Hjólreiðar innan Reykjavíkur!

Þó svo að hjólastígar hafi verið lagðir sérstaklega með umferðargötum til aðgreiningar fyrir hjólreiðarfólk samanber Hofsvallagatan þá hefur það komið nokkrum sinnum fyrir að hjólreiðarfólk hefur farið út af sinni braut þvert fyrir bíla með tilheyrandi aftanákeyrslum þar sem ekki hægt að sanna hver var tjónvaldur þá lenda báðir tjónþolar fyrir skaða! Og því miður hef ég lent margoft í því á Hofsvallagötunni að vera með hjólandi manneskju á akbraut og mæti svo allt í einu Strætisvagni sem er að koma yfir gatnamótin og þá þarf ég að hemla svo að hjólreiðarmanneskjan verði nú ekki fyrir Strætisvagninum og skrítið nokk það væri þá ágætt að Hjálmar færi nú út að hjóla og kynna sér borgina sérstaklega Laugarveginn með allar sínar þrengingar í staðinn fyrir að sitja á rassgatinu allan daginn og fá einhverjar upplýsingar? frá einhverjum. Skal þá benda Hjálmari á að við Kleppsmýrarveg hefur staðið hvítur flatbeddari(útskýring 8-10 metra flutningavagn)í 2 ár fyrir ofan Hringrás og sá truflar umferð! Búinn margoft að hringja í 4111111 og biðja um Umhverfis og skipulagsstofnun og enginn svarað ennþá þó svo að öll símtöl séu tekin upp? Er þetta bara Reykjavíkurskipulag eða hvað? Og annað Hjálmar fjarlægið allar þrengingar úr gæluverkefninu Borgartúni sem kostuðu þá 390 milljónir.

Bobbí


mbl.is Hvar hjóla Íslendingar?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fiskveiðar!

Af hverju mótmæla Íslensk stjórnvöld ekki hvalveiðum Bandaríkjanna? Og eru Íslensk stjórnvöld í dag með alla sína aðstoðarmenn sem kannski hafa ekki vit á einu né neinu nema að samþykkja allt það sem þeim er sagt úti á túni og geta ekki einu sinni sagt ríkisstjórn Bandaríkjanna hvað sé í húfi! Það kemur vel á vonda Greenpeace og fleyri náttúruverndaröfgahópa þegar að allt í einu fæst ekki fiskur og þá er ekki hægt að kenna Íslendingum um það nema að aumi utanríkisráðherrann samþykki hitt og þetta og hann með sína aðstoðarmenn! Nei það er kominn tími til að ríkisstjórnin láti einhverjar milljónir í að búa til myndband um hnúfubaka sem éta fæðu frá öðrum í náttúrinni og kannski vakna einhverjir upp við vondan draum!Og benda á að sjófuglalíf sé að hverfa við Ísland og Nýfundnaland út af fæðuskorti sjófugla!

ÖRNINN

 

 


mbl.is Sáu hnúfubak með kjaftfylli af loðnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Búvörusamningur, tollar á innflutt matvæli ofl!

Jæja nú er búið að skrifa undir nýjan búvörusamning sem kostar það að klyfjar Íslenskra heimila snarhækkar! Ég verð að halda því fram að ráðherra landbúnaðarmála sé sauður! Því ef að bændur fengju eða hefðu fengið allar þær hækkanir sem dunið hafa á neytendum undanfarin ár þá væru margir bændur sko milljónerar með 2-4 utanlandsferðir á ári og með mannskap á fullum launum á meðan! En því miður er þessi sauður að styrkja alla aðra en bændur og vildarvinir fá 85% af þessum peningum það eru milliliðirnir í kjördæmi ráðherra ofl! KS ræður 35% af kjötmarkaðinum, Ferskar 35% SS 20% og Ali restinni! Og hverjir eru með sláturhúsamarkaðinn á öllum kjötafurðum? Hverjir geta sett upp verð til bænda? Sama spillingin og var með kaupmennina í den en svona er þetta! Og veit um bændur sem eru kolvitlausir út í sauðshátt einhvers sem talar ekki við og heimsækir ekki bændur til að fá upplýsingar heldur einhverjum aðstoðarmönnum sem vita kannski ekki hvað búskapur er! Hneyksli að þurfa að borga af peningum okkar allra Íslendinga fyrir einhverja sem hafa ekki vit á einu né neinu? Skítalyktina leggur úr þessu ráðuneyti! Og eitt skal tekið fram að innflutningur á matvöru verður tollaður upp í topp áfram þó svo að það sé ólöglegt samkvæmt ESA því að vildarvinir mega ekki missa spón úr sínum aski heldur okra áfram á landanum! Við erum komin í sömu stöðu og frá árinu 1700 þar sem að kaupmenn og aðrir mangarar okruðu á Íslendingum og gera ennþann dag í dag því miður en í þá tíð voru sýslumenn og landshöfðingjar á launum hjá kaupmönnum (SPILLING)til að framfylgja réttlætinu og almúginn fékk að kenna á því all svakalega samanber sagan um Jón Hreggviðsson! Nei Ísland er orðið svo rotið og spillt með atbeina sýslumanna ofl innan löggjafasamkundunnar, sem taka ekki mark á mótbárum og skjölum td við nauðungarsölur, sérstaklega eftir hrun  eða öðrum mótmælum almannaréttar sem er oft fótum troðinn sérstaklega til að þóknast fjármagnsmafíunni(Bönkunum) en það eru að koma kærur á marga sýslumenn sem fóru ekki að lögum með nauðungarsölur ofl og vona ég að sem flestir kæri meðferðina því það er engin furða að bankarnir geti sýnt allan hagnaðinn mest allur fenginn frá almenningi með sölu á eignum sem seldar voru á uppboði og öllum gjöldunum sem bankarnir hafa lagt á almenning en samt segja þeir upp fólki en þetta er mikið til orðið rafrænt en ekki handvirkt eins og í den þar sem 20 manneskjur unnu áður þá er engin bara ein lítil tölva!!!!!

Örninn

 


Stórfyrirtæki sem borga undir borðið? Isavia er pólískt hver á peninga!!!

Tek heilshugar undir með Aðalheiði því það er svo mikil skítalykt af öllu þessu máli og annarra sem þurftu að hætta í Leifsstöð og þyrfti að fara fram opinber rannsókn á stjórnarháttum, útboðum og öllu sem viðkemur greiðslum fyrir plássin sem að Isavia bauð út á EES samkvæmt einhverjum gögnum en er þá ekki ágætt að Íslendingar sem eiga Isavia fái á hreint hvað sé í gangi og hvað er verið að fela? Ekki á að þurfa að fara dómstólaleið til að knýja á svör fyrst að allir úrskurðir séu löglegir eða við hvað er Isavia hrætt kannski að spilling komi í ljós fólk er farið að undrast allt leynimakkið kannski komið frá yfirstjórninni það er ríkisstjórninni sem eiga kannski einhverja hjá Isavia sem skitu upp á bak með sínum útboðum og uppsögnum? Nei en spillingin er allsráðandi á meðan að ekki er hægt að ráða fólk sem hefur vit á hlutunum heldur einhverjir flokksgæðingar á milljónalaunum á mánuði við að gera ekki neitt nema að láta smettið sjást við og við en aðstoðarmennirnir skrifa allt upp samanber ríkisstjórnin í dag ráðherrar með 85 aðstoðarmenn sem er 85 milljónir á mánuði sinnum 12 = 1 milljarður + það er hægt að gera ansi mikið fyrir þann pening eða hvað!!

Saurlyktin gýs ennþá sterkar upp með hverjum deginum og ennþá láta Íslendingar taka sig í rassgatið með Seðlabankann til bjargar bönkunum ennþann dag í dag og sá aumi bankastjóri þar er undir pilsfaldi auðvaldsmafíunnar og tók við af fyrirennara sínum sem bjargaði vildarvinum sínum og kom seðlabankanum á hausinn og ekki hjálpar auðvaldsmafían sem margir innan hennar hafa skilið eftir sig sviðna jörð um allt Ísland með loforðum um hitt og þetta þá er ég að tala um Samherja sem að er bara gróðafyrirtæki og jafnvel glæpafyrirtæki? en það má víst ekki rannsaka þá hlutlaust því enginn vill missa frá sér lögmannsréttindin því það gæti komið sér illa í framtíðinni og samanber Kaupfélag Skagfirðinga sama sagan þar því miður enda Sauðárkæklingar undir oki!! Það væri gaman að KS upplýsti alþjóð og Samherji líka í hvaða fyrirtækjum þeir eiga hlut í sérstaklega þeim FÖLDU með því sem að fjölskyldumeðlimir keyptu í!! Þeir eiga Íslensk fyrirtæki sem almenningur hefur ekki hugmynd um og græða feitt á þeim!!

Örninn

+

 


mbl.is Prinsipp að fá upplýsingarnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hótel hótel?

Jæja það vantar ekki gróðafýsnina með hótelin og gistiaðstöðu fyrir ferðafólkið! En því miður þá virðast stjórnvöld vera umkomulaus,Umhverfisráðherra grætur en því miður þá er það svo að skýrar reglur vantar um ábyrgð Landeigenda um ábyrgð á sínu landi þar með talin gæsla og öryggisgæsla ef einhver Lögleg og skráð veitingasala á sér stað innan hans landarmerkja!Og líka bera Ferðaþjónustuaðilar mikla ábyrgð og skulu þeir hafa frumkvæði að banna fólki aðgang að vissum svæðum ef háski stafar að! En því miður þá er mikill misbrestur á því vegna kannski ónógrar upplýsingargjafar til ferðamanna og eða tímapressu? Lenti í því síðasta sumar að það var farþegarúta fyrir framan mig og kom þá ekki ein stærðarinnar rúta og tók fram úr okkur báðum og við á 90. Náði þeirri rútu á Hellu og talaði við bílstjórann og sá sagði að klukkan þetta yrði hann að vera á þessum stað! Gullni Hringurinn! Lét vita og sá var gripinn í Grímsnesinu á 120 í bakaleiðinni frá Kerinu!! Skírteinið fokið með 60 manns innanborðs!!

En allavegana við (Ríkið) eigum ekki að borga fyrir vanræksluna og gróðafíknina samanber nýgenginn Hæstaréttardómur um ólöglega gjaldtöku Landeigenda enda þurfa landeigendur að standa undir sínum skyldum ef reka á ferðamannastað og hafa nóg af hreinlætisaðstöðu og borga skatta og skyldur til ríkisins eins og almúginn fá svo endurgreitt til baka fyrir sannanlegri UPPBYGGINGU helst með myndum!!

Örninn

 


mbl.is Tugir hótela eru í undirbúningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allir Íslendingar eiga forkaupsrétt ekki fjármagnsmafían!

Nú á að bjóða einhverjum vildarvinum forkaupsrétt af bankanum okkar allra! Svínarí en það skal tekið fram að ALLIR Íslendingar eiga bankann en ekki fjármagnsmafían! Þess vegna vill ég leggja það til að hver Íslendingur fái sitt hlutabréf upp á andvirði 30 þúsunda króna, og þeir sem voru með viðbótar lífeyrissparnað þegar að Landsbankinn var rændur innafrá fái sinn viðbótalífeyrissparnað til baka með vöxtum veit um suma sem töpuðu ansi mörgum milljónum og sumir tugum milljóna! En þetta er allt til í gagnagrunni bankans ennþann dag í nema að það hafi verið þurrkað út með nýjum bankastjóra? En allt upp á borðið og bjóðið Íslendingum að kaupa þó svo að það sé 1000, 5000 eða fleiri ónýtar krónur! Ekki mismuna Íslendingum fyrir vildarvinamafíuna!!! ÍSLENDINGAR EIGA LANDSBANKANN ALLANN!!!!

ÖRNINN


mbl.is Ráða ekki við Landsbankaútboðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Annað hrun Lífeyrissjóðanna!!

Nei aldrei aftur að hleypa stjórnendum almennra lífeyrissjóða í einhverjar áhættufjárfestingar utanlands því stjórnendur þessara lífeyrissjóða vita alveg upp á hár að lífeyrisþeginn tapar vegna þess að almennur lífeyrisþegi er ekki Gulltryggður af Ríkinu!! Skítt með almenning en það skal tekið fram að Samtök Atvinnulífsins hefur Hreðjatak á almennu Lífeyrissjóðunum og hafa haft úrslitavald undanfarin 15 ár í erlendum og innlendum áhættufjárfestingum með hjálp ASÍ! Skrýtið? Nei vegna þess að sumir sleykja eitthvað hjá SA! Þess vegna þarf að fara að hreinsa út úr almennu lífeyriskerfinu alla sem hafa ekkert að gera þar og fá inn fólk en ekki einhverja sem ráða peningum almennings enda hefur almennur lífeyrisþegi tekið á sig eftir fjármálabrask stjórnendanna 49% skerðingu lífeyris bara út af hruninu en ríkistryggði lífeyrissjóðurinn 0% skerðingu heldur hækka lífeyrisgreiðslurnar þar! Er þetta réttlæti? Nei þetta er algjört ógeð og helvítis svínarí því ekki vilja stjórnvöld verðtryggja almennan lífeyri því miður almenningur Þarf alltaf að skrúbba skítinn upp eftir sérstaklega þessa flokka sem ráða Íslenska ríkinu í dag því miður kusu einhverjir eymingjar annað hrun yfir sig aftur sem ekki er langt að bíða eftir og þá skulu þeir kjósendur ekki kenna neinum um nema sjálfum sér og halda þá kjafti og kenna ekki öðrum um eins og þeir hinir sömu gerðu eftir síðasta hrun!!

Örninn

 


mbl.is Vilja sækja meira á erlenda markaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Amen og allir eru frjálsir!

Það stakk mig venjulegan verkakarl um stungurnar sem hún og flokksbróðir hennar hafa fengið á sig! Nú það er ekki furða því vesalings ráðherra forsætis flýr þingsali ef viðkvæm kosningaloforð eru á dagskrá í óopinnberum fyrirspurnum því blessaður getur ekki svarað án spurningalista sem allir aðstoðarmenn hans þurfa að fara yfir! En fyrst að flokksforysta flokks þeirra beggja geta ekki tjóðrað undirráðherra og forystusauðurinn er kjaftstopp er þá ekki kominn tími fyrir samstarfsflokkinn að slíta stjórnarsamstarfinu? Og efna til nýrra kosninga til að fá inn nýtt fólk en ekki einhverja hagsmunapotara sem gefa auðlindirnar frá okkur 90% ÍSLENDINGA en ekki mútuþegum og spillingarflokkum sem hala inn milljarða á kostnað 90 prósentanna sem við borgum ennþann dag fyrir spllinguna eftir einkavinavæðingu bankanna sem að á eftir að kosta börnin okkar ómældar fjárhæðir því hundruðir milljarða fara ekki til að borga upp skuldir Ríkisins heldur skuldir vildarvina og sama súpan aftur! Af hverju eru stjórnvöld rög við að setja inn peninga til að hækka elli og örorkulífeyri? Veit svarið því Lífeyrissjóðirnir sko almennu án ríkisábyrgðar vilja það ekki því samtök atvinnulífsins ofl ráða spilamennskunni með almennan lífeyri! Þess vegna vilja þeir ekki hafa bara einn lífeyrissjóð gulltryggðann með ríkisábyrgð því sumir vilja ekki hrynja niður úr milljón á mánuði niður í 140 þúsund!! Klíkumafía hvað?


mbl.is Ósýnilegur her neikvæðrar umræðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Löggæsla, Vopna og sprengjuleit!

Áður en að Isavia sem er ríkisrekið fyrirtæki tók yfir allt batteríið þá þurftu sum öryggisfyrirtæki að þjálfa öryggisfulltrúa til verkefna sem enduðu með úrtaksprófum frá ýmsum alþjóðastofnunum í flugöryggi og þær verstu í að prófa flugöryggi voru frá Bandaríkjunum! Og komu þeir nokkrum sinnum á ári og sendu líka beitur til að athuga öryggi! Það gekk flott og allt fannst nema þær beitur sem að gamla sýslófólkið fann ekki enda endaði það einhverri uppsögn á öryggissamningi hjá dómsmálaráðherra á þeim tíma og þá var allt svona vesen flutt á Sýsló í Keflavík! Sagður of mikill kostnaður!! En hvað um það ríkið ræður og jú margt gott hefur komið út úr þessum sparnaði alltaf verið að fækka og kannski fáum við bara í andlitið á okkur: Dú jú spík what? Þetta er bara Ísland í dag! Henda krónunni og hirða hálfa aurinn!! Spilling og flokksræði og pota sínum vinum í toppstöður!! EÐA HVAÐ endilega kjósið SPILLINGUNA AFTUR KJÓSENDUR!!!

Örninn


mbl.is Isavia fjármagnar löggæslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýja hrunið byrjað!

Jæja þá er uppgangurinn byrjaður aftur með glæfralegum og gefnum sérstökum vildarvinakjörum í ýmsum útboðum þar sem almenningur nýtur ekki sömu kjara sem kaupendur hlutafjár í vissum fyrirtækjum! Hversskonar aumingjaskapur er þetta hjá okkur ÍSLENDINGUM þorir enginn að segja neitt út af vinnunni og áhyggjum um að vera rekin(nn)eða er þetta helvítis þrælslundin sem komst á eftir árið 1918 þegar að okkar sjálfstæði frá Dönum var tryggt og með því og eftir það þá hafa sumir mokað undir sig 890 milljörðum á móti 3mur milljörðum í almenning!! Nú hrunið kom og einhverjir lýstu sig gjaldþrota því tíminn var runninn út til að sækja peningana (milljarðahundruðin)því fjármálapésinn Bjarni Ben gat ekki ákveðið sig með borgun til stjóra skattrannsókna!! En það er allt í lagi því allir Íslendingar skulu halda þeim sem dæmdir voru til að standa fyrir dómstólum og svara til saka fyrir það tjón sem þessir aðilar urðu valdir að og það þýðir ekkert að hafa Sigurð G Guðjónsson ofl til að svara fyrir þá því eftirlifendur Íslendinga halda áfram málssókn á glæpamennina og þeirra dánarbú því það verður bara eitt hvert dómsmálið á eftir öðru því það má alltaf höfða einkamál jafnvel á dánarbúin upp í almennar kröfur hjá báðum hjónum!!!!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Örn Ingólfsson
Örn Ingólfsson

Er í mjög góðri vinnu. En get verið með ýmsar hressilegar skoðanir sem öðrum finnst stangast á við þeirra skoðanir og ég virði skoðanir annara þrátt fyrir bölv og ragn!

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.8.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband