Ísland til sölu!

Jæja þá er eins gott að fara að koma sér af landi brott því núna skeit blessuð gæsin all hressilega á Íslenskan almenning. Ég veit ekki betur en að útlendingar hafi verið að kaupa upp jarðir í stórum stíl í tíð hrunríkisstjórnarinnar og svo setti Ögmundur skorður við áframhaldandi ógerningi! Nú þá verður Nubó barasta búinn að kaupa upp allt Ísland! Ég veit ekki hvað er í gangi því núna held ég að þetta litla álit kjósenda ríkisstjórnarinnar sé farið. Þvílíkt gróðabrall og já hvað? Voru kannski einhverjir peningar sem skiptu um hendur? Hvar eru þeir sem eiga að rannsaka spillingu kannski innan spillingarinnar? Fólk er farið að velta fyrir sér hinu og þessu og er þetta kannski ekki eitthvað sem á að SETJA í ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLU? Nei því miður hefur flokkur hennar alltaf verið á móti svoleiðis löguðu því samanber einkavæðing bankanna og svo margt fleira! Ekki hjálpar þetta ríkissjóði en er þá ekki kominn tími til að ná í peningana hjá KVÓTAGREIFUNUM sem skarta á skattskránni efstir! Nei það má ekki heldur á að fella niður auðlegðarskattinn svo að þessir kallar og kjéllingar geti grætt meira! Þetta er bara sannleikurinn og virðist vera bara allt í lagi hjá almenningi sem að varla á ofaní sig og á 185000 á mánuði fyrir utan skatt og svo gleyptu sumir af þessum gullflögur með útrásarvíkingunum og fá afskrifaða hundruðir MILLJARÐA! Er þetta sanngjarnt! Nei það er eitthvað helvíti mikið að dómskerfinu, og SKATTINUM þarna þarf að fara að breyta einhverju en það verður ekki gert á meðan þessir flokkar eru við völd því það verða bara einkalög sett til varnar STÓREIGNAFÓLKI skítt með almenning eins og hefur sýnt sig frá byrjun flokks hennar sem hefur bara stólað á að græða og borga sem minnst laun því það má ekki hækka hjá almenningi þó svo að bossarnir hækki um tugi prósenta og segja því miður er ekki hægt að hækka launin hjá þér!

Örninn


mbl.is Nemur reglugerð Ögmundar úr gildi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Örn Ingólfsson
Örn Ingólfsson

Er í mjög góðri vinnu. En get verið með ýmsar hressilegar skoðanir sem öðrum finnst stangast á við þeirra skoðanir og ég virði skoðanir annara þrátt fyrir bölv og ragn!

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 10195

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband