9.4.2020 | 01:26
Sjónvarps Símans
Eitt undrar mig með eina rásina hjá Sjónvarpi Símans það er National Geographic. Sú stöð birtist allt í einu með sænskum auglýsingum, þar á meðal fjárhættuspilum, vínauglýsingum ofl! Furða mig á því af hverju var þessu breitt, kannski ódýrara að streyma frá Svíþjóð veit ekki. En allavegana þá finnst mér og kannski öðrum þetta ekki gott, nema að það eigi að fara að skylda sænskuna sem eitthvað 3ja tungumál í skóla? Nei ekki gott enda er maður farinn að hugsa sinn gang með áskriftir því nóg er í boði!
Kannski vilja áskrifendurnir hafa þetta svona veit ekki?
Örninn
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.3.2020 | 06:20
Lokun Íslands gagnvart Bandaríkjunum
Hvers vegna eru Íslenskir ráðamenn huglausir gagnvart einhverjum Forseta með einhverja hundruðir ráðgjafa sem sumir vita ekki í hvorn fótinn þeir eiga að stíga! Þá er að setja algjöra lokun á ferðamenn frá Ameríku ásamt millilendingarfarþegum! Þetta gerði sá Forseti óvænt og viðurkenndi að of stuttur tími hafi gefist til stefnu? Nú faraldurinn grasserar í Ameríkunni og að kenna Evrópubúum um faraldurinn er bara eins og að hann viðurkenni ekki að það eru hundruðir þúsunda Bandarískra þegna sem komu frá sýktum svæðum sem voru á skíðasvæðum erlendis ofl stöðum og hversu marga gætu hinir sömu sýkt aðra af ( Influence ) eins og haldið var fram af yfirvöldum í Bandaríkjunum að væri bara flensa! Of seint í rassinn gripið hjá þarlendum stjórnvöldum, en það er ágætt að Íslenskir ráðamenn grípi til aðgerða strax gagnvart aðstreimi Bandarískra flóttamanna sem munu flykkjast til Íslands út af veseni heima fyrir út af flensunni sem var svo allt í einu engin flensa heldur verra!!
Örninn
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.3.2020 | 13:37
Nóg til af peningum hjá Ríkinu í Mammonshöll
Frábært en hefði nú ekki verið betra að nota þessa aura til að leiðrétta kjör almennings og taka allar skerðingar af fólki? Bæta vegakerfið? Þessum framkvæmdum má fresta um óákveðinn tíma enda liggur ekkert á því hálftómur þingsalur alla daga nema þegar að ríkisstjórnin vill setja eitthvað fram þá þyrpast stjórnarþingmenn í salinn til að setja reglugerð og eða lög og meirihluti minnihlutans ekki látinn vita gæti það verið?
Örninn
![]() |
Varnar því að Tjarnargatan hrynji ofan í holu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.12.2019 | 04:11
Að hengja bakara fyrir smið!
Jón Bjarnason fyrrverandi ráðherra og kjörtæmapotari ætti nú að líta í eigin barm! Milljarðarnir sem hafa farið í Vaðlaheiðagöngin á Ríkisábyrgð og sér ekki fyrir endann á hefðu mátt til að styrkja Innviði! Og sá blessaður fátæklingurinn sem er ríkistryggður með frábæran lífeyri verðtryggðann þarf ekki að lepja dauðann úr skel!En efast um að hann blessaður hafi þurft að gera það sem Björgunarsveitirnar okkar hafa staðið í undanfarna daga og samflokksmenn hans og fleyri hafa unnið í SJÁLFBOÐALIÐASTARFI ekki bara á þessum tíma heldur áður líka! En Allur almenningur sem hjálpaði okkur í Landsbjörg á HEIÐUR SKILINN FYRIR ALLT! Og ættu ráðamenn samanber Katrín, Sigurður Ingi og tala nú ekki um Bjarna Ben að sjá sóma sinn í að styrkja Björgunarsveitirnar, Landhelgisgæsluna og tala nú ekki um Löggæsluna um einhverja milljarða sem gætu sparast hjá ríkinu í ýmsum kostnaði og bendi bara á Múlakaffis reikninga hjá Alþingi,því alþingismenn geta alveg keypt sér mat eins og ALMENNINGUR og það sparar almenningi eitthvað í skattheimtu! Nei alþingismenn fá sitt og að hafa alla þessa þingmenn eins og í milljónaþjóð ásamt bitlingum er hneyksli! Og eitt að Namibía og Angóla í Afríku skuli taka hart á misferli sýnir bara hvað Ísland og Íslenskir rannsakendur og dómstólar eru aftarlega á merinni! Nema kannski til að láta mál fyrnast sem því miður hefur gerst í ýmsum spillingarmálum!!
Örninn
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.11.2019 | 03:24
Spilling
Spillingu má túlka á ýmsa vegu þar með talið gjafagjörning og eða fjármagnsflutning til maka og jafnvel ófædd börn til að komast framhjá skuldbindingum og sköttum fyrir yfirvofandi gjaldþrot og tilvonandi málsóknum!Og þar spila sambönd innan stjórnsýslunnar allrar sem að er ekki treystandi út AF LEKANDA! Engin furða að almenningur fái ekki sitt leiðrétt strax á meðan að aðrir sem HAFA samböndin fái sín mál leiðrétt á STRAX! Og að hafa gjörónýtt alþingi með spillinguna hangandi yfir sér þá er almenningur búinn að fá nóg af Katrínu fyrir að hafa ekki rofið þing strax því þetta mál er svo rosalega stórt því að hafa vildarvini í stjórnarsamstarfinu sem hafa haft geigvænleg áhrif á utanríkisstefnu okkar! Tala ekki um einn ónefndan ráðherra sem kostaði nokkur hundruð milljarða í útflutningstekjur til ýmissa ríkja,og sá var að bjarga Íslandi og? Nú hinn sami fór með bréf og jú við erum ennþá sem aðildarþjóð Evrópusambandsins, því Löggjafarþingið okkar hafði ekki gengið frá útgöngusamningnum! Frumhlaup hjá einhverjum þingmanni undir pressu? Kannski misminnir mig? En allavegana þá er ekki komin þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB en það var Þjóðaratkvæðagreiðsla um nýju STJÓRNARSKRÁNA án BREYTINGA! Því miður eftir árið 2013 þá fór allt í gang til að breyta stjórnarskránni og engin furða í dag þá skil ég vel samaber umræðuna undanfarið að lækka veiðigjöldin á útgerðirnar sem högnuðust mest! Nú Þetta er okkar allra AUÐLIND og ágætt að geta notað KENNITÖLUFLAKK svo hægt sé að bjarga einhverjum milljörðum eftir gjafakvóta á silfurfati!
Örninn
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.9.2019 | 06:15
Garnaveiki!
Þessi sjúkdómur er búinn að vera viðloðandi alveg frá því að gróðapúngar fluttu inn erlenda lifandi hrúta ofl til kynbóta á árum áður til að bæta ull og kjötmagnið!Nú ef að þessir blessaðir vísindamenn kunna ekki söguna um innflutninginn þá er kominn tími til að þeir lesi söguna aftur! Gin og klaufaveiki kom líka með á þessum tíma!!
Örninn
![]() |
Garnaveiki staðfest á Tröllaskaga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.8.2019 | 04:03
Orkupakki 3
Jæja það er nú kannski of mikið talað um þann pakka en því miður þá hefur almenningur ekki hugmynd um hvað sá Orkupakki snýst um! Og miðað við umræður undanfarið þá hafa komið einhverjir keyptir spekúlantar frá einhverjum flokkum, tala nú ekki um lögfræðinga og prófessora ofl! En eitt gleymist að spyrja almenning um hvað þeim finnst um að raforkuverðið hækki um 30-60% við lagningu sæstrengs til Evrópu! Þær tölur sem byggt er á og ýmsir hafa sett fram frá einhverri stofnun sem hafa verið birtar eru ekki réttar því þar eru bara upplýsingar um Evrópumarkaðinn á Raforku per Kw stund sem eru frá Kola og eða kjarnorkuverum! Ég á ansi marga vini í Noregi og ekki lækkaði raforkukostnaðurinn þar heldur þvert á móti um 25-55% hækkun! Við Íslendingar höfum selt frá okkur ýmis réttindi og fengið á okkur að við erum ekki svo hrein því margir spyrja um kjarnorkuverin! Þá er eitt að gera fyrir okkar ráðamenn að halda landinu hreinu því allt kjaftæðið um kolefnisjöfnun er rugl og þá hlýtur að vera til undanþága frá EES á okkar skeri þar sem vindar blása og alls ekki ræða við einhverja sem vilja leggja sæstreng til Íslands og ef að Alþingi samþykkir orkupakka 3 þá eru ALLIR ALÞINGISMENN sekir um AUMINGJASKAP ef þeir fara á móti ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLU um Orkupakka3! Sumir lofuðu þjóðaratkvæðagreiðslu um EES 2013 og ekkert gekk svikin loforð og lyfi og ég veit að sá sem kjaftaði mest hefur mestu að tapa ef að Orkupakki 3 verður felldur í ÞJÓÐARATHVÆÐAGREIÐSLU ásamt sínum vildarvinum, stórlandeigendum og tala nú ekki um alla sem eru í Skuggaráðuneytinu til að halda vildarvinum góðum!
Örninn
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 04:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.7.2019 | 07:56
Ríkisbankarnir rýrnað?
Eitt gæti verið í þessu viðtali við Bjarna að það er bara að það vantar sannleikann! Því síðustu 6 ár eru ríkisbankarnir með sínum ÝMSUM ÞJÓNUSTUGJÖLDUM UPPFUNDNUM búnir að hala inn 130 milljarða og greiða sínum eigendum ARÐ! En í hvað arðgreiðslurnar fara veit enginn, því ekki fara þær á rétta staði nema í eitthvað sem enginn má vita af? Og að Fjármálaeftirlitið skuli vera undir hælnum á ónefndum öflum í staðinn fyrir að vera að vernda almenning gegn ónefndum öflum er skandall! En það er gott að vera á spenanum eftir tilnefningar ofl ráðningar vissra flokka!Eins og ég hef skrifað um í mörg ár það má fækka allhressilega bitlingunum í stjórnsýslunni því Lífeyrissjóðurinn þeirra hefur ekki efni á að borga lífeyrir nema með lánum, því ríkið skuldar óteljandi milljarða í LSR!Og það þýðir ekkert að kenna hruninu um því vandinn byrjaði 1996 í skuldum ríkisins gagnvart LSR eða hvað?
Fyrst ég er byrjaður þá er það krafa almennings með Íbúðalánasjóðs nauðungarsölur eftir hrunið að hverjir keyptu íbúðir á gjafverði með hjálp Sýslumanna sem margir gengu fram með miklu offorsi eða hvað? Og vonandi verða nöfnin á þeim sýslumönnum gerð opinber eða hvað? Nei það verður aldrei því allt verður sett í lög sem 120 ára LEYNDARMÁL og veit að það er verið að skoða möguleikana í ráðuneytum svo Þórdís ráðherra dómsmála þurfi ekki að opinbera gögnin um einhverja fjársterka kennitöluflakkara sem skulda Íslendingum í dag 340+ milljarða í ofteknum sköttum og gjöldum!En það má ekki setja stopp á KENNITÖLUFLAKKARANA því þá verður enginn flokkur sem hefur ráðið ríkjum nema með einhverja rassasleikju? til að bjarga andliti einhverss samstarfs ríkisins ofl?
PS: Hvaða vildarvinir vilja fá bankana gefins aftur án 100% ábyrgðar? Enginn því að vera með hreina kennitölu reddar öllu eða hvað?
Örninn
![]() |
Verðmæti ríkisbanka gæti rýrnað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjármál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.5.2019 | 02:26
Milljarða undirskrifta kóngurinn!
Jæja nú segir sá sem skrifaði undir ýmis plögg án athugasemda kannski frá vildarvinum sem kostaði 130 milljarða á skattgreiðendur í formi hækkaðra iðgjalda og hækkunar á ýmsum hlutum! Og svo kom frétt um skerðinguna króna á móti krónu hjá ýmsum sem báknið TR ræður yfir með þeim sem skrifaði undir 130 milljarða! Og sá sami vesalingur VILL ALLS EKKI TAKA Á KENNITÖLUFLAKKI SEM ER EKKERT MÁL FYRIR HANN AÐ LÍTA Á MÁLASKRÁ ALÞINGIS ÞEGAR AÐ HANN VAR Í STJÓRNARANDSTÖÐU ÞEGAR AÐ KENNITÖLUFLAKKIÐ KOM TIL UMRÆÐU! NEI ÞAÐ MÁTTI EKKI ÞÁ OG MÁ EKKI NÚNA Í DAG 875 MILLJARÐAR KOMNIR Í HAUSINN Á ALMENNUM SKATTGREIÐANDA MEÐ HÆKKUÐU VÖRUVERÐI OG AUKA ÁLÖGUM RÍKISINS SVO VILDARVINIR GETI SETT FYRIRTÆKI Í ÞROT MEÐ FRÁ 150 MILLJÓNUM -2,5 MILLJÖRÐUM ++ OG STOFNAÐ NÝTT FYRIRTÆKI MEÐ NÆSTA SKULDAHALA OG AFTUR Í ÞROT MEÐ SKULDIR!! ÍSLENSKIR STJÓRNMÁLAMENN ERU ROTNIR OG ALMENNINGUR EYMINGJAR AÐ KREFJAST EKKI RÉTTLÆTIS MEÐ UNDIRSKRIFTAGLAÐANN RÁÐHERRA FJÁRMÁLA SEM VÆRI Í FANGELSI ERLENDIS NEMA Í SPILLTU BANANALÝÐVELDINU ÍSLANDI, DÓMSMÁLARÁÐHERRA DÆMDUR OG SITUR SEM FASTAST GOTT AÐ VERA UNDIR VERNDARVÆNG AUÐVALDMAFÍUNNAR OG BANKANNA!!!
Örninn
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.5.2019 | 02:24
Kennitöluflakkið!
Hvenær ætlar Ríkisstjórnin að taka á þeirri meinsemd sem hafa kostað okkur síðast þegar að ég skrifaði um þessa meinsemd 830 milljarða og núna er komið upp í einn billjarð= það er ef enginn veit um tölur nema að hlusta á milljónir og milljarð þá er einn billjarður 1000 milljarðar! Því miður er það þessi meinsemd sem að almenningur hefur þurft að borga fyrir vildarvini sem vilja ekki afnema kennitöluflakkið út af hræðslu og eða vildarvinafrændsemi svo að vildarvinirnir töpuðu engu! Veit um mörg dæmi þar sem að kennitöluflakkarar innan viss flokks fengu afskrifaða frá hundruðum milljóna og upp í milljarða á meðan að almenningur var hundeltur jafnvel yfir gröf dauða! Og ættingjar fá ekki frið frá RÍKINU því ættingjarnir SKULDA!
ÖRNINN
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Kjaramál
- Lífstíll
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Samgöngur
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.4.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 12268
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar