Færsluflokkur: Löggæsla

Nýafstaðin ráðstefna!

Jæja! Nú er kominn tími til að Ríkislögreglustjóri geri almenningi ljóst opinberlega hverslags viðurlögum almenningur á von á frá einhverjum Löggæsluaðilum! Og fá Lög og reglur sem Almenningur getur reitt sig á til að standa ekki berskjaldað þrátt fyrir Búkmyndavélar Lögreglunnar! Því það er hægt að laga eitthvað á Búkmyndavélunum!Og þó það séu friðsamleg mótmæli, þá ber Lögreglumanneskju ef þú ert stöðv(uð)aður að segja númer sitt, annars er lagalega ekki hægt að nota Búkmyndavélina sem sönnunargagn gagnvart einhverjum!!

EÐA?

Örninn


mbl.is Lögreglan handtók 13 ára barn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað kostar þetta?

Ef að Tollverðir fá að gramsa í farangri farþega Flugvéla án eftirlits þá er komið nóg! Nógu var þetta slæmt í gamladaga á skipunum, en þá skal sá sem setur þetta fram skipa óháða EFTIRLITSMENN INNAN LÖGREGLUNNAR OG TOLLGÆSLUNNAR á Íslandi, kannski með kennslu frá Erlendum Löggæsluaðilum! Víða erlendis eru til skannar á töskum þegar að þær eru teknar úr Flugvél, og þá eru aðilar til að fylgjast með að ekkert hafi verið hróflað við töskum, áður en að þær hafi verið skannaðar, og ef ekkert sést þá fara þær áfram!! Eru ýmsir sem kannski vita ekki neitt í sinn haus um öryggismál á Alþjóðaflugvöllum sem settu þetta fram til síns yfirmanns? Bara spyr?

Örninn


mbl.is Í skanna og þurfa ekki að afklæðast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rafbyssur

Nú er Lögreglan komin með Rafbyssur(Tazer) eins og Löggan í Ameríku? En þá er spurning um geðheilsu lögregluþjóna og kvenna sem fá þetta vopn í hendurnar? Er sálfræðimatið gott, eru þeir sem hafa þetta vopn undir höndum færir að endurlífga manneskju sem verður fyrir STUÐINU þeirra? Efast um það! Og hversu margar vikur hefur Löggæslan kennt fólkinu skyndihjálp4 sem ber þetta vopn? Efast að Löggæsluyfirvöld viti hvað Skyndihjálp4 er!

Bara spyr?

Örninn 


Mönnun Löggæslunnar?

Hversu margir skipaðir Stjórnendur Lögreglunnar hafa farið í endurhæfingu, og eða með háskólapróf, eða jafnvel farið í Lögregluskólann? Það væri gott fyrir Almenning að fá svör um menntun og reynslu í Löggæslustörfum, neyðaratvikum, forgangsakstri ofl! Því það skiptir máli fyrir almenning að Stjórnendur innan Lögreglunnar séu hæfir, bæði andlega og líkamlega til að takast á við ýmis verkefni,og sem stjórnendur þurfa þeir að vera tilbúnir allan sólahringinn, og ef ekki þá þarf staðgengill Lögreglustjóra ásamt Lögfróðum aðila að vera til staðar! En nei það kostar of mikinn pening! Svona er kerfið í dag því miður, fámenni Lögreglunnar sem sinna bara eftir hentugleikum verkefnum,sem eru kannski lítil en enda? Bendi á frétt um árekstur á hættulegustu gatnamótum Reykjavíkur sem var víst Gabb, að margir Lögreglubílar þustu á staðinn ásamt fleyrum, ekki hefðu allir þessir bílar komið þegar að ráðist hefði verið á konu og eða hán, út af nauðgun og eða ? 

Bara spurning til allra!

Örninn


mbl.is Mönnun lögreglu líður fyrir mótmæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mislingar

Nú eru flest allir Íslendingar bólusettir fyrir mislingum og öðrum sjúkdómum sem geta valdið skaða seinna á lífsleiðinni!

En því miður þá eru ekki allir erlendir ferðamenn bólusettir fyrir ýmsum kvillum. Bæði út af ófullnægjandi upplýsingum til þartilbærra heilbrigðisstofnana til allra viðkomandi aðila í því landi sem að viðkomandi býr. Það fer eftir efnahag þess ríkis sem að viðkomandi kemur frá, sem hefur ekki þá sömu stefnu í heilbrigðismálum eins og er í Evrópu? Nú er þá ekki bara gott að koma því á að ferðamenn og áhafnir skipa og flugvéla framvísi bólusetningarvottorðum? Einu sinni var þetta með ýmsa áhafnameðlimi sem ferðuðust erlendis, og 1979 fékk ekki einn áhafnarmeðlimur að stíga á Ameríska grund vegna þess að bólusetningarvottorðið varð eftir heima!

Bara spurning?


mbl.is Mislingar bárust með erlendum ferðamanni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rafurmagnsvæðing Lögreglunnar!

Jæja þá er komið að því að Jón Vegatollur sem var fluttur úr því embætti í Dómsmálin! Og það má setja Rafbyssur í hendur þeirra sem eru margreyndir,með sérstakri ÞJÁLFUN? En Jón hefur ekki neinar opinberar tölur frá Löggæsluyfirvöldum á NORÐURLÖNDUNUM hversu margir hafa fengið hjartaáfall eftir rafstuð úr slíku verkfæri! Og til þess að fá tilhlýðilega þjálfun ERLENDIS,ekki frá sérsveitinni, þá er það svolítið dýrt fyrir þjóðarbúskapinn að senda ýmsa Lögreglumenn til Ameríku ofl landa í þjálfun! Allir eiga að spara sérstaklega Almúginn en ekki RÍKIÐ sem lætur prenta peninga eftir þörfum!

En svona er þetta ríkið bruðlar og hverjir blæða og þurfa að borga nema almenningur fyrir ýmsa glæpi sem viðgangast á Íslandi með hjálp vildarvinakennitöluflakks sem má ekki afnema og hefur kostað almenning síðan 2013, 1045 milljarða sem hefði verið hægt að stoppa, en nei það má ekki hrófla við vildarvinum ofl! Tala ekki um stórútgerðina og arðgreiðslur er ekki bara best að gefa skít í allt útgerðar kjaftæðið þjóðnýta Auðlyndina og ef þessir blessaðir vilja ekki hlýta því þá geta sumir farið til Namibíu!

Örninn

 


Löggæslan, Heilbrigðismál ofl

Sem betur fer þá var komið í veg fyrir áætluð hryðjuverk, og má Lögreglan hafa þökk fyrir að hafa komist á snoðir um þá áætlun.

Þá er spurningin um fjármagn til að efla Löggæsluna, sem kostar peninga sem ekki virðast liggja á lausu nema í einhverjum leyniskúffum ráðuneytis Fjármála, sem getur prentað peninga í ýmislegt? En það sem hefur verið í umræðunni að fækka í Löggæslunni, þá held ég að ráðherra fjármála ætti að endurskoða fjármálaáætlunina til að ná inn fjármagni þá meina ég ekki frá almenningi sem er skattpíndur í topp, heldur að ná inn arði af AUÐLYNDINNI okkar allra með hækkun veiðigjalda, hækka skatta á fjármagnstekjur og arðgreiðslur banka og einstaklinga sem eru með í laun yfir 1.5 milljónir í tekjur á mánuði! Það væri gaman að fjármálaráðherra útskýrði fyrir alþjóð hversu mikið af skatttekjum almennings síðan 2013 hafa farið í að borga upp skuldir ríkissjóðs gagnvart Lífeyrissjóðs opinberra starfsmanna (LSR) því þær voru rosalegar og vonandi lækkað eitthvað? En þá er það heilbrigði Íslendinga, sem kostar peninga, en það er óþarfi að skera niður þjónustu sem er í lamasessi út af fjársvelti!! Af hverju? Jú það kemur ekki nóg í ríkiskassann til að standa undir heilbrigðiskerfinu! Af hverju ekki? Góð spurning, en þá kemur ein hugmynd að þjóðnýta allar aflaheimildir af sjávarafurðum og ef að þeir sem hafa grætt á þjóðareigninni í áratugi verða brjálaðir þá geta þeir bara hypjað sig til Namibíu! Og þá kemur að eldsneytisverði þá kostar bensínlíterinn í Svíþjóð 235 krónur Íslenskar í sjálfsafgreiðslu og 245 á þjónustustöðvum og fer lækkandi, sá um daginn þegar að ég var úti í Svíþjóð að það voru hækkanir og lækkanir um einhverja aura daglega! Nóg komið af skrifum núna :) :)

Örninn


Er ekki kominn tími til endurskoðunar laga!

Nú það virðist vera að Íslenskir molbúardómarar séu ennþá undir þeim dönsku lögum alveg frá ég veit ekki hvenær, því ekki mátti herða dóma yfir sérstaklega yfirstéttinni, en almúginn mátti sæta ýtrustu hegningum! Og að Íslendingar hafi ekki risið gegn ósómanum í áratugi er spurning! Það voru börn sem komu undir fyrr á öldum sem að margir prestar áttu og voru svo eignuð öðrum mönnun, því margir prestar lágu með heimasætum ofl! Þetta er til í bókum, en það er með auðmennina þá prestana að yfirvaldið þaggaði niður hneykslið!! Og því miður að þá gera Íslenskir molbúar í dag sér ekki grein fyrir afleiðingum fórnarlambanna, því það er gott að vera háttsettur og hafa peninga til að þagga niður í fórnarlömbum með gjöfum ofl, svo ekki svertist mannorðið!!

Örninn 


mbl.is Dómarinn sé að fara yfir skilyrði nauðgunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjördæmaklúður eða hvað?

Meiri hringlandahátturinn í þessum kosningum, með klúður sem hefur ekki farið framhjá erlendum fréttamiðlum, sem fylgjast grannt með úrslitum þessa klúðurs! Og að það taki miklu lengri tíma að telja atkvæði sem á ekki að þurfa ef stafrænar kosningar væru tiltækar ( sem eru ) heldur á að nota úrelt kosningakerfi því þá er allt hægt ef einhver vill svindla! Límmiðarnir á kjörkössunum eru bara hlægilegir, það á að vera vírbundið innsigli sem enginn getur rofið nema kjörstjórn á hverjum stað, og ef ekki þá skal færa þá kjörkassa í hendur Lögreglunnar. Og að kjörgögn séu send með einhverjum sendibíl er fásinna! Engin Lögregla nálægt? Það er af sem áður var með Lögreglufylgdina, kannski verið að spara, ekki til nóg af peningum til eins né neins, nema í eitthvað bruðl og eða?

Örninn


mbl.is Ógilding gæti snert 16 þingmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland í dag, Seðlabankinn og Löggæslan!

Hvenær í andskotanum ætla kjósendur þá meina ég gamla hækjuliðið sem styður vissa flokka og Innprentar sínar pólítísku skoðanir til barnanna sinna ennþann dag í dag með Hörku að sleppa því? Nú er búið að kynda undir Löggæslumálum undanfarið ár, milljónatugir settir í að þagga niður í einum svo sá kjaftaði ekki frá! Og svo kemur eitt nýlegt, og miðað við blöðin þá kostar brottrekstur einhvers tugi milljóna! Og þá vona ég að Dómsmálaráðskonan taki sig til og REKI ALLA svo friður skapist! En ef ekki þá senda alla í Lögregluskólann því ég veit að þolprófin ásamt fleyru myndu fella kyrrsetufólkið Og að manneskjur sem hafa aldrei kynnst af eigin raun Löggæslustörfum og tekið þátt í einhverjum ógeðslegum aðstæðum og kannski kunna ekki skyndihjálp 1-3+ ! En ef að almennur launþegi er rekinn eða sagt upp starfi þá er ekki sömu kjörin hjá hinu opinbera! Enda er Lífeyrissjóður Opinberra Starfsmanna gjaldþrota bæði A og B hlutar! Því þar skuldar ríkissjóður ca 620 milljarða sem að eru teknir hægt og rólega af Almenningi sem aukagjöld á hinu og þessu! Og núna semur Sigurður vegatollur ( vinur Jóns vegatolls) við hina og þessa um framkvæmdir! En í dag vantar 929 milljarða sem áttu að renna til Vegagerðarinnar síðan 1991 en fóru í Ríkishýtina eða eitthvað annað! Og Seðlabankinn í dag er undir hælnum á einhverjum sem þykir vænt um aurana sína og tíma ekki að láta eitt né neitt nema kannski brauðmola til almennings! Munið kjósendur fögru loforðin og gleiðbrosandi gjéllan hefur ekki getað svarað fyrir sig nema með að Kóveit spili inní! Sama segir ráðherra fjármála sem vill ekki tala um og eða upplýsa Íslendinga um Raunverulega skuldastöðu Íslands og Lántökur síðustu 7 ár! Það virðist vera leyndó í gangi, en Íslendingar hafa heimtingu á að vita þessa hluti opinberlega án þess að þurfa að fara á Internetið og kannski væri það gott ef að rauntölur birtust þar dag frá degi ásamt öllum útgjöldum þingmanna (kvenna ) því ekki getur almenningur fengið eldsneyti ofl á kortum Alþingis og fengið dagpeninga, dreifbýlisstyrk og alla aðra styrki! Hvernig væri nú að þessir sem einhverjir kusu yfir sig færu fram á að þeir sem einhverjir kusu út af loforðum færu fram á við Alla alþingismenn ( konur ) að lifa í einn mánuð á lágmarkslaunum án húshjálpar ofl í lítilli leiguíbúð ca 45 fermetrar, hjón  með kannski 2 börn, og leigan kannski 180-230 þúsund á mánuði! Vaknið Íslendingar!

Örninn

 


Næsta síða »

Höfundur

Örn Ingólfsson
Örn Ingólfsson

Er í mjög góðri vinnu. En get verið með ýmsar hressilegar skoðanir sem öðrum finnst stangast á við þeirra skoðanir og ég virði skoðanir annara þrátt fyrir bölv og ragn!

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.1.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 1

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband