30.11.2012 | 19:37
Vaðlaheiðargöng eða Tækjaþurrð Landsspítala Háskólasjúkrahúss!!
Jæja þá fær Íslenska þjóðin það beint í æð aðFjársvelti Landspítalans verður næstu árin með þessum voða gerningi því ég held að þessi ríkisstjórn samþykki það alveg örugglega þegar að þessi göng verða tilbúin að gjaldið verði 2000-3500 krónur hið minnsta!! Nei hefði þessi hauslausa ríkisstjórn með þingmenn sína í þessu kjördæmi gert það sem rétt var að kaupa ný tæki fyrir Landsspítalann þá hefði þjóðin verið sátt en þetta helvítis kjördæmapot þingmanna kjördæmisins er gengið út í öfgar! Ætli að þessir þingmenn hafi hótað stjórnaslitum ef göngin kæmu ekki? Mikið grunar mig það og annað að fólki sem ég hef rætt við finnst þetta sama. Endilega dragið þetta til baka því það verða einu atkvæðin sem þessi hauslausa Ríkisstjórn fá af svæðinum í kring ef að það verður þá er búið að bjarga göngunum! Helvítis fokking fokk segi ég bara því að nú halda líka hækkanirnar hans Okurgríms? áfram það er eins og að þessi hauslausa ríkisstjórn geri sér ekki grein fyrir því að fólk hættir að kaupa hitt og þetta með okursköttum Okurgríms og hans kollega! ÞAÐ ÞÝÐIR EKKERT AÐ BERA LAUNAKJÖR, KAUPMÁTT OG SKATTA VIÐ NORÐURLÖNDIN ÞVÍ ÞAR ERU LAUNIN MIKIÐ HÆRRI OG MIKLU MEIRA FÆST FYRIR LAUNIN EN HÉR Á OKURLANDINU! NEI NÚ VERÐUR ALGJÖRT HRUN Í ÞESSU LITLA FYLGI SEM EFTIR VAR OG ÞÁ KEMST HÆGRI STJÓRNIN AÐ AFTUR EINS OG VAR FYRIR HRUN ÞAÐ ER EINS OG AÐ ríkisstjórnin VILJI ÞAÐ MEÐ SÍNU HÁTTALAGI!!!!
SKAMMIST YKKAR OG FARIÐ AÐ NÁ Í STOLNU PENINGANA SVO AÐ FÓLK FÁI TRÚ Á KERFINU AFTUR!
ÖRNINN
![]() |
8,7 milljarðar tryggðir í Vaðlaheiðargöng |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.11.2012 | 03:09
Ísland, spilling? og samanburður við kaupmátt og kannski laun?
HUGLEIÐING
Af hverju stoppar Ríkisstjórnin ekki okur Innflytjenda vöru eða milliliða er það skattmann sem er að auka álögur sínar?
Nei Innflytjendur og Íslenskar afurðastöðvar kjöts hækka gengdarlaust sínar afurðir í skjóli hækkandi aðfanga á hinu og þessu og þess vegna væri það þjóðráð að þessir aðilar Sýni alþjóð hversu mikið þeir kaupa viðkomandi vöru á með öllum gjöldum síðustu 4 ár og þá með hækkunum líka þá er ég að meina Vörureikninga og Innflutningspappíra sem kannski mega ekki koma fyrir almenningssjónir til að sýna fram á lögmæti allra þessara gengdalausu hækkana og eða græðgi með hjálp kannski vissra innan sumra flokka með ítök ennþá á Alþingi sem vilja ekki viðurkenna neitt misjafnt hafi skeð fyrir bankahrun og eftir! Nú SS hefur hækkað sínar vörur all hressilega síðasta ár og ASÍ tók ekki eftir því, ostar hafa hækkað, svínakjöt í hæstu hæðum og samt er ASÍ og Samtök Atvinnulífsins með atbeina Ríkisstjórna síðustu 30 árin að segja alþjóð að við borgum miklu minna og eða sambærilegt við aðrar Norðurlandaþjóðir og Kaupmátturinn sé sambærilegur og eða sami!! Djöfulsins bull og kjaftæði ef að ég sem einstætt foreldri hefði flutt út til Norðurlanda eftir Hrun þá ætti ég upp nærri því nýtt einbýlishús á Íslandi með tekjurnar eftir Skatta þar!! Nú það er engin furða að skattpíningin á Íslandi sé svona rosaleg því það þarf að borga fyrir einkavæðingu bankanna og fjármálasukkið í kringum sukkið sem að vissir aðilar innan vissra stjórnmálaflokka högnuðust á og svo vill enginn innan þessara vissu flokka koma nálægt einhverri SPILLINGU? Og sverja svo af sér afglöpin og eru bara með Geislabauginn og deila á þá sem eru í kröggum með sitt en félagar vissra flokka fá hundruðir milljarða afskrifaða en ég fæ ekki sem almúgi afskrifaðar 25-30 þúsund krónur því ég skuldaði ekki svo mikið bara 250 þúsund Íslenskar gatakrónur! Og svo stofna þessir afskrifuðu ný fyrirtæki og með jafnvel milljarðaafskriftir á bak við sig? Og eignir upp á fleiri hundruð milljónir!! Nei SKÍTALYKTIN er svo svakaleg og það á eftir að verða uppreisn í þjóðfélaginu út af því af hverju var ekki gengið að öllum eignum og kannað ofan í kjölinn málamyndargerningur með eiginkonur, börn, frændur, ungabörn og jafnvel börn í móðurkviði óskýrt!!!!????
Ég bara spyr fyrir hönd þeirra sem töpuðu öllu sínu og nú munu skjólstæðingar viss hjúkrunarheimilis súpa seiðið af óráðssíu þeirra sem að voru kannski í vissum stjórnmálaflokk?? Ekki neitt nýtt eða hvað?
Örninn
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.11.2012 | 04:57
Ja hérna hárlengingar!
Nú er sá gamli kvumsa um að sumar konur þurfi í hárlengingar! Nú það er öldin önnur núna að fyrir fáeinum árum voru síðhærðar Íslenskar konur allstaðar á ferðinni þá með náttúrulegt samgróið hár með ýmsum litamismun og ekki þurftu þessar turtildúfur að kaupa sér hár til lengingar! En svona er bara tískan og kannski hafa sumar konur látið snoða sig í góðærinu og horfa svo á mynd af sjálfri sér í dag stuttklipptri og vilja endurvekja útlitið fyrir tugi þúsunda! Nú þetta er ákvörðun sem að konurnar tóku en þá ber þessum konum að fara eftir því sem að blessaðir hárlengingarmeistararnir vonandi með virðisaukaskattsnúmer á hreinu og allt löglegt og allar kvittanir í lagi svo hægt sé að fá leiðréttingu á hárinu þegar að það fer að flækjast og enda kannski svo inni á löglegri hárgreiðslustofu með allt í óefni og missa jafnvel hárið þannig að 4-6 millimetrar verða eftir og þá er kannski kominn tími til að kaupa sér hárkollu upp á 150-300 þúsund bara til að fela!! Hafa allt sitt á hreinu og hafa Löglegar Nótur!!
Ps: Fór sjálfur í snoð um daginn en því miður held ég að ekkert fáist fyrir grömmin mín og eða ekki nothæft::))
Örninn
![]() |
Hvaðan koma hárlengingarnar? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.10.2012 | 03:55
Byssur og skotfæri!!!
ÆÆ bíðum nú við nú var brotist inn hjá Skotfélagi og ég spyr bara hvaða félagi í Skotfélagi skilur Byssur og Skotfæri eftir nema til að láta stela? Er þetta eitthvað tryggingarmál?
Ég sem eigandi skotvopna þá ber mér samkvæmt LÖGUM að hafa SKOTVOPN Í LÆSTUM BYSSUSKÁP OG SKOTFÆRI EKKI NEMA Í LÆSTRI HIRSLU OG EÐA ÞAR SEM AÐ ENGINN ÓVIÐKOMANDI GETUR NÁLGAST!! Ennfermur ber mér að gæta fyllsta Öryggis og ekki að vera að LEIKA mér með byssurnar!! Nei þessvegna þarf að athuga öll vafasöm sambönd og dularfull og ég vona að Sauðkræklingar fari að vakna upp af dvalanum og fari að horfa í kringum sig og jafnvel að viðurkenna vandann af Kannabisreykingum og ræktun sem hefur því miður verið falinn af vissum?? En allaveganaþá vona ÉG ásamt fleyrum að Sauðkræklingar fari að láta vita af einhverri skrítinni lykt ( fyrir utan gambrann) því kannski kemur það í veg fyrir að börn og unglingar ánetjist eiturlyfjunum!!
Örninn.
![]() |
Biðu eftir strætó með skotvopn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.9.2012 | 09:09
Matarverð á uppleið VÁ!!
Þetta er ekkert nýtt að gengdarlausar hækkanir á matvöru ofl hafa dunið á Íslendingum síðastliðið ár og allt í einu kemur einhver kall úr Framsýn með kannski sína milljón á mánuði og gerir sér ekki grein eins og forystusauður ASÍ með ýfið hærri laun um kaupmátt launa og líka hækkanirnar á matvöru fyrir síðustu áramót og verkalýðsforkólfinum í ASÍ var bent á þetta margoft en hann hummaði fram af sér allar upplýsingar um þær gengdarlausu hækkanir sem að innlendir framleiðendur með verðsamráð? á öllum kjötmarkaði og ekki tók betra við Innflytjendur og milliliðir hækkuðu gengdarlaust? Og ekki datt þeim háa herra að benda forsætisráðherra á þetta eða gleymdi því og hann blessaður vesalingurinn? skrifaði undir framlengingu kjarasamninga í janúar 2012 enda þurfti hann ekki að kvíða hækkunum á matarverði ofl maðurinn með rúma milljón á mánuði á meðan að ég gæti verið með um 194 þúsund á mánuði og þegar að búið væri að borga nauðsynlegustu reikningana þá væri ég í mínus (og þyrfti jafnvel að fara að vinna svarta vinnu!?) og svo kemur forystusauðurinn í sjónvarp og kvartar allt í einu um daginn að það sé allt ríkisstjórninni að kenna hitt og þetta en honum blessuðum var nær að hanga í rassg... á Samtökum atvinnulífsins og samþykkja hitt og þetta! Nei blessaður varð tannlaus eftir að hann komst til áhrifa innan ASÍ og enginn skilur hvernig það varð? En allavegana þá ætti þessi tannlausi forystusauður ASÍ að fara að bíta ef að tennur sjást frá sér núna og fara að vinna LOKSINS fyrir sína félagsmenn af fullum krafti og hætta að blammera ríkisstjórnina því að eru SA sem halda niðri öllu og græða á okkur hinum með lágmarkslaun og sumir innan SA borga undirlaun? Og flytja inn fólk frá öðrum löndum sem borga lágmarkslaun sem eru frá 65-90 þúsund á mánuði fyrir 55-80 tíma vinnuviku og þess vegna er Ísland gróðastía fyrir farandverkamenn frá láglaunalöndum og SA hefur nýtt sér þetta undanfarin ca 3-4 ár og haldið almennum launum niðri og ekki gerði ASÍ nema eitt að samþykkja nauðarsamninga til að ja hvað? Kannski vænkar hagurinn fyrir kosningar en eftir það þá fer allt niður eða hvað? Bara spyr!!!!!
Örninn
![]() |
Matarverð er á uppleið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.9.2012 | 08:15
Fækkun á útgerðum!?
![]() |
Veiðigjöldin munu fækka útgerðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.9.2012 | 06:28
ASÍ og aðrir VERKALÝÐSFORKÓLFAR!!
Jæja þá er komið að því að ASÍ með Gylfa í fararbroddi viðurkenni sín mistök frá því í janúar 2012 með því að hafa skrifað undir framlengingu á samningunum þá!! Ég persónulega á bloggum hef sagt það að tannlausa forysta ASÍ með sín ofurlaun hafa samþykkt kjarasamninga og lepja upp og dansa eftir Samtökum atvinnulífsins að laun á Íslandi séu sambærileg við laun á NORÐURLÖNDUNUM OG RÍKISSTJÓRNIR FYRRI ÁRA BERA OKKUR ALLTAF SAMAN VIÐ NORÐURLÖNDIN!!! Nú er komið nóg með lygina af hverju er þá kaupmáttur launa, skattar þar með talið skattprósentan og einokunarálagning samráðsolíufélaganna svo miklu hærri hérna á Íslandi miðað við höfðatölu? Eru hagfræðingar heilalausir og gera sér ekki grein fyrir Almenningi og þá hljóta þessir hagfræðingar að vera á súperlaunum?? Og eða borgaðir jafnvel af ASÍ, SA og eða Seðlabankanum???? Bara spyr!!! Þessar tölur eru svo út úr kú að það hálfa væri nóg! Sæi ASÍ forkólfinn og SA líka reyna að lifa af sem einstætt foreldri með 2 unglinga af útborguðum launum eftir skatt 209 þúsundum og þá á eftir að borga húsaleigu, rafmagn, síma og jafnvel bíl með tryggingum upp á kannski 75-100 þúsund á ári, og spara bílatryggingar og sleppa bílnum en samt þá á ég sem einstætt unglingaforeldri andskoti lítið til skiptanna og á jafnvel ekki til pening til að kaupa nesti í skólann handa börnunum! Nú held ég bara að ég fari að gera eins og hinir að fara að vinna SVART!!!! Það virðist vera svo lítið um svarta vinnu!! Allavegana vantar eftirlitið og mætti kannski taka brot af launum ASÍ forkólfsins og líka SA til að stemma stigu við svörtu vinnunni en það má ekki þá þurfa sumir atvinnurekendur innan SA að fara að borga mannsæmandi laun og ráða Íslendinga á TÖXTUM!!! Þannig að það vantar ekki yfirlýsingarnar hjá Gylfa um að samningarnir séu brostnir það er honum sjálfum að kenna að hafa Skrifað undir í janúar undir pressu frá SA því við verkalýðurinn hefðum haft miklu sterkari stöðu í dag, en nei ASÍ skrifaði undir og þá hefðum við getað pressað betur á Ríkisstjórnina og það þýðir ekkert að vera kenna stjórninni um vanvitaglöp formanns ASÍ???? Eða hvað? Spyr sá sem setur kannski bara leppana eins og gert með með hross og þá horfir hrossið beint áfram og heldur áfram í blindni og fylgir sínum stjórnanda jafnvel út í dauðann og djö...!!!!!! Samanber kosningar undanfarna áratugi það er kannski grænna hinumegin við lækinn!!
Örninn
![]() |
4-6 sinnum hærri laun í Noregi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.9.2012 | 04:52
85,2 % úthlutað frítt?
![]() |
50 stærstu eru með 85% kvótans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.8.2012 | 18:29
SS hækkar til bænda!!
Já bændur þurfa sitt ekki spurning en er þá ekki ráð að fara að minnka niðurgreiðslur til þeirra? En það er ekki málið með þessum pistli því SS hefur hækkað gríðalega sínar vörur síðustu 2 árin og virðist ekki vera neitt lát á því. Það væri gaman að láta neytendastofu athuga allar þessar hækkanir á kjötvörum frá SS!! Nú og ég tel líka að samráð sé líka í gangi milli þessara sem stjórna kjötmarkaðinum því það er ekki eðlilegt hvað þeir samræma sín verð því samkeppnina verður maður ekki var við allt sama og eða mjög svipað verð! Það má lengi tala um þessar hækkanir en því miður gerir enginn neitt og allir taka þessum hækkunum þegjandi og hljóðalaust því Íslendingar eru svo rosalega dofnir ennþá og þora svo ekki að segja neitt því miður!!
Örninn
![]() |
SS hækkar verðið um 6,6-7% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.8.2012 | 08:40
Pólitískt hugrekki?
Já Björn það mætti tala lengi um pólitískt hugrekki og það eru ýmsar skoðanir á hlutunum! Ég ætla ekki að fara að agnúast út í þig bæði sem persónu og fyrrverandi ráðherra. En fyrir utan það þá vildi svo illa til að það varð gjaldþrot Íslensku þjóðarinnar á kostnað misviturra samflokksmanna þinna því miður! Og Íslenska þjóðin er búin að vera að súpa seyðið af því og verður það næstu áratugina því miður! En það sem svíður Íslendingum mest að margir samflokksmenn þínir notuðu suma menn innan Ríkisstjórnarinnar á þeim tíma til að sölsa undir sig hin og þessi fyrirtæki með hjálp bankanna sem að voru víst einkavæddir (Gefnir) og því miður Björn þá vantar nokkur hundruð milljarða sem eru falin einhversstaðar til að koma landinu upp úr skítnum sem að sú gerræðislega ákvörðun sem var ekki borin undir þjóðaratkvæðisgreiðslu svo hægt væri að athuga vilja þjóðarinnar á þeim tíma! En nei því miður Björn þá hefur ekki þótt réttlætanlegt að halda svoleiðis atkvæðagreiðslu vegna þess að þá myndu einhverjir flokksbræður þínir tapa einhverju! Þjóðaratkvæðisgreiðsla var og er bannorð innan þíns flokks og því miður eru þær kreddur allsráðandi hjá ykkur en samt þá er farið að hrikta í stoðunum hjá ykkur því gamla valdaklíkan sem var allsráðandi er að falla frá sinni einokun og nýir græðgispúkar að reyna að velta ykkur gömlu úr sessi. En Bankaeinkasalan er ekki gleymd og sumir heilaþvegnir Íslendingar sem vilja ekki vita neitt illt hafi gerst eru svo stækir flokksbræður þínir að afneitunin er svo algjör og því miður að í sumum fyrirtækjum þar sem að stækir flokksbræður þínir eru við völd þá hika þeir hinir sömu ekki við að reka starfsmenn sem að eru ekki á sömu skoðun og þeir og ég hef lent í því því miður!!!
En allavegana Björn þá bara óska ég þér velfarnaðar á þínum elliárum og mikið ósköp vildi ég fá eitthvað af mínum milljónum sem töpuðust í einkabankahruninu en það er borin von nema að setja kannski einhverja í fangelsi því þá tísta turtildúfurnar og kannski segja frá hvar milljarðarnir eru því það er farið að skjálfa undir vissum mönnum og bankaleyndin er að hverfa!!!!
Örninn
![]() |
Málið snýst um pólitískt hugrekki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Kjaramál
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Samgöngur
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.8.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar