Færsluflokkur: Bloggar

Amen og allir eru frjálsir!

Það stakk mig venjulegan verkakarl um stungurnar sem hún og flokksbróðir hennar hafa fengið á sig! Nú það er ekki furða því vesalings ráðherra forsætis flýr þingsali ef viðkvæm kosningaloforð eru á dagskrá í óopinnberum fyrirspurnum því blessaður getur ekki svarað án spurningalista sem allir aðstoðarmenn hans þurfa að fara yfir! En fyrst að flokksforysta flokks þeirra beggja geta ekki tjóðrað undirráðherra og forystusauðurinn er kjaftstopp er þá ekki kominn tími fyrir samstarfsflokkinn að slíta stjórnarsamstarfinu? Og efna til nýrra kosninga til að fá inn nýtt fólk en ekki einhverja hagsmunapotara sem gefa auðlindirnar frá okkur 90% ÍSLENDINGA en ekki mútuþegum og spillingarflokkum sem hala inn milljarða á kostnað 90 prósentanna sem við borgum ennþann dag fyrir spllinguna eftir einkavinavæðingu bankanna sem að á eftir að kosta börnin okkar ómældar fjárhæðir því hundruðir milljarða fara ekki til að borga upp skuldir Ríkisins heldur skuldir vildarvina og sama súpan aftur! Af hverju eru stjórnvöld rög við að setja inn peninga til að hækka elli og örorkulífeyri? Veit svarið því Lífeyrissjóðirnir sko almennu án ríkisábyrgðar vilja það ekki því samtök atvinnulífsins ofl ráða spilamennskunni með almennan lífeyri! Þess vegna vilja þeir ekki hafa bara einn lífeyrissjóð gulltryggðann með ríkisábyrgð því sumir vilja ekki hrynja niður úr milljón á mánuði niður í 140 þúsund!! Klíkumafía hvað?


mbl.is Ósýnilegur her neikvæðrar umræðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýja hrunið byrjað!

Jæja þá er uppgangurinn byrjaður aftur með glæfralegum og gefnum sérstökum vildarvinakjörum í ýmsum útboðum þar sem almenningur nýtur ekki sömu kjara sem kaupendur hlutafjár í vissum fyrirtækjum! Hversskonar aumingjaskapur er þetta hjá okkur ÍSLENDINGUM þorir enginn að segja neitt út af vinnunni og áhyggjum um að vera rekin(nn)eða er þetta helvítis þrælslundin sem komst á eftir árið 1918 þegar að okkar sjálfstæði frá Dönum var tryggt og með því og eftir það þá hafa sumir mokað undir sig 890 milljörðum á móti 3mur milljörðum í almenning!! Nú hrunið kom og einhverjir lýstu sig gjaldþrota því tíminn var runninn út til að sækja peningana (milljarðahundruðin)því fjármálapésinn Bjarni Ben gat ekki ákveðið sig með borgun til stjóra skattrannsókna!! En það er allt í lagi því allir Íslendingar skulu halda þeim sem dæmdir voru til að standa fyrir dómstólum og svara til saka fyrir það tjón sem þessir aðilar urðu valdir að og það þýðir ekkert að hafa Sigurð G Guðjónsson ofl til að svara fyrir þá því eftirlifendur Íslendinga halda áfram málssókn á glæpamennina og þeirra dánarbú því það verður bara eitt hvert dómsmálið á eftir öðru því það má alltaf höfða einkamál jafnvel á dánarbúin upp í almennar kröfur hjá báðum hjónum!!!!


Flóttafólk og Íslendingar

Jæja nú ætla ég að tjá mig um flóttamenn! Ég hef ekki neitt á móti flóttafólkiog það svíður mig sárast að það séu svo rosalega MARGIR ÍSLENDINGAR SEM VILJA TAKA VIÐ FLÓTTAMÖNNUM EN LÍTA SÉR EKKI NÆR! Við höfum ekki efni á að taka við flóttafólki því VELFERÐARKERFIÐ GETUR ÞAÐ EKKI FREKAR EN MEÐ ALDRAÐA EÐA ÖRYRKJA!!! Nema að þeir ríkustu setji upp flóttamannabúðir og haldi þeim uppi með öllu uppihaldi? Er þá ekki kominn tími til að Bjarni Ben, Sigmundur Davíð og Eygló vakni og byrji á réttum enda að hugsa um Íslendinga áður en þau gefa út einhver digurbarkalegar yfirlýsingar á alþjóðavettvangi! Og er þá ekki kominn tími til að upplýsa Sameinuðu Þjóðirnar um fátækt á Íslandi sem hefur verið falin af stjórnvöldum undanfarin 20 ár og þeir græða mest sem kúga launafólkið með lágum launum með hjálp ríkisstjórnar Íslands í dag og vilja bara flytja inn erlent vinnuafl sem borgað yrði lágmarkslaun með þrælavinnutíma og í lélegu húsnæði þetta er að verða eins og fyrir hrun aftur allir Íslendingar að flýja skerið en ég hel áfram því þegar að ég kemst á ellilífeyririnn þá verð ég leitandi í ruslinu eftir matarbita því allur minn lífeyrir upp á 75 milljónir verður uppétinn af græðgispésum í lifeyrissjóðunum það væri kannski best fyrir mig að gulltryggja mig með að kaupa tryggingu fyrir ættingja mína og ekki láta Doninn í seðlabankanum vita af því en ég get komist framhjá þessum Don með þvi að láta ættingja og vini fá aura út sem að Doninn hans Davíðs veit ekki um það verða einhver afföll en græði samt fyrir fjölskylduna vegna þess að þau fæ smáaura hjá Íslensku tryggingarfélögunum en margfalt meira á Norðurlöndunum! Nú hvernig er þá með allar millifærslur erlendra starfsmanna á Íslandi! 

Nei skítt með Ísland við höfum rosa laun segja erlendu austantjaldsþrælarnir sem eru með undir 900 krónum á tímann í svartri en svona er þetta bara Ísland í dag og verður áfram!!! Ok er þá ekki kominn tími til að hafa einn Lífeyrissjóð og spara einhverja milljarða í launakostnað veit að það verður ekki tekið vel í það en samt þá væri hægt að hífa upp lífeyrisgreiðslur hins almenna lífeyrisþega upp um 45% og samt vantar 24% upp á skerðingarnar undanfarin ár og ekki eru gulltryggður, verðtryggður lífeyrir eins og hjá Lífeyrissjóð Starfsmanna Ríkissins sem HEFUR ALDREY ÞURFT AÐ TAKA Á SIG SKERÐINGU LÍFEYRIS sem við borgum með aukasköttum í staðinn fyrir lækkun auðlegðar og veiðigjaldaog það væri gaman að sjá þetta fólk taka á sig skerðingu upp á 69% á 4 árum og þá er ekki talað um aukafríðindin hjá þessu fólki sem falið er fyrir alþjóð kannski einkabíll og bílstjóri, eða leigubíll ofl!!

Eru Íslenskum stjórnmálamönnum og dómurum mútað svo svakalega að þeir geta liggur við selt ömmu sína?

Stórt er spurt en því miður fást ekki svör við þessum spurningum nema að óháðir erlendir rannsakendur sem þeir vita ekki um kanni málin en lekandi getur bætt eitthvað enda Icehot1 sá til þess að fá nafnið sitt skráð í sögubækurnar!!

Örninn


Skólarnir að byrja!

Jæja núna eru skólarnir að byrja en þá kemur ein spurning til Fræðsluyfirvalda? Eru kennarar settir í stöðupróf eins og svo margir aðrir til að meta hvort að hæfni þeirra sé eins og á að vera? Það er ekki nóg að vera kennari með áskrift að launum sínum hversu lélegur kennarinn er! Þannig að ég legg til að ráðuneyti þessara mála fari í það að útbúa stöðupróf svo hægt sé að sigta út kennara sem eru ekki starfi sínu vaxnir og fari að fyrirmynd Norðurlandaþjóðanna ofl til að sigta hismið frá þar eru nokkuð miklir fjármunir í húfi kannski gefa kennarar einhverjum nemendum úrvalseinkunnir fyrir? Þannig að ég legg til að Ráðuneyti þessara mála athugi þetta strax þannig að það verði ekki sama ástand og í sumar að skólar viðurkenni ekki einkunnir úr skólum!

Nóg borgar almenningur fyrir einhverja kennara sem eru ekki starfi sínu vaxnir og þiggja samt laun með hjálp SKÓLASTJÓRNENDA öðru nafni KLÍKA!!! Það er engin furða að heimta góð laun fyrir vinnuna en það þarf þá líka að vinna hana sómasamlega þá er ég að tala um þá sem nenna ekki að vinna hangsa og kæra sig kollótta um árangurinn!

ÖRNINN


Launin hjá almennum launþega ofl!

Jæja er nú ekki kominn tími til fyrir atvinnurekendur sem hafa ráðið vinnumarkaðinum frá örófi alda með láglaunastefnu frá dönsku ofl einokunum þar sem að þrælarnir ættu bara að hafa varla rétt í sig og á og varla meira! Nú þetta er búið að vera harkalega lítil laun hjá alþýðunni eftir 1918 þegar að stórgrosserar tóku við ýmsum hlunnindum frá Danaveldi enda sprenglærðir að kúga launþegann eins og danir fóru með þrælana í den og það er það sem er að gerast í dag með alla launþega sem eru ekki á spenanum hjá RÍKINU! En ég held bara að Samtök atvinnulífsins ættu að fara að líta í eigin barm með geigvænlegar launahækkanir innan sömu samtaka og síðast var nú Frikki Sófuss gleiðbrosandi á forsíðu blaðs og hafa hans laun hækkað síðustu 3 ár bara um 65%? á meðan að almenningur hefur fengið 12,5%? Nei ekki gott enda núna eru stjórnvöld búin að skíta upp ábak með hin og þessi loforð og svo á almenningur að fara að borga fyrir HRÆGAMMASJÓÐINA sem lofað var, og líka SKULDANIÐURFELLINGUNA UPP Á 80-100 MILLJARÐA!!Svona fór um loforðin en því miður þá trúði fólk þessu sem gleymdi einkavinavæðingunni SEM KOM Íslandi á HAUSINN með sölu bankanna til vildarvina!!Og ekki skánar það þegar að nöfn koma upp á yfirborðið með falda reikninga í utlöndum þá vakna sumir kjósendur upp við vondan draum og segja? : Ég hélt að þessir ungu menn hefðu ekki gert neitt svona, þó svo að sagt hafi verið frá ávirðingum BB í blöðum í sambandi við Sjóvá ofl! En skítalyktin er svo svakaleg með auðvaldsmafíuna og að fólk skuli ekki vakna við fnykinn samanber blöðin þar sem að rannsóknarblaðamenn hafa verið reknir fyrir að segja frá spillingu og þar tek ég td. World Class þar sem að BL keypti hlut til að koma Reyni Tr ofl frá því sannleikurinn mátti ekki koma í ljós með hinar og þessar kennitölur sem að viss flokkur vill láta halda áfram svo vildarvinir geti haldið áfram að svíkja út fé frá fyrirtækjum og einstaklingum! En er nú ekki komið nóg af spillingunni og að BB og SDG geri hreint fyrir sínum dyrum og fari að vinna fyrir ÍSLENDINGA en ekki AUÐVALDSMAFÍUNA annars þá verður allt stopp því fólkið er búið að fá nóg af helv... lýginni og lágum launum og fólk talar nú ekki um frumhlaup Ríkisstjórnarinnar með Gunnar og bréfið þeirra þvílík þjóðarskömm! Farið að hysja upp um ykkur brækurnar og setjið auðlegðarskattinn upp aftur og auðlyndargjaldið svo að almenningur þurfi ekki að taka MEIRI BYRÐAR Á SIG ÞIÐ ERUÐ BÚNIR AÐ SETJA NÓG Á OKKUR!

ÖRNINN


Harðfiskurinn okkar!!!

Jæja góðir Íslendingar nú er sumstaðar verð á harðfisk komið frá 8000 krónur kílóið og upp í 14000 krónur! En það versta við þetta er okrið því það er sumstaðar verið að selja sama kílóverð á þorski eins og ýsu og eitt veit ég að það er ágætt að kaupa 170 kíló af slægðum þorski á 295 kr.kg sem gera Kr: 50150 og inniblástursþurrkaður í einhverjum maskínum og fá svo út úr því um 25-30 kíló og selja svo ca 27 kíló á: Dæmi: 27 kíló x ca 4500kr eftir sölu til byrgja þá gerir það: 103500 og svo stighækkar verðið sem seljandi fær og svo leggst álagning seljanda á þannig að þá geta neytendur áttað sig á verðinu en fyrir utan það þá er inniblásturþurrkaður harðfiskur ekki nærri því eins góður og sá sem er gerður á gamla mátann Hjallþurkaður við Vestfirskan eðal blástur ! En það tekur 2 vanar manneskjur ekki langa stund að flaka og beinhreinsa flökin!

Örninn


Er þá Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu undanþegin?

Jæja nú er ég hissa því ég veit ekki betur en að trúnaðarskjöl eigi ekki að liggja á glámbekk á einhverju tölvudrifi og allra sýst að senda til einhvers sem hefur ekki umboð til að æskja eftir svoleiðis upplýsingum þó svo að manneskjan í þessu máli hafi sagt að þetta mál hafi verið hjá Innanríkisráðuneytinu og ég veit ekki hvað! En allavegana ef að ÉG STARFSMAÐUR FYRIRTÆKIS SENDI GÖGN MEÐ UPPLÝSINGUM UM SKULDASTÖÐU OG EÐA EITTHVAÐ ANNAÐ TIL ANNARS FYRIRTÆKIS OG ÞAÐ KÆMIST UPP ÞÁ YRÐI ÉG REKINN SAMSTUNDIS!!! Í ÞESSU MÁLI ER KOMIN UPP SAMA STAÐAN MEÐ ÞANN SEM SKIPAÐI VINKONU SÍNA SPILLING ? KANNSKI TIL AÐ REYNA AÐ FELA EITTHVAÐ ?? Nú Stefáni var bolað burt af vinkonu Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og skiljanlega vildi Stefán ekki sitja undir einhverri pressu um eitthvað sem að kom svo í hausinn á hans fyrrverandi yfirboðara. En eitt skal jafnt yfir alla ganga og þá er tími til að Lögreglufrúin á höfuðborgarsvæðinu segi af sér með sóma áður en að eitthvað verður grafið upp af einhverjum blöðum !!! Því það eru alltaf til uppljóstrarar þó svo að þeir fái ekki borgað fyrir upplýsingarnar!!

Örninn


mbl.is Gerðist ekki brotleg við lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjarasamningar á næsta leiti!

Jæja styttist í kjarasamninga almenns launafólks. Lítið hefur heyrst í forystu ASÍ á meðan að framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins tjáir sig með orðum og fer ekki undan í flæmingi! Svo að almennur félagsmaður innan ASÍ undrar sig á þöggun ASÍ, hvort að ASÍ sé að semja undir borðið um einhverja þjóðarsátt sem að ekki kemur til greina þó svo að SA hafi farið fram á það til að viðhalda stöðugleika, verðbólgu ofl! Nú síðustu samningar ASÍ stuðluðu að sögn SA að bættri kjörum, lægri verðbólgu ofl! Nú blessaður karlinn hjá SA steinhélt kjafti ásamt sínum vini í ASÍ þegar að Kennarar ofl fengu RÍFLEGA kauphækkun og EKKI FÓR VERÐBÓLGAN UPP ÞÁ SKRÍTIÐ!Og ekki tók betur við þegar að seðlabankastjóri tjáði sig um launahækkanir sem mættu ekki verða hærri en 3,5% á almennum vinnumarkaði steinhélt kjafti með hækkunum sem að ofan greinir og síðar opinberra starfsmanna upp á tuga prósenta hækkun. En núna standa öll spjót á Verkalýðsforystunni að krefjast 25-35% launahækkunar á lægstu launin eða 200 þúsund króna eingreiðsla og 15 prósenta launahækkun eftir 1 ár 20% eftir 2ár og ef að aðrir hækka yfir þá hækkun þá fylgir ASÍ á eftir!!

Bara tillaga!

Örninn


Miklar grynningar í Landeyjahöfn af hverju?

Óvitaskap Vegagerðarinnar er um að kenna sem að hlustaði ekki á bændur og búalið sem benti ítrekað á vankantana! En ekki hlustað og við súpum seyðið af frumhlaupi upp á milljarða kannski út af gróðasjónarmiði veit ekki en allavegana þá er ekki komin ný ferja sem að miðað við teikningar hefði ekki komist inn í Landeyjarhöfn heldur út af sandburði! Þannig að það er kominn tími til að fresta smíði nýrrar ferju upp á fleiri milljarða og endurhanna Landeyjarhöfn á kostnað þeirra sem hönnuðu hana því eitthvað fór verulega úrskeiðis við útreikninga sérfræðinganna? Eða voru útreikningarnir kannski keyptir af lægstbjóðanda á þeim tíma og er í dag sem aðal flutningsaðili? Það má spyrja því er ekki spillingin allsstaðar í kerfinu samanber Vegagerðina ofl? Hver þekkir hvern og hver á ættingja sem á fyrirtæki????

Örninn


mbl.is Miklar grynningar í Landeyjahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrirhugaðir kjarasamningar almenns launafólks!

Jæja ekki er nú vænleg staða hjá Bjarna Ben og Sigmundi Gunn   kjarasamningar almenns launþega í uppnámi allt í handaskolum! ÆÆ engin furða og Samtök Atvinnulífsins bauna á Bjarna Ben og í viðtali í sjónvarpi í gærkvöldi þá bar hann vesalings silfurskeiðungurinn blak af launahækkunum ríkisstarfsmanna og sagði að almennur launþegi með lægstu launin hefðu hækkað meira heldur en margir starfsmenn hjá ríkinu en þá er allt í lagi að hann upplýsi alþjóð hverslags lífeyrisréttindi, fríðindi ofl sem ríkisstarfsmenn hafa á miðað við almenna launþega! Nú ég get nefnt dæmi almennur lífeyrisþegi er ekki með gulltryggðan ellilífeyri, á meðan að almennur ellilífeyrisþegi fær skerðingu á skerðingu ofan en engin skerðing hjá Lífeyrissjóði strafsmanna ríkisins!! Enda engin furða að sumir innan LSR eru með 6-8faldan lífeyri venjulegs launamanns ( konu) og það má ekki skerða heldur borgar ríkissjóður! Nú Skuldin sem skellur á launþegum næstu 15 árin eru 24 milljarðar í auknum sköttum til að bjarga óráðssíunni hjá LSR og við ALMENNINGUR FÖRUM FRAM Á ÞAÐ AÐ LSR SKERÐI LÍFEYRISRÉTTINDIN á móts við almennar lífeyrisskerðingar síðustu ár afturkræft er þá ekki kominn tími til að RÍKIÐ SKERÐI LÍFEYRISRÉTTINDI UM 35% og þar eru nokkur hundruð milljónir á ári sem má fá í hýtina en það má víst ekki hrófla við einhverjum!!!! Þá er kominn tími til að einfalda Lífeyrissjóðakerfið og ellilífeyririnn þannig að allir hafi það sama en ég sæji milljónamanneskjuna í anda þurfa að lifa af 35-50 þúsundum á mánuði eftir skatta!

Örninn


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Örn Ingólfsson
Örn Ingólfsson

Er í mjög góðri vinnu. En get verið með ýmsar hressilegar skoðanir sem öðrum finnst stangast á við þeirra skoðanir og ég virði skoðanir annara þrátt fyrir bölv og ragn!

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband