Engin furða!

Póstur og sími gekk vel. Svo fór að halla undan fæti þegar að einhverjir vildu aðskilja fyrirtækin! Og jú það gekk alveg framundir 2008. Efir það þá hallaði ennþá meira þannig að Póstsskútan var lögst svotil á hliðina og ríkishýtin bjargaði skútunni með OHF! Og jú það gekk í einhver ár en sumir vildu hærri laun og fengu, og svo hallaði undan OHF þá var farið að segja upp fólki í smáum stíl ( Sömu yfirmenn þá ) til að vernda sín laun ( Gulltryggð ) og svo fækkaði reynsluboltunum vegna kjaftagangs sem voru tilkomin og eða spunnin upp af yfirmönnum þá til að losna við þá sem töluðu og sögðu frá! Þekki þetta af eigin reynslu ásamt mörgu fólki á þeim tíma, sem gætu kannski komið fram í dag og sagt frá einelti og niðurlægingu yfirmanna! Pósturinn gamli var frábær vinnustaður, þá þekktum við flest alla á okkar vakt og líka á vaktinni sem tók við. og gamlar minningar og myndir ylja þeim gamla! En samt þá er það ekki gott að láta Póstinn drabbast niður í svaðið, og þá er eitt að gera að selja eitthvað af bílaflotanum og lækka laun stjórnenda og alþingismanna sem eiga sæti í stjórninni og fella út laun alþingismanna úr stjórn Póstsins!

 


mbl.is Sjópóstur færir okkur aftur um 50 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland og Austurríki Covid19

Nú eftir hremmingarnar sem bárust til Íslands eftir einhverjar skíðaferðir til Ischl þá tóku Íslensk yfirvöld í taumana, og hafa staðið sig vel! En annað með ýmsa vesalinga sem fóru því miður bakdyramegin í gegnum Heathrow því það fréttist að sóttkví biði heima! Og þeir sem fóru bakdyramegin voru án einkenna en sýktu fjöldann allan af fólki sem lentu svo í sóttkví og sumir í einangrun í dag! Og það sér ekki fyrir endann á þessari veiru fyrr en að almenningur fer að taka sig á! Því miður líta Íslendingar margir hverjir á þetta sem flensu, sem er ekki og og hef þurft margoft að ýta við fólki í búðum sem voru liggur við andandi ofan í hálsmálið hjá mér og bent þeim á að færa sig aftar! Og þar eru Íslendingar í meirihluta út af frekjugangi að troðast framfyrir aðra! Aðrir sem eru erlendir Ríkisborgarar skilja ekkert í þessum borðum og rauðu punktum hér og þar! En heilt yfir þá hefur þetta gengið vel nema helvítis hækkanir í öllum búðum á nauðsynjavörum uppundir 10% á nokkrum dögum og því miður þá græða einhverjir þar með talið Hagasamsteypan sem er með yfir 50% á erlendum innflutningi á matvöru!Og hverjir skyldu eiga Haga ofl? Olíufélögin? Eða? TortólaMaiami prinsar?

Örninn 


Og hver fylgist með?

Því miður fór ein ríkisstjórn eftir tilmælum útgerðarmanna að afnema eftirlit um borð í bátum og togururm! Og snarlega fækkaði fjárveitingu til eftirlits Landhelginnar! Tala nú ekki um eftirlitsmenn Fiskistofu sem var LÖGÐ NIÐUR að beiðni vildarvina ráðherra þá enda gengdarlaust fiskerí hjá vildarvinum á sínum skipum og græða á tá og fingri með framsal og leigu á kvóta sumir græða hundruðir milljóna og aðrir milljarða! Nú árið 2020 þá miðað við fjárlögin sem allt var skorið niður þá hefur Landhelgisgæslan komist upp í 5% úr 3% undanfarin ár! Almenningur hefur tekið á sig ómældar byrgðar undanfarin 10 ár og er þá ekki kjörið að blessaðir óRáðamenn þessarar þjóðar sjái sóma sinn í því að breyta LÖGUM um launalækkun afturvirkt um 2 ár og þannig að ég ofl aldraðir ásamt öryrkjum fáum leiðréttingu launanna sem Bjarni Ben og Katrín smæl lofuðu 2017!! Ef kosningaloforðin þeirra framreiknuð þá skuldar Íslenska ríkið 24 milljarða til fólksins, sem fást ekki úr ríkisjötunni nema til vildarvina! 

Örninn


mbl.is Heimilar að draga 0,6% frá óunnum ofurkældum fiski
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjónvarps Símans

Eitt undrar mig með eina rásina hjá Sjónvarpi Símans það er National Geographic. Sú stöð birtist allt í einu með sænskum auglýsingum, þar á meðal fjárhættuspilum, vínauglýsingum ofl! Furða mig á því af hverju var þessu breitt, kannski ódýrara að streyma frá Svíþjóð veit ekki. En allavegana þá finnst mér og kannski öðrum þetta ekki gott, nema að það eigi að fara að skylda sænskuna sem eitthvað 3ja tungumál í skóla? Nei ekki gott enda er maður farinn að hugsa sinn gang með áskriftir því nóg er í boði!

Kannski vilja áskrifendurnir hafa þetta svona veit ekki?

Örninn


Höfundur

Örn Ingólfsson
Örn Ingólfsson

Er í mjög góðri vinnu. En get verið með ýmsar hressilegar skoðanir sem öðrum finnst stangast á við þeirra skoðanir og ég virði skoðanir annara þrátt fyrir bölv og ragn!

Apríl 2020
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband