Færsluflokkur: Bloggar

Bölvað kjaftæði!

Gera þessir menn sem að vilja láta leggja sæstreng sér ekki grein fyrir því að LAUN OG LAUNAKJÖR eru allt önnur á Íslandi en í NOREGI? Nei þetta hljóta að vera vanvitar því að hvernig á venjulegur Íslendingur með mánaðarlaun upp á kannski 250 þúsund krónur íslenskar að fara að borga  fyrir kílówattstundina með flutningskostnaði yfir 200 íslenskar krónur? Þá spyr ég bara er þá ekki ráð að fara að hækka launin úr 195 þúsund krónur sem eru  lágmarkslaun upp í 420 þúsund á mánuði og ekki hækka skatta ofl, og ef það verður gert sem verður aldrei á meðan einokunar og lokunarstefna ríkisstjórnarinnar gagnvart betri kjörum almennings þá kemur það ekki til mála að hugsa eins og Hörður gróðapungur Landsvirkjunar sem að er í EIGU ÍSLENSKU ÞJÓÐARINNAR! Og ef að þessir menn eins og Hörður gróðapungur ætlar að fara að semja um eitthvað gerræði þá er ágætt að fá ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLU svo að peningar almennings fari ekki á fárra manna hendur! Eru einhversstaðar  faldir peningar í þessu sæstrengsmáli sem má ekki segja frá??? Íslendingar eru búnir að fá upp í kok á Einkavæðingarbraski sem komu Íslandi á hausinn með tilstilli vissra flokka og Seðlabankastjóra þá í EINKAVÆÐINGUNNI! Við Íslendingar kusum nýja ríkisstjórn 2013 en ekki flokkspólítískt skipaða gæðinga heldur á að fá inn menn með reynslu en ekki með kannski já hvað? Nýja flokksvanvita með hroka og yfirgang sem ekkert kunna og eða vita? Samanber Íbúðalánasjóðinn þá.  Kannski bara jók til að spila inn á hinn óvenjulega Íslending sem vill láta allt yfir sig ganga með mánaðarlaun yfir 650 þúsund á mánuði á manneskju en  ekki með samanlögð laun lágtekjufólks upp á krónur 550 þúsund sem eru í láglaunastörfum með kannski 2-3 börn og vinna myrkranna á milli og hafa ekki frítt eldsneyti á bílinn og ekki einkabílstjóra og ferðapeninga og svo miklu meira á kostnað hins VENJULEGA Íslendings!! Hugsið ykkur um hversu gott þið hafið það Íslendingar í dag en ef að þessu gerræði verðurmeð lagningu sæstrengs njótið þess rafmagns sem þið hafið í dag því það verður erfitt að elda mat með rafmagni því það kemur til skömmtunar á rafmagni til hins almenna notanda eins og er í Noregi og sumstaðar í Evrópu!

Örninn


Endurskoðun ofl!

Jæja er nú blessaður fyrrverandi sjávarútvegsráðherra Einar K Guðfinnson að biðja um endurskoðun? Hvernig væri þá að endurskoða (Rannsaka) embættisfærslur hans í sambandi við kvótaívilnanir til handa ýmsum framámanna í Íslenskum sjávarútvegi sem að í dag kvarta sáran yfir órétti sínum! Nú er þá ekki alveg ágætt að vinir EKG segi alþjóð frá ívilnunum sínum í staðinn fyrir að láta LÍÚ hafa áhrif með einhverjum hótunum? Því miður eins og ég hef sagt áður frá þá misstu aðilar innan LÍÚ niður um sig brækurnar þegar að flotinn sigldi í land með dulbúnum hótunum til þeirra launþega en gerðu sér ekki grein fyrir alvarleika málsins sem er kominn í ljós í dag með andstöðu gegn breytingum á  Veiðigjaldafrumvarpinu sem að háttvirt? ríkisstjórn lagði fram á sumarþinginu! Nú 35000 manns skrifuðu undir og það verður bara það sama og með 2003-2007 SKÍTT með almenning við ráðum núna og GRÆÐUM FEITT aðrir borga! Nú ennþá erum við að borga og skafa undan flórnum út af einhverjum skítablesum sem að eru ennþá að völdum í ýmsum stjórnum og fyrirtækjum sem að fengu millarða hundruðir niðurfelldar og líka þá fengi ég hið minnsta 6 mánaða fangelsi óskilorðbundið fyrir að stela td. kílói af nautalundum, 2 kexpakka, svitasprey, og ef ég kæmi innaná mig tyggjópakka! Svo þannig er þetta bara og heldur áfram því sumt fólk vill áframhalda spillingunni í stjórnsýslunni og dómsvaldinu eða hvað? Er þá ekki kominn tími til að fara að laga þetta með óopinberum mótmælum td að allir hætti kannski að vinna? Það kallast víst borgaraleg óhlýðni og ekki er hægt að setja neitt út á það að meina löndun á fiski úr frystitogara til að skapa vinnu í landi eða hvað? En EKG getur svarað þessu því ekki gat hann blessaður svarað raunverulegum sjómönnum fyrir vestan sem fengu engar ívilnanir eða hvað?

Örninn

 


mbl.is Endurskoða þarf löggjöf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eiturlyf og dómarnir!

Jæja það er nú vonandi að núverandi ráðherra dómsmála leggi fram á Alþingi okkar Íslendinga? tillögu um breytingar á hegningarlögum þannig að allir sem rækta, meðhöndla og flytja inn eiturlyf verði dæmdir í mestu mögulegu refsingu ekki minna en 6 ára fangelsi! Því þetta böl hefur tröllriðið Íslandi undanfarna áratugi og því miður hafa höfuðpaurarnir sloppið alveg vegna þess að dómarnir eru svo fáránlegir hérna á Íslandi og til dæmis burðardýrin fyrir peningamennina myndu ekki kjafta  frá fyrr en að þeim væri gerð grein fyrir td. 6 ára fangelsi hið minnsta! Það er óopinbert leyndarmál að peningakallar spila stórt hlutverk í innflutningi eiturlyfja því ekki hefur almenningur efni á því að senda einhvern til að kaupa svona magn og kannski miklu meira! Því miður virðist það vera að sterku efnin séu notuð af efnameira fólki sem hafa yfrið nóg af peningum svokallað tískan að taka í nös! Og annað að ræktendur kannabis fá væga dóma en samt tröllríður kannabis öllu á Íslandi því ætli að innflutningur hafi bara ekki lagst af bara út af vægum dómum, því ræktendur kunna víst orðið á Lögregluna því það er kannski engin Lögregla til að fylgjast með út af niðurskurði. Og annað þá mætti alveg fresta framkvæmdum með nýtt fangelsi á Hólmahálsi og byggja við Litla Hraun því þar er nóg plássið til viðbygginga. Og líka má nefna það að Hótelfangelsin eru liggur við eftirsótt af erlendum glæpamönnum fyrir Lúxusinn og vilja alls ekki láta framselja sig til síns heimalands þar sem að enginn lúxus er þar með talið tölvur með netsambandi og svo miklu meira eins og föngum býðst hérna heima!! Það væri kannski gustukur að koma svipuðu kerfi í fangelsismálunum eins og er úti í Ameríku enginn lúxus! Nei herða lögin og þá kannski fara þessir ólánsmenn að segja frá en kannski má ekki herða lögin til að hlífa einhverjum peningaköllum sem kannski hafa ráðið einhverju og ráða ennþá?? En eins og er í öðrum löndum tekið harkalega á eiturlyfjasmygli og í sumum löndum er dauðarefsing samanber fréttir af konu frá Bretlandi nýlega og í þeim löndum þá er þetta lítið vandamál því það er upprætt strax. Þannig að það má eins og að ofan greinir herða löggjöfina hressilega og þá kannski koma ýmis nöfn í ljós sem hafa verið falin undanfarna áratugi! Hvað finnst ykkur Íslendingum réttlátt að klappa á öxlina og dæma í 2-3 ára fangelsi eða sex ár hið minnsta því með að breyta lögunum þá væri hægt að bjarga fleiri hundruðum ungmenna frá fíkniefnasölum sem tröllríða Íslandi og veigra sér ekki við að selja grunnskólabörnum fyrir utan skólalóðir! Þess vegna Íslendingar verið vakandi og tilkynnið allt óeðlilegt sem að þið þekkið ekki í kringum skóla og einnig heimili og takið niður útlit og kannski bílnúmer því þetta hefur hjálpað Lögreglunni mikið þó fámenn sé og upplýst marga glæpi! En þetta eru mín skrif og vonandi lesa einhverjir þennan pistil og fólk fari að hugsa sig tvisvar um að hlífa einhverjum sem að kannski selur eiturlyf og þorir ekki að segja frá af ótta við hefndaraðgerðir en það er bara til að þagga niður Vandamálið! Svo endilega hringið og látið vita um eitthvað grunsamlegt! Og ég veit að þessi pistill á eftir að rata í hendur einhverra og veit að ég á kannski? eftir að fá eitthvað? Hver veit.

Örninn


mbl.is Mynstur í innflutningi kókaíns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofbeldi!

Já þetta var hroðalegur verknaður og vonandi kemst fórnarlambið til góðrar heilsu. En því miður þá eru hrottar sem hafa stundað ýmisskonar ofbeldisverk lausir vegna að ég ásamt fleirum höldum út af hræðslu dómara gagnvart hrottunum að dómarar bæði í Héraðsdómi og Hæstarétti séu hræddir við að dæma þessa hrotta í fangelsi! Nú það geta verið ástæður fyrir því beinar og óbeinar hótanir hrottanna gagnvart yfirvaldinu og þá líka sérstaklega gagnvart Lögregluþjónu sem þurfa að lenda í þessum hrottum og er þá ekki kominn tími fyrir tilvonandi nýjan dómsmálaráðherra að þyngja refsingar? Nú er ég nú ekki svo lögfróður en samt hefur mér fundist anzi léttvægir dómar yfir svona hrottum í gegnum árin það liggur við að þeim sé klappað á öxlina og sagt að gera þetta ekki aftur allavegana er það mín og fleyri tilfinning því búðarþjófur fær jafnvel þyngri dóm? En ég held að það sé kominn tími til að fara að taka dómsmálin í gegn og þá líka að athuga með alla erlendu brotamennina hvert að það væri nú ekki ráð að fara að senda þá heim til sín í afplánun eftir dóm því nógur er biðlisti eftir afplánun íslenskra brotamanna. Og ég segi þetta um erlendu brotamennina því það virðist vera eftirsókn hjá þeim að vera á Hótel Litlahrauni í lúxusfangelsinu með allt en kannski í heimalandinu er ekkert svoleiðis því að kannski er fangavistin gerð til að refsa en ekki lúxus þar með talið internet, sjónvarp ofl! Það væri gaman að vita hversu margir erlendir ríkisborgarar hafa gist Litla Hraun undanfarin 10 ár og hvað uppihald hefur kostað þar með talinn túlkakostnaður ásamt fleyru! En ég veit ekki hvernig samningar eru á milli landa um framsal brotamanna! Við Íslendingar  höfum alveg nóg með okkar afbrotamenn! Og kannski styttist biðtíminn eftir afplánun því það er ekki eðlilegt að manneskja sem hefur snúið af villu síns vegar að manneskjan sé boðuð í afplánun kannski þremur árum seinna manneskjan komin með börn og buru!

Örninn


mbl.is Búið að handtaka tvo árásarmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hækkanir hvað?

Nú þetta hefur nú viðgengist allhressilega eftir hrunið og því miður allhressilega síðustu 2 mánuði hjá Högum og félögum tengdum þeim! Og er algjörlega sammála Reyni því ASÍ er að tala um nokkur prósent hér og þar en stundum eru hækkanirnar tugir prósenta ekki bara hjá Högum heldur hjá mörgum öðrum söluaðilum og þess vegna þarf fólk umsvifalaust að hafa uppi myndavélar til að taka myndir af verðum því ég sá í Bónus hækkun á 4 hamborgurum með brauði frá Íslandsnauti sem að kostuðu 798 krónur og allt í einu þá var sama vara komin í 898 krónur og lét ég vita af þessu og þeir voru snöggir að lækka verðið í 798 aftur!! Af hverju nú því miður hef ég ásamt öðrum tekið eftir miklum hækkunum og eru það mörg prósent umfram launahækkanir og byrgjarnir verða að svara því opinberlega þegar að almenningur krefst svara! Af hverju hefur kjúklingakjöt, svínakjöt, nautakjöt og natgripakjöt hækkað um 25-30 % á síðasta ári? Það er ekki vegna fóðurkostnaðar og launahækkana nema um 6-7%! Þannig að afurðastöðvarnar hafa hirt í gróða og eða milliliðirnir líka! Þannig að er þá ekki kominn tími til að Td. SS, Goði, Ferskar kjötvörur, Ölgerðin ásamt restinni fari nú að lækka vöruverð til að bæta fyrir vörusvik undanfarinna 2ja áratuga með IÐNAÐARSALTIÐ? Og ættu að sjá sóma sinn í því með lækkunum og láta almenning njóta þess í staðinn fyrir að OKRA áfram? Bara spyr! Hef ekki séð neinar opinberlegar afsakanir frá þessum fyrirtækjum um vörusvikin bara benda hvorir á aðra! Þetta var þaggað niður en hversu lengi hafa vörusvikin viðgengist hjá gróðapúngunum samanber tilbúnu réttina sem teknir voru úr umferð!! Áratugi hefur þetta viðgengist því gróðapúngarnir vilja alltaf græða sem mest! Nautahakk frosið á að vera nautahakk ekki Nautgripakjöt eins og er ennþá verið að selja í gær sem NAUTAHAKK í Bónus frá Íslandsnauti skyldi þó ekki vera frá Ferskum kjötvörum? Það þyrfti þá að vera einhver opinber eftirlitsmaður á kostnað fyrirtækjanna svo að aðhaldið myndi borga sig en það má kannski ekki vegna þess að kannski kæmust upp vörusvik!!!! Heilsufarsvandamál tengt röngum upplýsingum og trúarlegs eðlis líka út af innihaldi kjötvara?

Örninn


mbl.is Kannaði verð 170 vörutegunda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er ekkert ný saga ( Vegagerðarsaga) !!

af hverju kemur þessi frétt núna um einhverja tjöruköggla? Þetta hefur verið viðvarandi vandamál undanfarin ár út af lélegu efni sem notað hefur verið í slitlög um allt Ísland og þar af leiðandi lélegri undirbúningsvinnu með kannski fyrirskipun Vegagerðarinnar að spara?!!! Nú ég veit ekki betur en að undanfarna áratugi hafi viss prósent af hverjum eldsneytislítra átt að fara til vegamála en því miður hafa farið um það bil sirka 10 prósent en restin í ríkiskassann og því miður þá var það svo á árunum fyrir hrun líka en í framkvæmdum  þá hefur nú verið slett hingað og þangað smá slettu af olíumöl samanber Vestfirðirnir sem hafa setið á hakanum í áratugi og ekki sjáum við Íslendingar ennþann dag neinn hag af ofsagróða innflutningsfyrirtækja eldsneytis sem áttu að renna til vegamála nema bara að gróðinn hækkar hjá fyrrverandi samráðsfyrirtækjunum nema Atlantsolíu sem voru ekki til á þeim tíma og álagningin hækkar jafnt og þétt hjá þeim þó svo að verð lækki um öll önnur lönd á eldsneyti! Nei það má þá kannski setja hærri skatta á gróðann hjá þeim eins og á að gera við Útgerðina þá kannski geta þessir gróðapungar sett það sem tap í næstu skattaskýrslu!! Nei þetta er svívirðilegt að þetta hafi viðgengist undanfarna áratugi með vegagjöldin og ef að flokkur Bjarna Benidiktssonar kemst til valda þá held ég að sá flokkur skuldi marga hringvegi í kringum landið vegna þess að á meðan á samstarfi XD og B sem voru Olíukóngar á Íslandi þá minnkaði alltaf hlutfallið til vegamála en gróðinn og álagning olíufélaganna hækkaði enda engin furða að sumir greiddu mörg hundruðir milljóna í ARÐ til eigenda!!!

Eða hvað bara spyr? Er þá ekki kominn tími til fyrir Íslendinga að vakna UPP af sauðshættinum og flokkshyggjunni og leggja saman TVO og TVO og fá út FJÓRA en ekki FIMM eins og áðurnefndir flokkar hafa heilaþvegið sumt fólk með undanfarna áratugi ekki satt eða hvað????

Örninn


mbl.is Dularfullar blæðingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tannlaus verkalýðsforysta!!

Já ASÍ getur sagt sínum félagsmönnum sem að fengu því miður ekki að kjósa nema í GEGNUM VALDA TRÚNAÐARMENN OG BITLINGA Á FLOKKSÞINGI EN ALMENN KOSNING NEI TAKK!! EF AÐ HINN ALMENNI LAUNÞEGI HEFÐI FENGIÐ AÐ KJÓSA LÝÐRÆÐISLEGA SAMANBER KANNSKI PÓSTKOSNINGU ÞÁ VÆRI TANNLAUSI ÁLFURINN EKKI VIÐ VÖLD Í DAG!! ÞVÍ EINS OG ÉG HEF SAGT ÁÐUR HEFUR ASÍ EKKERT MEÐ MANN AÐ GERA MEÐ SÍN OFURLAUN OG GETUR EKKI STAÐIÐ VIÐ HLIÐ LÁGLAUNAMANNSINS (KONUNNAR) OG ÞAÐ VERSTA ER AÐ HANN BLESSAÐUR TANNLEYSINGINN SKULI VERA BEGGJA MEGIN BORÐINS? ÞVÍ EF AÐ GRANNT ER SKOÐAÐ ÞÁ LYGGJA RÆTUR TANNLEYSINGJANS Í ÁTT SEM AÐ SÁ HEFÐI ALDREI NOKKURNTÍMANN ÁTT AÐ KOMA NÁLÆGT EÐA HVAÐ? EF AÐ TANNLEYSINGINN HEFÐI ÞOR OG DUG TIL AÐ TAKAST Á VIÐ RÍKIÐ, AUÐVALDIÐ OFL ÞÁ VÆRUM VIÐ HINN ALMENNI LAUNÞEGI BETUR STÖDD Í DAG!!! NÚ KOM UPP ARÐSEMISTÖLUR ALLRA ÞEIRRA FYRIRTÆKJA SEM GÁTU EKKI BORGAÐ MANNSÆMANDI LAUN OG SÍÐASTLIÐINN FEBRÚAR 2012 ÞÁ SKRIFAÐI SÁ TANNLAUSI UNDIR SAMNINGA SEM AÐ GERÐU HVAÐ? JÚ ALLT HÆKKAÐI UM TUGI PRÓSENTA OG SVO KEMUR SÁ TANNLAUSI FRAM Í SJÓNVARPI OG SEGIR AÐ ALLT SÉ Í LAGI ÞÁ!! NÚ SÍÐAST ÞÁ GEYSTIST SÁ TANNLAUSI FRAM Í SJÓNVARPI OG SAGÐI SIG ÚR SAMFYLKINGUNNI OG ÞÁ KOM ÞAÐ BERLEGA Í LJÓS Í VIÐTALINU HVERS MEGIN BORÐS HANN VAR OG ER UNDILÆGJA SAMTAKA ATVINNULÍFSINS? OG HORFI BARA ALLIR LAUNÞEGAR Á ÞENNAN FRÉTTATÍMA OG LEGGIÐ SAMAN 2+2 OG EKKI FÁ ÚT FIMM EINS OG HANN OG HANS SLEKTI HEFUR GERT EÐA HVAÐ??

ÖRNINN


mbl.is Samningar renni út 1. september
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gnarrpólitík?

Skrítin pólitíkin í Rvíkinni eftir að grínflokkurinn með hjálp flokks Jóhönnu tók við völdum. Vatnsverndarsvæði allt í lagi en hversvegna kemur þetta allt í einu upp hjá Gnarrsam og eru einhverjir fjárhagslegir hagsmunir í gangi? Ef ekki og fólkið þarf að flytja (Rífa) húsin þá verður það vonandi tekið fram að þarna skuli ekki byggja nær en 200 metra og ekki næstu 100 árin en því miður eru hús byggð jafnvel nýbyggð alveg í vatnsborðinu og ekki eru vatnsverndarsjónarmið þar á ferðinni enda öngvir öfgamenn í þeim efnum í Kópavoginum!! Þannig að ég held bara persónulega að þarna séu öfl í gangi sem ásælast svæðið og okurveita reykjavíkur vill fá þetta svæði fyrir sig og sitt slekti!!! Nei ekki svona gerræðislegan gjörning og Gnarrinn ætlar að bjóða sig fram í Þingkosningar og það skal segjast að hann fær nú ekki mikil atkvæði út á þetta enda er borgin með meirihluta í stjórn okurveitunnar þannig að borginni er í lófa lagið að fá óháða menn utan okurveitunnar til að skoða þessi mál og dæma um og birta opinberlega sínar niðurstöður því það er hægt að hafa áhrif ef að pantað er álit af fyrirtæki eins og kannski borginni!! Eða hvað? Nei þá er kominn tími til að almenningur hætti að borga orkureikninginn því þeir peningar virðast fara í einhverja hýtarskuldir fyrrverandi stjórnenda sem að eru á rosa launum eftir að farnir eru og gulltryggðir ævilangt!! Munið þetta borgarbúar því sumt af launatengdum gjöldum má ekki koma fyrir almenningssjónir út af leynd og hefur svo verið áður en að Mammonshöllin var reist!!!!

 Örninn


mbl.is Þurfa að fjarlægja húsin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vaðlaheiðargöng eða Tækjaþurrð Landsspítala Háskólasjúkrahúss!!

Jæja þá fær Íslenska þjóðin það beint í æð aðFjársvelti Landspítalans verður næstu árin með þessum voða gerningi því ég held að þessi ríkisstjórn samþykki það alveg örugglega þegar að þessi göng verða tilbúin að gjaldið verði 2000-3500 krónur hið minnsta!! Nei hefði þessi hauslausa ríkisstjórn með þingmenn sína í þessu kjördæmi gert það sem rétt var að kaupa ný tæki fyrir Landsspítalann þá hefði þjóðin verið sátt en þetta helvítis kjördæmapot þingmanna kjördæmisins er gengið út í öfgar! Ætli að þessir þingmenn hafi hótað stjórnaslitum ef göngin kæmu ekki? Mikið grunar mig það og annað að fólki sem ég hef rætt við finnst þetta sama. Endilega dragið þetta til baka því það verða einu atkvæðin sem þessi hauslausa Ríkisstjórn fá af svæðinum í kring ef að það verður þá er búið að bjarga göngunum! Helvítis fokking fokk segi ég bara því að nú halda líka hækkanirnar hans Okurgríms? áfram það er eins og að þessi hauslausa ríkisstjórn geri sér ekki grein fyrir því að fólk hættir að kaupa hitt og þetta með okursköttum Okurgríms og hans kollega! ÞAÐ ÞÝÐIR EKKERT AÐ BERA LAUNAKJÖR, KAUPMÁTT OG SKATTA VIÐ NORÐURLÖNDIN ÞVÍ ÞAR ERU LAUNIN MIKIÐ HÆRRI OG MIKLU MEIRA FÆST FYRIR LAUNIN EN HÉR Á OKURLANDINU! NEI NÚ VERÐUR ALGJÖRT HRUN Í ÞESSU LITLA FYLGI SEM EFTIR VAR OG ÞÁ KEMST HÆGRI STJÓRNIN AÐ AFTUR EINS OG VAR FYRIR HRUN ÞAÐ ER EINS OG AÐ ríkisstjórnin VILJI ÞAÐ MEÐ SÍNU HÁTTALAGI!!!!

SKAMMIST YKKAR OG FARIÐ AÐ NÁ Í STOLNU PENINGANA SVO AÐ FÓLK FÁI TRÚ Á KERFINU AFTUR!

ÖRNINN 


mbl.is 8,7 milljarðar tryggðir í Vaðlaheiðargöng
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland, spilling? og samanburður við kaupmátt og kannski laun?

HUGLEIÐING

Af hverju stoppar Ríkisstjórnin ekki okur Innflytjenda vöru eða milliliða er það skattmann sem er að auka álögur sínar?

Nei Innflytjendur og Íslenskar afurðastöðvar kjöts hækka gengdarlaust sínar afurðir í skjóli hækkandi aðfanga á hinu og þessu og þess vegna væri það þjóðráð að þessir aðilar Sýni alþjóð hversu mikið þeir kaupa viðkomandi vöru á með öllum gjöldum síðustu 4 ár og þá með hækkunum líka þá er ég að meina Vörureikninga og Innflutningspappíra sem kannski mega ekki koma fyrir almenningssjónir til að sýna fram á lögmæti allra þessara gengdalausu hækkana og eða græðgi með hjálp kannski vissra innan sumra flokka með ítök ennþá á Alþingi sem vilja ekki viðurkenna neitt misjafnt hafi skeð fyrir bankahrun og eftir! Nú SS hefur hækkað sínar vörur all hressilega síðasta ár og ASÍ tók ekki eftir því, ostar hafa hækkað, svínakjöt í hæstu hæðum og samt er ASÍ og Samtök Atvinnulífsins með atbeina Ríkisstjórna síðustu 30 árin að segja alþjóð að við borgum miklu minna og eða sambærilegt við aðrar Norðurlandaþjóðir og Kaupmátturinn sé sambærilegur og eða sami!! Djöfulsins bull og kjaftæði ef að ég sem einstætt foreldri hefði flutt út til Norðurlanda eftir Hrun þá ætti ég upp nærri því nýtt einbýlishús á Íslandi með tekjurnar eftir Skatta þar!! Nú það er engin furða að skattpíningin á Íslandi sé svona rosaleg því það þarf að borga fyrir einkavæðingu bankanna og fjármálasukkið í kringum sukkið sem að vissir aðilar innan vissra stjórnmálaflokka högnuðust á og svo vill enginn innan þessara vissu flokka koma nálægt einhverri SPILLINGU? Og sverja svo af sér afglöpin og eru bara með Geislabauginn og deila á þá sem eru í kröggum með sitt en félagar vissra flokka fá hundruðir milljarða afskrifaða en ég fæ ekki sem almúgi afskrifaðar 25-30 þúsund krónur því ég skuldaði ekki svo mikið bara 250 þúsund Íslenskar gatakrónur! Og svo stofna þessir afskrifuðu ný fyrirtæki og með jafnvel milljarðaafskriftir  á bak við sig?  Og eignir upp á fleiri hundruð milljónir!! Nei SKÍTALYKTIN  er svo svakaleg og það á eftir að verða uppreisn í þjóðfélaginu út af því af hverju var ekki gengið að öllum eignum og kannað ofan í kjölinn málamyndargerningur með eiginkonur, börn, frændur, ungabörn og jafnvel börn í móðurkviði óskýrt!!!!????

Ég bara spyr fyrir hönd þeirra sem töpuðu öllu sínu og nú munu skjólstæðingar viss hjúkrunarheimilis súpa seiðið af óráðssíu þeirra sem að voru kannski í vissum stjórnmálaflokk?? Ekki neitt nýtt eða hvað?

Örninn


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Örn Ingólfsson
Örn Ingólfsson

Er í mjög góðri vinnu. En get verið með ýmsar hressilegar skoðanir sem öðrum finnst stangast á við þeirra skoðanir og ég virði skoðanir annara þrátt fyrir bölv og ragn!

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband