Hæstaréttardómur yfir 4um svikahröppum með hjálp!

Jæja loksins er kominn dómur í Althanimálinu eftir öll þessi ár!

Allir lýstu sig saklausa fram á síðustu stundu. Og allir hissa yfir dómunum skrítið? Nei allir þessir 4 voru með færustu lögspekinga á sínum snærum og þá er það bara eitt sem kemur út úr því með lögspekingana að þeir eru öngvir Guðir sem dómstólar eigi að óttast! Samanber þegar að 2 lögspekingar sögðu sig frá málinu með tilheyrandi álishnekki og sekt og á almenningur að trúa svona lögspekingum sem hafa varið ótalmarga ótýnda glæpamenn? Má þá ekki fara að athuga Íslensk Hegningarlög sem eru mörg upprunnin frá Danaveldi og alveg aftur til Grágásar? Því miðað við dóma síðustu 350 árin þá hefur alltaf fallið sá dómur að lítilmaginn hefur alltaf þurft að lúffa ( hætta við málssókn )  fyrir yfirvaldinu út af misjöfnum varnaraðilum þá í dag heita þetta lögfræðingar sem margir eru ekki starfi sínu vaxnir og kannski hafa sumir skjólstæðingar þeirra fengið strangari dóm heldur en að ef að einhver verulega löglærður hefði séð um málin en það er bara að þar skipta peningar máli því 10.000+ krónur á klukkutímann skipta máli fyrir almenning en ekki hjá þessum sem hafa peningana! En svo vona ég það að þessir blessaðir svikahrappar fari á Litla Hraun eins og ótíndir glæpamenn því almenningur hefur þurft að fara á Litla Hraun fyrir 10000 faldari minni skuld og er þá ekki kominn tími til að hvítflibbaglæpamennirnir kynnist Litla Hrauni áður en að nýja fangelsið verður tekið í gagnið? Og vonandi verður í nýja fangelsinu engin nettenging og ef að einhver skólastofa verður nettengd þá verði lokað fyrir allt nema námsefni í viðeigandi fjarnámi enda grasserar allt út frá Litla Hrauni allt skipulagt út á við þar! En það svíður þjóðinni að almenningur skuli taka þátt í því að borga hlut í málsvörn Ólafs og það sýnir bara hversu rotið það er ekki fær almenningur nema kannski í klíkunni svona niðurfellingu allt skal borgað í topp!!!

Örninn

 


Kjarasamningar á næsta leiti!

Jæja styttist í kjarasamninga almenns launafólks. Lítið hefur heyrst í forystu ASÍ á meðan að framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins tjáir sig með orðum og fer ekki undan í flæmingi! Svo að almennur félagsmaður innan ASÍ undrar sig á þöggun ASÍ, hvort að ASÍ sé að semja undir borðið um einhverja þjóðarsátt sem að ekki kemur til greina þó svo að SA hafi farið fram á það til að viðhalda stöðugleika, verðbólgu ofl! Nú síðustu samningar ASÍ stuðluðu að sögn SA að bættri kjörum, lægri verðbólgu ofl! Nú blessaður karlinn hjá SA steinhélt kjafti ásamt sínum vini í ASÍ þegar að Kennarar ofl fengu RÍFLEGA kauphækkun og EKKI FÓR VERÐBÓLGAN UPP ÞÁ SKRÍTIÐ!Og ekki tók betur við þegar að seðlabankastjóri tjáði sig um launahækkanir sem mættu ekki verða hærri en 3,5% á almennum vinnumarkaði steinhélt kjafti með hækkunum sem að ofan greinir og síðar opinberra starfsmanna upp á tuga prósenta hækkun. En núna standa öll spjót á Verkalýðsforystunni að krefjast 25-35% launahækkunar á lægstu launin eða 200 þúsund króna eingreiðsla og 15 prósenta launahækkun eftir 1 ár 20% eftir 2ár og ef að aðrir hækka yfir þá hækkun þá fylgir ASÍ á eftir!!

Bara tillaga!

Örninn


Miklar grynningar í Landeyjahöfn af hverju?

Óvitaskap Vegagerðarinnar er um að kenna sem að hlustaði ekki á bændur og búalið sem benti ítrekað á vankantana! En ekki hlustað og við súpum seyðið af frumhlaupi upp á milljarða kannski út af gróðasjónarmiði veit ekki en allavegana þá er ekki komin ný ferja sem að miðað við teikningar hefði ekki komist inn í Landeyjarhöfn heldur út af sandburði! Þannig að það er kominn tími til að fresta smíði nýrrar ferju upp á fleiri milljarða og endurhanna Landeyjarhöfn á kostnað þeirra sem hönnuðu hana því eitthvað fór verulega úrskeiðis við útreikninga sérfræðinganna? Eða voru útreikningarnir kannski keyptir af lægstbjóðanda á þeim tíma og er í dag sem aðal flutningsaðili? Það má spyrja því er ekki spillingin allsstaðar í kerfinu samanber Vegagerðina ofl? Hver þekkir hvern og hver á ættingja sem á fyrirtæki????

Örninn


mbl.is Miklar grynningar í Landeyjahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrirhugaðir kjarasamningar almenns launafólks!

Jæja ekki er nú vænleg staða hjá Bjarna Ben og Sigmundi Gunn   kjarasamningar almenns launþega í uppnámi allt í handaskolum! ÆÆ engin furða og Samtök Atvinnulífsins bauna á Bjarna Ben og í viðtali í sjónvarpi í gærkvöldi þá bar hann vesalings silfurskeiðungurinn blak af launahækkunum ríkisstarfsmanna og sagði að almennur launþegi með lægstu launin hefðu hækkað meira heldur en margir starfsmenn hjá ríkinu en þá er allt í lagi að hann upplýsi alþjóð hverslags lífeyrisréttindi, fríðindi ofl sem ríkisstarfsmenn hafa á miðað við almenna launþega! Nú ég get nefnt dæmi almennur lífeyrisþegi er ekki með gulltryggðan ellilífeyri, á meðan að almennur ellilífeyrisþegi fær skerðingu á skerðingu ofan en engin skerðing hjá Lífeyrissjóði strafsmanna ríkisins!! Enda engin furða að sumir innan LSR eru með 6-8faldan lífeyri venjulegs launamanns ( konu) og það má ekki skerða heldur borgar ríkissjóður! Nú Skuldin sem skellur á launþegum næstu 15 árin eru 24 milljarðar í auknum sköttum til að bjarga óráðssíunni hjá LSR og við ALMENNINGUR FÖRUM FRAM Á ÞAÐ AÐ LSR SKERÐI LÍFEYRISRÉTTINDIN á móts við almennar lífeyrisskerðingar síðustu ár afturkræft er þá ekki kominn tími til að RÍKIÐ SKERÐI LÍFEYRISRÉTTINDI UM 35% og þar eru nokkur hundruð milljónir á ári sem má fá í hýtina en það má víst ekki hrófla við einhverjum!!!! Þá er kominn tími til að einfalda Lífeyrissjóðakerfið og ellilífeyririnn þannig að allir hafi það sama en ég sæji milljónamanneskjuna í anda þurfa að lifa af 35-50 þúsundum á mánuði eftir skatta!

Örninn


Horfur úr stöðugum í jákvæðar á kostnað ALMENNINGS!!!

Já það er engin furða að allt sé jákvætt hjá Fitch Ratings þar sem að allar upplýsingar um fátækt, léleg launakjör almennings og launaþróun síðustu 2ja ára í opinbera geiranum kemur ekki fram heldur þær upplýsingar sem að ríkisstjórn Íslands matar þá á og því miður vantar  erlenda óháða eftirlitsmenn sem fara í saumana á öllum málum viðvíkjandi Ríkisstjórninni en það má ekki því þá kemur það í ljós að fjármálaspillingin er svo geigvænleg að Ríkið myndi vera komið í meira heldur en RUSLFLOKK!! Af hverju er ekki búið að kaupa spillingarlistann? Nú kannski ekki til fjármunir allt í einu? Eða má sannleikurinn ekki koma í ljós hverjir það eru sem hafa flutt milljarðahundruði úr landi fyrir hrun og í aðdraganda hruns? Kannski á að bjarga vildarvinum, kennitöluflökkurum ofl veit ekki? En eitt er að Íslenskur almenningur ( Ekki þeir sem voru með gullfiskaminnið og fyrirgáfu einkavæðingu bankanna of í síðustu kosningum ) vill fá svör og annað líka að þingmenn vinni sína vinnu en ekki að vera að slæpast á öldurhúsum og eða á kaffihúsum á fullum launum í vinnutíma sem að gerir það að verkum að álit á þingmönnum í dag er orðið ansi lítið. Er ekki ráðlegt bara spyr að þingmenn þurfi að ganga í það að fá borgað eftir viðveru eins og ALMENNUR LAUNÞEGI því við SKATTGREIÐENDUR BORGUM ÞEIM LAUN! Og að sjá svo til tóma þingsali er hneyksli og ég sem ÍSLENSKUR SKATTGREIÐANDI OG ATVINNUREKANDI ÍSLENSKRA ÞINGMANNA að sett verði UPP TÍMASKRÁNINGAKERFI OG ÞINGMENN FÁI BORGAÐ EFTIR VIÐVERU EINS OG ALMENNUR LAUNÞEGI EN GETI EKKI LEIKIÐ SÉR Í VINNUTÍMA ÞVÍ ALMENNUR LAUNÞEGI YRÐI REKINN HIÐ SNARASTA!!

ÖRNINN


mbl.is Horfur úr stöðugum í jákvæðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hækkanir á matarskatti!!!!

Varð var við það fyrir áramót að verslanir hækkuðu vörur um 5-10 % svo að ekkert yrði tapið! Fór í Bónus í gær og ekki hafði sykurskattsáhrifanna gætt þar en allt annað hafði hækkað meira heldur en að MATARSKATTSHÆKKUN RÍKISSTJÓRNARINNAR GERÐI RÁÐ FYRIR!!! Af hverju getur RÍKISSTJÓRNIN EKKI SAGT RÉTT FRÁ OG VIÐURKENNT VITLEYSUNA OG AÐ FÁ VILDARVINI SÍNA til að skattpína þjóðina meira svo að vildarvinir hafi meira í sinn VASA?? SAMANBER ÚTGERÐINA OG MILLJÓNA OG EÐA MILLJARÐAEIGENDURNA SEM AÐ ÞESSI RÍKISSTJÓRN HEFUR UNNIÐ FYRIR ALVEG FRÁ BYRJUN!!!!!! OG ANNAÐ AÐ VIÐ MATARSKATSSHÆKKUNINA ÞÁ GRÆÐA VILDARVINIRNIR SEM ERU MEÐ EINOKUN Á MATVÆLAMARKAÐINUM MEÐ HÆRRI ÁLAGNINGU!!!!!!!

ÖRNINN


Matarskattur+ Girðingastaurar, Ískápar og sjónvörp -?% Og 30-40% launahækkun Almenns launamanns!

Jæja kæru landsmenn við eigum víst að kaupa notaða hluti frá þeim ríku samanber ummæli viss þingmanns! Og ekki tala ég um gerræði fjármálaráðherra um hækkun matarskattsins til bjargar vildarvinum í innflutningsgeiranum á ýmsum matvælum og tala nú ekki um olíugeirann þar sem að samráðsmafían ræður ríkjum! þarf ekki að minnast á Irving svo kom Atlantolía en það er komið í sama horfið allir4 flytja saman eldsneytið í sama skipinu! Hagræðing? Samráð? En hvað um það þá er kominn tími til að fara að endurnýja kjarasamninga sem að vonandi verða rosaleg kjarabót fyrir hinn almenna Launþega kannski upp á 40% fyrir utan þjóðarsátt!! Nú Már Guðmundsson seðlabankastjóri steinhélt kjafi við síðustu samninga ríkisstarfsfólks sem að jók launakostnað um ca 830 milljónir? á ári og ekki fór verðbólgan upp þá en sagði þá að ef að kjarasamningar almennings færu upp um viss 3,5% þá færi allt til helvítis!! Það er ágætt að hafa eina svona sleykju með sín laun og ekki gerði Már neitt í því að stöðva RÁN bankanna við lækkun þá hækkuðu gróðabankarnir á móti lækkuninni svo að þeir töpuðu engu! Er þá ekki kominn tími til fyrir Bjarna Ben fjármálaóreiðumálaráðherra að setja þá aukaskatt á vildarvini sína til að vega upp á móti tapi almennings sem nemur umþaðbil 380 milljónum á ári svipað og vildarvinirnir hafa gert síðustu 4 mánuði í innflutningi matvæla og eldsneytis??? Nei aldrei að lækka heldur hækka: Eitt dæmi ein myndavél sem kostar með öllum gjöldum og tollum í Svíþjóð kostar þar umreiknað í Íslenskar krónur 49900, ódýrasta í Elkó 69900, Fótoval og Bekó 89900! Nú hver græðir?

Er okrið svona mikið á Íslandi?

Örninn


Mikið gott að vopnum verði skilað!

Glæsilegt að það sé loksins komið í ljós að það var komið í veg fyrir STÓRT vopnasmygl allavegana miðað við yfirlýsingar Georgs hjá Landhelgisgæslunni að þetta hafi verið gjöf!! Nú þá má fara að athuga vopnavæðingu ýmissa Löggæslustofnana síðustu 15 árin sérstaklega eftir að Björn Bjarnason ýjaði að því að hafa suma undir vopnum jafnvel ef til kastanna kæmi Björgunarsveitir kannski misminnir mig en er gamall kallskröggur! En eitt skal alþjóð vita að í dag hafa verið seld ógrynni af skotvopnum því almenningur á Íslandi óttaðist það að þetta yrði svipað ástand og í Amríku misvitrir lögguþjónar með byssur þá meina ég skammbyssur ekki árásarriffla Heckler og Koch MP5 það er ágætt að hafa bara sérsveitina með þau vopn en ekki aðra. Eins og kom fram í fréttum um að hnífamaður hafi ógnað lögreglumönnum og gjallarhorn notað þá sótti einn laganna vörður vopn í bílinn með leyfi stöðvar! Og sá sem ógnaði kom út eftir að hafa fengið þær upplýsingar að vopnuð Lögregla væri á staðnum!  Mjög gott og er hræddur um að ef að MP5 kæmist í hendurnar á einhverjum sem hafa ekki andlega og eða líkamlega burði til að standa fyrir framan manneskju og kannski ekki með skotvopnaleyfi og skjóta kannski drepa fólk í kring en sá sem átti að skjóta slyppi!! Allavegana að láta þessa blessuðu menn taka skotvopnaleyfi og líka veiðikortið frá A-Ö og þola það að sjá blóð úr td hreindýrum þar er nú nóg blóðmagn eftir skot því manneskjunni blæðir eftir búkskot all hressilega miðað við kúlurnar sem eru notaðar!

Örninn


mbl.is Vopnum verður skilað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lekamálið er ekki búið og fleyra!!!!!

Nú þegar að Hanna Birna er búin að segja sig frá embætti þá er kominn tími til að skoða embættisfærslur hennar í embætti þar með talið skipun nýs Lögreglustjóra Höfuðborgarsvæðisins!! Ætti hún sem Lögreglustjóri að hafa sómatilfinningu að víkja á meðan að hennar embættisfærslur suður með sjó séu rannsakaðar og einnig hvernig hennar skipun í embætti var hefur hún einhverja skyldleika við Hönnu Birnu? Nú þetta hefur komið í ljós þar sem að Hanna Birna skipaði hana í embætti án þess að fá umsóknir og ég veit að það eru tugir manna miklu hæfari en nýji Lögreglustjórinn! Og annað að það því miður hefur viðgengist í spillingapólítíkinni á Íslandi alveg frá árinu 1918 þegar að peningamennirnir áttu Ísland og fóru í gjaldþrot trekk í trekk og þá bjargaði Landsbankinn gamli aftur mörgum af þeim  og eftir 1944 þá var það bara einokun um að ráða öllum kjörum almennings samanber SA í dag ásamt Seðlabankanum sem vilja hafa Ísland láglaunaríki með aðkomu vissra flokksfélaga sem hafa tröllriðið vinnumarkaðinum undanfarna áratugi og eiga fyrirtækin!Og ekki er verra að hafa suma dómara í Héraðsdómi og Hæstarétti með sér þegar á að taka á vildarvinum? Og dómarar pólítískt skipaðir!!! En nú er komið nóg og ég segi bara flott hjá Pólverjunum í ónefndu fyrirtæki að stíga fram og þetta á ekki bara við þá heldur Íslendinga líka því Íslendingar vita það að ef að þeir kvarta þá er sagt við þá að það sé nóg til af fólki!!! Þetta er skítt en svona gera fyrirtæki þetta út af atvinnuleysi og ég get sagt það að atvinnuleysið er miklu meira heldur en að pantaðar tölur eru frá ríkisstjórninni!! 8-9000 manns en komið niður í 4500 því restin fór á sveitina sem getur ekki borgað framfærslu jafnvel út af ofurlaunum stjórnenda sveitafélaga samanber Árborg!!!

Örninn


mbl.is Þjóðin læri af lekamálinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland í rúst!!

Jæja allt í rúst á Íslandi, læknaverkfall, verkfall tónlistakennara, og svo verður vonandi sá sem öllu ræður eina ferðina enn hjá ASÍ ekki áframhaldandi slettireka og undirlægja SA samanber síðustu kjarasamninga þar sem að undirlægjuhátturinn réði ríkjum við SA þar sem að SA og Seðlabankinn  réði ríkjum með fötluðu ríkisstjórn hinna ríku og svo geysist Seðlabankastjóri fram með það að litlar launahækkanir gætu kollvarpað verðbólgunni bla bla bla. Það eru ekki litlu launþegarnir sem hafa minnstu launin sem kollvarpa kerfinu heldur bölvuð Auðvaldasklíkan með sína menn innanborðs og að Seðlabanki okkar allra hlusti á kvóta og fjármagnseigendur að halda öllum vöxtum uppi til að bjarga sokkinni þjóðarskútu eftir milljarðalánveitingu til banka frá fyrrverandi Seðlabankastjóra og ekki má birta símtal því þá væri Geir Hilmar Harde ekki orðinn sendiherra í Washington en vonandi fara þessir blessaðir í US IMMIGRATION yfir söguna hjá honum eins og vissir flokksfélagar hans hafa verið iðnir við að deila upplýsingum um óæskilegar? (Ekki í rétta flokknum!) Íslenskar manneskjur undanfarna áratugi með hjálp Lögreglunnar sem að hefur ekki mátt segja frá enda leyniskjöl!! Er þá ekki kominn tími til að hætta við helvítis flokksráðningarnar og fá nýtt fólk ekki afdankaða stjórnmálamenn sem fá svo yfir milljón hjá LSR í lífeyri allt verðtryggt og gulltryggt því almenningur borgar!!!!

Ps: Held að Geir sé ekki kominn með diplómatapassa þannig að þá er að senda tilkynningu til USBP!!! United States Border Patrol um það vesen sem hann lenti í hérna á Íslandi!!!

Örninn

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Örn Ingólfsson
Örn Ingólfsson

Er í mjög góðri vinnu. En get verið með ýmsar hressilegar skoðanir sem öðrum finnst stangast á við þeirra skoðanir og ég virði skoðanir annara þrátt fyrir bölv og ragn!

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.8.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband