Bónus og Bónusverðlagning!

ÆÆ mikið andskoti brá mér um daginn þegar að ég hafði mig í það að kaupa pylsur ofl handa vinum og vandamönnum og með herskara af börnum líka þá sá ég að pylsubrauð í Bónus höfðu hækkað á nokkrum dögum úr 115 krónum í 139 krónur! Og Bónusbrauðið hafði hækkað úr 198 krónum upp í 219 krónur! En annars þá er þetta ekki nýtt því miður því verðlagningin og álagningin hjá Bónus hefur verið út úr kú eftir að Bankarnir tóku við og bara til að græða á því fólki sem að hefur stundað sín viðskipti við Bónus jafnvel alla tíð síðan Bónus opnaði! En hvað um það þetta er glæpsamleg hækkun og það þýðir ekkert að vera að kenna um hækkunum úti í heimi því að miðað við þessar hækkanir samkvæmt brauðvöru hefði hækkun á tonni af hveiti átt að vera 850 þúsund krónur svo hægt væri að réttlæta þessa hækkun miðað við magn en annars þá sagði einn bakari að brauð og brauðvörur ættu að hækka að hámarki um 4-5 krónum með virðisaukaskatti. Svo Íslendingar farið að hugsa um verðlagninguna og mótmæla líka!!!! Og endilega láta fólk vita á Facebook og fleyri stöðum um gengdarlausar hækkanir söluaðila því það er kominn tími til að bera út tilkynningar af OKRI fyrirtækja því þá hættir fólk að versla við það fyrirtæki og þá kannski lækkar álagningin um einhver prósent! En með neytandakveðju og farið Íslendingar að mótmæla OKRINU því annars verðum við hungurmorða á meðan að þeir ríku hafa í sig og á og þá verður þetta miklu meira heilbrigðisvandamál því þá er þetta fólk farið úr landi með allt sitt og of seint gripið í brækurnar þegar að botninn er farinn!!

ÖRNINN

 


Þinglok ofl!!!!!

Jæja þá eru þessi jólasveinar og sveinkur farin í sumarfrí á fullum launum til annars september!! Er þá ekki kominn tími til að jafna orlofstímann hjá alþingismönnum til jafns við almenning það fer eftir starfsaldri hversu mörg ár  starfsmaður hefur unnið hjá fyrirtæki og ekki flyst orlofsrétturAlmennings á milli fyrirtækja nema inna sömu samsteypu! Þannig að miðað við þingsetu ýmissa þingmanna þá ættu sumir bara rétt á 24 dögum virkum í orlof og ef að sá starfsmaður óskar eftir aukadögum eftirþað þá er það LAUNALAUST!!!! En það skal enginn segja alþjóð og telja trú um að þingmenn séu að sinna sínum störfum sem þingmenn á sumrin ég hef séð marga þingmenn í fullri vinnu við allt annað en þingstörf á sumrin þegar langa fríið er hjá þinginu!!!

Þetta er sama með kennarana nú eiga þeir ekki að vera við skólana í vinnutíma á sumrin nema þegar að kennarar taka sitt lögboðna orlof? Nú almenningur þarf að vera sinn tíma á vinnustað alveg þangað til orlof er tekið og mæta strax eftir orlof ef ekki þá dregst það frá launum! Nei endurskoða óréttlætið í þessu öllu og VINNUSKYLDU Á ÞINGMENN OG KENNARA ÞVÍ NÓG ERU LAUNIN, OG ER ÞÁ EKKI KOMINN TÍMI TIL AÐ STYTTA SKÓLAÁRIÐ HJÁ GRUNNSKÓLABÖRNUM MEÐ ÞVÍ AÐ FÆKKA HJÁ KENNURUM FRÍDÖGUM SVOKÖLLUÐUM STARFSDÖGUM OFL ÞAR SEM EKKI ER HÆGT AÐ NÁ Í FLESTALLA KENNARA Í SKÓLUNUM Á STARFSDÖGUM!! HELD AÐ GNARRINN ÆTTI AÐ ATHUGA ÞETTA Í SAMBANDI VIÐ GRUNNSKÓLANA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU OG SETJA VINNUSKYLDU Á KENNARA AÐ ÞEIR SÉU Í SKÓLANUM EN EKKI AÐ VAFRA UM NETIÐ HEIMA HJÁ SÉR!!! þETTA Á LÍKA VIÐ ÞINGMENNINA OKKAR!!

ÖRNINN


mbl.is Þingfundum frestað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verkföll flugvirkja!!!

Hvernig í andskotanum stendur á því að flugvirkjar fá að vaða fram með vinnustöðvun og ekkert er gert! Nú það virðist ekki vera sama Jón og séra Jón við sjómenn höfum þurft að sætta okkur við lögbönn ef að það kom til tals að fara í verkföll!! Af hverju er ekki búið að setja Lög á flugvirkja? Stórt er spurt en við sjómenn viljum lögbann strax á þessa kalla og margir okkar sjómanna hafa langt undir þeirra tekjum og vinnum þó miklu meira og höfum skapað mörghundruðfalt meiri verðmæti heldur en flugvirkjar!! Að flugvirkja sögn snýst þetta ekki um krónur eða aura það er kjaftæði því þetta snýst að mestu leiti um peninga! Vildi ég að sjómaðurinn hefði þessi miklu fríðindi sem flugvirkjar hafa og væri þá ekki gott fyrir Flugvirkjafélagið að upplýsa Íslendinga um fríðindin og fleyra sem ekki má koma fram í dagsljósið???

 Örninn


mbl.is Fundi frestað til morguns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja of mikið segir Seðlabankinn!!!!!

Ef að svo er þá held ég bara að það ætti að setja á hámarkslaun sirka 3föld lágmarkslaun um það bil í dag 486 þúsund í dag því það væri gaman að sjá þessa menn með yfir milljón á mánuði  láta enda ná saman af launum undir 200 þúsundum og ég held líka að þessir gúbbar í Seðlabankanum geri sér ekki grein fyrir ástandinu og ofurhækkunum á MATVÆLUM eftir útrásavíkingaglæpamannabankahrunið og svo er talað um verðbólguna nú af hverju gerir þá Seðlabankinn ekki neitt í því að þrýsta á það að VERÐTRYGGINGIN  fari fjandans til enda hefur ríkið OFL grætt billjarða eftir að verðtryggingin komst á þannig að ég held að það sé kominn tími til að Seðlabankinn fari að hætta að agnúast út í Almenning og einbeita sér að því sem að ofan greinir og byrja kannski á því sjálfir að lækka sín ofurlaun því ekki finna þessir ofurlaunamenn mikið fyrir hækkunum á nauðsynjavörunni!! Held að stjórnendur Seðlabankans ættu að skammast sín og biðja Íslenska Alþýðu afsökunar á því að LAUNAHÆKKKUNIN SÉ OF MIKIL!!!! NÚ EKKI FÉKK ALÞÝÐAN 40-50 PRÓSENTA LAUNAHÆKKUN STRAX EINS OG MARGIR BANKASTJÓRAR OFL OG HVAÐ ÆTLI  KJARARÁÐ HAFI ÚTHLUTAÐ MIKLUM LAUNAHÆKKUNUM TIL STJÓRNSÝSLUNNAR  OFL MIÐAÐ VIÐ ALÞÝÐUNA UNDANFARNA 2 ÁRATUGI ÞAÐ VÆRI GAMAN AÐ FÁ TÖLUR UM ÞAÐ Í PRÓSENTUM TIL AÐ BERA SAMAN VIÐ ALMENNING ÞÁ ER ÉG AÐ MIÐA BÆÐI LAUNALEGA OG KAUPMÁTTARLEGA!

ÖRNINN


mbl.is Heldur miklar launahækkanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja loksins kominn tími til!!!!

Það er uppi typpið á ASÍ núna en hvað um það þá var kominn tími á að Gylfi sýndi nú loksins tennurnar! Hvað olli straumhvörfum hjá ASÍ veit ég ekki en ég ætla nú bara að benda almenningi sem að vill lesa þetta aumingjablogg mitt og kannski hefur kýkt á það svona við og við að í gamladaga hefði ég verið stimplaður KOMMÚNISTI fyrir mitt tal og mín skrif! En það er loksins kominn tími almennings til að taka afstöðu með og eða á móti verkfalli og ég persónulega er með verkfalli því hvernig ætla atvinnurekendur og innflytjendur innan Samtaka Atvinnulífsins sem hafa grætt milljarða eftir hrun bankanna og komið öllum hækkunum á almenning og svo kvarta þessir sömu yfir of háum launakostnaði og það skal tekið fram að allir stórstjórnendur eru ekki með minna en 750 þúsund á mánuði með öllum hlunnindum og bónusum! Og segja upp lykilstarfsfólki með mikla reynslu til að ráða nýtt vinnuafl sirka 85 prósent sem að talar ekki Íslensku, skilur ekki Ensku og segir bara eg ekki skilja!!! Þetta eru atvinnurekendur búnir að fá í gegn með frjálsu flæði fólks innan Schengen svæðisins sem að gamall dómsmálaráðherra fékk í gegn og hélt að þetta væri sniðugt jú fyrir glæpamenn enda hefur það sýnt sig að vildarvinirnir flúðu land inn á Schengen svæðið og nú situr sá hinn sami og skrifar einhverja sögu um Baug skyldi það vera einhver skáldsaga og eða er ekki búið að gera rúmrusk heima hjá blessuðum til að leita gagna? Kannski má ekki hrófla við aurapúkunum sem tíma engu og hirða aurinn en hafa alltaf kastað krónunni í vasa örfárra manneskja!!

Örninn


mbl.is Hóta allsherjarverkfalli 25. maí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stormsveipir!

Já það er skelfilegt þegar að svona gerist og að hafa vind upp að 40-50 metrum á sekúndu og þá hverfa heilu hverfin af húsum sem að eru byggð á þeim byggingamælikvarða að eigi að þola verulegan vind! Nú flest öll hús á þessum svokölluðum Tornado Alley eru byggð úr timbri og svo hjólhýsin ekki undanskilin og ekkert sem að heldur við eitt né neitt! Ég benti gömlum félaga mínum frá fárviðri hérna á Íslandi og benti honum á að horfa á myndir því oft höfum við fengið miklu verri veður á Íslandi og ekki með einhverja trjákumbalda sem að tryggðir eru fyrir svipað verð og eitt einbýlishús á Íslandi og standast þó vind en sambærilegur húskumbaldi á Íslandi myndi kosta ca: 45-50 þúsund dollara án einangrunar og tryggður í botn með 10% sjálfsábyrgð og endurtryggður af tryggingarfélaginu þá fengi sá sem tryggði húsið sitt bætt já kannski 5 þúsund dollara þegar að tryggingafélagið væri búið að rannsaka hvort að það gætu hafa átt sér tryggingasvik og ef ekki þá væri fólkið dautt og eða ætti ekki til hnífs og skeiðar í Bandaríkjunum og gæti ekki haldið áfram málssókn!!  ÞETTA ER ÞVÍ MIÐUR AÐ GERAST HÉRNA Á ÍSLANDI AÐTRYGGINGAFYRIRTÆKIN Á ÍSLANDI ERU AÐ REYNA AÐ FÁ Í GEGN AÐ SÖNNUNARBYRÐIN VERÐUR HJÁ FÓRNARLAMBINU DAUÐU EÐA LIFANDI, HVORT SEM AÐ ER HVERJUM ER AÐ KENNA!! OG BENDA SVO Á AÐ LESA LITLA LETRIÐ OG EF AÐ ÞAÐ ER EKKI ÞAR ÞÁ ER ÞAÐ BARA BÚIÐ TIL ÞVÍ ÍSLENSKU TRYGGINGAFÉLÖGIN OG MARGIR LÖGFRÆÐINGAR ÞEIRRA SEM AÐ TRYGGINGAFÉLÖGIN EIGA JÁ ÉG SEGI EIGA NÆSTU ÁRIN ÞVÍ TRYGGINGAFÉLÖGIN ÖLL HAFA BORGAÐ LÖGFRÆÐIKOSTNAÐ ÝMISSA LÖGFRÆÐINGA Í GEGNUM ÁRIN TIL ÞESS AÐ KOMA Í VEG FYRIR ÞAÐ AÐ ÞURFA AÐ BORGA BÆTUR OG SKAÐABÆTUR OG ERU MARGIR AF FREMSTU LÖGFRÆÐINGUNUM Í DAG BÚNIR AÐ VERA UNDIR SPENANUM Á ÖLLUM TRYGGINGARFÉLÖGUNUM HVORT SEM AÐ ÞEIR HEITI STJÖRNU OG EÐA TUNGLLÖGFRÆÐINGAR OG HVAÐ ÞESSIR MÚLTIMILLJÓNERAR HAFA FENGIÐ ÚT ÚR OFURINNHEIMTULAUNUM  ÞÁ MEINA ÉG 2000 KRÓNUR EF ÞÚ BORGAR EKKI ÞÁ FÆRÐU DRÁTTARVEXTI SVO KEMUR TILKYNNING FRÁ MOTUS EÐA LÖGFÆÐING ÞÁ ER SKULDIN ALLT Í EINU KOMIN Í 24000 OG MEÐ ÁLAGI OG SVO ALLT Í EINU ER BARA JAÁ BÍDDU BARA ÞAÐ ER ENGIN FURÐA AÐ FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ HAFI EKKI HAFT NEINA YFIRSTJÓRN Á LÖGFÆÐINGUNUM OG GJALDSKRÁ ÞVÍ ÞAR VORU ALLIR INNAN HANDAR AÐ MAKA KRÓKINN OG EKKI LÆKKAR LÖGFRÆÐIKOSTNAÐURINN OG EÐA LAUN ÞEIRRA BLESSAÐRA LÖGFRÆÐINGANNA EN HVAÐ UM ÞAÐ ÞÁ SAGÐI ÉG ÞAÐ Í BLOGGI FYRIR LÖNGU SÍÐAN AÐ FRYSTA LAUN OG VERÐLAG EN NEI EKKERT GERT !!

ÞÁ ER KOMIÐ NÓG AF KJAFTÆÐI EN SVONA ER ÞETTA BARA!!

öRNINN


mbl.is Eyðileggingarmáttur festur á filmu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NÝR ÞINGFLOKKUR?

BÍÐUM NÚ VIÐ ERU ÞESSIR FYRRVERANDI VINSTRI GRÆNIR ENNÞÁ ÞINGMENN? ÉG HÉLT AÐ EF AÐ FÓLK SEM AÐ KOSIÐ HEFUR VERIÐ Á ÞING FYRIR VISSAN STJÓRNMÁLAFLOKK AF KJÓSENDUM OG VILJA YFIRGEFA SINN FLOKK ÞÁ HÉLT ÉG AÐ ÞEYRRA VARAÞINGMENN ÆTTU AÐ TAKA VIÐ ÞAR SEM AÐ ÞESSIR FYRRVERANDI FLOKKSMENN(KONUR) SEM AÐ FÓLKIÐ KAUS ÁKVAÐ AÐ YFIRGEFA FLOKKINN SEM AÐ KOSNINGARBÆRIR AÐILAR KUSU TIL SETU Á ALÞINGI Á VEGUM VISS FLOKKS OG EF AÐ SVO BREGÐUR ÚTAF AÐ VISSIR EINSTAKLINGAR VILJA FARA ÚR VISSUM FLOKK ÞÁ MISSA ÞEIR SITT ÞINGSÆTI ÞVÍ ÞÁ ERU ÞAU BÚIN AÐ SKILJA SIG FRÁ SÍNUM KJÓSENDUM OG HAFA ÞAR MEÐ EKKI ÞINGSÆTI OG EF AÐ ÞETTA FÓLK ER AÐ FARA AÐ STOFNA ENINHVERN STJÓRNMÁLAFLOKK EN ÞURFA ÞAU ÞÁ EKKI AÐ HAFA VERIÐ KOSIN Í KOSNINGU Í ÞEIM FLOKKI? NEI ÞETTA ER SVODDAN SKRÍPALEIKUR OG TIL MIKILLAR MINNKUNAR FYRIR ÞAU 3 AÐ ÉG HELD AÐ ÞAU ÆTTU NÚ AÐ FARA AÐ ATHUGA SINN GANG ÞVÍ ALLAVEGANA MIÐAÐ VIÐ VINI MÍNA EFTIR ALLT ÞETTA OG ENDATAFLIÐ HJÁ ÁSMUNDI ÞAÐ ER SKÍTALYKT AÐ ÞESSUM 3MUR!

ÖRNINN 


mbl.is Auka slagkraft með stofnun nýs þingflokks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

GUÐ HJÁLPI ALÞÝÐUSAMBANDI ÍSLANDS!

JÆJA VERÐA NAUÐARSAMNINGAR SEM AÐ FORYSTAN INNAN ASÍ SAMÞYKKIR EN HVERNIG VÆRI ÞÁ AÐ LÁTA FÉLAGSMENN ASÍ UM AÐ KJÓSA  UM SAMNINGINN OG ENDILEGA SENDA SAMNINGINN TIL ALLRA FÉLAGSMANNA ÚTPRENTAÐANN Á HEIMILISFANG OG KVITTAÐ FYRIR MÓTTÖKU ÞANNIG AÐ EKKI SÉ HÆGT AÐ SEGJA AÐ FÓLK HAFI EKKI FENGIÐ SAMNINGINN Í HENDURNAR! ÞVÍ MIÐUR HEFUR FARIÐ SVO LÍTIÐ FYRIR ÞVÍ AÐ FÓLK HAFI FENGIÐ GÖGNIN Í HENDURNAR OG HEIMTURNAR EFTIR ÞVÍ OG ÞÁ ER ÞETTA BARA RÚSSNESK KOSNING OG HEFUR VERIÐ ÞAÐ Á MEÐAN AÐ SITJANDI GA ER VIÐ VÖLD!!! ÞAÐ ERU EKKI ALLIR SEM AÐ ERU MEÐ TÖLVU OG KUNNA JAFNVEL EKKI Á SVOLEIÐIS APPARAT ÞANNIG AÐ ÞAÐ ER AF SEM ÁÐUR VAR AÐ FÉLAGSMENN INNAN VERKALÝÐSFÉLAGA FÁ VARLA FRÉTTABRÉF NEMA Á INTERNETINU EN HVAÐ MEÐ ALMENNING SEM AÐ HEFUR EKKI AÐGANG AÐ INTERNETINU? MÆTTI ÞÁ EKKI LÆKKA LAUNIN OG MINNKA YFIRBYGGINGUNA HJÁ ASÍ TIL AÐ SENDA ALLAVEGANA ÚT 2-3 FRÉTTABRÉF Á ÁRI MEÐ STÓRU LETRI? OG MINNKA HÚSNÆÐISKOSTNAÐINN UM NOKKRAR MILLJÓNIR Á ÁRI ÞVÍ EKKI ÞARF MARGA TUGI STARFSFÓLKS ÞAR Á MEÐAL VINI OG VANDAMENN TIL AÐ STJÓRNA VERKALÝÐSFÉLAGI NÚ ER ÞÁ EKKI KOMINN TÍMI TIL AÐ FARA LÆKKA KOSTNAÐINN HJÁ ASÍ OG LÍKA SAMA HJÁ SAMTÖKUM ATVINNULÍFSINS ÞÁ VÆRI KANNSKI HÆGT AÐ BORGA MANNSÆMANDI LAUN!!!!!

ÖRNINN Wink


mbl.is Samið á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allsherjaratkvæðagreiðslu á samninga ASÍ innan félagsmannanna!!!!!!

Nei nú er komið nóg ætlar Alþýðusamband Íslands að fara að sleikja eina ferðina enn rassgatið á Samtökum atvinnulífsins? Það verður allt vitlaust eins og ég hef sagt um forystu ASÍ ef að samþykkt verður 3ja ára samingur við SA  þá mega Atvinnurekendur ÁBYRGJAST ÞAÐ AÐ LÆKKA MATARVERÐ SEM AÐ ÞEIRRA UMBJÓÐENDUR HAFA GRÆTT Á ALMENNINGI FRÁ ÞVÍ AÐ SAMNINGAR VORU LAUSIR OG ÞÁ SKULDA SAMTÖK ATVINNULÍFSINS ALMENNINGI MIÐAÐ VIÐ ALLAR VERÐHÆKKANIR EFTIR BANKAHRUN MARGRA FÉLAGSMANNA OG EIGENDA INNAN SAMTAKA ATVINNULÍFSINS ALL HRESSILEGAR SKAÐABÆTUR TIL ALMENNINGS ÚT AF SPILLINGU SAMANBER BANKAHRUNIÐ OG GRÆÐGISHYGGJUNA SEM AÐ ER ENNÞANN DAG Í DAG!! NÚ ER KOMIÐ NÓG OG NÚ ÞARF AÐ FARA AÐ HREINSA TIL OG SAMTÖK ATVINNULÍFSINS ÆTTU NÚ AÐ FARA AÐ SJÁ SÓMA SINN Í ÞVÍ AÐ FARA AÐ BORGA FÓLKI (ÍSLENDINGUM UPP FYRIR LÁGMARKSLAUN OG HÆTTA AÐ SEGJA UPP FÓLKI ÁÐUR EN AÐ ÁRIÐ ER LIÐIÐ) ÞETTA GERA ATVINNUREKENDUR Í DAG  SVO AÐ EKKI ÞURFI AÐ HÆKKA LAUNIN UM EINN FLOKK OG RÁÐA NÝTT FÓLK Í STAÐINN ÞETTA HAFA SAMTÖK ATVINNULÍFSINS GERT OG EKKI SAGT EITT NÉ NEITT ÞVÍ ENGIN VIÐURKENNING  OG ÞVÍ MIÐUR ÞÁ KOMU ÞEIR ANDSKOTAR Í SAMNINGA MEÐ SAMNING VIÐ ASÍ( GYLFA) AÐ ATVINNUREKENDUR ÞYRFTU EKKI AÐ RÖKSTYÐJA UPPSÖGN!!!  EF AÐ ÞETTA YRÐI SETT INN AFTUR Í SAMNINGA ÞÁ VÆRI ATVINNULEYSIÐ MIKLU MINNA Á ÍSLANDI, ÞVÍ ASÍ SAMÞYKKTI ÞETTA Í SAMNINGUM Á ÞEIM TÍMA OG ÞESS VEGNA SÁU SAMTÖK ATVINNULÍFSINS SÉR LEIK Á BORÐI OG ÞETTA KOM INN Í SAMNINGA!  BURTU MEÐ GYLFA OG ÞAÐ VANTAR EINN GAMLANN EINS OG GVEND JAKA EKKI NEINA NÁBÓLU SEM AÐ VANTAR KRAFTINN OG ER MEÐ RÚMA MILLJÓN Á MÁNUÐI OG VITA TANNLAUS (ÞÁ ER ÉG AÐ TALA UM BEINSKEITTAN VILJA EKKI SLEIKJA EINN NÉ NEINN)   VIÐ SAMTÖK ATVINNULÍFSIS ER BETRA AÐ HALDA FRIÐINN AÐ GYLFA SÖGN???  ÞVÍ ÉG HEF MINN PENING OG ÞARF EKKI AÐ HAFA ÁHYGGJUR AF MÍNUM LÍFEYRI OG MÍNUM STARFSLOKASAMNING!!!! EINS OG AÐ ER HJÁ RÍKI OG BORG!!!! OG ÉG ÖRN INGÓLFSSON FER FRAM Á ÞAÐ ÞETTA  VERÐI VONANDI SETT INN Í ALMENNA KJARASAMNINGA OG EF EKKI ÞÁ VERÐUR ALLT VITLAUST ÞVÍ Á EKKI JAFNT YFIR ALLA AÐ GANGA ALLAVEGANA SAMKVÆMT SAMEINUÐU ÞJÓÐUNUM OG ÍSLAND ER NÚ EKKI BÚIÐ AÐ SAMÞYKKJA HITT OG ÞETTA FYRIR BANKAHRUN!! EN ÞAÐ VÆRI NÚ FLOTT EF AÐ ALMENNINGUR Á ÍSLANDI FENGI NÚ SMÁ UMBUN FRÁ GRÓÐAPUNGUNUM INNAN SAMTÖKUM ATVINNULÍFSINS ÞVÍ ÞESSI SAMTÖK SEM AÐ ERU ALLTAF OG HAFA ALLTAF VERIÐ SÍÐAN Á FYRSTU ÁRUM GRÓÐAHYGGJUNNAR ÁRIÐ 1944 EFTIR KRIST AÐ GRÆÐA OG ÞAÐ HEFUR SÍNT SIG AÐ BORGA MANNSÆMANDI LAUN! GRÆÐA GRÆÐA OG HVAÐ VARÐ UM ÞESSA VESALINGA NÚ VIÐ ÍSLENDINGAR ERM AÐ BORGA FYRIR ÞESSA VINI VISS FLOKKS OG ÞEIRRA SLEKTI! EN HVAÐ UM ÞAÐ ÉG BORGA FYRIR VESALINGA OG AUMINGJA SEM KOMU ÍSLANDI Á HAUSINN MEÐ MÍNUM SKÖTTUM OG ÉG SÉ EKKI EFTIR ÞVÍ EN ER ÞÁ EKKI KOMINN TÍMI FYRIR FYRRVERANDI EIGENDUR AF N1 OFL OLÍURISUM AÐ FARA AÐ GERA HREINT FYRIR SÍNUM DYRUM ÞVÍ EKKI ER ÚTSÉÐ MEÐ EIGNARHLUTI Í HINUM OG ÞESSUM FÉLÖGUM ÞÓ SVO AÐ AFSKRIFAÐ SÉ! OG LÍKA EITT ÞÁ ER ÁGÆTT AÐ FARA AÐ FÆRA HLUTI AF KONU OG BÖRNUM Á REIKNING SEM AÐ VERÐUR EKKI HÆGT AÐ HANKA EINN NÉ NEINN Á ÞVÍ EIGINKONA OG BÖRN MISSA ALLT SITT ÞVÍ MIÐUR OG TORTOLA OG HITT OG ÞETTA SKIPTIR EKKI MÁLI ÞVÍ ALLT VERÐUR FRYST EINS OG HJÁ JÓNI( EINS OG MÉR ALMÚGAKALLINUM)

ÖRNINN


Icesave búið húrra Serious Froid Office að elta skuldarana Gordon og Darling?

Jæja þá er það komið á hreint og nú þurfa Bretar og Hollendingar að leggja allt kapp á það elta uppi peningana sem að þessir frægu Íslendingar skutu undan og fluttu til Bretlands og líka um víða veröld! Því nú skíta margir af þessum útrásarvíkingum á sig vegna þess að þeir eru undir smásjá á Íslandi og verða undir kjarnorkusmásjá í Bretlandi eftir þetta og allar eignir hvort sem er eiginkvenna, barna, ættingja þetta verður allt fryst og skoðað ofan í kjölinn! Og þá þýðir ekkert að fara heim á klakann því í Bretlandi er SFO og það lögheimili sem að þessir kallar eiga á hverjum tíma skiptir engu máli þá verður bara send út alþjóðleg handtökuskipun á Interpol eins og var gert með einn af þessum svikahröppum og hann vesalingurinn skeit liggur við á sig og þorði ekki út úr húsi fyrr en að Sérstakur saksóknari aflétti handtökutilkynningunni til Interpol og sá kom heim með skottið á milli lappanna svo söng hann sko miklu meira en dirrendý við saksóknara til að bjarga sér og sínum en þá er eftir SFO í Bretlandi og þá verður ekki sungið dirrendý því það vantar helminginn af vinunum og reikningunum (milljarðahundruðin) !!

Örninn


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Örn Ingólfsson
Örn Ingólfsson

Er í mjög góðri vinnu. En get verið með ýmsar hressilegar skoðanir sem öðrum finnst stangast á við þeirra skoðanir og ég virði skoðanir annara þrátt fyrir bölv og ragn!

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.8.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband