Færsluflokkur: Bloggar

Hryðjuverkamenn

Jæja nú loksins sína Bretar sitt rétta andlit með að skella á okkur Íslendinga hryðjuverkalögum. Ég held að þessir blessaðir menn forsætisráðherra og fjármálaráðherra þeirra Breta ættu nú bara að hugleiða hryðjuverkin sem að sjóher hennar hátignar var með gagnvart okkar sjómönnum á Gæsluskipunum í þorskastríðunum. Það voru ekkert annað en hryðjuverk af hálfu Bretanna að reyna að sökkva Varðskipunum okkar  með þeim afleiðingum að 1 maður lést! Þannig að þetta hryðjuverkaríki Bretland þeir ráðamenn þar á ættu að íhuga sinn gang og ekki sýst að bæta Íslendingum þann skaða sem að þeir hafa ollið með sínum vitfyrrtu gerðum. Þetta eru örugglega ekki heilir menn. Það þyrfti kannski að fara að athuga þá og kannna hvað er í gangi í þeirra hausum Brown og Alistair. En ég bið háttvirtan Forsætisráðherra Geir Haarde að hugsa sig ekki tvisvar um og slíta stjórnmálasambandi við þessa hryðjuverkamenn þar sem að tjónið sem þessir menn ollu er óbætanlegt og fara svo STRAX í mál við þessa eymingjans menn fyrir þetta gerræði gagnvart okkur Íslendingum. Vegna þess að það yrði svo mikil hneysa fyrir Bretana að Nato þjóð skuli gera það. En Breska Ríkisstjórn hafið skömm fyrir ykkar gerðir og megi þetta koma í bakið á ykkur af ölloum þunga sem að það gerir á endanum.

Árás á Fíknó

Mikið er ég sem fyrrverandi öryggisvörður og hef oft þurft að koma að málum sem að tengjast Lögreglunni ekki hissa á aðgerðarleysi yfirmanna þessa Götuhóps sem að hefur staðið sig frábærlega allavegana það sem að ég hef séð til þeirra ! En Það skal tekið fram að kylfa og MAZE duga ekkert á móti fyrrverandi hermönnum! Það er bara það að vígbúast og láta blessaða mennina í Fíknó vopnast? Hissa á að ég segi þetta nú það er engin furða vegna  þess að þeir eru í hættulegasta Jobbinu! Og hafa komið að fólki með vopn í bílunum! En það eru aðrir  yfirmenn því skyni skroppnir og kannski hafa aldrei kynnst Löggæslu (Dyravörslu, ofl) og jafnvel kunna ekki skyndihjálp en það er önnur saga. En það að hafa sett þessa glæpamenn aftur út á götuna það er réttarhneyksli og ekki minna hneyksli er það að þeir peningar sem að áttu að renna til nýs fangelsis í tíð Davíðs Oddsonar borgarstjóra  þeir runnu til Perlunnar. Hvernig væri nú að Ríkisendurskoðun færi nú í saumana á bruðlinu síðustu áratugi, það verður vonandi atvinnuskapandi og kannski mætti ráða háttsetta prófessora á ævilaun og aðra bitlinga gamla flokksins hans og notað kannski soninn til að bjarga málunum! Alltaf bölvuð skítalykt af mannaráðningum SJF. En að nýtt fangelsi sé ekki risið það er ekki gott enda eru andskoti margir glæpamenn lausir á götunni út af því að Fangelsismálastofnun hefur ekkert pláss fyrir þá!!!En það er ekki við Fangelsismálastofnun að sakast heldur ríkisstjórnina og bruðlið á árum áður samanber fangelsið sem að átti að rísa á Hálsunum! Nú Almenningur hefur borgað það í gegnum árin með hærri álagningu tekjuskatts og fasteignaskatts til að borga niður Perluna og Draumafangelsið sem að aldrei var reist! Dómsmálaráðherra í dag kvartar undan peningaskorti og nú er ekki áætlaðir einhverjir milljarðar í tekjuafgang á fjárlögum þannig að það má þá líka láta það ganga upp í að  borga undir rassgatið á þessum glæpaflokkum sem að eru að tröllríða þjóðfélaginu en það má víst kannski ekki það gæti komið við kaunin (sárin) hjá einhverjum góðum Lögfræðing! En hvað um það það þyrfti ekki að sleppa öllum þessum aumingjum með klappi á kollinn og segja við glæpahyskið eins og sagt er við þá er þeir játa: Ekki gera þetta aftur við höfum ekki pláss!!!

Örninn

 

 

 

 

 

 

 

 


mbl.is Árásarmenn í gæsluvarðhald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framhald af spillingunni

ÆÆ gleymdi Suðurnesjunum með allt þetta rotna fyrirkomulag þar! En fyrir utan það þá er alltaf að koma eitthvað um PÓLÍTÍKST ROTIN EPLI!  Nú ekki að undra þar sem að sonur Davíðs Oddsonar var tekinn fram yfir marga miklu hæfari dómara. Sorry þeir hafa ekki verið í sama Óstjórnarflokki OG EKKI FRATMÚRARAR (FRÍMÚRARAR) En Það segi ég opinberlega að hafðu skömm Davíð Oddson og allt þitt sjáfstæðishyski að gauka undir ykkur allan þennan pening á kostnað alþýðunnar og með LOGNUM KOSNINGARLOFORÐUM BARA TIL AÐ BLEKKJA OKKUR ALÞÝÐUNA! ÉG ÓSKA ÞÉR EKKI GLEÐILEGRA JÓLA ÞÚ MEÐ HÁTEKJUR OG BORGAR MINNA Í SKATT EN ÉG SEM VERKAMAÐUR! HAFÐU SKÍT OG SKÖMM FYRIR GRÓÐAHYGGJUNA, þÚ OG þÍNIR VERÐSKULDIÐ BARA EITT SAMANBER JARÐVÉLAR: HVERJIR KOMU ÞEIM SAMNINGUM Á? Komi það vonandi í ljós sem fyrst  og líka hverjir eiga Keflavíkurflugvöll Ríkið (Íslendingar) Ábúendur sem að áttu landið þegar að það var tekið eignarnámi eða RÍKIÐ.

BÆNDUR Á SUÐURNESJUM SEM AÐ GETA SANNAÐ LEIGUSAMNING OG EÐA EIGNARÉTT ÞÁ GETA ÞEiR FENGIÐ UMRÁÐ YFIR SÍNUM EIGNUM OG FLUGVÖLLINN Á MIÐNESHEIÐI!RÍKIÐ ER SKYLT AÐ BÆTA EIGNARUPPTÖKU SAMNBER  ÍSLENSK LÖG OG LÍKA ALÞJÓÐLEG LÖG UM EIGNARNÁM!


Kjarasamningarnir framundan og skattarnir

Jæja háttvirtur Árni M. fjármálaráðherra tjáði sig um skattalækkanir í útvarpinu í kvöldfréttunum áðan. Ekki þótti blessuðum nein ástæða til að hrófla við sköttunum! Verkalíðshreyfingin fer fram á lægri skatta fyrir þá sem að eru með lægri tekjur en 200 þúsund á mánuði. Nei það má ekki en það MÁTTI LÆKKA HÁTEKJUSKATTINN HJÁ ÞEIM RÍKU Á SÍNUM TÍMA og hverjir stjórnuðu því aðrir en flokkur Ráðherrans. Þetta fannst almenningi SKÍTLEGT á meðan að þeir ríku möluðu gull á kostnað almennings með lægri HÁTEKJUSKATTI en það má ekki lækka neitt fyrir þá sem minna mega sín! Þess vegna vonast ég til þess að verkalýðhreyfingin fari fram á að lægstu launin hækki ekki minna en upp í 150-175000 á mánuði og ALLS EKKI HÆKKA LAUNIN HJÁ ÞEIM EFNAMEIRI. Þeir eru búnir að fá nóg af hækkunum umfram almenning. En Flokkur Ráðherrans má skammast sín fyrir þetta og einnig allar lækkanirnar á bótum til barnafólks eftir að þeir tóku við völdum, því  miður fyrir barnafólk. Þess vegna legg ég það til að hátekjuskatturinn verði hækkaður tafarlaust til að mæta skattalækkunum almennings og bætur til barnafólks hækkaðar sömuleiðis tafarlaust, það munaði um milljarðana sem að voru teknir af barnafólkinu og hvert fóru þeir peningar? Beint í bruðl ríkisins og mammonshallir.

Örninn

 


Lögreglan og Rafstuðbyssur.

Nei segi ég sem almennur borgari og hef séð á myndböndum sem að almenningi er ekki boðið upp á. Þá er ég að meina kennslumyndbönd sem að almenningur sér ekki. Samanber afleiðingarnar frá Kanada!  En þó að þetta sé skárra en byssur þá held ég að Lögreglan sé ekki nógu öguð sálfræðilega séð, það þarf mikinn aga til að nota svona vopn, samanber að skjóta manneskju með byssu, og ég held að 80% Íslenskra Lögregluþjóna séu ekki undir það búnir að bera vopn eða Tazer því að það þarf ekki bara einn dag með byssu eða Tazer, og ef að Lögreglan fær þetta vopn í hendurnar þá skal Dómsmálaráðherra  gefa út reglugerð um það að Öryggisverðir fái samanber Evrópska staðla  viðunandi vopn í hendurnar og Dyraverðir líka. En Það skal tekið fram að ég sendi grein í MBL sem að var víst illskiljanleg að sögn MBL í sambandi við árásir á Öryggisverði og er ennþá til á blogginu og fékkst ekki birt  en hefur ekkert breyst og er til hjá MBL, vegna þess að þetta mátti ekki birtast í MBL . En ekki byssur og Alls ekki þetta vopn heldur notið frekar það sem að þið hafið notað í gegnum árin sálina, við erum með ágætis Víkingasveit!

Skilaboð til Lögreglunnar!

Notið frekar óeinkennisklædda , vegna þess að þegar að búningurinn kemur inn þá æsast allir, vegna þess að þeir hafa miklu betri stjórn heldur en uniformeraðar Stælalöggur sem að hleypa öllu í bál og brand!

 


Þjófar og önnur dusilmenni!

Það sló mig mikið sem fyrrverandi öryggisvörður að það geystist fram  einn öryggissérfræðingurinn sem að hefur pappíra upp á það að hann megi stela! En hverslags öryggisfyrirtæki potar svona (óöryggisverði) fram fyrir alþjóð?  Er þetta kannski eitthvað sem á að koma höggi á Öryggismiðstöðina fyrir auglýsingarnar sem að kom allhressilega af stað umræðu um Þjófnað?Barasta spyr, vegna þess að það virðist ekki vera neitt mál að stofna Öryggisfyrirtæki í dag á Íslandi. En þessi fyrirtæki sem að eru skráð borga þau skatta og fl?  Hef heyrt frá fólki sem að vinnur hjá Öryggisfyrirtækjum í einkageiranum að að þeim sé boðið svört vinna!!!! Þannig að það er barasta bölvað vesen að fá borgað út það sem að þú átt vegna þess að það vantar ráðningarsamninga, og kaup og kjör. Þannig að það er engin furða að það sé mannekla hjá sumum Öryggisgæslum og fyrirtækjum ef að þessi fyrirtæki standa sig ekki í lífeyris og öllum hinum greiðslunum til allra sjóðanna sem að launþegar hafa rétt á og borga í! Tala nú ekki um staðgreiðslu skatta! Það má kannski ráða Letta, Litháa ofl til að vera 2-3 mánuði í vinnu og skipta svo um vegna þess að þeir tala útlensku! Og ekki borga skatta alla vegana ekki þessar starfsmannaleigur!


Minn tími mun koma

Já tíminn hennar Jóhönnu kom sko aldeilis. Ég er mikið ánægður að hún sé sest á Ráðherrastólinn og ætlar að taka til hendinni í öllum þessum málum sem að síðustu 4 Ríkisstjórnir hafa látið sitja á hakanum. Ég sem fjölskyldufaðir ásamt öðrum fjölskyldum við höfum ekki farið varhluta af niðurskurði á barnabótum og öllu því tengdu upp á tugi prósenta, og ég tala nú ekki um þetta heilbrigðiskerfi, það er fyrir neðan allar hellur, alltaf hækkar allt þar, og margfalt á miðað við launahækkanir, en  fyrrverandi Ríkisstjórn sagði alltaf að allt væri í sómanum ár eftir ár og þegar að kosningum kom þá Kokgleypti fólkið þetta! En ég óska Jóhönnu alls hins besta og trúi því að hún taki all hressilega til í félagsmálunum og öllum hinum málunum sem setið hafa á hakanum undanfarin ár, og taki til hendinni til að koma upp um þessa sem að eru í félagslegu húsnæði og borga litla leigu skráðir einstæðir feður og eða einstæðar mæður samt með menn (konur) (fyrirvinnur)  inni á gafli hjá sér vegna þess að kerfið er þannig að fólk skilur og heldur áfram að búa saman og svíkur undan með þessu, til mikils baga fyrir þá sem þurfa þess nauðsynlega að fá húsnæði,og hjálp  hef verið að heyra af fólki sem að gerir þetta. En ég heyrði líka útundan mér að það ætti að fara að kanna þessi mál alvarlega og vona ég að það sé rétt það er  tími  kominn til að hanka þetta fólk sem að er að svíkja undan og fá fullar bætur, og styrki sem að hefðu kannski komið sér vel annarsstaðar. En ég held að almenningur ætti að fara að láta vita af þessu en ekki þegja lengur  því að þetta kostar velferðarkerfið hundruðir milljóna á ári, því að mig grunar að þetta sé stórt vandamál sem þarf að uppræta með eftirlitsmönnum þó svo að það verði ekki eins og með stóra bróður úti í Ameríku!

Örninn


mbl.is Mest ánægja með störf Jóhönnu og Geirs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fótboltafárið í Ríkissjónvarpinu

ÆÆ en hvað strákarnir mínir urðu sárir út af þessu fótboltakjaftæði í Ríkissjónvarpinu áðan. Þeim hlakkaði svo til að horfa á barnatímann og lafði hann í klukkutíma þá kom allt í einu fótbolti. DevilÉg varð nú virkilega sár fyrir þeirra hönd, þetta er ekkert sniðugt ég held að Ríkissjónvarpið ætti að hafa aðra rás fyrir þennan fótbolta og aðra íþróttaviðburði, því að ekki eru allir Íslendingar sem að horfa á fótbolta ofl. Þetta setur oft dagskrána úr samhengi þannig að fólki leiðist. Ekki hef ég efni á því að borga tæpar sex þúsund krónur fyrir stöð 2 þannig að ég náði í gamla myndbandsspólu fyrir guttana. En eins og ég sagði þetta er ekki sniðugt og lái mér hver sem villDevil

Örninn


Er þetta kannski einn anginn af hvítflibbasmygli?

Til hamingju Löggæsluyfirvöld þetta er alveg frábært. Þið eruð hetjur og þarna kemur berlega í ljós kunnátta og samvinna þessara stofnana. Eins og að ég benti á á blogginu mínu um Hvítflibbasmygl þá held ég að þetta sé eitt af því og það er kominn tími til að ná loksins í höfuðpaurana vona að þeir náist núna. Það var alveg rétt sem að Haraldur Johannessen sagði að það þyrfti að efla gæsluna betur í kringum hafnirnar á Íslandi ég er sjálfur Hafnargæslumaður (Port Security) og þar er eftilitið mikið á þeim höfnum sem að eru og hægt  að loka þegar að skip koma til hafnar, það er að segja skemmtiferðarskip ofl. En aftur til hamingju, haldið þessu áfram og það mætti svo sem árétta það að setja meiri peninga í löggæsluna og taka harðar á þessum glæpamönnum sem að stunda innflutning og sölu á þessum ófögnuði dæma þessa menn í hámarksfangelsi engin miskunn hjá Magnúsi lengur og ekki sleppa þeim úr gæsluvarðhaldi heldur að láta þá dúsa inni þangað til að þeir eru búnir að afplána dóminn.

Örninn


mbl.is Tugir kílóa af fíkniefnum í skútu í Fáskrúðsfjarðarhöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott hjá Flugþjónum!

Núna líst mér á að það þýðir ekkert fyrir Icelandair+(loftleiðir) að malda í móinn borgið fólkinu mannsæmandi laun fyrir utan alla þessa yfirvinnu sem að var skikkuð á fólkið í síðustu samningum það þýðir ekki að segja upp fólki á meðan að þið stjórnendur Icelandair hafið margfaldar mánaðartekjur flugþjóna.Devil 

Þetta á einnig við alla stjórnendur hinna fyrirtækjanna sem að reka fólk svo að stjórarnir hafi aðra millu í vasann á mánuði! Verkalýður og fleiri takið ykkur saman og stöndum saman ásamt Flugþjónum í að krefjast að minnsta kosti 50% hækkun á grunnlaunum og lækka launin hjá seðlabankastjórunum og öðrum æviráðnum bitlingum hjá okkar ríki og ríkisstofnunum.


mbl.is Mikill hiti í flugþjónum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Örn Ingólfsson
Örn Ingólfsson

Er í mjög góðri vinnu. En get verið með ýmsar hressilegar skoðanir sem öðrum finnst stangast á við þeirra skoðanir og ég virði skoðanir annara þrátt fyrir bölv og ragn!

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband