða!!

Örninn


Tollaívilnanir? Við Íslendingar ekki sem umsóknarríki ESB?

Mikið svíður manni við að landbúnaðarráðherra sé að semja við ESB þegar að umsóknarferlinu er lokið! Nú Gunnar Bragi Sveinsson að beiðni vina sinna fyrir norðan fór með bréf um að enda aðildarviðræðna en gerði sér ekki grein fyrir því að vinir hans í KS gleymdu að minnast á við hann að því miður fáið þið engar ívilnanir á tollum til ESB þar með talið allar landbúnaðarafurðir það er kindakjöt, nautakjöt ofl og þess vegna er Landbúnaðarráðherra á hnjánum hjá ESB um einhverjar undanþágur fyrir Íslendinga því það má ekki segja frá afleiðingum slita á umsóknarferlinu því nú hækka allir evrópskir byrgjar sínar álögur sem við vorum undanþegin og þá græða vildarvinir KS það er XB og lang mest vildarvinirnir í XD! Nú við erum búnir að missa mikið af styrkjum en það virðist ekki koma við kaunin á gulldrengjunum en Íslendingar þakkið þessum gulldrengjum fyrir annað hrun því þeirra flokksforystumenn komu fyrsta hruninu af stað kærar þakkir þið aumu kjósendur sem komu þessu ástandi á með öllum kosningaloforðum gulldrengjanna!!

ÖRNINN


mbl.is Semja um tollaívilnanir á mat
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrsti maí 2015

Jæja allir launþegar sem eru með undir 210 þúsundum króna á mánuði fyrir utan skatt,öryrkjar, ellilífeyrisþegar og ótalið allt fólkið sem er á vegum starfsmannaleiga á vegum Íslendinga sem mala gull með rottuholum sem leiguhúsnæði fyrir starfsfólk sitt til óhamingju með dag Verkalýðsins. Því það virðist bara vera eitt hjá forystumönnum (Kjéllíngum) sem eru að berjast fyrir einhverjum kjarabótum að hafa sem mest úr bítum í sínum launum samanber síðustu 3 kjarasamninga sem það samþykkti og sáttir með það hækkuðu laun stjórnenda ASÍ, VR ofl miklu meira heldur en umbjóðenda þeirra!!! ALÞÝÐAN SKILIN EFTIR allir aðrir fengu eftir þá samninga 68 prósentum hærri launahækkanir en ALÞÝÐAN og því miður þá hefur sú stétt setið eftir og á inni um það bil 89 prósenta launahækkun miðað við vísitölu og kaupmátt sem að einhverjir spekúlantar innan Seðlabánkans og sérfræðíngar keyptir af stjórnvöldum halda fram til að geti ekki staðist til að slá ryki og öðrum lygum svo að fólk trúi þeim! En nú er komið að skuldadögum þannig að Verkföll eru byrjuð og verða áfram svo fremi sem að jöfnuður komist á í þjóðfélaginu, það er að kvótamálin verði ekki gefin frjáls til óráðherra sem úthlutar eftir geðþótta eins og gamall sjávarútvegsráðherra sem er forseti Alþingis í dag gerði og vildarvinir fengu með afskriftum hundruðir milljóna og ennþá útgerðin starfrækt á kennitöluflakki!! En að allur fiskur verði settur á markað og líka eitt að óráðherrar standi við STÓRU ORÐIN um ATKVÆÐAGREIÐSLU um ESB því fyrri hluta þeirra kjörtímabils er lokið ef þeir vilja uppreisn þá þeir um það það þýðir ekkert að kenna stjórnarandstöðunni um þær málalyktir og málþóf eins og BB og SDG notuðu ásamt hótunum um hitt og þetta á þeim þingum með sín mál sem þeir vildu koma fram í kjördæmapotinu sem urðu til þess að sumir Íslendingar kusu víst vitlaust eins og endranær stækir Sjallar og Gærukallar líka!!

Er þá ekki best fyrir Bjarna Ben og Sigmund Davíð að setja lög á Alþingi gegn kennitöluflakki svona áður en þeir fara í frí en kannski má það ekki kannski tapa einhverjir vinir á spillingunni þar með talið virðisaukaskattinum??

Örninn


Launin hjá almennum launþega ofl!

Jæja er nú ekki kominn tími til fyrir atvinnurekendur sem hafa ráðið vinnumarkaðinum frá örófi alda með láglaunastefnu frá dönsku ofl einokunum þar sem að þrælarnir ættu bara að hafa varla rétt í sig og á og varla meira! Nú þetta er búið að vera harkalega lítil laun hjá alþýðunni eftir 1918 þegar að stórgrosserar tóku við ýmsum hlunnindum frá Danaveldi enda sprenglærðir að kúga launþegann eins og danir fóru með þrælana í den og það er það sem er að gerast í dag með alla launþega sem eru ekki á spenanum hjá RÍKINU! En ég held bara að Samtök atvinnulífsins ættu að fara að líta í eigin barm með geigvænlegar launahækkanir innan sömu samtaka og síðast var nú Frikki Sófuss gleiðbrosandi á forsíðu blaðs og hafa hans laun hækkað síðustu 3 ár bara um 65%? á meðan að almenningur hefur fengið 12,5%? Nei ekki gott enda núna eru stjórnvöld búin að skíta upp ábak með hin og þessi loforð og svo á almenningur að fara að borga fyrir HRÆGAMMASJÓÐINA sem lofað var, og líka SKULDANIÐURFELLINGUNA UPP Á 80-100 MILLJARÐA!!Svona fór um loforðin en því miður þá trúði fólk þessu sem gleymdi einkavinavæðingunni SEM KOM Íslandi á HAUSINN með sölu bankanna til vildarvina!!Og ekki skánar það þegar að nöfn koma upp á yfirborðið með falda reikninga í utlöndum þá vakna sumir kjósendur upp við vondan draum og segja? : Ég hélt að þessir ungu menn hefðu ekki gert neitt svona, þó svo að sagt hafi verið frá ávirðingum BB í blöðum í sambandi við Sjóvá ofl! En skítalyktin er svo svakaleg með auðvaldsmafíuna og að fólk skuli ekki vakna við fnykinn samanber blöðin þar sem að rannsóknarblaðamenn hafa verið reknir fyrir að segja frá spillingu og þar tek ég td. World Class þar sem að BL keypti hlut til að koma Reyni Tr ofl frá því sannleikurinn mátti ekki koma í ljós með hinar og þessar kennitölur sem að viss flokkur vill láta halda áfram svo vildarvinir geti haldið áfram að svíkja út fé frá fyrirtækjum og einstaklingum! En er nú ekki komið nóg af spillingunni og að BB og SDG geri hreint fyrir sínum dyrum og fari að vinna fyrir ÍSLENDINGA en ekki AUÐVALDSMAFÍUNA annars þá verður allt stopp því fólkið er búið að fá nóg af helv... lýginni og lágum launum og fólk talar nú ekki um frumhlaup Ríkisstjórnarinnar með Gunnar og bréfið þeirra þvílík þjóðarskömm! Farið að hysja upp um ykkur brækurnar og setjið auðlegðarskattinn upp aftur og auðlyndargjaldið svo að almenningur þurfi ekki að taka MEIRI BYRÐAR Á SIG ÞIÐ ERUÐ BÚNIR AÐ SETJA NÓG Á OKKUR!

ÖRNINN


Harðfiskurinn okkar!!!

Jæja góðir Íslendingar nú er sumstaðar verð á harðfisk komið frá 8000 krónur kílóið og upp í 14000 krónur! En það versta við þetta er okrið því það er sumstaðar verið að selja sama kílóverð á þorski eins og ýsu og eitt veit ég að það er ágætt að kaupa 170 kíló af slægðum þorski á 295 kr.kg sem gera Kr: 50150 og inniblástursþurrkaður í einhverjum maskínum og fá svo út úr því um 25-30 kíló og selja svo ca 27 kíló á: Dæmi: 27 kíló x ca 4500kr eftir sölu til byrgja þá gerir það: 103500 og svo stighækkar verðið sem seljandi fær og svo leggst álagning seljanda á þannig að þá geta neytendur áttað sig á verðinu en fyrir utan það þá er inniblásturþurrkaður harðfiskur ekki nærri því eins góður og sá sem er gerður á gamla mátann Hjallþurkaður við Vestfirskan eðal blástur ! En það tekur 2 vanar manneskjur ekki langa stund að flaka og beinhreinsa flökin!

Örninn


Er þá Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu undanþegin?

Jæja nú er ég hissa því ég veit ekki betur en að trúnaðarskjöl eigi ekki að liggja á glámbekk á einhverju tölvudrifi og allra sýst að senda til einhvers sem hefur ekki umboð til að æskja eftir svoleiðis upplýsingum þó svo að manneskjan í þessu máli hafi sagt að þetta mál hafi verið hjá Innanríkisráðuneytinu og ég veit ekki hvað! En allavegana ef að ÉG STARFSMAÐUR FYRIRTÆKIS SENDI GÖGN MEÐ UPPLÝSINGUM UM SKULDASTÖÐU OG EÐA EITTHVAÐ ANNAÐ TIL ANNARS FYRIRTÆKIS OG ÞAÐ KÆMIST UPP ÞÁ YRÐI ÉG REKINN SAMSTUNDIS!!! Í ÞESSU MÁLI ER KOMIN UPP SAMA STAÐAN MEÐ ÞANN SEM SKIPAÐI VINKONU SÍNA SPILLING ? KANNSKI TIL AÐ REYNA AÐ FELA EITTHVAÐ ?? Nú Stefáni var bolað burt af vinkonu Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og skiljanlega vildi Stefán ekki sitja undir einhverri pressu um eitthvað sem að kom svo í hausinn á hans fyrrverandi yfirboðara. En eitt skal jafnt yfir alla ganga og þá er tími til að Lögreglufrúin á höfuðborgarsvæðinu segi af sér með sóma áður en að eitthvað verður grafið upp af einhverjum blöðum !!! Því það eru alltaf til uppljóstrarar þó svo að þeir fái ekki borgað fyrir upplýsingarnar!!

Örninn


mbl.is Gerðist ekki brotleg við lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Örn Ingólfsson
Örn Ingólfsson

Er í mjög góðri vinnu. En get verið með ýmsar hressilegar skoðanir sem öðrum finnst stangast á við þeirra skoðanir og ég virði skoðanir annara þrátt fyrir bölv og ragn!

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.8.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband