Millitekjufólk hækkað í sköttum en hátekjufólkið stendur í stað!

Mikið mega allir slúbbertar og vildarvinir spillingarinnar á Íslandi fagna, engin aukin útgjöld skattalegaséð ef sá hinn sami er með yfir millitekjuhámarkinu sem eru um 900 +- þúsund! En það er ágætt að lögin hafi verið samþykkt að hækka álögur um næstu áramót, en því miður er ekkert tekið á gengdarlausum hækkunum á MATVÖRU SEM HAFA DUNIÐ Á ALMENNINGI UNDANFARNA MÁNUÐI Í FARALDRINUM! OG AÐ ARÐGREIÐSLUR OG HÁTEKJUSKATTURINN SEM ER EKKI HÆKKAÐUR ER HNEYKSLi OG KJAFTSHÖGG FYRIR ALMENNING ÞVÍ ÞEIR SEM EIGA PENINGANA HAFA ENGAR ÁHYGGJUR AF KAUPMÆTTI OG HAFA ALDREI HAFT, ÞVÍ MILLJÓN+++ RÆÐUR! SKÍTT MEÐ 100 KRÓNA HÆKKUN Á HINU OG ÞESSU!! Af hverju má ekki setja stopp á þessar hækkanir, eða er það bara til að hygla flokksbræðrum sem margir eru mjög stórir innan viss flokks sem ræður? Helvítis spillingin ræður ekki við sig og ekki bölvaðir Frímúrarnir sem eru með bróðurpartinn af þeim sem ráða og þeir passa upp á sitt og vernda alla spillingar og glæpamenn með öllum ráðum! Og líka náða vildarvinina!!

Örninn


Já borgin ræður!

Nú var í fréttum að meirihlutinn héldi velli! En eins og hefur komið fram með meirihluta borgarstjórnar þá vill meirihlutinn selja allar byggingarlóðir og með skipulagsfulltrúa sem er víst ekki grænn, heldur að reyna að fegra bókhaldið hjá borginni, sem er í blússandi mínus! Og þá þarf að selja og bjarga fjárhagnum samanbel Hlíðarendinn, og ekki skiluðu milljarðarnir borgarbúum neinu nema auknum álögum! Borgarbúar væntu að ýmis gjöld myndu lækka, en þvert á móti hækkuðu! En það er gott að hafa læknir sem hjólar ekki í vinnuna með sína aðstoðarmenn sem sumir kannski hafa ekki hundsvit á hvað er í gangi? En því miður þá er talsmátinn hjá meyrihluta borgarstjórnar þannig að fólkið skiptir engu máli og ekki hlustað á fólkið! Það er farið í framkvæmdir samanber Borgarlínan með uppsett verð 110 milljarðar en íbúar á Stór Reykjavíkursvæðinu ekki spurðir og ekki efnt til kosninga um svo viðamikla framkvæmd! Og að Samgönguáðherra hafi skrifað undir plaggið er hneyksli! 350 milljarðar +-  sem verkið mun kosta og Íslenskur almennur skattgreiðandi þarf að borga, fyrir utan auknar álögur á íbúa stór Reykjavíkursvæðisins ! Nú fyrir utan það þá koma á næstunni myndavélar innanbæjar til að rukka upp í kostnað! En þær myndavélar allar saman kosta ca 650 milljónir! Og með aðrar myndavélar sem verða settar upp víðsvegar um land til að rukka vegatolla ca 2-3+ milljarðar En hvað um það Íslendingar fara á hjólum í ferðalög, því ekki vill almenningur borga hátt í þúsund krónur fyrir smá skreppitúr! En Jón Vegatollur vildi þetta og Sigurður Ingi sagði á þeim tíma aldrei!er þá ekki alveg ágætt að minna ráðherrana um skuld Íslenska Ríkisins gagnvart Vegagerðinni, í dag eru þetta orðnir 1200 milljarðar og hækkar síðan 1991 með bankavöxtum sem almenningur þarf að borga, og almennigur borgar ennþá óráðssí Fjármálaráðherranna allra síðan þá! Hugsið um þetta!


mbl.is Kröfu um stöðvun framkvæmda var hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland í dag, Seðlabankinn og Löggæslan!

Hvenær í andskotanum ætla kjósendur þá meina ég gamla hækjuliðið sem styður vissa flokka og Innprentar sínar pólítísku skoðanir til barnanna sinna ennþann dag í dag með Hörku að sleppa því? Nú er búið að kynda undir Löggæslumálum undanfarið ár, milljónatugir settir í að þagga niður í einum svo sá kjaftaði ekki frá! Og svo kemur eitt nýlegt, og miðað við blöðin þá kostar brottrekstur einhvers tugi milljóna! Og þá vona ég að Dómsmálaráðskonan taki sig til og REKI ALLA svo friður skapist! En ef ekki þá senda alla í Lögregluskólann því ég veit að þolprófin ásamt fleyru myndu fella kyrrsetufólkið Og að manneskjur sem hafa aldrei kynnst af eigin raun Löggæslustörfum og tekið þátt í einhverjum ógeðslegum aðstæðum og kannski kunna ekki skyndihjálp 1-3+ ! En ef að almennur launþegi er rekinn eða sagt upp starfi þá er ekki sömu kjörin hjá hinu opinbera! Enda er Lífeyrissjóður Opinberra Starfsmanna gjaldþrota bæði A og B hlutar! Því þar skuldar ríkissjóður ca 620 milljarða sem að eru teknir hægt og rólega af Almenningi sem aukagjöld á hinu og þessu! Og núna semur Sigurður vegatollur ( vinur Jóns vegatolls) við hina og þessa um framkvæmdir! En í dag vantar 929 milljarða sem áttu að renna til Vegagerðarinnar síðan 1991 en fóru í Ríkishýtina eða eitthvað annað! Og Seðlabankinn í dag er undir hælnum á einhverjum sem þykir vænt um aurana sína og tíma ekki að láta eitt né neitt nema kannski brauðmola til almennings! Munið kjósendur fögru loforðin og gleiðbrosandi gjéllan hefur ekki getað svarað fyrir sig nema með að Kóveit spili inní! Sama segir ráðherra fjármála sem vill ekki tala um og eða upplýsa Íslendinga um Raunverulega skuldastöðu Íslands og Lántökur síðustu 7 ár! Það virðist vera leyndó í gangi, en Íslendingar hafa heimtingu á að vita þessa hluti opinberlega án þess að þurfa að fara á Internetið og kannski væri það gott ef að rauntölur birtust þar dag frá degi ásamt öllum útgjöldum þingmanna (kvenna ) því ekki getur almenningur fengið eldsneyti ofl á kortum Alþingis og fengið dagpeninga, dreifbýlisstyrk og alla aðra styrki! Hvernig væri nú að þessir sem einhverjir kusu yfir sig færu fram á að þeir sem einhverjir kusu út af loforðum færu fram á við Alla alþingismenn ( konur ) að lifa í einn mánuð á lágmarkslaunum án húshjálpar ofl í lítilli leiguíbúð ca 45 fermetrar, hjón  með kannski 2 börn, og leigan kannski 180-230 þúsund á mánuði! Vaknið Íslendingar!

Örninn

 


Icelandair?

Jæja nú fór stjórnin hjá Icelandair fram úr sér með að rifta samningum við tiltekið félag og að ætla að semja við eitthvað ótiltekið félag? En í Alþjóða Loftferðalögum frá IATA þá mega flugmenn ekki vera og eða vinna sem ÖRYGGISVERÐIR þó svo að þeir séu skikkaðir í svoleiðis vinnu til að vinna sem Flugþjónar!! Því það er sérstök þjálfun, sem að Flugmenn hafa ekki og hafa ekki hlotið þjálfun í!! Og það verður gaman að sjá fréttir að utan frá IATA og Evrópusambandinu með gönuhlaup Forstjóra Icelandair ef að allar flugvélar verða kyrrsettar! En Ég á hluti í Icelandair í gegnum minn Lífeyrissjóð ásamt tuga þúsunda Íslendinga og við Lífeyrisþegar sem eigum hlut í Icelandair sættum okkur ekki við hroka og yfirgang með hótunum um að semja við hitt og þetta huldukompaný! Það sem að Forstjórinn er að fara fram á verður BANABITI Icelandair, því Íslenskur almenningur þarf að borga það sem var lánað til Icelandair síðast með hjálp sem heitir Ríkisábyrgð?  Og er þá ekki það sem sagt hefur verið undanfarin 3 ár að stjórnin á sínum ofurlaunum er vanhæf hjá Icelandair? Íslenskur almenningur er búinn að borga 995þúsund gallon af eldsneyti svo hægt væri að bjarga vildarvinafiski ásamt fleiru til Amríku! Og gott að Lífeyrissjóðirnir séu að athuga málin með hlutafjáraukninguna, og veit að þetta síðasta útspil Icelandair er komið út fyrir landsteinana til tilvonandi lánadrottna! En 500 milljarða innspýting er ekkert mál þó þeir milljarðar hverfi eins og gerðist einhverntímann fyrir einhverjum árum þegar að Seðlabankinn lak og lekur ennþá??

Örninn


Nýlegur bruni með mannfalli!

Jæja það sannaðist sem að talað hefur verið um, að hola niður fólki mörgum tugum á sama heimilisfang! Og starfsmannaleigur hverra nafna sem þau nefnast bera Ábyrgðina 100% fyrir að hola fólki í smá herbergi! Brunavarnir engar, en það má komast hjá því með hjálp innan stjórnkerfisins sem leyfir ýmislegt! Og kennitöluflakkið spilar stórann sess í þessu því vinur þekkir vin innan kerfisins og að sá vinur þekkir háttsettann innan ráðuneytis sem fær kannski ekki peninga á réttum tíma (Svart) Og svona er þetta því það er gott að hafa einhverja spillta sem kjafta ekki frá sínum yfirmönnum og eða undirmönnum sem fengu einhverjar stöður óvænt! En svona er Ísland í dag og vilja viðhalda Samherjaspillingunni með óhæfan hlutdrægan Dómsmálaráðherra! Og með Kristján Þór þá hefði hann átt að segja af sér strax,en það má ekki í okkar spillingarríki Íslandi!! Og bíðið bara þegar að þið almenningur þurfið að borga peninga út úr borginni og inn aftur að frumkvæði vælukjóans Jóns Gunnarssonar, og svo Sigurður Ingi vill líka feta í fótsporin hans til að bjarga hundruðum milljarða í fjárlögin hans Bjarna og Kötu litlu á kostnað almennings með ofursköttum! 995 milljarðar til vegamála sem Ríkið skuldar Vegagerðinni í dag og megnið af þeim peningum fór kannski í að bjarga A og B hluta lífeyrisskulda Ríkisins til Lífeyrsissjóðs opinberra Ríkisstarfsmanna og skulda þeim ennþá 350 milljarða sem við almenningur borgum ennþá! Bara spyr?

Og ekki eru margir hverjir sem drepast af elítunni eltir yfir gröf og dauða, því það virðist hverfa ýmislegt þegar svo skeður, en almenningur og ættingjar eru lögsóttir fyrir 35 þúsundum króna í Dánarbú!

Því almenningur fær ekki viðhafnarútför þó svo að hafa skuldað lítið, en spillingarvinir fá rosalega flottar útfarir, bara fyrir að hafa haft peninga af fólki með kennitöluflakki og ekkert mál ég er Fjármálaráðherra sem vill ekki segja nei með Kötu litlu!

Örninn

 


Félagsbústaðir Reykjavíkurborgar

Í sambandi við alla veirur og tekjutap skjólstæðinga sinna í því ástandi þá hafa Félagsbústaðir ekki séð sér fært að lækka leigu, heldur hækkað! Kannski reikningsskilabókhaldið sé í rugli, og þá ætti nú Ríkisstjórnin að fá aðila til að athuga Bókhaldið því eitthvað er gjörsamlega út í hött í reikningsskilum! Kannski að Reykjavíkurborg sé komin á kvótakerfið eins og útgerðin, hagræða Bókhaldinu, eða flytja á milli Ebit og Ebita, eins og margir hafa gert fyrir hrun og eftir líka og gera ennþá og græða með hjálp? Nú almenningur fékk ekkert nema skuldir, 1500milljarðar+ sem almenningur tapaði á hruninu og fjármálastofnanir sem áttu veð í ýmsum skuldum, Íbúðalánasjóður gekk harðast fram í að innheimta skuldir með atbeina sýslumanna og Dómstóla! Og ennþann dag í dag er leynd yfir því hverjir keyptu stóreignir og litlar líka á SPOTTPRÍS! Því þeir burgeisar byggðu margir eftir söluna á eignunum sem keyptar voru hjá Íbúðalánasjóði ýmsar hallir vítt og breytt, því það munar um að kaupa eign á 10 milljónir og selja á 55-60 milljónir! Og margir kaupendurnir eiga stóreignir í Skuggahverfinu og leigja út lúxusíbúðir fyrir eina milljón á mánuði fyrir sérstaka?

Örninn

 


Vonandi fyrrverandi Lögreglukona?

Óska Höllu til hamingju með starfið sem að hún þarf að taka við eftir alla fyrrverandi stjóra sem hefur gengið upp og ofan með klíkuskapinn innan Lögreglunnar, og þá er kominn tími til fyrir Höllu að hreinsa til með embættið, því sumu plantað, aðrir reknir sem voru ekki sammála yfirvaldinu hennar fyrrverandi Lögreglustjóra? Og þá vona ég að Halla sé ekki flokksbundin eða kennd við flokk fyrrverandi lögreglustjóra, því ef svo er þá er það sama og með Dómsvaldið á Íslandi sérstaklega Hæstarétt, flokkspólítskt skipaðir og æviráðnir! Og þá er ágætt að láta hausa fjúka innan Lögreglunnar sem eru í skjóli við skrifborðsstörf út af afbrotum og þá reknir með 3ja mánaða uppsagnarfresti.Hennar yfirmaður þorði ekki í skipulagningu svo ekki kæmi upp kurr í Samfélagi undirmanna hennar í Lögreglunni, enda vissi yfirmaðurinn þá að gullsætið væri tryggt frá Dúkkunni!! En spurning hefur nýji Lögreglustjórinn komið beint að hópslysi með mannfalli?

Örninn


mbl.is Halla Bergþóra skipuð lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin furða!

Póstur og sími gekk vel. Svo fór að halla undan fæti þegar að einhverjir vildu aðskilja fyrirtækin! Og jú það gekk alveg framundir 2008. Efir það þá hallaði ennþá meira þannig að Póstsskútan var lögst svotil á hliðina og ríkishýtin bjargaði skútunni með OHF! Og jú það gekk í einhver ár en sumir vildu hærri laun og fengu, og svo hallaði undan OHF þá var farið að segja upp fólki í smáum stíl ( Sömu yfirmenn þá ) til að vernda sín laun ( Gulltryggð ) og svo fækkaði reynsluboltunum vegna kjaftagangs sem voru tilkomin og eða spunnin upp af yfirmönnum þá til að losna við þá sem töluðu og sögðu frá! Þekki þetta af eigin reynslu ásamt mörgu fólki á þeim tíma, sem gætu kannski komið fram í dag og sagt frá einelti og niðurlægingu yfirmanna! Pósturinn gamli var frábær vinnustaður, þá þekktum við flest alla á okkar vakt og líka á vaktinni sem tók við. og gamlar minningar og myndir ylja þeim gamla! En samt þá er það ekki gott að láta Póstinn drabbast niður í svaðið, og þá er eitt að gera að selja eitthvað af bílaflotanum og lækka laun stjórnenda og alþingismanna sem eiga sæti í stjórninni og fella út laun alþingismanna úr stjórn Póstsins!

 


mbl.is Sjópóstur færir okkur aftur um 50 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland og Austurríki Covid19

Nú eftir hremmingarnar sem bárust til Íslands eftir einhverjar skíðaferðir til Ischl þá tóku Íslensk yfirvöld í taumana, og hafa staðið sig vel! En annað með ýmsa vesalinga sem fóru því miður bakdyramegin í gegnum Heathrow því það fréttist að sóttkví biði heima! Og þeir sem fóru bakdyramegin voru án einkenna en sýktu fjöldann allan af fólki sem lentu svo í sóttkví og sumir í einangrun í dag! Og það sér ekki fyrir endann á þessari veiru fyrr en að almenningur fer að taka sig á! Því miður líta Íslendingar margir hverjir á þetta sem flensu, sem er ekki og og hef þurft margoft að ýta við fólki í búðum sem voru liggur við andandi ofan í hálsmálið hjá mér og bent þeim á að færa sig aftar! Og þar eru Íslendingar í meirihluta út af frekjugangi að troðast framfyrir aðra! Aðrir sem eru erlendir Ríkisborgarar skilja ekkert í þessum borðum og rauðu punktum hér og þar! En heilt yfir þá hefur þetta gengið vel nema helvítis hækkanir í öllum búðum á nauðsynjavörum uppundir 10% á nokkrum dögum og því miður þá græða einhverjir þar með talið Hagasamsteypan sem er með yfir 50% á erlendum innflutningi á matvöru!Og hverjir skyldu eiga Haga ofl? Olíufélögin? Eða? TortólaMaiami prinsar?

Örninn 


Og hver fylgist með?

Því miður fór ein ríkisstjórn eftir tilmælum útgerðarmanna að afnema eftirlit um borð í bátum og togururm! Og snarlega fækkaði fjárveitingu til eftirlits Landhelginnar! Tala nú ekki um eftirlitsmenn Fiskistofu sem var LÖGÐ NIÐUR að beiðni vildarvina ráðherra þá enda gengdarlaust fiskerí hjá vildarvinum á sínum skipum og græða á tá og fingri með framsal og leigu á kvóta sumir græða hundruðir milljóna og aðrir milljarða! Nú árið 2020 þá miðað við fjárlögin sem allt var skorið niður þá hefur Landhelgisgæslan komist upp í 5% úr 3% undanfarin ár! Almenningur hefur tekið á sig ómældar byrgðar undanfarin 10 ár og er þá ekki kjörið að blessaðir óRáðamenn þessarar þjóðar sjái sóma sinn í því að breyta LÖGUM um launalækkun afturvirkt um 2 ár og þannig að ég ofl aldraðir ásamt öryrkjum fáum leiðréttingu launanna sem Bjarni Ben og Katrín smæl lofuðu 2017!! Ef kosningaloforðin þeirra framreiknuð þá skuldar Íslenska ríkið 24 milljarða til fólksins, sem fást ekki úr ríkisjötunni nema til vildarvina! 

Örninn


mbl.is Heimilar að draga 0,6% frá óunnum ofurkældum fiski
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Örn Ingólfsson
Örn Ingólfsson

Er í mjög góðri vinnu. En get verið með ýmsar hressilegar skoðanir sem öðrum finnst stangast á við þeirra skoðanir og ég virði skoðanir annara þrátt fyrir bölv og ragn!

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 12268

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband