Færsluflokkur: Löggæsla

Sjálfboðaliðabjörgun númer?

Mikið skuldar Íslenska Ríkið undanfarna áratugi Björgunarsveitum á Íslandi öllum saman sem eru undir nafninu Landsbjörg í dag! Því það kostar óhemju peninga að vera með Björgunarsveitir um allt land með allan sinn búnað og hugsið um að ef að búnaðurinn er ekki fyrsta flokks þá getur sá búnaður skilið á milli lífs og dauða! Margir stjórnmálamenn hafa notið góðs af óvæntri þjónustu Björgunarsveita um allt land og lofað hinu og þessu! Efndirnar hafa verið 5% af 100%sentum! En það væri gaman að vita hversu margir þingmenn kunni skyndihjálp 1 sem að ég held bara að  ansi fáir því ekki fékk ég hjálp fyrir 3mur árum síðan þegar að ég þurfti að hnoða og blása og 3 þingmenn stóðu og horfðu á þangað til að manneskja hjálpaði við blásturinn þangað til að Neyðarbíllinn kom! Það kannski kom þeim ekkert við en samkvæmt lögum ber okkur skylda til að hjálpa í neyð og öllum björgunaraðilum er heimilt að æskja manneskju um aðstoð og ef sú manneskja neitar aðstoð og getur ekki gefið haldbærar skýringar á neituninni þá er hægt að sækja þá manneskju til saka!

ÖRNINN

 


mbl.is Vélarvana bátur sóttur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Önnur göng?

Jæja nú er kominn tíminn sem settur er fram upp á ný Hvalfjarðargöng! Því gjaldfrjálst á að vera fyrir ALLA Íslendinga árið 2018! Og er þá ekki kominn tími til að fara að rukka bílaleigurnar og rútufyrirtækin fyrir alla sína ferðamenn sem fara um göngin PER HÖFÐATÖLU? Og láta fyrirtækin borga sína bíla fullu verði líka enda engin furða að það séu svona margir bílaleigubílar í umferð enda allt nýjir bílar sem bíla og hópferðafyrirtæki fá virðisaukaskattfrjálst. Bílaleigur leigja sína bíla út án eftirlits og geta leigt út bíla sem hvergi koma fram á skýrslum! Rútufyrirtækin mörg hver gera þetta líka! Og þess vegna ætti að setja búnað í alla bíla sem getur staðfest ekna kílómetra því mörg hundruð milljónir+ eru svikin undan skatti bara út af slælegu eftirliti og jafnvel engu! Þess vegna legg ég til að sá búnaður verði settur í þessi ökutæki ásamt leigubílum sem margir eru í harki því margir leigubílstjórar fá aðra til að keyra fyrir sig út á sitt leyfi og eru ábyrgðarmenn fyrir tjóni sem harkararnir valda upp á 50/50 hlut!

Örninn

 


mbl.is Ný göng á teikniborðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mafían í öðru veldi komin á koppinn!

Mikið andskoti hlýtur kjósendum BF að líða vel í dag! Nú ekki skilur almennur kjósandi sleykjuganginn og hækjuganginn  með frænda Bjarna Ben í stjórnarmyndunarviðræðum! Eitthvað er ekki í lagi fyrst að fólk er farið að flýja flokk Óttars sem að ég kaus ekki, en ég held að sá maður ætti að fara frá þessum viðræðum því að það drepur hans flokk og trúverðuleika hans sem stjórnmálamanns í framtíðinni! Og það versta er að hafa gerst hækja Benedikts í Viðreisn hefur kollvarpað öllu áliti á þeim flokki sem hann var kosinn til ásamt mörgu góðu fólki. Því miður hefur Morgunblaðið ekki blásið út Tortóla og eða Panamaskjölin og skýrsla sem að ráðuneyti fjármálaráðherra BB er bara núll og nix! Því ekki komu nein fyrirtæki fram nema bankar og eignarhald fólks innan vissra stjórnmálaflokka ekki neinnstaðar! Hvítþvegin skýrsla á kostnað ALMENNINGS! Og er þá ekki kominn tími fyrir Morgunblaðið að upplýsa sína áskrifendur bæði í blaði og á mbl.is um afskriftir ásamt KENNITÖLUFLAKKI Sjálfstæðismanna sem vilja ekki afnema það helvíti sem hefur kostað ALMENNING 350 milljarða á síðustu tæpum fjórum árum! Ekkert mál segja þeir því Ísland er best í heimi og engin spilling í Bananalíðveldinu ísland!! En allt í lagi nú skulum við hugsa um Viðskiptasögu og Fjármálagjörninga Bjarna Ben og frænda hans Benedikts! Þá er ágætt að kýkja á Wikipedia og líka gúggla fréttir! Svona er þetta bara og vonandi eða kannski opna kjósendur augun í réttu ljósi ekki grænt eða blátt! Því þessir litir hafa kostað almenning um ca 1275 milljarða enda sést það með heilbrigðiskerfið ofl og svo eru ekki til peningar kannski allir úti á Tortóla eða?

Örninn

 


Hjólreiðar innan Reykjavíkur!

Þó svo að hjólastígar hafi verið lagðir sérstaklega með umferðargötum til aðgreiningar fyrir hjólreiðarfólk samanber Hofsvallagatan þá hefur það komið nokkrum sinnum fyrir að hjólreiðarfólk hefur farið út af sinni braut þvert fyrir bíla með tilheyrandi aftanákeyrslum þar sem ekki hægt að sanna hver var tjónvaldur þá lenda báðir tjónþolar fyrir skaða! Og því miður hef ég lent margoft í því á Hofsvallagötunni að vera með hjólandi manneskju á akbraut og mæti svo allt í einu Strætisvagni sem er að koma yfir gatnamótin og þá þarf ég að hemla svo að hjólreiðarmanneskjan verði nú ekki fyrir Strætisvagninum og skrítið nokk það væri þá ágætt að Hjálmar færi nú út að hjóla og kynna sér borgina sérstaklega Laugarveginn með allar sínar þrengingar í staðinn fyrir að sitja á rassgatinu allan daginn og fá einhverjar upplýsingar? frá einhverjum. Skal þá benda Hjálmari á að við Kleppsmýrarveg hefur staðið hvítur flatbeddari(útskýring 8-10 metra flutningavagn)í 2 ár fyrir ofan Hringrás og sá truflar umferð! Búinn margoft að hringja í 4111111 og biðja um Umhverfis og skipulagsstofnun og enginn svarað ennþá þó svo að öll símtöl séu tekin upp? Er þetta bara Reykjavíkurskipulag eða hvað? Og annað Hjálmar fjarlægið allar þrengingar úr gæluverkefninu Borgartúni sem kostuðu þá 390 milljónir.

Bobbí


mbl.is Hvar hjóla Íslendingar?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hótel hótel?

Jæja það vantar ekki gróðafýsnina með hótelin og gistiaðstöðu fyrir ferðafólkið! En því miður þá virðast stjórnvöld vera umkomulaus,Umhverfisráðherra grætur en því miður þá er það svo að skýrar reglur vantar um ábyrgð Landeigenda um ábyrgð á sínu landi þar með talin gæsla og öryggisgæsla ef einhver Lögleg og skráð veitingasala á sér stað innan hans landarmerkja!Og líka bera Ferðaþjónustuaðilar mikla ábyrgð og skulu þeir hafa frumkvæði að banna fólki aðgang að vissum svæðum ef háski stafar að! En því miður þá er mikill misbrestur á því vegna kannski ónógrar upplýsingargjafar til ferðamanna og eða tímapressu? Lenti í því síðasta sumar að það var farþegarúta fyrir framan mig og kom þá ekki ein stærðarinnar rúta og tók fram úr okkur báðum og við á 90. Náði þeirri rútu á Hellu og talaði við bílstjórann og sá sagði að klukkan þetta yrði hann að vera á þessum stað! Gullni Hringurinn! Lét vita og sá var gripinn í Grímsnesinu á 120 í bakaleiðinni frá Kerinu!! Skírteinið fokið með 60 manns innanborðs!!

En allavegana við (Ríkið) eigum ekki að borga fyrir vanræksluna og gróðafíknina samanber nýgenginn Hæstaréttardómur um ólöglega gjaldtöku Landeigenda enda þurfa landeigendur að standa undir sínum skyldum ef reka á ferðamannastað og hafa nóg af hreinlætisaðstöðu og borga skatta og skyldur til ríkisins eins og almúginn fá svo endurgreitt til baka fyrir sannanlegri UPPBYGGINGU helst með myndum!!

Örninn

 


mbl.is Tugir hótela eru í undirbúningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Löggæsla, Vopna og sprengjuleit!

Áður en að Isavia sem er ríkisrekið fyrirtæki tók yfir allt batteríið þá þurftu sum öryggisfyrirtæki að þjálfa öryggisfulltrúa til verkefna sem enduðu með úrtaksprófum frá ýmsum alþjóðastofnunum í flugöryggi og þær verstu í að prófa flugöryggi voru frá Bandaríkjunum! Og komu þeir nokkrum sinnum á ári og sendu líka beitur til að athuga öryggi! Það gekk flott og allt fannst nema þær beitur sem að gamla sýslófólkið fann ekki enda endaði það einhverri uppsögn á öryggissamningi hjá dómsmálaráðherra á þeim tíma og þá var allt svona vesen flutt á Sýsló í Keflavík! Sagður of mikill kostnaður!! En hvað um það ríkið ræður og jú margt gott hefur komið út úr þessum sparnaði alltaf verið að fækka og kannski fáum við bara í andlitið á okkur: Dú jú spík what? Þetta er bara Ísland í dag! Henda krónunni og hirða hálfa aurinn!! Spilling og flokksræði og pota sínum vinum í toppstöður!! EÐA HVAÐ endilega kjósið SPILLINGUNA AFTUR KJÓSENDUR!!!

Örninn


mbl.is Isavia fjármagnar löggæslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þá Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu undanþegin?

Jæja nú er ég hissa því ég veit ekki betur en að trúnaðarskjöl eigi ekki að liggja á glámbekk á einhverju tölvudrifi og allra sýst að senda til einhvers sem hefur ekki umboð til að æskja eftir svoleiðis upplýsingum þó svo að manneskjan í þessu máli hafi sagt að þetta mál hafi verið hjá Innanríkisráðuneytinu og ég veit ekki hvað! En allavegana ef að ÉG STARFSMAÐUR FYRIRTÆKIS SENDI GÖGN MEÐ UPPLÝSINGUM UM SKULDASTÖÐU OG EÐA EITTHVAÐ ANNAÐ TIL ANNARS FYRIRTÆKIS OG ÞAÐ KÆMIST UPP ÞÁ YRÐI ÉG REKINN SAMSTUNDIS!!! Í ÞESSU MÁLI ER KOMIN UPP SAMA STAÐAN MEÐ ÞANN SEM SKIPAÐI VINKONU SÍNA SPILLING ? KANNSKI TIL AÐ REYNA AÐ FELA EITTHVAÐ ?? Nú Stefáni var bolað burt af vinkonu Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og skiljanlega vildi Stefán ekki sitja undir einhverri pressu um eitthvað sem að kom svo í hausinn á hans fyrrverandi yfirboðara. En eitt skal jafnt yfir alla ganga og þá er tími til að Lögreglufrúin á höfuðborgarsvæðinu segi af sér með sóma áður en að eitthvað verður grafið upp af einhverjum blöðum !!! Því það eru alltaf til uppljóstrarar þó svo að þeir fái ekki borgað fyrir upplýsingarnar!!

Örninn


mbl.is Gerðist ekki brotleg við lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið gott að vopnum verði skilað!

Glæsilegt að það sé loksins komið í ljós að það var komið í veg fyrir STÓRT vopnasmygl allavegana miðað við yfirlýsingar Georgs hjá Landhelgisgæslunni að þetta hafi verið gjöf!! Nú þá má fara að athuga vopnavæðingu ýmissa Löggæslustofnana síðustu 15 árin sérstaklega eftir að Björn Bjarnason ýjaði að því að hafa suma undir vopnum jafnvel ef til kastanna kæmi Björgunarsveitir kannski misminnir mig en er gamall kallskröggur! En eitt skal alþjóð vita að í dag hafa verið seld ógrynni af skotvopnum því almenningur á Íslandi óttaðist það að þetta yrði svipað ástand og í Amríku misvitrir lögguþjónar með byssur þá meina ég skammbyssur ekki árásarriffla Heckler og Koch MP5 það er ágætt að hafa bara sérsveitina með þau vopn en ekki aðra. Eins og kom fram í fréttum um að hnífamaður hafi ógnað lögreglumönnum og gjallarhorn notað þá sótti einn laganna vörður vopn í bílinn með leyfi stöðvar! Og sá sem ógnaði kom út eftir að hafa fengið þær upplýsingar að vopnuð Lögregla væri á staðnum!  Mjög gott og er hræddur um að ef að MP5 kæmist í hendurnar á einhverjum sem hafa ekki andlega og eða líkamlega burði til að standa fyrir framan manneskju og kannski ekki með skotvopnaleyfi og skjóta kannski drepa fólk í kring en sá sem átti að skjóta slyppi!! Allavegana að láta þessa blessuðu menn taka skotvopnaleyfi og líka veiðikortið frá A-Ö og þola það að sjá blóð úr td hreindýrum þar er nú nóg blóðmagn eftir skot því manneskjunni blæðir eftir búkskot all hressilega miðað við kúlurnar sem eru notaðar!

Örninn


mbl.is Vopnum verður skilað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lekamálið er ekki búið og fleyra!!!!!

Nú þegar að Hanna Birna er búin að segja sig frá embætti þá er kominn tími til að skoða embættisfærslur hennar í embætti þar með talið skipun nýs Lögreglustjóra Höfuðborgarsvæðisins!! Ætti hún sem Lögreglustjóri að hafa sómatilfinningu að víkja á meðan að hennar embættisfærslur suður með sjó séu rannsakaðar og einnig hvernig hennar skipun í embætti var hefur hún einhverja skyldleika við Hönnu Birnu? Nú þetta hefur komið í ljós þar sem að Hanna Birna skipaði hana í embætti án þess að fá umsóknir og ég veit að það eru tugir manna miklu hæfari en nýji Lögreglustjórinn! Og annað að það því miður hefur viðgengist í spillingapólítíkinni á Íslandi alveg frá árinu 1918 þegar að peningamennirnir áttu Ísland og fóru í gjaldþrot trekk í trekk og þá bjargaði Landsbankinn gamli aftur mörgum af þeim  og eftir 1944 þá var það bara einokun um að ráða öllum kjörum almennings samanber SA í dag ásamt Seðlabankanum sem vilja hafa Ísland láglaunaríki með aðkomu vissra flokksfélaga sem hafa tröllriðið vinnumarkaðinum undanfarna áratugi og eiga fyrirtækin!Og ekki er verra að hafa suma dómara í Héraðsdómi og Hæstarétti með sér þegar á að taka á vildarvinum? Og dómarar pólítískt skipaðir!!! En nú er komið nóg og ég segi bara flott hjá Pólverjunum í ónefndu fyrirtæki að stíga fram og þetta á ekki bara við þá heldur Íslendinga líka því Íslendingar vita það að ef að þeir kvarta þá er sagt við þá að það sé nóg til af fólki!!! Þetta er skítt en svona gera fyrirtæki þetta út af atvinnuleysi og ég get sagt það að atvinnuleysið er miklu meira heldur en að pantaðar tölur eru frá ríkisstjórninni!! 8-9000 manns en komið niður í 4500 því restin fór á sveitina sem getur ekki borgað framfærslu jafnvel út af ofurlaunum stjórnenda sveitafélaga samanber Árborg!!!

Örninn


mbl.is Þjóðin læri af lekamálinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland í rúst!!

Jæja allt í rúst á Íslandi, læknaverkfall, verkfall tónlistakennara, og svo verður vonandi sá sem öllu ræður eina ferðina enn hjá ASÍ ekki áframhaldandi slettireka og undirlægja SA samanber síðustu kjarasamninga þar sem að undirlægjuhátturinn réði ríkjum við SA þar sem að SA og Seðlabankinn  réði ríkjum með fötluðu ríkisstjórn hinna ríku og svo geysist Seðlabankastjóri fram með það að litlar launahækkanir gætu kollvarpað verðbólgunni bla bla bla. Það eru ekki litlu launþegarnir sem hafa minnstu launin sem kollvarpa kerfinu heldur bölvuð Auðvaldasklíkan með sína menn innanborðs og að Seðlabanki okkar allra hlusti á kvóta og fjármagnseigendur að halda öllum vöxtum uppi til að bjarga sokkinni þjóðarskútu eftir milljarðalánveitingu til banka frá fyrrverandi Seðlabankastjóra og ekki má birta símtal því þá væri Geir Hilmar Harde ekki orðinn sendiherra í Washington en vonandi fara þessir blessaðir í US IMMIGRATION yfir söguna hjá honum eins og vissir flokksfélagar hans hafa verið iðnir við að deila upplýsingum um óæskilegar? (Ekki í rétta flokknum!) Íslenskar manneskjur undanfarna áratugi með hjálp Lögreglunnar sem að hefur ekki mátt segja frá enda leyniskjöl!! Er þá ekki kominn tími til að hætta við helvítis flokksráðningarnar og fá nýtt fólk ekki afdankaða stjórnmálamenn sem fá svo yfir milljón hjá LSR í lífeyri allt verðtryggt og gulltryggt því almenningur borgar!!!!

Ps: Held að Geir sé ekki kominn með diplómatapassa þannig að þá er að senda tilkynningu til USBP!!! United States Border Patrol um það vesen sem hann lenti í hérna á Íslandi!!!

Örninn

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Örn Ingólfsson
Örn Ingólfsson

Er í mjög góðri vinnu. En get verið með ýmsar hressilegar skoðanir sem öðrum finnst stangast á við þeirra skoðanir og ég virði skoðanir annara þrátt fyrir bölv og ragn!

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 16
  • Sl. sólarhring: 46
  • Sl. viku: 157
  • Frá upphafi: 9671

Annað

  • Innlit í dag: 16
  • Innlit sl. viku: 143
  • Gestir í dag: 16
  • IP-tölur í dag: 16

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband