Mikið eru blessaðir mennirnir blindir það er eins og með hestana sem að voru með leppa fram fyrir augun þannig að blessaðir hestarnir sáu bara fram fyrir sig!! Þetta er nú það sem að Geir Harde og hans flokksbræður eru búnir að gera síðustu árin og ekki yrði ég hissa að þessi blessaði flokkur þeirra fái skellinn í næstu kosningum! Nú hvar eru kosningaloforðin, æ þau fóru mörg hver forgörðum til að hægt væri að bjarga vinum og vandamönnum samanber fréttir undanfarin ár og svo kastaði tölunum Eimskipsmálið nýja! Ósköp var nú Geir Harde hógvær í svörum, en ef að þetta hefði verið einhver úr öðrum flokki þá hefði Davíðskvartettinn látið heyra í sér ekki satt spyr alþjóð? En þessi ríkisstjórn er samanber bloggin mín á undan ónýt vegna þess að það er bara flokksgæðingum hyglað og skítt með almenning. Það hefði verið gaman að fá þjóðaratkvæðagreiðslu um fiskveiðikvótann okkar hvort að ætti nú barasta ekki bara að þjóðnýta hann svo að þessar örfáu hræður í tilteknum flokk ráði nú ekki svo miklu með hótunum um að lækka gengið og hitt og þetta ef að það verði ekki hlustað á þá með sínar kröfur og flokkurinn þeirra lúffar með skottið á milli lappanna vegna þess að þar eru milljarðarnir og eignirnar þó svo að þessir flokksgæðingar borgi bara tíu prósent fjármagnstekjuskatt á meðan að almenningur þarf að borga skatta, nú flokkurinn kom þessu á að lækka hátekjuskattinn svo að flokksgæðingarnir misstu nú ekki þúsundkallinn, milljónina??????? Peningaþvætti nú held ég að Haraldur Johannessen ætti að fara að athuga erlendu bankareikningana hjá vissum mönnum, en sorry það má víst ekki þessir menn eru friðhelgir það má víst ekki gera neitt svo að menn missi sínar háttsettu stöður! Skömm? Spilling? JÁ
En af hverju fer ekki Ríkislögreglustjóri fram með offorsi gagnvart kennitölufyrirtækjunum ásamt Skattrannsóknarstjóra? Það má kannski ekki vegna kannski að það gæti komið eitthvað upp á yfirborðið sem að gæti komið tilteknum flokki illa! En bara farið þið að hugsa um almenning í staðinn fyrir að skara eld að ykkar köku það á eftir að koma í bakið á ykkur þessi aumingjaskapur sem að hefur viðgengist í tilteknum flokki. Ég veit að ég verð ekki vinsæll fyrir þetta blogg en ég er löngu búinn að brynja mig gegn áhrifatali til að fá mig til að kjósa tiltekinn flokk!
Örninn
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Kjaramál
- Lífstíll
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Samgöngur
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 57
- Frá upphafi: 11716
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 56
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.