Færsluflokkur: Bloggar

Horfur úr stöðugum í jákvæðar á kostnað ALMENNINGS!!!

Já það er engin furða að allt sé jákvætt hjá Fitch Ratings þar sem að allar upplýsingar um fátækt, léleg launakjör almennings og launaþróun síðustu 2ja ára í opinbera geiranum kemur ekki fram heldur þær upplýsingar sem að ríkisstjórn Íslands matar þá á og því miður vantar  erlenda óháða eftirlitsmenn sem fara í saumana á öllum málum viðvíkjandi Ríkisstjórninni en það má ekki því þá kemur það í ljós að fjármálaspillingin er svo geigvænleg að Ríkið myndi vera komið í meira heldur en RUSLFLOKK!! Af hverju er ekki búið að kaupa spillingarlistann? Nú kannski ekki til fjármunir allt í einu? Eða má sannleikurinn ekki koma í ljós hverjir það eru sem hafa flutt milljarðahundruði úr landi fyrir hrun og í aðdraganda hruns? Kannski á að bjarga vildarvinum, kennitöluflökkurum ofl veit ekki? En eitt er að Íslenskur almenningur ( Ekki þeir sem voru með gullfiskaminnið og fyrirgáfu einkavæðingu bankanna of í síðustu kosningum ) vill fá svör og annað líka að þingmenn vinni sína vinnu en ekki að vera að slæpast á öldurhúsum og eða á kaffihúsum á fullum launum í vinnutíma sem að gerir það að verkum að álit á þingmönnum í dag er orðið ansi lítið. Er ekki ráðlegt bara spyr að þingmenn þurfi að ganga í það að fá borgað eftir viðveru eins og ALMENNUR LAUNÞEGI því við SKATTGREIÐENDUR BORGUM ÞEIM LAUN! Og að sjá svo til tóma þingsali er hneyksli og ég sem ÍSLENSKUR SKATTGREIÐANDI OG ATVINNUREKANDI ÍSLENSKRA ÞINGMANNA að sett verði UPP TÍMASKRÁNINGAKERFI OG ÞINGMENN FÁI BORGAÐ EFTIR VIÐVERU EINS OG ALMENNUR LAUNÞEGI EN GETI EKKI LEIKIÐ SÉR Í VINNUTÍMA ÞVÍ ALMENNUR LAUNÞEGI YRÐI REKINN HIÐ SNARASTA!!

ÖRNINN


mbl.is Horfur úr stöðugum í jákvæðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Matarskattur+ Girðingastaurar, Ískápar og sjónvörp -?% Og 30-40% launahækkun Almenns launamanns!

Jæja kæru landsmenn við eigum víst að kaupa notaða hluti frá þeim ríku samanber ummæli viss þingmanns! Og ekki tala ég um gerræði fjármálaráðherra um hækkun matarskattsins til bjargar vildarvinum í innflutningsgeiranum á ýmsum matvælum og tala nú ekki um olíugeirann þar sem að samráðsmafían ræður ríkjum! þarf ekki að minnast á Irving svo kom Atlantolía en það er komið í sama horfið allir4 flytja saman eldsneytið í sama skipinu! Hagræðing? Samráð? En hvað um það þá er kominn tími til að fara að endurnýja kjarasamninga sem að vonandi verða rosaleg kjarabót fyrir hinn almenna Launþega kannski upp á 40% fyrir utan þjóðarsátt!! Nú Már Guðmundsson seðlabankastjóri steinhélt kjafi við síðustu samninga ríkisstarfsfólks sem að jók launakostnað um ca 830 milljónir? á ári og ekki fór verðbólgan upp þá en sagði þá að ef að kjarasamningar almennings færu upp um viss 3,5% þá færi allt til helvítis!! Það er ágætt að hafa eina svona sleykju með sín laun og ekki gerði Már neitt í því að stöðva RÁN bankanna við lækkun þá hækkuðu gróðabankarnir á móti lækkuninni svo að þeir töpuðu engu! Er þá ekki kominn tími til fyrir Bjarna Ben fjármálaóreiðumálaráðherra að setja þá aukaskatt á vildarvini sína til að vega upp á móti tapi almennings sem nemur umþaðbil 380 milljónum á ári svipað og vildarvinirnir hafa gert síðustu 4 mánuði í innflutningi matvæla og eldsneytis??? Nei aldrei að lækka heldur hækka: Eitt dæmi ein myndavél sem kostar með öllum gjöldum og tollum í Svíþjóð kostar þar umreiknað í Íslenskar krónur 49900, ódýrasta í Elkó 69900, Fótoval og Bekó 89900! Nú hver græðir?

Er okrið svona mikið á Íslandi?

Örninn


Mikið gott að vopnum verði skilað!

Glæsilegt að það sé loksins komið í ljós að það var komið í veg fyrir STÓRT vopnasmygl allavegana miðað við yfirlýsingar Georgs hjá Landhelgisgæslunni að þetta hafi verið gjöf!! Nú þá má fara að athuga vopnavæðingu ýmissa Löggæslustofnana síðustu 15 árin sérstaklega eftir að Björn Bjarnason ýjaði að því að hafa suma undir vopnum jafnvel ef til kastanna kæmi Björgunarsveitir kannski misminnir mig en er gamall kallskröggur! En eitt skal alþjóð vita að í dag hafa verið seld ógrynni af skotvopnum því almenningur á Íslandi óttaðist það að þetta yrði svipað ástand og í Amríku misvitrir lögguþjónar með byssur þá meina ég skammbyssur ekki árásarriffla Heckler og Koch MP5 það er ágætt að hafa bara sérsveitina með þau vopn en ekki aðra. Eins og kom fram í fréttum um að hnífamaður hafi ógnað lögreglumönnum og gjallarhorn notað þá sótti einn laganna vörður vopn í bílinn með leyfi stöðvar! Og sá sem ógnaði kom út eftir að hafa fengið þær upplýsingar að vopnuð Lögregla væri á staðnum!  Mjög gott og er hræddur um að ef að MP5 kæmist í hendurnar á einhverjum sem hafa ekki andlega og eða líkamlega burði til að standa fyrir framan manneskju og kannski ekki með skotvopnaleyfi og skjóta kannski drepa fólk í kring en sá sem átti að skjóta slyppi!! Allavegana að láta þessa blessuðu menn taka skotvopnaleyfi og líka veiðikortið frá A-Ö og þola það að sjá blóð úr td hreindýrum þar er nú nóg blóðmagn eftir skot því manneskjunni blæðir eftir búkskot all hressilega miðað við kúlurnar sem eru notaðar!

Örninn


mbl.is Vopnum verður skilað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lekamálið er ekki búið og fleyra!!!!!

Nú þegar að Hanna Birna er búin að segja sig frá embætti þá er kominn tími til að skoða embættisfærslur hennar í embætti þar með talið skipun nýs Lögreglustjóra Höfuðborgarsvæðisins!! Ætti hún sem Lögreglustjóri að hafa sómatilfinningu að víkja á meðan að hennar embættisfærslur suður með sjó séu rannsakaðar og einnig hvernig hennar skipun í embætti var hefur hún einhverja skyldleika við Hönnu Birnu? Nú þetta hefur komið í ljós þar sem að Hanna Birna skipaði hana í embætti án þess að fá umsóknir og ég veit að það eru tugir manna miklu hæfari en nýji Lögreglustjórinn! Og annað að það því miður hefur viðgengist í spillingapólítíkinni á Íslandi alveg frá árinu 1918 þegar að peningamennirnir áttu Ísland og fóru í gjaldþrot trekk í trekk og þá bjargaði Landsbankinn gamli aftur mörgum af þeim  og eftir 1944 þá var það bara einokun um að ráða öllum kjörum almennings samanber SA í dag ásamt Seðlabankanum sem vilja hafa Ísland láglaunaríki með aðkomu vissra flokksfélaga sem hafa tröllriðið vinnumarkaðinum undanfarna áratugi og eiga fyrirtækin!Og ekki er verra að hafa suma dómara í Héraðsdómi og Hæstarétti með sér þegar á að taka á vildarvinum? Og dómarar pólítískt skipaðir!!! En nú er komið nóg og ég segi bara flott hjá Pólverjunum í ónefndu fyrirtæki að stíga fram og þetta á ekki bara við þá heldur Íslendinga líka því Íslendingar vita það að ef að þeir kvarta þá er sagt við þá að það sé nóg til af fólki!!! Þetta er skítt en svona gera fyrirtæki þetta út af atvinnuleysi og ég get sagt það að atvinnuleysið er miklu meira heldur en að pantaðar tölur eru frá ríkisstjórninni!! 8-9000 manns en komið niður í 4500 því restin fór á sveitina sem getur ekki borgað framfærslu jafnvel út af ofurlaunum stjórnenda sveitafélaga samanber Árborg!!!

Örninn


mbl.is Þjóðin læri af lekamálinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kaupmáttur láglaunafólks á matvælum!

Það stakk mig mikið þegar að Pétur Blöndal þingmaður viss flokks furðaði sig á því í útvarpi að mikill hluti launa lágtekjufólks færi í matarinnkaup! Og vísaði hann í einhver dæmi með humar ofl! En það er því miður þessi saga með þá sem hafa háu launin eins og Pétur sem að þarf kannski ekki að hugsa um hverja krónu samanber láglaunamanneskja þá td. einstætt foreldri með 2 börn útborguð laun eftir skatta 160 þúsund svo kemur húsaleiga +rafmagn, hiti+ kannski sjónvarp og eða misdýr internettenging með síma þá verður ansi lítið eftir kannski 30-50 þúsund til að lifa af mánuðinn og kannski getað borgað smá bíóferð fyrir börnin en gerist ekki! Nú svo talar maður ekki um út að borða en nei samt sér maður sumstaðar tryggða kennitöluflakkara í boði einhverra borða nægju sína með börn og buru með hátekjufólkinu sem tímir ekki að borga mannsæmandi laun og þiggur ofurarð frá hinum og þessum! Nei þetta er SKÍTT og Íslendingar þurfa að fara að hugsa sig um vill það óbreytt ástand með flokkspólítískri spillingu eða persónum sem hægt er að treysta eða vill það hafa landið á hausnum eins og nánast gjaldþrota Seðlabanki þegar að hrunið varð út af misvitrum flokksgæðing því í dag eru ekki aðrir kostir í stöðunni en að kollvarpa öllu og fá nýtt fólk sem hefur þekkingu á hlutunum ekki einhverja flokksgæðinga í sendiherrastöður ofl!

Þetta leiðir að því orði SPILLING sem að má víst ekki uppræta á Íslandi því það sást með einkavæðingu bankanna og svo á að halda áfram eftir að sömu flokkar sem ollu hruninu komust til valda aftur!!

 

Örninn


Öfgamenn Íslam

Þvílíkt gerræði þetta er öfgamenn sem vilja eyða trúarbrögðum sem aðhyllast ekki Íslam! Nú þetta framferði er Íslam ekki til framdráttar  myrðandi börn, konur og karlmenn með ógeðslegum hætti og ég er hissa á því að þjóðir sem aðhyllast Íslam skuli nú ekki snúa bökum saman til að uppræta þessa öfga! Kannski eru öfl í þeim ríkjum sem vilja kannski ekki styggja hryðjuverkamenn svo að sömu ríkin lendi ekki í svipuðu og er að gerast í Írak? En ég hef lesið bækur eftir Tom Clancy heitinn og voru skrifaðar fyrir nokkrum árum og í sumum bókum hans hafa komið fram svipuð dæmi sem að hafa gerst undanfarin ár! Þannig að mér kemur ekkert á óvart þó svo að það verði allsherjar stríð á milli Írans og Íraks aftur því Íranar eru orðnir hræddir við þessa öfga Íslamista. Og þá verður kannski stutt í kjarnorkustríð því ógn þessara slátrara breiðir úr sér. Og því miður hefur komið í fréttum að margir Norðurlandabúar sem aðhyllast Íslam sækja í það sem þeir kalla heilagt stríð til að útrýma þeim sem aðhyllast ekki Íslam því miður. En vonandi fara þjóðirnar sem aðhyllast Íslam að vakna sem fyrst því það getur verið of seint þegar að öfga Íslamistarnir eru komnir inn í landið!

Örninn


mbl.is Myrtu áttatíu jasída í Írak
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hækka gjöld á sjúklinga ofl? Áframhaldandi niðurskurður þýðir sjúklingadauði og mistök!

Allt í lagi Kristján Þór ráðherra Heilbrigðismála!

Nú er komið nóg ef að sjúklingar, öryrkjar og eldra fólkið á að fara að taka á sig auknar Álögur út af lækkun gjalda til vildarvina samanber veiðileyfagjaldið af ÞJÓÐAREIGN ÍSLENDINGA, og Samherji er að fara að láta byggja 3 nýja togara  líka  auðlegðarskatturinn sem örfáir vildarvinir þíns flokks grenjuðu yfir þegar að síðasta ríkisstjórn var við völd og þinn flokkur beitti málþófi svo að ekki kæmust í gegn umbætur á ýmsum málum sem þínum flokk þóknaðist ekki ! Og það sýnir sig í dag hvers þið eruð megnug með bölvaðan málflutninginn það er að halda áfram að skara gróðann að sínu fólki alveg síðan 1918 því þinn flokkur með þeim grænu hafið tröllriðið þjóðfélaginu í áratugi með einokun, og valdníðslu gagnvart launafólki með því að halda niðri launum með hótunum um að verðbólgan sem að ykkar flokkar sköpuðu með ofurlaunum atvinnurekenda undanfarna áratugi með gengdarlausum innflutningi vildarvina með ívilnunum til vissra aðila sem höfðu markaðsráðandi stöðu. En þetta er sama sagan í dag hver græðir mest á svikum og prettum samanber vildarvinir sem byggðu hús og blokkir og hafa ekki verið sóttir til saka  út af illa byggðum og lekum húsum sem að kaupendur þurfa að sitja uppi með skaðann því það er ekki hægt út af kennitöluflakkinu sem að einhverjir vildarvinir komu á kannski einhversstaðar í lagaglufu og hundruðir milljarða horfnir sko fyrir utan einkavæðingu banka að ná sínum rétti til skaðabóta! 

Svona verður þetta áfram í BANANALÝÐVELDINU ÍSLANDI á meðan að spillingaröflin, vinskapur og klíkan ræður það er ekki langt í setningu Alþingis en allavegana miðað við fréttir undanfarna mánuði má búast við hörðum mótmælum!!!

Ps: Nú sjúklingar sem þurfa á hjálp að halda veigra sér í dag við að leita sér hjálpar út af niðurskurði það er kannski það sem að þið viljið að hafa hálfdauða eða dauða sjúklinga fyrir utan spítala sem að fá ekki hjálp út af kannski manneklu eða einkavæðingartilburðum samanber USA en mikið hefði ég vilja halda áfram gamla kerfinu Sjúkrasamlaginu því þá var maður með trygga læknisþjónustu en í dag þá er búið að yfirsprengja alla skala á öllu sem að heitir hjúkrunargögn og vélakostur því vissir vildarvinir sem eru innflytjendur notuðu sér óðaverðbólguna sem að þinn flokkur notfærði sér því miður of oft og þess vegna er staðan á Íslandi svona í DAG!!

Örninn

 


Ísland á Heljarþröm!

Jæja nú er gott í ári hjá ríkisstjórninni, allir græða (?) og fylgifiskur Landsvirkjunar sem er eign ALLRA ÍSLENDINGA kemur fram með einhverjar kannski keyptar fullyrðingar um gróðasemi rafmagnssæstrengs til Bretlands með gróða sem er hærri heldur en allur olíugróði Norðmanna! Því þá verður voðalega lítil olía eftir ef einhver! Jú kannski eftir 50-200 ár en í dag og næstu 30 árin nei og þeir blessaðir gróðapungarnir bæði Íslenskir og erlendir sækja svo eftir rafmagnssæstreng með forstjóra Landsvirkjunar (Gróðapúngur auðvaldsins ekki almennings?) í fararbroddi sem dásamar allt í sambandi við raforkusæstreng og ef að þessu sæstrengsslysi yrði munu Íslendingar þá fá orkuna sína á yfirverði eftir geðþóttarákvörðunum einhverra? Nei það verður aldrei því Íslenskir neytendur með miklu lægri laun og kaupmátt samanber Noreg munu aldrei ráða við þá hækkun á raforkuverði sem varð í Noregi eftir lagningu rafmagnssæstrengs til Bretlands og því miður þá er það leyndarmál frá Landsvirkjun hvað hverjir borga en það er minnsta mál fyrir Landsvirkjun að upplýsa orkuverð til almennings í dag á Íslandi per KW stund og sama í Noregi KW stund miðað við laun og kaupmátt þá held ég að við yrðum ansi neðarlega og hvað það myndi verða þá með óskadraum útvalinna þegar að almenningur fengi að vita sannleikann!! Því að við erum á Íslandi ekki á meginlandi Evrópu og jú fjárfestar vilja leggja strenginn upp á 230 milljarða og hver borgar? Nú Íslendingar næstu 65 árin með hækkuðum álögum + ýmsar sposlur sem ekki koma fram nema kannski á Tortóla, Cayman og eða? Bölvuð helvítis skítalykt af þessu ásamt fleiru frá flokksskipuðum stjórum en ekki ráðningum af fólki sem þekkir og kann  á hlutina!

ÖRNINN

 


Umræða Bjarna Ben um sölu í Landsbankanum og geðþóttarákvörðun flutninga hjá samstarfsflokki hans!

Jæja nú er Bjarni Benediktsson að íhuga að selja hlut í Landsbankanum. Og ég spyr sem Íslendingur er ekki í lagi með BB? Fengu Íslendingar ekki hrun yfir sig eftir ákvörðun sömu flokka í ríkisstjórn með fulltingi flokks BB að einkavæða bankana með þessum hörmulegu afleiðingum þar sem að vissir vildarvinir fengu bankana á slikk og jafnvel borguðu lítið sem ekki neitt eða hvað? Nei nú ætti BB að gangast í það að gera upp fortíðina og viðurkenna mistök síns flokks og fyrrverandi  Seðlabankastjóra og líka formaður hins flokksins í ríkisstjórn vegna þess að sá hluti Íslendinga sem kaus þá ekki er ekki búinn að gleyma og kokgleypti ekki loforðin eins og sumir molbúar sem eru tryggir sínum málstað og vilja bara einkavæðingu og einokun eins og hefur verið viðloðandi báða þessa flokka alveg síðan annó 1918 og sérstaklega eftir 1944 og þá komst það á að borga sem minnst til launþega á meðan að við atvinnurekendur græddum og enda Samtök atvinnulífsins í dag með í því allavegana miðað við samninga! Og ekki tala ég um vöruverðið sem er í hæstu hæðum innflytjendur hækka og hækka og benda á alheimsverð þó svo að varan hafi komið til Íslands og borguð fyrir einhverjum mánuðum á undan! Sama með vildarvini beggja flokka sem eiga innflutningsfyrirtæki á sviði olíu og bensín þeir hækka strax þó svo að búið sé að borga farminn og mega því samkvæmt lögum ekki hækka en því miður þá er gott að hafa hauka í horni breyta kannski einhverjum reglugerðum! Þetta er skítt en svona er þetta og Íslendingar segja ekki neitt! En að öðru samstarfsflokkur BB ætlar að færa Fiskistofu norður og ætla ég ekkiað fara út í umræðuna en mikil djöfulsins pólitík er þetta og samanber flokkin hans SDG sem setti milljónir í verkefni með sms án nokkurs tilefnis þeir fengu sem þóknuðust honum! Hann er orðinn alveg eins og pabbi sinn útsmoginn og sem hefur komið fram misvísandi lygari eða hvað bara spyr? Nei nú er komið nóg og Íslendingar farið að vakna upp því milljarðarnir eru að renna frá okkur á meðan að þessir jólasveinar ráða og það er ekki langt í næsta hrun og þá er hægt að kenna molbúakjósendunum um hrunið ásamt BB og SDG!! Ég er ekki að bera í bætifláka fyrir fyrri ríkisstjórn en það var farið að sjást til sólar þá en núna er að verða almyrkvi! Sjáið til!

Örninn


ASÍ og lagasetningar

Jæja ósköp heyrist lítið í forystusauð ASÍ út af lagasetningum ríkisstjórnarinnar þar sem að Samtök Atvinnulífsins ráða ríkjum! Þá meina ég að hafa heila ríkisstjórn á valdi sínu svo vildarvinir geti grætt meira! En nú er komið nóg því það eru andskoti mörg lög sem að ríkisstjórn flokks innanríkisráðherra hefur sett undanfarna áratugi að beiðni LÍÚ ofl gróðapúnga sem græða á lágum launum og halda þeim niðri með erlendu starfsliði. Því miður þá komu hinir sömu á launaleynd í sem atvinnurekendur komu á í samningum sem hefur orðið til þess að laun hafa ekki hækkað eins og þau ættu að hafa hækkað allavegana miðað við launavísitölu SA og LÍÚ þar sem að laun hafa hækkað hjá stjórnendum um 100+ prósent á miðað við almennan launþega! Og ofsagróði sem að fyrirtækin sýna þá má ekki láta launþega fyrirtækjanna njóta þess heldur eiga launþegar að hanga á horriminni og það með atbeina ríkisstjórnarinnar sem vill halda láglaunastefnunni til streitu svo að almenningur verði ofurseldur sínum atvinnurekanda því viðkvæðið er ef að þú biður um hærri laun þá er nóg til af fólki!! Þannig halda þeir sinni láglaunastefnu með fulltingi ASÍ sem virðist sleikja einhvern enda á SA og LÍÚ. Og svo ætlar forystusauður ASÍ að bjóða sig fram aftur! Guð hjálpi verkafólki þá og vonast ég til þess að framboðin verði fjölmörg og að það verði almenn kosning ekki útvaldir félagar á þingi ASÍ! Þannig fór um síðustu kosningu hjá ASÍ það voru þeir í trúnaðamannaráði sem réðu úrslitum og það voru þeir innan ráðsins sem að kusu forystusauðinn með sínum atkvæðum þó svo að margir innan vinnustaða þeirra vildu ekki forystusauðinn en þeir snérust gegn sínum umbjóðendum gegn gylliboðum ASÍ og enda margir trúnaðarmenn sem verða ekki kosnir áfram og hafa haft skömm fyrir á sínum vinnustað! En nú er komið nóg og vonandi láta launþegar í sér heyra og launþegi vill ekki eymingjaskap heldur hörku sem að síðustu ár hefur verið engin með forystusauð ASÍ í forsvari því miður. Farið að tala um hlutina opinberlega en ekki kjafta hver í sínu horni og svo þegar að til kastanna kemur þá gerir enginn neitt eða þorir því miður hefur þetta verið viðkvæði hjá launþegum í góðærinu 2003-2008 og eftir það líka því fólkið er svo dofið að það þorir engu! Sjáið Evrópu þar mótmælir fólk og þar er hlustað á fólk en hérna á Íslandi NEI! Því við erum ennþá molbúar og þannig lítur fólk úti í heimi á okkur því við kunnum ekki að standa á okkar rétti og þorum ekki að láta heyra almennilega í okkur út af hræðslu við GRÓÐAPÚNGANA sem EIGA ÍSLAND Á OKKAR KOSTNAÐ OG HRÆÐSLU VIÐ YFIRVALDIÐ SEM ER UNDIR OKKAR STJÓRN MEÐ MISVITRUM STJÓRNENDUM OG ALÞINGI!!!!

 Örninn


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Örn Ingólfsson
Örn Ingólfsson

Er í mjög góðri vinnu. En get verið með ýmsar hressilegar skoðanir sem öðrum finnst stangast á við þeirra skoðanir og ég virði skoðanir annara þrátt fyrir bölv og ragn!

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband