Tannlæknaverð leyndarmál?

Mikið lýst mér vel á það að TR sé að kanna möguleikana á að birta verð hjá tannlæknum. Það er alveg rosalegt hversu dýrt er að fara til tannlæknis í dag enda sést það best á því að tannheilsu barna og unglinga hefur hrakað vegna þess að almenningur hefur varla ráð á að senda þau til tannlæknis, vegna hversu dýrt það er. Ég á 2 stráka 7 og 9 ára og það hefur kostað mikinn pening að fara með þá þegar þurft hefur til tannlæknis, sé svo sem ekkert eftir því, en ég veit um margar fjölskyldur sem að hafa hreinlega ekki efni á því að senda börnin til tannlæknis með tilheyrandi tannskemmdum. Láta eitthvað annað mæta forgangi. Ég man eftir því að það var ekki svo dýrt að fara til tannlæknis enda sást það á þeim tíma  en svo hækkaði allt upp úr öllu valdi og þá var ekki aftur snúið tannheilsunni hrakaði með tilheyrandi tannpínu og vanlíðan. Las það í Blaðinu í morgun að formaður Tannlæknafélagsins sagði að þetta raskaði samkeppnisumhverfi. Nú ég hélt að það væri af hinu góða að hafa samkeppni hjá þessum tannlæknum, kannski eru samræmdar verðskrár ég held að Samkeppnisyfirvöld ættu að kanna þetta líka eins og eins allt hitt sem að þeir hafa verið að gera undanfarið. En ég hef grun um að það sé líka verðsamráð hjá þeim eins og hjá stóru olíufélögunum hér um árið. En eins og að Lögfræðingur Persónuverndar, Þórður Sveinsson bendir á þá eigi ekki að leyna upplýsingum um verð fyrir ákveðna þjónustu. Ég persónulega man ekki eftir að hafa séð auglýsta verðskrá hjá tannlæknum í blöðum , kannski lesendur geti bent mér á hvar sú verðskrá sé.

Örninn


mbl.is TR íhugar að birta gjaldskrá tannlækna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það væri nú flott að fá verðskrá og sjá hverjir eru mestu okrararnir svo hægt væri að forðast þá.

Stefán

Stefán (IP-tala skráð) 21.9.2007 kl. 09:37

2 Smámynd: Örn Ingólfsson

Það var akkúrat það sem að ég vill fá að sjá með þessum verðskrám

Örninn

Örn Ingólfsson, 21.9.2007 kl. 09:39

3 identicon

Hæ Örninn minn, jú veistu ég er sammála þér í þessu. Það er nátturulega ekki hægt að hlutirnir fái bara að vera í hvaða formi sem er í svona litlu landi. 

Bestu kveðjur

Guðrún B. (IP-tala skráð) 22.9.2007 kl. 00:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Örn Ingólfsson
Örn Ingólfsson

Er í mjög góðri vinnu. En get verið með ýmsar hressilegar skoðanir sem öðrum finnst stangast á við þeirra skoðanir og ég virði skoðanir annara þrátt fyrir bölv og ragn!

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 111
  • Frá upphafi: 10018

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 109
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband