Færsluflokkur: Bloggar

Kosningaloforð flokka gömul og ný svikin!

Jæja nú lýður að kosningum í haust! Og kosningaloforðin hjá Ríkisstjórnaflokkunum 90% svikin! En það sem er það versta er að það átti að taka á almannatryggingakerfinu og afnema krónu á móti krónuskerðingum hjá öldruðum og öryrkjum! Nei það er ekki búið að því ennþá og ekki búið að innleiða nýju STJÓRNARSKRÁNA sem almenningur kaus um! Það þarf ekkert endurskoðaða stjórnarskrá Katrínar! Auðlyndaákvæðið sem fólk kaus um á að standa!Það er ekki eðlilegt að byggð séu ný skip upp á hundruðir milljarða fyrir auðlyndagjaldið sem er of lágt og tala nú ekki um milljarðaarðgreiðslurnar upp á einhverja milljarða til eigenda og barna! Það þýðir ekkert fyrir Kötu að breyta því, vegna þess að Íslenskur almenningur hefur tapað milljörðum vegna gúnguskapar og sleikjuháttar Kötu gagnvart auðvaldinu og útgerðarköllum sem jafnvel hafa safnað upplýsingum um hana sjálfa! Og kannski þorir hún ekki að taka af skarið að slíta stjórnarsamstarfinu út af einhverju? Því það eru margir fyrrverandi Lögreglumenn sem hafa kunnáttu og vinna bak við tjöldin til að klekkja á fólki með hjálp peninga! Og mér kvíðir fyrir að verða aldraður, því að þegar að ég fæ greiddan lífeyri upp á 290 þúsund fyrir utan skatt, þá á ég kannski eftir 198 þúsund, og þá er Tryggingastofnun eftir, þannig að þegar að upp er staðið þá verða eftir 110 þúsund fyrir húsaleigu og nauðsynjum með skerðingum sem má ekki afnema!

Örninn


Milljarða bati í mjólkuriðnaði!

Ekki hefur almenningur fundið fyrir batanum nema með sífelldum hækkunum á öllum mjólkurvörum! Fyrst að batinn er svona mikill þá er kominn tími til að Ríkisstjórnin athugi hvar batinn er, og launavísitalan er ekki rétt því í 95% tilfella er ekki talað við almenning sem margir hverjir eiga varla bót fyrir rassgatið á sér! Það er ágætt að fá keyptar kannanir til að fegra hitt og þetta og hafa meðal laun uppundir  eina milljón plús á mánuði en almennur launþegi samkvæmt könnunum hefur 600 þúsund á mánuði? Kannski hjá ríkinu hver veit?

Örninn


Reykjavíkurflugvöllur

Þar sem að Flugvöllurinn var gefinn Íslensku þjóðinni þann 9 júli 1946 og Ólafur heitinn Thors tók á móti gjöfinni, þannig að einhverjir stjórnmálamenn hafa selt fyrir góðann pening eign allra Íslendinga og eða breytt einhverju? Og þess vegna spyr ég af hverju liggur svo mikið á að fjarlægja Reykjavíkurflugvöll? Nú borgin setti inn skipulag fyrir Hlíðarendasvæðið og var samþykkt, en ekki af borgarbúum!Hversu margir milljarðar runnu til borgarinnar og renna á hverju ári í formi fasteignagjalda,frárennisgjalda, sorphirðu( einkaframkvæmd sem kostar) ofl? Það er ekkert opinbert því miður. Það er búið og verður miklu meiri skerðing á flugsamgöngum og Borgarlínan bjargar engu fyrir flutning innanlandsflugs nema peningalega séð með ríkisaðstoð! En eitt skal tekið fram að Reykjavíkurflugvöllur er í eigu ALLRA ÍSLENDINGA ekki bara lattelepjandi óhjólandi óborgarstjóra í 101 og óska eftir að Borgarstjóri fari fram á Þjóðaratkvæðagreislu um hvar Flugvöllurinn á að vera! En því miður er það borin von að sá borgarstjóri bakki með allt raupið og loforðin, en eitt skal vera ljóst að nýr flugvöllur verður ekki til í Hvassahrauni, fyrr en eftir 40-70 ár kannski,þannig að Skerjafjarðar uppbyggingin sunnan við flugbrautirnar verða ekki að veruleika enda þarf læknirinn að nota heilabúið til að taka ákvarðanir sjálfur og sleppa einhverjum aðstoðarmönnum(konum)sem kannski hafa ekki hundsvit á hlutunum! Því það kostar að hafa ótakmarkaða aðstoðarmenn 430 milljónir á ári hjá Reykjavíkurborg með öllum réttindum opinberra starfsmanna!Síðast þegar að ég vissi því það er voða erfitt að fá upplýsingar hversu margir aðstoðarmenn eru innan Borgarstjórnar!

Örninn


Ákvörðunarréttur almennings

Mikil er einokunin orðin aftur gagnvart innflutningi erlendra landbúnaðarafurða. Það er fokið í flest skjól fyrst að hlustað er á (ekki bændur) heldur stóru kjötiðnaðarfélögin og mjólkursamsölurnar sem hafa lent í því að byrgðir hafa aukist margfalt og ekki er hægt að kenna Coveit 19 um það! Heldur gengdarlausri græðgi hinnar sömu þar sem að hækkun hefur verið mikil undanfarin ár og margir þeir hinir sömu benda á hækkun á ýmsum aðföngum erlendis frá! En segja ekki frá hversu mikill innflutningur er á erlendum aðföngum og þeim innlendum aðföngum sem framleiddar eru á Íslandi! Það væri rannsóknarverkefni fyrir óháða stofnun að athuga þá hluti! En það er því miður þannig að misvitrir ráðamenn ráða ríkjum til að halda í sitt þingsæti og eða ráðherrastól, en gleyma því að Ísland er skuldbundið ýmsum reglum erlendis frá og það tekur tíma að breyta þessum reglum til baka og á meðan þá græða hinir stóru eins og með sig krónunnar í gamladaga og í dag allir græddu nema almenningur sem hefur fengið að kenna á í árhundruðir með einokun og byrja aftur á þeim einokrunarskratta en það er bankasala í bígerð sem allir ÍSLENDINGAR EIGA!!!  Þetta er ekki í lagi!

Örninn


40 manns!

Hvað með þá sem hafa haft laun af almennum launþegum með hjálp!Þá er ég að tala um kennitölugflakk vildarvina fjármálaráðherra! Því þetta kennitöluflakk eftir hrun hefur kostað Íslenskan ALMENNING 135 MILLJARÐA og svo á að auka skatta um áramótin á ALMENNING með hjálp þess sama! Eruekki komnar nógar álögur á almenning, og það þýðir ekkert að tala um C-19! Því margir vildarvinir hafa stórgrætt á C-19 með allskonar styrkjum ofl með hótunum um að segja upp starfsfólki! Svo allt í einu þá er allt í einu hætt við að segja upp starfsfólki! Hvað er að Íslendingum ætlið þið ekki að vakna? Hugsið um lítilmagann sem á ekki bót fyrir rassgatið á sér og geta ekki kjamsað stórsteikur með útborgað innan við 20 þúsund á mánuði eftir skatta og gjöld! Alveg ágætt fyrir þingmenn og konur að safna í púkk fyrir þá sem minna mega sín sem hafa ekki fengið leiðréttingu!!

Örninn

 


mbl.is Yfir 40 grunaðir um aðild að peningaþvætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bretar sem arðrændu Ísland

Nú ágætt, þá er frábært að Íslendingar fari á Bresk fiskimið með öll varðskipin og áður en það gerist að setja allar myndir og videó af yfirgangi breska heimsveldisins í okkar þorskastríðum í gegnum áratugina,þar með talið allar ásiglingar breskra herskipa og dráttarbáta sem var falið fyrir Breskum almenningi út af kröfu háttsettra útgerðarmanna í Bretlandi,og jú krúnuþingmennirnir hlustuðu,en sögðu ekki mikið eftir alla ósigrana í þeim þorskastríðum, heldur héldu kjafti! Svo þannig er það að Íslenskir sjómenn hafa jafnan rétt að ræna fiskimið bretanna eins og þeir gerðu, og veiða upp í landsteinum, og innan 3ja mílna, skrapa alla firði! En sleppa Skotum við svoleiðis :) :)

ÖRNINN


Já borgin ræður!

Nú var í fréttum að meirihlutinn héldi velli! En eins og hefur komið fram með meirihluta borgarstjórnar þá vill meirihlutinn selja allar byggingarlóðir og með skipulagsfulltrúa sem er víst ekki grænn, heldur að reyna að fegra bókhaldið hjá borginni, sem er í blússandi mínus! Og þá þarf að selja og bjarga fjárhagnum samanbel Hlíðarendinn, og ekki skiluðu milljarðarnir borgarbúum neinu nema auknum álögum! Borgarbúar væntu að ýmis gjöld myndu lækka, en þvert á móti hækkuðu! En það er gott að hafa læknir sem hjólar ekki í vinnuna með sína aðstoðarmenn sem sumir kannski hafa ekki hundsvit á hvað er í gangi? En því miður þá er talsmátinn hjá meyrihluta borgarstjórnar þannig að fólkið skiptir engu máli og ekki hlustað á fólkið! Það er farið í framkvæmdir samanber Borgarlínan með uppsett verð 110 milljarðar en íbúar á Stór Reykjavíkursvæðinu ekki spurðir og ekki efnt til kosninga um svo viðamikla framkvæmd! Og að Samgönguáðherra hafi skrifað undir plaggið er hneyksli! 350 milljarðar +-  sem verkið mun kosta og Íslenskur almennur skattgreiðandi þarf að borga, fyrir utan auknar álögur á íbúa stór Reykjavíkursvæðisins ! Nú fyrir utan það þá koma á næstunni myndavélar innanbæjar til að rukka upp í kostnað! En þær myndavélar allar saman kosta ca 650 milljónir! Og með aðrar myndavélar sem verða settar upp víðsvegar um land til að rukka vegatolla ca 2-3+ milljarðar En hvað um það Íslendingar fara á hjólum í ferðalög, því ekki vill almenningur borga hátt í þúsund krónur fyrir smá skreppitúr! En Jón Vegatollur vildi þetta og Sigurður Ingi sagði á þeim tíma aldrei!er þá ekki alveg ágætt að minna ráðherrana um skuld Íslenska Ríkisins gagnvart Vegagerðinni, í dag eru þetta orðnir 1200 milljarðar og hækkar síðan 1991 með bankavöxtum sem almenningur þarf að borga, og almennigur borgar ennþá óráðssí Fjármálaráðherranna allra síðan þá! Hugsið um þetta!


mbl.is Kröfu um stöðvun framkvæmda var hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýlegur bruni með mannfalli!

Jæja það sannaðist sem að talað hefur verið um, að hola niður fólki mörgum tugum á sama heimilisfang! Og starfsmannaleigur hverra nafna sem þau nefnast bera Ábyrgðina 100% fyrir að hola fólki í smá herbergi! Brunavarnir engar, en það má komast hjá því með hjálp innan stjórnkerfisins sem leyfir ýmislegt! Og kennitöluflakkið spilar stórann sess í þessu því vinur þekkir vin innan kerfisins og að sá vinur þekkir háttsettann innan ráðuneytis sem fær kannski ekki peninga á réttum tíma (Svart) Og svona er þetta því það er gott að hafa einhverja spillta sem kjafta ekki frá sínum yfirmönnum og eða undirmönnum sem fengu einhverjar stöður óvænt! En svona er Ísland í dag og vilja viðhalda Samherjaspillingunni með óhæfan hlutdrægan Dómsmálaráðherra! Og með Kristján Þór þá hefði hann átt að segja af sér strax,en það má ekki í okkar spillingarríki Íslandi!! Og bíðið bara þegar að þið almenningur þurfið að borga peninga út úr borginni og inn aftur að frumkvæði vælukjóans Jóns Gunnarssonar, og svo Sigurður Ingi vill líka feta í fótsporin hans til að bjarga hundruðum milljarða í fjárlögin hans Bjarna og Kötu litlu á kostnað almennings með ofursköttum! 995 milljarðar til vegamála sem Ríkið skuldar Vegagerðinni í dag og megnið af þeim peningum fór kannski í að bjarga A og B hluta lífeyrisskulda Ríkisins til Lífeyrsissjóðs opinberra Ríkisstarfsmanna og skulda þeim ennþá 350 milljarða sem við almenningur borgum ennþá! Bara spyr?

Og ekki eru margir hverjir sem drepast af elítunni eltir yfir gröf og dauða, því það virðist hverfa ýmislegt þegar svo skeður, en almenningur og ættingjar eru lögsóttir fyrir 35 þúsundum króna í Dánarbú!

Því almenningur fær ekki viðhafnarútför þó svo að hafa skuldað lítið, en spillingarvinir fá rosalega flottar útfarir, bara fyrir að hafa haft peninga af fólki með kennitöluflakki og ekkert mál ég er Fjármálaráðherra sem vill ekki segja nei með Kötu litlu!

Örninn

 


Félagsbústaðir Reykjavíkurborgar

Í sambandi við alla veirur og tekjutap skjólstæðinga sinna í því ástandi þá hafa Félagsbústaðir ekki séð sér fært að lækka leigu, heldur hækkað! Kannski reikningsskilabókhaldið sé í rugli, og þá ætti nú Ríkisstjórnin að fá aðila til að athuga Bókhaldið því eitthvað er gjörsamlega út í hött í reikningsskilum! Kannski að Reykjavíkurborg sé komin á kvótakerfið eins og útgerðin, hagræða Bókhaldinu, eða flytja á milli Ebit og Ebita, eins og margir hafa gert fyrir hrun og eftir líka og gera ennþá og græða með hjálp? Nú almenningur fékk ekkert nema skuldir, 1500milljarðar+ sem almenningur tapaði á hruninu og fjármálastofnanir sem áttu veð í ýmsum skuldum, Íbúðalánasjóður gekk harðast fram í að innheimta skuldir með atbeina sýslumanna og Dómstóla! Og ennþann dag í dag er leynd yfir því hverjir keyptu stóreignir og litlar líka á SPOTTPRÍS! Því þeir burgeisar byggðu margir eftir söluna á eignunum sem keyptar voru hjá Íbúðalánasjóði ýmsar hallir vítt og breytt, því það munar um að kaupa eign á 10 milljónir og selja á 55-60 milljónir! Og margir kaupendurnir eiga stóreignir í Skuggahverfinu og leigja út lúxusíbúðir fyrir eina milljón á mánuði fyrir sérstaka?

Örninn

 


Engin furða!

Póstur og sími gekk vel. Svo fór að halla undan fæti þegar að einhverjir vildu aðskilja fyrirtækin! Og jú það gekk alveg framundir 2008. Efir það þá hallaði ennþá meira þannig að Póstsskútan var lögst svotil á hliðina og ríkishýtin bjargaði skútunni með OHF! Og jú það gekk í einhver ár en sumir vildu hærri laun og fengu, og svo hallaði undan OHF þá var farið að segja upp fólki í smáum stíl ( Sömu yfirmenn þá ) til að vernda sín laun ( Gulltryggð ) og svo fækkaði reynsluboltunum vegna kjaftagangs sem voru tilkomin og eða spunnin upp af yfirmönnum þá til að losna við þá sem töluðu og sögðu frá! Þekki þetta af eigin reynslu ásamt mörgu fólki á þeim tíma, sem gætu kannski komið fram í dag og sagt frá einelti og niðurlægingu yfirmanna! Pósturinn gamli var frábær vinnustaður, þá þekktum við flest alla á okkar vakt og líka á vaktinni sem tók við. og gamlar minningar og myndir ylja þeim gamla! En samt þá er það ekki gott að láta Póstinn drabbast niður í svaðið, og þá er eitt að gera að selja eitthvað af bílaflotanum og lækka laun stjórnenda og alþingismanna sem eiga sæti í stjórninni og fella út laun alþingismanna úr stjórn Póstsins!

 


mbl.is Sjópóstur færir okkur aftur um 50 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Örn Ingólfsson
Örn Ingólfsson

Er í mjög góðri vinnu. En get verið með ýmsar hressilegar skoðanir sem öðrum finnst stangast á við þeirra skoðanir og ég virði skoðanir annara þrátt fyrir bölv og ragn!

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 10187

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband