Færsluflokkur: Fjármál

Bölvað kjaftæði!

Gera þessir menn sem að vilja láta leggja sæstreng sér ekki grein fyrir því að LAUN OG LAUNAKJÖR eru allt önnur á Íslandi en í NOREGI? Nei þetta hljóta að vera vanvitar því að hvernig á venjulegur Íslendingur með mánaðarlaun upp á kannski 250 þúsund krónur íslenskar að fara að borga  fyrir kílówattstundina með flutningskostnaði yfir 200 íslenskar krónur? Þá spyr ég bara er þá ekki ráð að fara að hækka launin úr 195 þúsund krónur sem eru  lágmarkslaun upp í 420 þúsund á mánuði og ekki hækka skatta ofl, og ef það verður gert sem verður aldrei á meðan einokunar og lokunarstefna ríkisstjórnarinnar gagnvart betri kjörum almennings þá kemur það ekki til mála að hugsa eins og Hörður gróðapungur Landsvirkjunar sem að er í EIGU ÍSLENSKU ÞJÓÐARINNAR! Og ef að þessir menn eins og Hörður gróðapungur ætlar að fara að semja um eitthvað gerræði þá er ágætt að fá ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLU svo að peningar almennings fari ekki á fárra manna hendur! Eru einhversstaðar  faldir peningar í þessu sæstrengsmáli sem má ekki segja frá??? Íslendingar eru búnir að fá upp í kok á Einkavæðingarbraski sem komu Íslandi á hausinn með tilstilli vissra flokka og Seðlabankastjóra þá í EINKAVÆÐINGUNNI! Við Íslendingar kusum nýja ríkisstjórn 2013 en ekki flokkspólítískt skipaða gæðinga heldur á að fá inn menn með reynslu en ekki með kannski já hvað? Nýja flokksvanvita með hroka og yfirgang sem ekkert kunna og eða vita? Samanber Íbúðalánasjóðinn þá.  Kannski bara jók til að spila inn á hinn óvenjulega Íslending sem vill láta allt yfir sig ganga með mánaðarlaun yfir 650 þúsund á mánuði á manneskju en  ekki með samanlögð laun lágtekjufólks upp á krónur 550 þúsund sem eru í láglaunastörfum með kannski 2-3 börn og vinna myrkranna á milli og hafa ekki frítt eldsneyti á bílinn og ekki einkabílstjóra og ferðapeninga og svo miklu meira á kostnað hins VENJULEGA Íslendings!! Hugsið ykkur um hversu gott þið hafið það Íslendingar í dag en ef að þessu gerræði verðurmeð lagningu sæstrengs njótið þess rafmagns sem þið hafið í dag því það verður erfitt að elda mat með rafmagni því það kemur til skömmtunar á rafmagni til hins almenna notanda eins og er í Noregi og sumstaðar í Evrópu!

Örninn


Ofsagróði bankanna út af þjónustugjöldum!

Jæja það þýðir ekkert að vera að nöldra í þjónustugjöldum bankanna fyrir færslur af Debet og eða Kreditkorti! En þá er eitt sem að allir bankar skulda innlánsþegum alveg frá innleiðingu þjónustugjalda það er leiðrétting á innlánsvöxtum því reikningseigandi í viðkomandi banka á ekki að þurfa að borga þjónustugjöld umfram innlánsvexti sem að hafa verið ca 6% lægri heldur en þjónustugjald er! Þannig að þá er kominn tími til að málin verði skoðuð og metin af hlutlausum aðilum án flokka og innheimtulögfræðinga og fá vonandi út réttar tölur fyrir almenning. Ég átti fyrir hrun árið 2005 65405 krónur á bankabók og í dag þá átti ég bara 28192 á sömu bók svo hvað varð um mismuninn? Kannski í gróðahýtina hjá einkavæðingunni? Veit ekki en samt þá er kominn tími til að fólk fari að láta í sér heyra og taka þá frekar út pening í bankanum hjá gjaldkera því ein færsla í posa kostar og líka í hraðbanka en ekkert hjá gjaldkera sem er lifandi en tölva stjórnar hinu skrýtið!!

Örninn

 


Vaðlaheiðargöng eða Tækjaþurrð Landsspítala Háskólasjúkrahúss!!

Jæja þá fær Íslenska þjóðin það beint í æð aðFjársvelti Landspítalans verður næstu árin með þessum voða gerningi því ég held að þessi ríkisstjórn samþykki það alveg örugglega þegar að þessi göng verða tilbúin að gjaldið verði 2000-3500 krónur hið minnsta!! Nei hefði þessi hauslausa ríkisstjórn með þingmenn sína í þessu kjördæmi gert það sem rétt var að kaupa ný tæki fyrir Landsspítalann þá hefði þjóðin verið sátt en þetta helvítis kjördæmapot þingmanna kjördæmisins er gengið út í öfgar! Ætli að þessir þingmenn hafi hótað stjórnaslitum ef göngin kæmu ekki? Mikið grunar mig það og annað að fólki sem ég hef rætt við finnst þetta sama. Endilega dragið þetta til baka því það verða einu atkvæðin sem þessi hauslausa Ríkisstjórn fá af svæðinum í kring ef að það verður þá er búið að bjarga göngunum! Helvítis fokking fokk segi ég bara því að nú halda líka hækkanirnar hans Okurgríms? áfram það er eins og að þessi hauslausa ríkisstjórn geri sér ekki grein fyrir því að fólk hættir að kaupa hitt og þetta með okursköttum Okurgríms og hans kollega! ÞAÐ ÞÝÐIR EKKERT AÐ BERA LAUNAKJÖR, KAUPMÁTT OG SKATTA VIÐ NORÐURLÖNDIN ÞVÍ ÞAR ERU LAUNIN MIKIÐ HÆRRI OG MIKLU MEIRA FÆST FYRIR LAUNIN EN HÉR Á OKURLANDINU! NEI NÚ VERÐUR ALGJÖRT HRUN Í ÞESSU LITLA FYLGI SEM EFTIR VAR OG ÞÁ KEMST HÆGRI STJÓRNIN AÐ AFTUR EINS OG VAR FYRIR HRUN ÞAÐ ER EINS OG AÐ ríkisstjórnin VILJI ÞAÐ MEÐ SÍNU HÁTTALAGI!!!!

SKAMMIST YKKAR OG FARIÐ AÐ NÁ Í STOLNU PENINGANA SVO AÐ FÓLK FÁI TRÚ Á KERFINU AFTUR!

ÖRNINN 


mbl.is 8,7 milljarðar tryggðir í Vaðlaheiðargöng
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland, spilling? og samanburður við kaupmátt og kannski laun?

HUGLEIÐING

Af hverju stoppar Ríkisstjórnin ekki okur Innflytjenda vöru eða milliliða er það skattmann sem er að auka álögur sínar?

Nei Innflytjendur og Íslenskar afurðastöðvar kjöts hækka gengdarlaust sínar afurðir í skjóli hækkandi aðfanga á hinu og þessu og þess vegna væri það þjóðráð að þessir aðilar Sýni alþjóð hversu mikið þeir kaupa viðkomandi vöru á með öllum gjöldum síðustu 4 ár og þá með hækkunum líka þá er ég að meina Vörureikninga og Innflutningspappíra sem kannski mega ekki koma fyrir almenningssjónir til að sýna fram á lögmæti allra þessara gengdalausu hækkana og eða græðgi með hjálp kannski vissra innan sumra flokka með ítök ennþá á Alþingi sem vilja ekki viðurkenna neitt misjafnt hafi skeð fyrir bankahrun og eftir! Nú SS hefur hækkað sínar vörur all hressilega síðasta ár og ASÍ tók ekki eftir því, ostar hafa hækkað, svínakjöt í hæstu hæðum og samt er ASÍ og Samtök Atvinnulífsins með atbeina Ríkisstjórna síðustu 30 árin að segja alþjóð að við borgum miklu minna og eða sambærilegt við aðrar Norðurlandaþjóðir og Kaupmátturinn sé sambærilegur og eða sami!! Djöfulsins bull og kjaftæði ef að ég sem einstætt foreldri hefði flutt út til Norðurlanda eftir Hrun þá ætti ég upp nærri því nýtt einbýlishús á Íslandi með tekjurnar eftir Skatta þar!! Nú það er engin furða að skattpíningin á Íslandi sé svona rosaleg því það þarf að borga fyrir einkavæðingu bankanna og fjármálasukkið í kringum sukkið sem að vissir aðilar innan vissra stjórnmálaflokka högnuðust á og svo vill enginn innan þessara vissu flokka koma nálægt einhverri SPILLINGU? Og sverja svo af sér afglöpin og eru bara með Geislabauginn og deila á þá sem eru í kröggum með sitt en félagar vissra flokka fá hundruðir milljarða afskrifaða en ég fæ ekki sem almúgi afskrifaðar 25-30 þúsund krónur því ég skuldaði ekki svo mikið bara 250 þúsund Íslenskar gatakrónur! Og svo stofna þessir afskrifuðu ný fyrirtæki og með jafnvel milljarðaafskriftir  á bak við sig?  Og eignir upp á fleiri hundruð milljónir!! Nei SKÍTALYKTIN  er svo svakaleg og það á eftir að verða uppreisn í þjóðfélaginu út af því af hverju var ekki gengið að öllum eignum og kannað ofan í kjölinn málamyndargerningur með eiginkonur, börn, frændur, ungabörn og jafnvel börn í móðurkviði óskýrt!!!!????

Ég bara spyr fyrir hönd þeirra sem töpuðu öllu sínu og nú munu skjólstæðingar viss hjúkrunarheimilis súpa seiðið af óráðssíu þeirra sem að voru kannski í vissum stjórnmálaflokk?? Ekki neitt nýtt eða hvað?

Örninn


Matarverð á uppleið VÁ!!

Þetta er ekkert nýtt að gengdarlausar hækkanir á matvöru ofl hafa dunið á Íslendingum síðastliðið ár og allt í einu kemur einhver kall úr Framsýn með kannski sína milljón á mánuði og gerir sér ekki grein eins og forystusauður ASÍ með ýfið hærri laun um kaupmátt launa og líka hækkanirnar á matvöru fyrir síðustu áramót og verkalýðsforkólfinum í ASÍ var bent á þetta margoft en hann hummaði fram af sér allar upplýsingar um þær gengdarlausu hækkanir sem að innlendir framleiðendur með verðsamráð? á öllum kjötmarkaði og ekki tók betra við Innflytjendur og milliliðir hækkuðu gengdarlaust?  Og ekki datt þeim háa herra að benda forsætisráðherra á þetta eða gleymdi því og hann blessaður vesalingurinn? skrifaði undir framlengingu kjarasamninga í janúar 2012 enda þurfti hann ekki að kvíða hækkunum á matarverði ofl maðurinn með rúma milljón á mánuði á meðan að ég gæti verið með um 194 þúsund á mánuði og þegar að búið væri að borga nauðsynlegustu reikningana þá væri ég í mínus (og þyrfti jafnvel að fara að vinna svarta vinnu!?) og svo kemur forystusauðurinn í sjónvarp og kvartar allt í  einu um daginn að það sé allt ríkisstjórninni að kenna hitt og þetta en honum blessuðum var nær að hanga í rassg... á Samtökum atvinnulífsins og samþykkja hitt og þetta! Nei blessaður varð tannlaus eftir að hann komst til áhrifa innan ASÍ og enginn skilur hvernig það varð? En allavegana þá ætti þessi tannlausi forystusauður ASÍ að fara að bíta ef að tennur sjást frá sér núna og fara að vinna LOKSINS fyrir sína félagsmenn af fullum krafti og hætta að blammera ríkisstjórnina því að eru SA sem halda niðri öllu og græða á okkur hinum með lágmarkslaun og sumir innan SA borga undirlaun? Og flytja inn fólk frá öðrum löndum sem borga lágmarkslaun sem eru frá 65-90 þúsund á mánuði fyrir 55-80 tíma vinnuviku og þess vegna er Ísland gróðastía fyrir farandverkamenn frá láglaunalöndum og SA hefur nýtt sér þetta undanfarin ca 3-4 ár og haldið almennum launum niðri og ekki gerði ASÍ nema eitt að samþykkja nauðarsamninga til að ja hvað? Kannski vænkar hagurinn fyrir kosningar en eftir það þá fer allt niður eða hvað? Bara spyr!!!!!

Örninn


mbl.is Matarverð er á uppleið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ASÍ og aðrir VERKALÝÐSFORKÓLFAR!!

Jæja þá er komið að því að ASÍ með Gylfa í fararbroddi viðurkenni sín mistök frá því í janúar 2012 með því að hafa skrifað undir framlengingu á samningunum þá!! Ég persónulega á bloggum hef sagt það að tannlausa forysta ASÍ með sín ofurlaun hafa samþykkt kjarasamninga og lepja upp og dansa eftir Samtökum atvinnulífsins að laun á Íslandi séu sambærileg við laun á NORÐURLÖNDUNUM OG RÍKISSTJÓRNIR FYRRI ÁRA BERA OKKUR ALLTAF SAMAN VIÐ NORÐURLÖNDIN!!! Nú er komið nóg með lygina af hverju er þá kaupmáttur launa, skattar þar með talið skattprósentan og einokunarálagning samráðsolíufélaganna svo miklu hærri hérna á Íslandi miðað við höfðatölu? Eru hagfræðingar heilalausir og gera sér ekki grein fyrir Almenningi og þá hljóta þessir hagfræðingar að vera á súperlaunum?? Og eða borgaðir jafnvel af ASÍ, SA og eða Seðlabankanum???? Bara spyr!!! Þessar tölur eru svo út úr kú að það hálfa væri nóg! Sæi ASÍ forkólfinn og SA líka reyna að lifa af sem einstætt foreldri með 2 unglinga af útborguðum launum eftir skatt 209 þúsundum og þá á eftir að borga húsaleigu, rafmagn, síma og jafnvel bíl með tryggingum upp á kannski 75-100 þúsund á ári, og spara bílatryggingar og sleppa bílnum en samt þá á ég sem einstætt unglingaforeldri andskoti lítið til skiptanna og á jafnvel ekki til pening til að kaupa nesti í skólann handa börnunum! Nú held ég bara að ég fari að gera eins og hinir að fara að vinna SVART!!!! Það virðist vera svo lítið um svarta vinnu!! Allavegana vantar eftirlitið og mætti kannski taka brot af launum ASÍ forkólfsins og líka SA til að stemma stigu við svörtu vinnunni en það má ekki þá þurfa sumir atvinnurekendur innan SA að fara að borga mannsæmandi laun og ráða Íslendinga á TÖXTUM!!! Þannig að það vantar ekki yfirlýsingarnar hjá Gylfa um að samningarnir séu brostnir það er honum sjálfum að kenna að hafa Skrifað undir í janúar undir pressu frá SA því við verkalýðurinn hefðum haft miklu sterkari stöðu í dag, en nei ASÍ skrifaði undir og þá hefðum við getað pressað betur á Ríkisstjórnina og það þýðir ekkert að vera kenna stjórninni um vanvitaglöp formanns ASÍ???? Eða hvað? Spyr sá sem setur kannski bara leppana eins og gert með með hross og þá horfir hrossið beint áfram og heldur áfram í blindni og fylgir sínum stjórnanda jafnvel út í dauðann og djö...!!!!!! Samanber kosningar undanfarna áratugi það er kannski grænna hinumegin við lækinn!!

 

Örninn 


mbl.is 4-6 sinnum hærri laun í Noregi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Actavis og Thorsarar!

Jæja flott þá hljóta þeir í gegnum sín fyrirtæki greitt upp skuldir sínar gagnvart Íslensku þjóðinni fyrst að peningarnir liggja í dótturfyrirtækjum Actavis um allan heim? Eða eru þeir peningar bara pappírspeningar eins og voru hérna heima fyrir HRUN? Nei er þá ekki kominn tími fyrir Íslensk AumingjabananalýðveldisStjórnvöld að fara í mál í USA og fá milljarðahundruðin sem hurfu úr Landsbankanum á meðan að Thorsarar og fleyri voru við völd? Þetta er möguleiki sem að Steingrímur ætti að velta fyrir sér að HUNSKAST TIL AÐ NÁ Í PENINGANA FRÁ ÞESSUM VESALINGUM SEM KOMU LANDINU Á HAUSINN Í STAÐINN FYRIR AÐ VERA AÐ SKATTPÍNA ALMÚGANN OG SETJA VESALINGANA Í VARÐHALD ÞANGAÐ TIL AÐ PENINGARNIR SKILUÐU SÉR OG SETJA LÖG UM ÓTÍMABUNDIÐ GÆSLUVARÐHALD ÚT AF SVONA HYSKI ÞVÍ ÞÁ YRÐU ÞESSIR VESALINGAR HRÆDDIR OG SKILUÐU ILLA FENGNU FÉ TIL BAKA HÖRKUNA Á ÞETTA PAKK EKKI NEINA LINKIND EINS OG FYRRVERANDI DÓMSMÁLARÁÐHERRA LÉT VIÐGANGAST Í SINNI TÍÐ SEM RÁÐHERRA!!!!!

ÖRNINN


mbl.is Actavis nær sáttum í Bandaríkjunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stóra Íslandssvindlið á kostnað Almennings!

Jæja elsku Íslendingar sem að hafa kosið í Nokkrum kosningum einn af aðalflokknum sem stuðlaði að hruni Íslensku bankanna með stuldi stjórnendanna innanfrá á milljarðahundruðum sem að Við almenningur höfum þurft að taka á okkur Miklar Byrðar á meðan að þessir vesalingar lifa flott, þá held ég að vesalingarnir sem að kusu í kosningunum 18 árum fyrir hrunið þessa flokka ættu nú að hugsa sig vel um það hvaða Stjórnmálaflokkar réðu Bankasölunni!? En annað það er kominn nýr formaður annars flokksins og ennþá er hann á alþingi þrátt fyrir að hann hafi verið viðriðinn útlán úr bótasjóð Sjóvár upp á tugi milljarða sem að RÍKISSJÓÐUR þar á meðal ég sem Íslendingur ábyrgðist, og annað líka fyrrverandi varaformaður er líka á þingi þrátt fyrir að vera við hlið síns ektaherra sem skuldar og eða fékk felldar niður skuldir og sú manneskja kannaðist ekki við neitt þó svo að eignir hafi verið fluttar á hennar nafn!

Nei burtu með svona lýð af okkar Alþingi og líka alla aðra spillingarpésa því að Alþingi okkar Íslendinga hefur beðið mikinn hnekki á alþjóðar vettvangi og er bent á að fólk sem segir sig úr flokki á ekki að vera á Alþingi heldur á Varaþingmaður að taka við og á að vísa því fólki strax úr þingsal því það er gert allstaðar annarsstaðar en í okkar BANALÝÐVELDI og það skilur engin heilvita manneskja úti í hinum stóra heimi hvernig SPILLINGIN FÆR AÐ RÁÐA RÍKJUM Á ÍSLANDI OG EKKERT GERT ÞVÍ EINS OG FÓLKIÐ SEGIR BANANA(VELDI) OG EINRÆÐISFLOKKUR SEM HELDUR LANDINU Í GÍSLINGU MEÐ OF STÓR EIGNATENGSL OG VINA Í VISSA FLOKKA ÞÁ ER ÞETTA SEMSAGT EINRÆÐI SEM AÐ FÓLKIÐ KÝS OG VILL YFIR SIG ÞÓ SVO AÐ ÞAÐ SÉ LÁGTEKJUFÓLK ÞAÐ ER KANNSKI BARA HEFÐ INNAN FJÖLSKYLDUNNAR AÐ KJÓSA STÆRSTA FLOKKINN SKÍTT MEÐ AFLEYÐINGARNAR! JÁ FÓLKIÐ GERÐI SÉR EKKI GREIN FYRIR BANKASVINDLINU OG VILL EKKI VIÐURKENNA EITT NÉ NEITT SLÆMT UM BESTA FLOKKINN SINN:::)))

ÖRNINN

 


mbl.is Misstu næstum fyrirtækin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svört vinna!?

Því miður þá eru vissir atvinnurekendur bæði fyrir hrun og sérstaklega eftir hrun sem vilja bara borga 50/50 og þar eru stórtækir leyfishafar atvinnuleyfa útgefnum til leygubílaaksturs og held ég að það ætti að gera gangskör í því að skoða þá stétt en ég er ekki að tala um að allir leyfishafar séu krimmar en mér hefur verið boðið að borga 50/50 en tók því ekki og fór út úr leigubílnum og hann brunaði í burtu með skyggða númeraplötu þannig að ég gat ekki sent inn ábendingu! Sá leigubíll var merktur ákveðnu fyrirtæki í Reykjavík og sá sem bauð mér þetta var Íslendingur á því sem ofan greinir 50/50! Ennfremur eru margir harkarar sem að bjóða fólki far fyrir lítinn pening og ég veit að leigubílstjórum gremst þetta mikið og sumir leiðast út í 50/50! En allavegana þá á að byrja að skoða þetta líka því þarna eru margir milljarðar sem tapast í tekjum og þá mætti athuga með eitt með þessi atvinnutæki hversu margir kílómetrar væru eknir án þess að mælir sé í gangi því ég hef séð leigubíla með taxamerkið úr Reykjavík á Akureyri, Ísafirði og síðast í sumar á Seyðisfirði og spurði ég bílstjorann hvað túrinn kostaði austur en hann sagðist bara vera á ferðalagi með fjölskylduna! Ok ég bara spyr nú fá þessir atvinnubílstjórar niðurfelldan skatt og virðisaukaskattinn endurgreiddann þannig að má ég ef að ég er leigubílstjóri fara hvert á land sem er með familíuna á niðurgreiddum nýjum leigubíl og fá niðurgreitt með því að senda inn virðisaukanótu allan kostnað? Já ekki veit ég en veit að margir svona bílstjórar nota þetta grimmt! Er þá ekki kominn tími til að svona verði líka rannsakað ásamt öllum hinum skattsvikunum og fjölga þá í rannsóknarliðinu!!!

Ég bara spyr!!!

Örninn


mbl.is Háir skattar skýra ekki skattsvik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bónus og Bónusverðlagning!

ÆÆ mikið andskoti brá mér um daginn þegar að ég hafði mig í það að kaupa pylsur ofl handa vinum og vandamönnum og með herskara af börnum líka þá sá ég að pylsubrauð í Bónus höfðu hækkað á nokkrum dögum úr 115 krónum í 139 krónur! Og Bónusbrauðið hafði hækkað úr 198 krónum upp í 219 krónur! En annars þá er þetta ekki nýtt því miður því verðlagningin og álagningin hjá Bónus hefur verið út úr kú eftir að Bankarnir tóku við og bara til að græða á því fólki sem að hefur stundað sín viðskipti við Bónus jafnvel alla tíð síðan Bónus opnaði! En hvað um það þetta er glæpsamleg hækkun og það þýðir ekkert að vera að kenna um hækkunum úti í heimi því að miðað við þessar hækkanir samkvæmt brauðvöru hefði hækkun á tonni af hveiti átt að vera 850 þúsund krónur svo hægt væri að réttlæta þessa hækkun miðað við magn en annars þá sagði einn bakari að brauð og brauðvörur ættu að hækka að hámarki um 4-5 krónum með virðisaukaskatti. Svo Íslendingar farið að hugsa um verðlagninguna og mótmæla líka!!!! Og endilega láta fólk vita á Facebook og fleyri stöðum um gengdarlausar hækkanir söluaðila því það er kominn tími til að bera út tilkynningar af OKRI fyrirtækja því þá hættir fólk að versla við það fyrirtæki og þá kannski lækkar álagningin um einhver prósent! En með neytandakveðju og farið Íslendingar að mótmæla OKRINU því annars verðum við hungurmorða á meðan að þeir ríku hafa í sig og á og þá verður þetta miklu meira heilbrigðisvandamál því þá er þetta fólk farið úr landi með allt sitt og of seint gripið í brækurnar þegar að botninn er farinn!!

ÖRNINN

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Örn Ingólfsson
Örn Ingólfsson

Er í mjög góðri vinnu. En get verið með ýmsar hressilegar skoðanir sem öðrum finnst stangast á við þeirra skoðanir og ég virði skoðanir annara þrátt fyrir bölv og ragn!

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband