27.8.2016 | 04:00
Fyrirsjáandi Alþingiskosningar þann 29 október 2016
Núna undanfarna viku hefur verið fátt um stjórnarmeð(limi og eða kjérlíngar með?) þrátt fyrir að það eigi að klára Stóru málin? Nú bensínpylsusali kom fram í fjölmiðlum að áeggjan sinna fyrrverandi yfirboðara á Króknum og svo kom Bjarni Ben á eftir að það þyrfti að fjölga þingdögum og allt væri í nefnd!? Nú ekki er nú samstaðan betri í Ríkisstjórnarflokkunm betri en þetta að sú Bláa veit ekki hvað sú Græna er að gera!! Veit að þegar að ónefndur ráðherra sat hjá og einn þingmaður líka þá fór allt upp í loft í ríkisstjórnarfjósinu! Því það mátti ekki auka tekjurnar til félags og eða heilbrigðismála en samt á að EINKAVÆÐA eða hvað? Kosningarbragð beggja flokka? En allavegana eins og ég hef sagt í mörg ár og áður en að þessi spillingaríkisstjórn tók við völdum að spillingin leynir sér ekki í dag eins og gerðist fyrir 2008 og að hafa jafnvel? spilltan seðlabankastjóra sem er jafnvel undir rassgatinu á bönkum og auðvaldsmafíunni og vill kannski ekki lækka stýrivextina meira því það gæti kannski komið við budduna hjá honum sjálfum kannski eitthvað borgað undir borðið í einhver skattaskjól hver veit? En stefna Más hefur kostað almenning síðustu 3 ár 140 milljarða+ sem að bankarnir græddu á meðan að hin svokallaða verðbólga var undir viðmiðunarmörkum hans klíku!!! Þannig að ef að alþjóð færi fram á allsherjar óháða erlenda rannsókn á embættisfærslum Seðlabankans þá yrði Íslenska ríkið GJALDÞROTA og innan allra lánasamninga og samninga við sölur á hlutum Ríkisins ( ALMENNINGS) til hinna og þessara vildarvina þá yrði það innan við 0,1% af andvirði Borgunarsölu Landsbankans til vildarvina og ættingja eins sem var kallaður drullusokkur og margar myndir til að því mótmælaspjaldi en þið vesalings kjósendur sem kusuð þetta aftur farið að vakna og ættingjar fólks inni á elli og eða hjúkrunarheimilum ekki láta ættingja ykkar kjósa nema að þið séuð viðstödd og eða fulltrúi Sýslumanns hafi skrifað upp á að atkvæði hafi verið skrifað á þessa kennitölu því það var mikill misbrestur á því í síðustu Alþingiskosngum að fulltrúi Sýslumanns og eða ættingi hafi verið viðstaddur utankjörstaðaratkvæðagreiðslu á þessum stofnunum og því miður þá græddu sumir flokkar á þessu eftirlitsleysi bara út af sparnaði við að moka flórinn eftir þá Ríkisstjórn sem kom Íslandi á hausinn með einkavinavæðingu viljum við Íslendingar það aftur!!
Örninn
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.8.2016 | 12:28
Bátar rótfiska eða moka inn afla!
Andskotinn núna grenja útgerðarstórgreifarnir það er verið að stela frá þeim! Einhverjir greifanna fengu allt að því einkaleifi á makrílinn allavegana samanber fyrrverandi ráðherra sávarútvegsins sem er óvart varð forsætisráðherra Íslands þannig að þá hljóta þeir að setja lög um að bannað sé að veiða makríl innan 100 metra frá fjöru eða hafnargarði því það tekur arðinn frá útgerðarstórgreifunum sem vilja hafa sitt áður en að eitthvað fer í framtíðinni á fiskmarkað og af hverju eru stórútgerðirnar farnar að láta byggja ný skip fyrir kælingu á afla um borð í staðinn fyrir Frystitogara? Sjáið línubátana sem eru með ís um borð og koma á hverjum degi í land með úrvals hráefni sem fer beint á markað og selt strax úr landi!! 300-500 tonna skip sem veiðir í troll og kemur með aflann ísaðann í topp á hverjum degi er ekki það sama og línufiskur! Og annað ég vildi óska þess að netaveiði yrði bönnuð og dragnótin líka! Veit að ég fæ harkaleg viðbrögð frá sumum sem hafa kannski ekki kynnt sér málin og eða ekki komið nálægt línuveiðum og jafnvel kannski ekki kynnt sér handfæraveiðar!!
![]() |
Bátarnir rótfiska skammt frá landi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.8.2016 | 03:26
Íslenskir kjósendur sem kokgleypa lýgina aftur og aftur!!
Jæja stjórnarsamstarfið í molum Lygmundur segir af með verðtrygginguna strax en ráðherra auðvaldsins ekki strax! Nú kosningaloforðin hafa mörg hver farið fyrir bý en eitt má þó ráðherra auðvaldsins eiga að það verða kosningar í haust að hans sögn! Þórólfs bensíntitturinn segir bara það sama að það þurfi að klára ákveðin mál fyrir kosningar! En báðir tveir þurfa að svara Íslenskum almenningi í sambandi við Kjararáð áður en að þing kemur saman því þetta svokallaða kjararáð sem ríkisstjórnin sem nú er starfandi skipaði í hvernig ætlar þessi ríkisstjórn sem rúin er trausti 95% Íslendinga að útskýra þessar gríðarlegu hækkanir á launum vissra hópa með afturvirkar hækkanir upp á sirka 6-7 milljarða +- en aldraðir, öryrkjar ofl fá ekki afturvirkar hækkanir samt lækka barnabætur, vaxtabætur og veit ekki hvað! Skatt´greiðslur einstaklinga hafa hækkað alveg eins og fyrir hrun, seðlabankamafían sem að ráðherra fjármála ætti að stýra en er orðin önnur mafía með hæstu stýrivexti sem finnast á evrópska efnahagssvæðinu og þó víða væri leitað! Nú þessi blessaða ríkisstjórn með fyrrverandi ráðherra forsætis og ekki með betri sem tók við þá er ekki gott ástandið. Loforð á loforð áfram sem öll verða svikin aftur og aftur! Og spurningin sem brennur á Íslendingum sko þeim sem hafa ekki keypt mynni fyrir kjörseðilinn er ekki hægt að láta fjármálastofnanirnar það eru bankarnir sem blóðmjólka almenning með öllum sínum aukagjöldum borga þessa 320 milljarða sem áttu að fást frá hrægammasjóðum ofl eins og Lygmundur sagði en stóðst ekki því Íslenskur almennigur hefur þurft að borga kosningaloforðin upp á 80 milljarða og þá vantar 320 milljarða! Þetta er allt skráð og þá er kominn tími til að Seðlabankinn láti eitthvað af okkar földu peningum sem eru faldir einhversstaðar eða kannski er ekki til neinn gjaldeyrir allt horfið! Þess vegna segi ég það að fá erlenda rannsakendur til að fara í saumana á allri mafíunni á Íslandi og láta FRYSTA allar eignir auðvaldsmafíunnar!!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.7.2016 | 06:12
Nýtísku ljósaperur bæði frá Osram og Philips?
Mikið er ég óánægður með endingarnar á nýju ljósaperunum sem er verið að selja og eiga að endast að minnsta kosti frá 2000-10000 tíma en ná ekki einu sinni sumar 50 tímum! Kannski væri það gott að fólk segði frá innkaupum á nýju perunum því að ég var með glóðarperu í lampa í 3 ár svó dó hún og keypti mér eina nýja sem samkvæmt á að vera orkusparandi með umhverfisvænu ljósi fyrir sjónina og veit ekki meir! Nú er búinn að fjárfesta perur frá báðum fyrirtækjum undanfarið ár upp á 7500 krónur hélt að rafmagnið væri eitthvað bilað en nei slær út þegar að þessar perur springa sem hefur komið fyrir en gæti það verið að þetta sé orðið sama fyrirtækið? En allavegana þá myndi ég vilja gömlu glóperurnar aftur því það er eitthvað að!!!
Ps. Kannski ættu náttúruverndarsinnar athuga með mengun af gömlu glóperunni á miðað við framleiðsluaðferðir að þessari svokölluðum orkusparandi ljósaperum og yrði ekki hissa á því að gamla glóperan kæmi 70% betur út miðað við mengun við framleiðslu nýjustu peranna!!!
Örninn
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.7.2016 | 03:20
Gróðinn yfirgengilegur!
Mikið er nú gróðafíknin farin að gera vart við sig en er Heilbrigðiseftirlit Borgarbyggðar búin að taka út staðinn og er búið að setja upp salernisaðstöðu? Og er búið að fá leyfi fyrir gjaldtöku eða er þetta bara einstaklingsframtak með gjald og miðað við fréttina þá var enginn leiðsögumaður eða hvað? Nú þarf sá sem hlut átti að máli með sína fjölskyldu að fara í málið af fullri hörku og krefja Borgarbyggð spurninga um öll leyfi sem hafa verið veitt og líka að krefja Borgarbyggð um skipulag á svæðinu ef salerni verða sett upp að það verði þá sett upp sjálfhreinsandi rotþró og eða kamrar með náttúruvænum upplausnarefnum!! Og koma í veg fyrir að úrgangurinn fari í Norðlingafljótið og í hraunið í kring.Fyrr er ekki hægt að krefjast gjalds eða hvað??
ÖRNINN
![]() |
Rukkaður fyrir að skoða Víðgelmi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.6.2016 | 07:28
Öryggi sjúklinga ógnað!
Merkilegt en ekkert nýjar fréttir! Nú þar sem ekki er búið að einkavæða þá er þetta skiljanlegt því að arðurinn af ÞJÓÐARAUÐLYNDINNI okkar Íslendinga það er allur sjávarafli rennur í vasa ýmissa sem komust yfir kvóta í ýmsum byggðarlögum á Íslandi og keyptu báta sem fóru í úreldingu eða seldir utan en hinir sömu gleymdu loforðunum með að landa afla á þeim stöðum! Nú einhver forseti Alþingis frá Bolungarvík sem var einhverntímann ráðherra sjávarútvegsins ( LÍÚ ) veitti sumum byggðarlögum ýmsar ívilnanir og því miður þá fengu byggðarlögin sem hefðu þurft ívilnanir þess ráðherra ekki neinar ívilnanir eftir að samherjar hans innan flokksins voru búnir að ryksuga öll kíló sem til voru af sjómönnum og jú sumir sjómenn græddu skyndilega og sátu svo uppi með sárt ennið! En ljósið var í einu byggðarlagi þar sem að einhver fór á hausinn og því var snarlega reddað! Og jú afskrifaðir einhverjir milljarðar! Og skipt um kennitölu! Nú ekki málið almenningur borgar skuldirnar! Það er engin furða að einhver forseti að vestan hætti því innan Panamaskjalanna þá er hans ætt þar og hann hætti til að vernda sig og sína fyrir Vestan!! En upp komast svik um SÍÐIR!!! Og þessir aurar hefðu getað borgað allavegana 2 Hátæknisjúkrahús síðustu 25 árin!! Af hverju vill flokkur donsins ( Kóngsins) ekki stoppa vildarvinakennitöluflakkið? SKRÝTIÐ????
Örninn
![]() |
Öryggi sjúklinga ógnað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 07:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.5.2016 | 08:20
Isavia í eigu okkar allra en ekki einhverra fáráðlings stjórnenda!
Jæja Isavia sem greiðir sínum stjórnendum arð upp á einhverja milljarða og veður fram í fjölmiðlum og heldur því fram að tjón sé svo og svo mikið (milljarðar?) en getur svo ekki svarað fréttamönnum út af hverju ber svona mikið í milli deiluaðila!! Nú læknar, kennarar ofl ríkisstarfsmenn hafa fengið 35% hærri launahækkanir umfram Flugumferðarstjóra og það væri gaman að setja stjórnendur skipaða af ríkinu til að stjórna flugumferð því innan við 2% vita hvað það er! Samtök atvinnulífsins gera alltaf allt til þess í öllum fjölmiðlum ásamt Icelandair að sverta mannorð Íslenskra flugumferðarstjóra sem flest allir hafa flúið land út af yfirgangi, launamálum og hótunum Isavia um brottrekstur ef ekki farið eftir þeirra óskum! Íslenskir flugumferðarstjórar eru eftirsóttir því námið er strangt miðað við nám annarsstaðar í heiminum þar sem liggur við að skírteini úr cheerios pakka dugi! Enda 65% af Íslenskum flugumferðarstjórum farnir og restin á leiðinni út!! Verktakavinna og hótun um að flytja út til útlanda flugumferðarstjórnun! Þetta hafa útgerðarmenn sagt við sína sjómenn í áratugi að það sé nóg til af mannskap í landi og þetta notar Isavia gagnvart flugumferðarstjórum en gera sér ekki grein fyrir þjálfun nýrra flugumferðarstjóra því enginn þekkir veðráttuna betur en gamalreyndur flugumferðarstjóri ekki kannski erlendur sem talar jafnvel ekki ensku og hefur kannski aldrei séð snjó!! Borga meiri arð og fá bara einhverja sem þekkja ekki neitt, vita ekki neitt og segja svo: I dont speak English I don´t know etc, etc! Svona er Ísland orðið í dag!!
Örninn
![]() |
Áhrif á 3.000 flugferðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 08:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.4.2016 | 05:42
Hverjir eiga Reginn?
Reginn nú hverjir eru aðaleigendur? Hverjir hafa fjármagnað uppkaup og yfirtöku á ýmsum eignum síðastliðin 2 ár? Og hvaðan koma peningarnir? Ef að lífeyrissjóðir eiga hlut í þessum ofsagróða þá eiga þeir að hækka afturvirkt lífeyrisgreiðslur og fækka bitlingunum! Gæti kannski verið eitthvað peningaþvætti út af ofsagróða af einhverju? Hverju á almenningur að trúa eftir afglöp SDG, BB, ÓN, HBK ofl? Bara spyr?
Örninn
![]() |
Þrjár hæðir byggðar ofan á |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.3.2016 | 07:17
Hjólreiðar innan Reykjavíkur!
Þó svo að hjólastígar hafi verið lagðir sérstaklega með umferðargötum til aðgreiningar fyrir hjólreiðarfólk samanber Hofsvallagatan þá hefur það komið nokkrum sinnum fyrir að hjólreiðarfólk hefur farið út af sinni braut þvert fyrir bíla með tilheyrandi aftanákeyrslum þar sem ekki hægt að sanna hver var tjónvaldur þá lenda báðir tjónþolar fyrir skaða! Og því miður hef ég lent margoft í því á Hofsvallagötunni að vera með hjólandi manneskju á akbraut og mæti svo allt í einu Strætisvagni sem er að koma yfir gatnamótin og þá þarf ég að hemla svo að hjólreiðarmanneskjan verði nú ekki fyrir Strætisvagninum og skrítið nokk það væri þá ágætt að Hjálmar færi nú út að hjóla og kynna sér borgina sérstaklega Laugarveginn með allar sínar þrengingar í staðinn fyrir að sitja á rassgatinu allan daginn og fá einhverjar upplýsingar? frá einhverjum. Skal þá benda Hjálmari á að við Kleppsmýrarveg hefur staðið hvítur flatbeddari(útskýring 8-10 metra flutningavagn)í 2 ár fyrir ofan Hringrás og sá truflar umferð! Búinn margoft að hringja í 4111111 og biðja um Umhverfis og skipulagsstofnun og enginn svarað ennþá þó svo að öll símtöl séu tekin upp? Er þetta bara Reykjavíkurskipulag eða hvað? Og annað Hjálmar fjarlægið allar þrengingar úr gæluverkefninu Borgartúni sem kostuðu þá 390 milljónir.
Bobbí
![]() |
Hvar hjóla Íslendingar? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.3.2016 | 03:45
Fiskveiðar!
Af hverju mótmæla Íslensk stjórnvöld ekki hvalveiðum Bandaríkjanna? Og eru Íslensk stjórnvöld í dag með alla sína aðstoðarmenn sem kannski hafa ekki vit á einu né neinu nema að samþykkja allt það sem þeim er sagt úti á túni og geta ekki einu sinni sagt ríkisstjórn Bandaríkjanna hvað sé í húfi! Það kemur vel á vonda Greenpeace og fleyri náttúruverndaröfgahópa þegar að allt í einu fæst ekki fiskur og þá er ekki hægt að kenna Íslendingum um það nema að aumi utanríkisráðherrann samþykki hitt og þetta og hann með sína aðstoðarmenn! Nei það er kominn tími til að ríkisstjórnin láti einhverjar milljónir í að búa til myndband um hnúfubaka sem éta fæðu frá öðrum í náttúrinni og kannski vakna einhverjir upp við vondan draum!Og benda á að sjófuglalíf sé að hverfa við Ísland og Nýfundnaland út af fæðuskorti sjófugla!
ÖRNINN
![]() |
Sáu hnúfubak með kjaftfylli af loðnu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Kjaramál
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Samgöngur
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar