Færsluflokkur: Löggæsla

Schengen samstarfið hvað!!

Nýjasta dæmið og þetta vildi ríkisstjórn DO og BB á þeim tíma og enda hefur það sýnt sig með glæpaöldu erlendra glæpagengja undanfarin ár sem valsa óáreittir um okkar land! Skil ekki af hverju er ekki löngu búið að segja upp þessum Schengensamning og þá myndi mikið af eiturlyfjasmygli ofl detta út vegna vegabréfaskoðunar því það valsa ýmsir um landið eins og fréttin ber með sér og þá mætti auka löggæsluna ásamt tollgæslunni með auka hátekjuskatti á þá sem hafa yfir 20 milljónir á ári í laun og gera svo eins og Frakklendingar 75 % skatt á þá sem eru með yfir td 60+ milljónir á ári!! En það má víst ekki hrófla við kvótakóngum og elítunni sem að á Ísland enda hefur það sést með ákvörðunum ríkisstjórnarinnar sem er við völd í dag!! Láta láglaunafólkið borga fyrir óráðssíuna þeyrra eins og vanalega!!

Örninn

 


mbl.is Stal peningum úr söfnunarbauk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smáís ofl!

Jæja sýslumaður hafnaði lögbannskröfu gegn fjarskiptafyrirtækjunum vegna beiðni um lokun á vissar skráarskiptasíður! En ég hlustaði á viðtal á Bylgjunni þar sem rætt var við Snæbjörn framkvæmdastjóra Smáíss en í því viðtali kom ekkert fram hversu mikið öll samtökin sem standa að kröfunni hafa fengið frá ríkinu í formi skatta sem að voru settir á alla skrifanlega diska, spólur ofl og áttu að vega á móti niðurhali, kópíeringu ofl! Nú er þá ekki kominn tími til að ríkisstjórnin láti þá skatta renna til réttlátra ef að þeir hafi ekki fengið sinn skerf nokkur hundruð milljónir frá byrjun? Þá er kominn tími til að blessaðir rukki ríkið um skattinn því með þennan skatt hefur verið svolítið skrítið að örfáir menn ( peningamenn?) hafi getað haft svo mikil ítök á þingmenn sem samþykktu þetta að það er kominn tími til að athuga um mútugreiðslur samanber fréttir í kvöld á ljósvakamiðlum að Ísland sé eftirbáti ýmissa þjóða í sambandi við rannsókn á mútum og þá verðum við að fá erlenda rannsóknarmenn til að kafa eftir spillingunni ekki neina sérskipaða flokkspólítíkusa á fullum launum kannski til að fela eitthvað!

Örninn


Eiturlyf og dómarnir!

Jæja það er nú vonandi að núverandi ráðherra dómsmála leggi fram á Alþingi okkar Íslendinga? tillögu um breytingar á hegningarlögum þannig að allir sem rækta, meðhöndla og flytja inn eiturlyf verði dæmdir í mestu mögulegu refsingu ekki minna en 6 ára fangelsi! Því þetta böl hefur tröllriðið Íslandi undanfarna áratugi og því miður hafa höfuðpaurarnir sloppið alveg vegna þess að dómarnir eru svo fáránlegir hérna á Íslandi og til dæmis burðardýrin fyrir peningamennina myndu ekki kjafta  frá fyrr en að þeim væri gerð grein fyrir td. 6 ára fangelsi hið minnsta! Það er óopinbert leyndarmál að peningakallar spila stórt hlutverk í innflutningi eiturlyfja því ekki hefur almenningur efni á því að senda einhvern til að kaupa svona magn og kannski miklu meira! Því miður virðist það vera að sterku efnin séu notuð af efnameira fólki sem hafa yfrið nóg af peningum svokallað tískan að taka í nös! Og annað að ræktendur kannabis fá væga dóma en samt tröllríður kannabis öllu á Íslandi því ætli að innflutningur hafi bara ekki lagst af bara út af vægum dómum, því ræktendur kunna víst orðið á Lögregluna því það er kannski engin Lögregla til að fylgjast með út af niðurskurði. Og annað þá mætti alveg fresta framkvæmdum með nýtt fangelsi á Hólmahálsi og byggja við Litla Hraun því þar er nóg plássið til viðbygginga. Og líka má nefna það að Hótelfangelsin eru liggur við eftirsótt af erlendum glæpamönnum fyrir Lúxusinn og vilja alls ekki láta framselja sig til síns heimalands þar sem að enginn lúxus er þar með talið tölvur með netsambandi og svo miklu meira eins og föngum býðst hérna heima!! Það væri kannski gustukur að koma svipuðu kerfi í fangelsismálunum eins og er úti í Ameríku enginn lúxus! Nei herða lögin og þá kannski fara þessir ólánsmenn að segja frá en kannski má ekki herða lögin til að hlífa einhverjum peningaköllum sem kannski hafa ráðið einhverju og ráða ennþá?? En eins og er í öðrum löndum tekið harkalega á eiturlyfjasmygli og í sumum löndum er dauðarefsing samanber fréttir af konu frá Bretlandi nýlega og í þeim löndum þá er þetta lítið vandamál því það er upprætt strax. Þannig að það má eins og að ofan greinir herða löggjöfina hressilega og þá kannski koma ýmis nöfn í ljós sem hafa verið falin undanfarna áratugi! Hvað finnst ykkur Íslendingum réttlátt að klappa á öxlina og dæma í 2-3 ára fangelsi eða sex ár hið minnsta því með að breyta lögunum þá væri hægt að bjarga fleiri hundruðum ungmenna frá fíkniefnasölum sem tröllríða Íslandi og veigra sér ekki við að selja grunnskólabörnum fyrir utan skólalóðir! Þess vegna Íslendingar verið vakandi og tilkynnið allt óeðlilegt sem að þið þekkið ekki í kringum skóla og einnig heimili og takið niður útlit og kannski bílnúmer því þetta hefur hjálpað Lögreglunni mikið þó fámenn sé og upplýst marga glæpi! En þetta eru mín skrif og vonandi lesa einhverjir þennan pistil og fólk fari að hugsa sig tvisvar um að hlífa einhverjum sem að kannski selur eiturlyf og þorir ekki að segja frá af ótta við hefndaraðgerðir en það er bara til að þagga niður Vandamálið! Svo endilega hringið og látið vita um eitthvað grunsamlegt! Og ég veit að þessi pistill á eftir að rata í hendur einhverra og veit að ég á kannski? eftir að fá eitthvað? Hver veit.

Örninn


mbl.is Mynstur í innflutningi kókaíns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofbeldi!

Já þetta var hroðalegur verknaður og vonandi kemst fórnarlambið til góðrar heilsu. En því miður þá eru hrottar sem hafa stundað ýmisskonar ofbeldisverk lausir vegna að ég ásamt fleirum höldum út af hræðslu dómara gagnvart hrottunum að dómarar bæði í Héraðsdómi og Hæstarétti séu hræddir við að dæma þessa hrotta í fangelsi! Nú það geta verið ástæður fyrir því beinar og óbeinar hótanir hrottanna gagnvart yfirvaldinu og þá líka sérstaklega gagnvart Lögregluþjónu sem þurfa að lenda í þessum hrottum og er þá ekki kominn tími fyrir tilvonandi nýjan dómsmálaráðherra að þyngja refsingar? Nú er ég nú ekki svo lögfróður en samt hefur mér fundist anzi léttvægir dómar yfir svona hrottum í gegnum árin það liggur við að þeim sé klappað á öxlina og sagt að gera þetta ekki aftur allavegana er það mín og fleyri tilfinning því búðarþjófur fær jafnvel þyngri dóm? En ég held að það sé kominn tími til að fara að taka dómsmálin í gegn og þá líka að athuga með alla erlendu brotamennina hvert að það væri nú ekki ráð að fara að senda þá heim til sín í afplánun eftir dóm því nógur er biðlisti eftir afplánun íslenskra brotamanna. Og ég segi þetta um erlendu brotamennina því það virðist vera eftirsókn hjá þeim að vera á Hótel Litlahrauni í lúxusfangelsinu með allt en kannski í heimalandinu er ekkert svoleiðis því að kannski er fangavistin gerð til að refsa en ekki lúxus þar með talið internet, sjónvarp ofl! Það væri gaman að vita hversu margir erlendir ríkisborgarar hafa gist Litla Hraun undanfarin 10 ár og hvað uppihald hefur kostað þar með talinn túlkakostnaður ásamt fleyru! En ég veit ekki hvernig samningar eru á milli landa um framsal brotamanna! Við Íslendingar  höfum alveg nóg með okkar afbrotamenn! Og kannski styttist biðtíminn eftir afplánun því það er ekki eðlilegt að manneskja sem hefur snúið af villu síns vegar að manneskjan sé boðuð í afplánun kannski þremur árum seinna manneskjan komin með börn og buru!

Örninn


mbl.is Búið að handtaka tvo árásarmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

A Lögreglan á Íslandi að vopnast?

Nei alls ekki vegna þess að þá verða lögreglumennirnir okkar skotmörk fyrir glæpahópa og aðra vitleysinga sem að myndu ekki hika við að drepa lögregluþjón(a) til að ganga í augun á félögum sínum og til að vígjast inn í hina og þessa glæpahópa samanber það sem hefur gerst og er að gerast með svokallaða mótorhjólatöffaraglæpamenn í ýmsum klúbbum hér á Íslandi þá er þetta bara það sama sem að hefur viðgengist með þessa klúbba af mótorhjólatöffaraglæpamönnum víða um heim! Enda er verið að úthýsa þessum gengjum í ýmsum löndum og jafnvel er farið að tala um það að banna algjörlega svona glæpahyski eins og fólk sem hefur orðið fyrir barðinu á þeim og því miður þá spratt upp mótspyrna kannski með réttu á áttunda áratugnum hjá þessum gengjum út í Ameríku gagnvart fólki sem að vílaði ekki fyrir sér að Skjóta mótorhjólamenn samanber myndin Easy Rider ofl, því að það voru skemmdu eplin sem að eyðilögðu fyrir hinum! Nei ekki að vígbúa Lögregluna, en aftur á móti mætti fjölga sérsveitarmönnunum þegar að búið er að ná í milljarðahundruðin sem að félagar og flokksbræður þeirra sem sitja í gæsluvarðhaldi og voru viðriðnir(ar) hrunið komu undan og vona ég eins og flest allir Íslendingar að fleiri verði handteknir

Örninn


mbl.is Nýtt met í vopnasölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svört vinna!?

Því miður þá eru vissir atvinnurekendur bæði fyrir hrun og sérstaklega eftir hrun sem vilja bara borga 50/50 og þar eru stórtækir leyfishafar atvinnuleyfa útgefnum til leygubílaaksturs og held ég að það ætti að gera gangskör í því að skoða þá stétt en ég er ekki að tala um að allir leyfishafar séu krimmar en mér hefur verið boðið að borga 50/50 en tók því ekki og fór út úr leigubílnum og hann brunaði í burtu með skyggða númeraplötu þannig að ég gat ekki sent inn ábendingu! Sá leigubíll var merktur ákveðnu fyrirtæki í Reykjavík og sá sem bauð mér þetta var Íslendingur á því sem ofan greinir 50/50! Ennfremur eru margir harkarar sem að bjóða fólki far fyrir lítinn pening og ég veit að leigubílstjórum gremst þetta mikið og sumir leiðast út í 50/50! En allavegana þá á að byrja að skoða þetta líka því þarna eru margir milljarðar sem tapast í tekjum og þá mætti athuga með eitt með þessi atvinnutæki hversu margir kílómetrar væru eknir án þess að mælir sé í gangi því ég hef séð leigubíla með taxamerkið úr Reykjavík á Akureyri, Ísafirði og síðast í sumar á Seyðisfirði og spurði ég bílstjorann hvað túrinn kostaði austur en hann sagðist bara vera á ferðalagi með fjölskylduna! Ok ég bara spyr nú fá þessir atvinnubílstjórar niðurfelldan skatt og virðisaukaskattinn endurgreiddann þannig að má ég ef að ég er leigubílstjóri fara hvert á land sem er með familíuna á niðurgreiddum nýjum leigubíl og fá niðurgreitt með því að senda inn virðisaukanótu allan kostnað? Já ekki veit ég en veit að margir svona bílstjórar nota þetta grimmt! Er þá ekki kominn tími til að svona verði líka rannsakað ásamt öllum hinum skattsvikunum og fjölga þá í rannsóknarliðinu!!!

Ég bara spyr!!!

Örninn


mbl.is Háir skattar skýra ekki skattsvik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grenjuskjóðurnar í flokk BB og fyrrverandi dómsmálaráðherra BB!!!

Nei nú er komið nóg það er ekki hægt að kenna þessari ríkisstjórn um SÖLU BANKANNA TIL VILDARVINA sumra innan flokks núverandi formanns og fyrrverandi formanna Sjálfstæðisflokksins bara til að FELA SPILLINGU? einhverra vildarvina flokksins? Af hverju gerði fyrrverandi dómsmálaráðherra ekki neitt í því þegar að hrunið varð að byrja að frysta eignir vildarvina flokksins? sem að honum sem dómsmálaráðherra var heimilt? og líka að setja farbann á spillingarforkólfana? en því miður þá voru flest allir búnir að færa sínar eignir á börn og buru svo að ekki væri hægt að ganga að spillingarpeningunum, og hver var dómsmálaráðherra þegar að hrunið varð? Já og eftir hrunið líka þá fóru spillingarmilljarðarnir úr landi út af AFSKIPTALEYSI FJÁRMÁLAEFTIRLITSINS Á ÞEIM TÍMA OG EKKERT GERT!!!!!Nei setja LÖG sem eru afturvirk á svona óþjóðalýð og sækja alla til saka og athuga alla gjörninga hjá öllum alveg frá einkavæðingu bankanna og fram á daginn í dag því það er ekki eðlilegt hvað sumir innan vissra flokka græddu óvænt? eftir einkavæðinguna! Nei held að flokkur 2XBB ættu að fara að koma hreint fram því það er engin furða að þessir apar heimti kosningar núna til að fela hitt og þetta sem ekki má segja frá og alls ekki komast í dagsljósið! Eða HVAÐ ER SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN AÐ FELA ÁSAMT FRAMSÓKNARFLOKKNUM SEM AÐ VORU NÚ HRUNFLOKKARNIR ERU ÞEIR ORÐNIR HRÆDDIR VIÐ AÐ SANNLEIKURINN KOMI Í LJÓS Á NÆSTU DÖGUM? ÞVÍ ÞAÐ VAR EKKI ÞESSI RÍKISSTJÓRN SEM BYRJAÐI Á AÐHALDSAÐGERÐUM Í HEILBRYGGÐISKERFINU HELDUR HRUNFLOKKARNIR SEM AÐ Á VISSU TÍMABILI TÓTEKJUTENGDU BARNABÆTUR ÞANNIG AÐ ÞEIR SEM HÖFÐU MESTU LAUNIN FENGU HÆÐST EN ÞEIR SEM AÐ VORU YFIR 250 ÞÚSUND FENGU EKKI NEITT Svona var þetta með fæðingarorlofið sumir höfðu 800 þúsund á meðan að aðrir höfðu 75-90 þúsund krónur!!! ER ÞETTA JAFNRÉTTI? NEI ÞAÐ Á AÐ VERA SAMA KRÓNUTALAN FYRIR ALLA LANDSMENN ÓHÁÐ TEKJUR EN ÞETTA MÁTTI VÍST EKKI OG ÞESS VEGNA HÆKKUÐU LAUN OPINBERRA STARFSMANNA SAMKVÆMT KJARADÓMI UM 35% Á MEÐAN ALMENNINGUR FÉKK 2-4% OG VAR RÍKISSTJÓRN XD-XB ÁNÆGÐ MEÐ ÞESSAR LAUNAHÆKKANIR ALMENNINGS EN EITT SKULU FORMENN BEGGJA FLOKKA VIÐURKENNA Í DAG ÞVÍ EINN FORMAÐUR MEÐ ANNAN Í EFTIRDRAGI SAGÐI FYRIR FRAMAN ALÞJÓÐ AÐ ÞAÐ VÆRI ENGIN FÁTÆKT Á ÍSLANDI!!!!! ÞANNIG AÐ Á ALMENNINGUR AÐ KJÓSA VESALINGANA SEM SELDU BANKANA TIL VILDARVINA SVO AÐ SPILLINGIN GETI HALDIÐ ÁFRAM? NEI NEI NEI

ÖRNINN


mbl.is Hvetur til friðsamlegra mótmæla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórhættulegt!!!!

Vonandi nást þessir vesalingar sem fyrst og ég bara bið alla Bolvíkinga og aðra að tilkynna þessa menn(konur) strax til lögreglunnar því svona útkall hjá tveimur slökkviliðum er svakalegt með það í hugaað ef að eitthvað hefði skeð alvarlegt á báðum stöðunum. Nei upp með leynilögguna í  ykkur og segið til þessara einstaklinga svo hægt verði að koma þeim undir hendur lögreglunnar svo að þetta verði VÍTI TIL VARNAÐAR FYRIR HINA!! Þó svo að þetta hafi kannski verið strákapör? þá held ég að það vanti margar blaðsíður í sumt fólk og kennir sölumönnum flugelda að selja ekki fólki yngri en 25 ára svona blys!!!Og flýtir fyrir löggæslumyndavélum í leiðinni með tilheyrandi kostnaði fyrir byggðarlögin með auknum álögum á íbúa í formi hækkunar á útsvari er það þetta sem fólkið  þarna vill? NEI!!!!

Örninn


mbl.is Málið litið alvarlegum augum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÆÆ búin yfirheyrslan og ekki Gæsluvarðhald?

Nú er ég einn af 98% heiðvirðra Íslendinga sem að kom ekki nálægt þessu hruni á Íslandi en þurfti að taka afleiðingunum af því á ýmsan hátt! Nú kemur Sigurður Einarsson glaðhlakklegur fram í fjölmiðlum og segist vera með hreina samvisku! Nú blessaður sakleysinginn var eftirlýstur af INTERPOL og breska löggan gerði ekki neitt ja held bara af hræðslu við fjárglæframenn innan Bretlands og utan því ekki gerðu þessir Bresku löggæslumenn Neitt og kemur það örugglega út af fjárstuðningi til breskra flokka sem að eru í ríkisstjórn á hverjum tíma! Nú ok Sigurður er búinn að hafa allan þennan tíma til að gera áætlanir ásamt sínum lögfræðing og ekki veit ég hversu margar ferðir ef svo er lögfræðingur hans hefur farið út til hans með gögn? Og það væri gaman að sérstakur Saksóknari gerði strax grein fyrir því opinberlega hverskonar samning hann gerði við Sigurð því á ekki JAFNT yfir alla að ganga? Nei það virðist ekki vera, ekki var blessaður ódámurinn settur í Járn við komuna til landsins og ekki heldur  Gæsluvarðhald eins og aðrir í kringum þetta mál og ég held sem Íslendingur að það sé Svakaleg skítalykt af þessu öllu saman!!! Nú það er gott að geta sammælst við hina ódámana til að tala sig saman þetta er bara eins og í amerískum glæpareyfara og eða bíómynd. Nei svör strax til hinnar Íslensku þjóðar því þjóðin á heimtingu að vita hverskonar samning ódámnum var boðið annars verður embætti sérstaks Saksóknara ekki trúað og eða treyst. Upp með sannleikann og inn með Sigurð í gæsluvarðhald strax enga helvítis linkind við svona fólk, almenningur fær ekki svona meðferð ef að eitthvað gerist þá er gæsluvarðhald strax út af einhverjum rannsóknahagsmunum! En breska löggan hún á bara skít og skömm skilið út af vandræðagangi krúnunnar og held bara að dómarar og lögmenn í Bretlandi ættu að fara að koma sér til nútímans og leggja niður hárkollurnar og lögin sem að eru sum frá sautján hundruð og ég veit ekki hvað. En hvað með það þetta með Sigurð sýnir bara hversu misskipt þetta er á milli Almúgans og svikahrappa en almúginn er dæmdur í hæstu refsingu en hvítflibbarnir sem eiga peningana þeim er liggur við klappað á bakið og fá kannski einhverja málamynda refsingu!!

Nei réttlætið skal vera jafnt yfir alla ekkert helvítis hálfkák já ég blóta og vill bara að Rétt sé bara Rétt.

Örninn


mbl.is Yfirheyrslu lokið í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já flott!

Frábært!! Hvernig væri nú að yfirmaður fangelsismála á Íslandi hefði nú samband við Angelu Merkel kanslara Þýskalands til að fá leigð fangelsisrými fyrir þá Íslendinga sem nauðsynlega þurfa að komast í vistun og búið er að kvarta yfir og ganga enn lausir! Nú þá væri hægt að koma einhverju af hvítflibbagenginu sem kom landinu á hausinn í GÆSLUVARÐHALD og láta þá svitna! Nú en með flutninginn nú fangarnir þyrftu að borga sjálfir með auknum dómi eða samfélagsþjónustu á Reynslulausn þangað til að væri búið að borga upp fargjald ásamt öllum þeim gjöldum sem hljótast út af dómum þar með taldar skaðabætur ofl! Er þetta óraunhæft? Já og Nei en er ekki viss um að það yrðu nein Lúxusfangelsi eins og á Litla Hrauni og fangarnir yrðu ekki hrifnir af því að missa lúxusinn sem að þeir ættu kannski von á Hrauninu!

 

ÖRNINN


mbl.is Fangar velkomnir til Þýskalands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Örn Ingólfsson
Örn Ingólfsson

Er í mjög góðri vinnu. En get verið með ýmsar hressilegar skoðanir sem öðrum finnst stangast á við þeirra skoðanir og ég virði skoðanir annara þrátt fyrir bölv og ragn!

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 65
  • Sl. viku: 136
  • Frá upphafi: 9976

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 132
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband