Færsluflokkur: Bloggar
5.7.2014 | 08:09
Ísland á Heljarþröm!
Jæja nú er gott í ári hjá ríkisstjórninni, allir græða (?) og fylgifiskur Landsvirkjunar sem er eign ALLRA ÍSLENDINGA kemur fram með einhverjar kannski keyptar fullyrðingar um gróðasemi rafmagnssæstrengs til Bretlands með gróða sem er hærri heldur en allur olíugróði Norðmanna! Því þá verður voðalega lítil olía eftir ef einhver! Jú kannski eftir 50-200 ár en í dag og næstu 30 árin nei og þeir blessaðir gróðapungarnir bæði Íslenskir og erlendir sækja svo eftir rafmagnssæstreng með forstjóra Landsvirkjunar (Gróðapúngur auðvaldsins ekki almennings?) í fararbroddi sem dásamar allt í sambandi við raforkusæstreng og ef að þessu sæstrengsslysi yrði munu Íslendingar þá fá orkuna sína á yfirverði eftir geðþóttarákvörðunum einhverra? Nei það verður aldrei því Íslenskir neytendur með miklu lægri laun og kaupmátt samanber Noreg munu aldrei ráða við þá hækkun á raforkuverði sem varð í Noregi eftir lagningu rafmagnssæstrengs til Bretlands og því miður þá er það leyndarmál frá Landsvirkjun hvað hverjir borga en það er minnsta mál fyrir Landsvirkjun að upplýsa orkuverð til almennings í dag á Íslandi per KW stund og sama í Noregi KW stund miðað við laun og kaupmátt þá held ég að við yrðum ansi neðarlega og hvað það myndi verða þá með óskadraum útvalinna þegar að almenningur fengi að vita sannleikann!! Því að við erum á Íslandi ekki á meginlandi Evrópu og jú fjárfestar vilja leggja strenginn upp á 230 milljarða og hver borgar? Nú Íslendingar næstu 65 árin með hækkuðum álögum + ýmsar sposlur sem ekki koma fram nema kannski á Tortóla, Cayman og eða? Bölvuð helvítis skítalykt af þessu ásamt fleiru frá flokksskipuðum stjórum en ekki ráðningum af fólki sem þekkir og kann á hlutina!
ÖRNINN
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.7.2014 | 21:30
Umræða Bjarna Ben um sölu í Landsbankanum og geðþóttarákvörðun flutninga hjá samstarfsflokki hans!
Jæja nú er Bjarni Benediktsson að íhuga að selja hlut í Landsbankanum. Og ég spyr sem Íslendingur er ekki í lagi með BB? Fengu Íslendingar ekki hrun yfir sig eftir ákvörðun sömu flokka í ríkisstjórn með fulltingi flokks BB að einkavæða bankana með þessum hörmulegu afleiðingum þar sem að vissir vildarvinir fengu bankana á slikk og jafnvel borguðu lítið sem ekki neitt eða hvað? Nei nú ætti BB að gangast í það að gera upp fortíðina og viðurkenna mistök síns flokks og fyrrverandi Seðlabankastjóra og líka formaður hins flokksins í ríkisstjórn vegna þess að sá hluti Íslendinga sem kaus þá ekki er ekki búinn að gleyma og kokgleypti ekki loforðin eins og sumir molbúar sem eru tryggir sínum málstað og vilja bara einkavæðingu og einokun eins og hefur verið viðloðandi báða þessa flokka alveg síðan annó 1918 og sérstaklega eftir 1944 og þá komst það á að borga sem minnst til launþega á meðan að við atvinnurekendur græddum og enda Samtök atvinnulífsins í dag með í því allavegana miðað við samninga! Og ekki tala ég um vöruverðið sem er í hæstu hæðum innflytjendur hækka og hækka og benda á alheimsverð þó svo að varan hafi komið til Íslands og borguð fyrir einhverjum mánuðum á undan! Sama með vildarvini beggja flokka sem eiga innflutningsfyrirtæki á sviði olíu og bensín þeir hækka strax þó svo að búið sé að borga farminn og mega því samkvæmt lögum ekki hækka en því miður þá er gott að hafa hauka í horni breyta kannski einhverjum reglugerðum! Þetta er skítt en svona er þetta og Íslendingar segja ekki neitt! En að öðru samstarfsflokkur BB ætlar að færa Fiskistofu norður og ætla ég ekkiað fara út í umræðuna en mikil djöfulsins pólitík er þetta og samanber flokkin hans SDG sem setti milljónir í verkefni með sms án nokkurs tilefnis þeir fengu sem þóknuðust honum! Hann er orðinn alveg eins og pabbi sinn útsmoginn og sem hefur komið fram misvísandi lygari eða hvað bara spyr? Nei nú er komið nóg og Íslendingar farið að vakna upp því milljarðarnir eru að renna frá okkur á meðan að þessir jólasveinar ráða og það er ekki langt í næsta hrun og þá er hægt að kenna molbúakjósendunum um hrunið ásamt BB og SDG!! Ég er ekki að bera í bætifláka fyrir fyrri ríkisstjórn en það var farið að sjást til sólar þá en núna er að verða almyrkvi! Sjáið til!
Örninn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.6.2014 | 23:02
ASÍ og lagasetningar
Jæja ósköp heyrist lítið í forystusauð ASÍ út af lagasetningum ríkisstjórnarinnar þar sem að Samtök Atvinnulífsins ráða ríkjum! Þá meina ég að hafa heila ríkisstjórn á valdi sínu svo vildarvinir geti grætt meira! En nú er komið nóg því það eru andskoti mörg lög sem að ríkisstjórn flokks innanríkisráðherra hefur sett undanfarna áratugi að beiðni LÍÚ ofl gróðapúnga sem græða á lágum launum og halda þeim niðri með erlendu starfsliði. Því miður þá komu hinir sömu á launaleynd í sem atvinnurekendur komu á í samningum sem hefur orðið til þess að laun hafa ekki hækkað eins og þau ættu að hafa hækkað allavegana miðað við launavísitölu SA og LÍÚ þar sem að laun hafa hækkað hjá stjórnendum um 100+ prósent á miðað við almennan launþega! Og ofsagróði sem að fyrirtækin sýna þá má ekki láta launþega fyrirtækjanna njóta þess heldur eiga launþegar að hanga á horriminni og það með atbeina ríkisstjórnarinnar sem vill halda láglaunastefnunni til streitu svo að almenningur verði ofurseldur sínum atvinnurekanda því viðkvæðið er ef að þú biður um hærri laun þá er nóg til af fólki!! Þannig halda þeir sinni láglaunastefnu með fulltingi ASÍ sem virðist sleikja einhvern enda á SA og LÍÚ. Og svo ætlar forystusauður ASÍ að bjóða sig fram aftur! Guð hjálpi verkafólki þá og vonast ég til þess að framboðin verði fjölmörg og að það verði almenn kosning ekki útvaldir félagar á þingi ASÍ! Þannig fór um síðustu kosningu hjá ASÍ það voru þeir í trúnaðamannaráði sem réðu úrslitum og það voru þeir innan ráðsins sem að kusu forystusauðinn með sínum atkvæðum þó svo að margir innan vinnustaða þeirra vildu ekki forystusauðinn en þeir snérust gegn sínum umbjóðendum gegn gylliboðum ASÍ og enda margir trúnaðarmenn sem verða ekki kosnir áfram og hafa haft skömm fyrir á sínum vinnustað! En nú er komið nóg og vonandi láta launþegar í sér heyra og launþegi vill ekki eymingjaskap heldur hörku sem að síðustu ár hefur verið engin með forystusauð ASÍ í forsvari því miður. Farið að tala um hlutina opinberlega en ekki kjafta hver í sínu horni og svo þegar að til kastanna kemur þá gerir enginn neitt eða þorir því miður hefur þetta verið viðkvæði hjá launþegum í góðærinu 2003-2008 og eftir það líka því fólkið er svo dofið að það þorir engu! Sjáið Evrópu þar mótmælir fólk og þar er hlustað á fólk en hérna á Íslandi NEI! Því við erum ennþá molbúar og þannig lítur fólk úti í heimi á okkur því við kunnum ekki að standa á okkar rétti og þorum ekki að láta heyra almennilega í okkur út af hræðslu við GRÓÐAPÚNGANA sem EIGA ÍSLAND Á OKKAR KOSTNAÐ OG HRÆÐSLU VIÐ YFIRVALDIÐ SEM ER UNDIR OKKAR STJÓRN MEÐ MISVITRUM STJÓRNENDUM OG ALÞINGI!!!!
Örninn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.5.2014 | 07:43
Verndarstefna grænpúnga og WWF
Jæja nú eru Hvalveiðar að hefjast að nýju sem betur fer því þá eykst fiskigengd og átan í hafinu líka! Því miður gera þessir grænpúngar og forsprakkar WWF og Náttúruverndarsamtök Íslands sér ekki grein fyrir því að hvalir af öllum tegundum borða, það er svif ( áta, síli ofl) sem að sjófuglar lifa á og hefur komið í ljós hrun í þeim stofnum út af fæðuskorti og einnig ef að blessaðir fræðingarnir hafa lært eitthvað í skóla að það eru aðrar hvaltegundir sem borða fisk! Nei örugglega ekki því þessir svokallaðir náttúruverndarsinnar hljóta að lifa á landsins gæðum og vera grænmetisætur og vilja örugglega friða sauðkindina líka svo að sú fái að borða í friði fyrir mannfólkinu! Svo þegar að grasið og sinan er búin þá fellur sauðkindin, svínin og restin af búfénaði og eftir stendur horaður ALMÚGINN!En svo kemur að því að þessir blessaðir friðunarsinnar fái nú allt í einu engann fisk, útgerðin hrunin út af aflabrest því enginn er fiskurinn! Nú það er ekkert mál þessir blessaðir öðlingar innan þessara samtaka geta verið áhyggjulausir með styrki frá ríki og grænpúngum ásamt WWF og þá verður bara grænmeti á boðstólum. Því miður gerir þetta vesalings fólk sér ekki grein fyrir nema einu það er ofstæki sem kostuð eru af ýmsum sem nefndir eru að ofan! Það verður gaman að sjá forsprakkann hann Finn hjá Náttúruverndarsamtökum Íslands eftir fá ár ef að hvalveiðar verða bannaðar og hverjum ætlar hann að kenna um fiskleysi og fugladauða? Nú náttúrulega eftir heilaþvott hjá grænpúngum og WWF ásamt besta vini sínum Sigursteini kenna þeir ofveiði á hvalategundum en því miður þá vilja samtök þeirra ekki BIRTA skjöl til staðfestingar frá Alþjóða Hvalveiðiráðinu í sínum blöðum heldur kannski einhverja útúrsnúninga frá einhverjum fræðispekingum sem hafa jafnvel aldrei migið í saltan sjó? Því miður segja þessir verndunarpúngar ekki frá OFVEIÐI Á HVAL við Vesturströnd Bandaríkjanna því þessir verndunararpúngar eru hræddir við að styggja Bandaríki Norður Ameríku! Af hverju? Jú því miður eru svo margir Bandaríkjamenn sem að grænpúngar og WWF græða á út af því að sumt fólk borgar offjár fyrir að hafa hval í fóstri þó svo að hvalurinn sé hákarl og eða eitthvað annað sem hefur víst komið í ljós að fólki eru sýndar myndir af Hnúfubökum með ýmsum litbrygðum og háhyrningum og boðið að taka þá í fóstur fyrir vissa upphæð í 600-15000 $. Sea Sheperd gera þetta sama nema að þeir eru bannfærðir á ýmsum hafsvæðum eftir aðgerðir sínar og þetta er ekki til framdráttar verndarstefnu heldur er þetta ofstæki Því miður þá er þetta í sumum tilfellum fjárplógsstarfsemi og hvað skyldu mörg af þessum svokölluðu hvalaverndarsamtökum vera í Bandaríkjunum? Gaman væri að vita það og ættu þá Íslensku samtökin að geta upplýst alþjóð um það ásamt styrktaraðilum eða berast greiðslur í gegnum Paypal? Er þá ekki kominn tími til fyrir skattmann að samkeyra gögn við IRS í Bandaríkjunum?
ÖRNINN
![]() |
Leyft að veiða 154 langreyðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.4.2014 | 09:26
27.438 í alvarlegum vanskilum!
Jæja nú getur sá gamli ekki orða bundist um þessar tölur frá Creditinfo!
Þar kemur ekki fram það sem að almenningur hefur þurft að taka á sig til að reyna að standa í skilum með því að semja við lánastofnanirnar allar sem að hefur kostað fjölskyldur það mikið að börnin hafa ekki einu sinni nægju sína í morgunmat og fjölskyldan getur ekki leift sér eitt né neitt og þá er ég að meina 2 fullorðnar manneskjur með tvö börn á lágmarkslaunum í leiguhúsnæði c.a 85 fermetrar og samanlagðar tekjur um 400 þúsund á mánuði! Leiga ca 150-170 þúsund+ einn bíll+ tryggingar og rekstur þegar búið er að draga allt frá með öllum reikningum og búið að semja við lánadrottna sem gefa ekkert eftir þá verða þeir aurar sem eftir verða um það bil 45-60 þúsund til ráðstöfunar! Þannig að það má tvöfalda þessa tölu svo að vitringar ríkisstjórnarinnar fari að hugsa það munar um að geta keypt sér fína steik og vín? á 30-40 þúsund krónur á kostnað okkar skattborgaranna og svo kaupir almenningur kannski einn lítinn pylsupakka og síður pasta með til að drýgja! En það er eins og einn flokksbróðir fjármálaráðherra sagði í den að það væri engin Fátækt á Íslandi! Og annað sagði sá hinn sami líka að það ætti að flytja fólkið í vissu byggðarlagi fyrir Vestan í eina stóra blokk í Reykjavík svo ekki þyrfti að gera göng! Enda hrapaði fylgi floksins við þessi ummæli fyrir vestan og það væri kannski ágætt að spyrja forseta Alþingis um þau mál! En allavegana því miður þá hafa þessir sem réðu þá og eru núna allsráðandi í ríkisstjórn ekki græna glóru í hausnum í sambandi við almannahagsmuni því þessir sömu aflögðu hitt og þetta til að SKÓFLA miklu meira undir VILDARVINI sína. Nú það verður annað hrun og þá hverjum verður það um að kenna? Ekki ég ekki ég veit ekki neitt þetta er sama sagan með blessaðan bláskeiðunginn og með gæruflokkinn á eftir sér og skilja svo ekkert í því að fylgið hrynur! Skrítið? Nei gæruflokkurinn með sína ráðherra er búinn að missa alla tiltrú almennings og bláskeiðungurinn með einn ónefndann aftursætisbílstjóra líka!
Örninn
![]() |
27.438 í alvarlegum vanskilum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.3.2014 | 04:31
Einkavæðing, kvóti og kennitöluflakk!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.1.2014 | 12:27
Schengen samstarfið hvað!!
Nýjasta dæmið og þetta vildi ríkisstjórn DO og BB á þeim tíma og enda hefur það sýnt sig með glæpaöldu erlendra glæpagengja undanfarin ár sem valsa óáreittir um okkar land! Skil ekki af hverju er ekki löngu búið að segja upp þessum Schengensamning og þá myndi mikið af eiturlyfjasmygli ofl detta út vegna vegabréfaskoðunar því það valsa ýmsir um landið eins og fréttin ber með sér og þá mætti auka löggæsluna ásamt tollgæslunni með auka hátekjuskatti á þá sem hafa yfir 20 milljónir á ári í laun og gera svo eins og Frakklendingar 75 % skatt á þá sem eru með yfir td 60+ milljónir á ári!! En það má víst ekki hrófla við kvótakóngum og elítunni sem að á Ísland enda hefur það sést með ákvörðunum ríkisstjórnarinnar sem er við völd í dag!! Láta láglaunafólkið borga fyrir óráðssíuna þeyrra eins og vanalega!!
Örninn
![]() |
Stal peningum úr söfnunarbauk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.12.2013 | 08:40
Formaður ASÍ að þenja sig!
Jæja vaknaði álfurinn upp við vondan draum og skilur ekki neitt í því að kjarasamningar eru lausir! En þá hefði blessaður álfurinn átt að fara að vinna vinnuna sína frá A-Ö þó fyrr hefði verið og fara út á meðal fólksins og Hlusta á fólkið og Taka mark á því en ekki bara einblína á sín kjör og kjarabætur og Jakinn er örugglega búinn að margsnúa sér við í gröfinni bara út af launum álfsins og konungsríkis hans því það er kominn tími til að ASÍ fari nú að spara með t.d fækkun starfsfólks, minna húsnæði og svo mætti lengi telja! Það væri gaman að álfurinn upplýsti alþjóð hversu margir störfuðu á skrifstofum ASÍ, hlunnindi ofl!! Því konungsríki álfsins hefur blásið út við hans yfirtöku á stólnum og virðist ekki vera lát á því álfurinn virðist ekki hafa neinar tennur og eða bein í nefinu til að Berjast fyrir nema kannski svokallaða millistétt en þeir sem lægstu hafa launin hafa það jafn skítt eftir hrun eins og fyrir hrun! Nú það er kannski ágætt að hækka laun álfsins meira en lágtekjufólkið fær því það er erfitt fyrir félagsmenn innan ASÍ með álfinn við konungsvöld að malda í móinn og heimta almennileg og mannsæmandi laun því það má ekki og álfurinn segir bara við SA já og amen það er engin engin harka lengur því ef svo hefði verið þá hefðu Íslendingar það miklu betra en í dag því SA og aðrir atvinnurekendur eru búnir að græða hundruðir milljarða á almenningi út af gunguskap Verkalýðshreyfingarinnar við kjarasamningaumleitanir undanfarna 2 áratugi enda hefur allt hækkað um tugi ef ekki hundruðir prósenta því ekkert bein er í nefinu á hreyfingunni til að sporna við þessu öllu bara já og amen! Fá nýtt blóð inn í ASÍ ekki einhvern álf sem lætur aðra vinna vinnuna sína og sést ekki nema sjálfur í fréttum en ekki á úti á meðal fólksins!!
Örninn
![]() |
Ekki komið til móts við óskir ASÍ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.10.2013 | 02:39
Smáís ofl!
Jæja sýslumaður hafnaði lögbannskröfu gegn fjarskiptafyrirtækjunum vegna beiðni um lokun á vissar skráarskiptasíður! En ég hlustaði á viðtal á Bylgjunni þar sem rætt var við Snæbjörn framkvæmdastjóra Smáíss en í því viðtali kom ekkert fram hversu mikið öll samtökin sem standa að kröfunni hafa fengið frá ríkinu í formi skatta sem að voru settir á alla skrifanlega diska, spólur ofl og áttu að vega á móti niðurhali, kópíeringu ofl! Nú er þá ekki kominn tími til að ríkisstjórnin láti þá skatta renna til réttlátra ef að þeir hafi ekki fengið sinn skerf nokkur hundruð milljónir frá byrjun? Þá er kominn tími til að blessaðir rukki ríkið um skattinn því með þennan skatt hefur verið svolítið skrítið að örfáir menn ( peningamenn?) hafi getað haft svo mikil ítök á þingmenn sem samþykktu þetta að það er kominn tími til að athuga um mútugreiðslur samanber fréttir í kvöld á ljósvakamiðlum að Ísland sé eftirbáti ýmissa þjóða í sambandi við rannsókn á mútum og þá verðum við að fá erlenda rannsóknarmenn til að kafa eftir spillingunni ekki neina sérskipaða flokkspólítíkusa á fullum launum kannski til að fela eitthvað!
Örninn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.8.2013 | 05:08
Skammarleg og hneykslanleg brot!
Frábært að Biskup kaþólsku kirkjunnar segir frá að misnotkun hafi átt sér stað. En nú kemur spurning til Íslensku þjóðkirkjunnar hversu margir Biskupar, prestar og prelátar hafa verið sýknaðir af skírlífsbrotum sem að víst þóttu eðlileg eftir siðaskipti að sumir kirkjunnar menn á visitasíu sem voru að kenna umgmeyjum ofl hitt og þetta sem að í dag myndi kallast nauðgun? En þá er kominn tími til að Þjóðkirkjan fari nú að grafa upp tengdir við kirkjunnar menn við núlifandi Íslendinga og segja alþjóð frá saurlifnaðinum og hótunum um missi leiguplássins innan kirkjujarðanna sem að fólk var að hokra á og borga allt sitt undir og bóndinn í þá daga fór í kaupstaðarferð með afurðir og 90 % fóru til prestsins! Og ef að bóndinn fórst þá varð ekkjan að taka við eða segja sig á sveitina með börn og buru á meðana að kirkjunnar höfðingjar (ekki allir því margir prestar gáfu af sínum búum mat sem að kom þeim illa því ölmusan við fólk því biskupsdæmið átti sitt og prestum bar að skila sínum tekjum og margir prestar voru flæmdir af jörðum sínum fyrir ölmusuna) lifðu í vellystingum! Það er ekki furða að prestarnir græddu í þá daga en sem betur fer þá er þetta breytt í dag. En samt má þá ekki halda áfram að segja frá nema einhverjir vilji fela eitthvað? Og líka að fá einhverja sem tíma aurunum sínum múltímilljónerana (ekki almenning) að gefa eitthvað af sér í staðinn fyrir að kaupa sér nýjan bíl, nýtt innbú osvfrv til að styrkja eitthvað forvarnarstarf eða líknarstarf? Spurning því hver milljón skiptir máli almenningur hefur gefið 890 milljónir á síðustu 4 árum af sínum litlu tekjum er þá ekki kominn tími til að Auðvaldið bæti um betur með sinn OFSAGRÓÐA OG NIÐURFELLINGU SKULDA?
Örninn
![]() |
Skammarleg og hneykslanleg brot |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Kjaramál
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Samgöngur
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar