Málþóf ýmissa ofl

Spurning sem hefur vaknað hjá almenningi, hvort að alþingismenn(konur)séu á yfirvinnukaupi með málþófinu?

Ef svo er þá halar hver klukkutími hjá almenningi kannski 1550+- krónur per tíma! Reiknið svo! Ég gamall sjóhundur hefði viljað hafa hærri laun upp á Lifeyririnn, en því miður þá réðu aðrir sem áttu eitthvað undir sér, og seldu hitt og þetta, allt í lagi í sumum byggðarlögum, sveitarstjórnarmenn sem réðu Ríkjum innan vissra flokka sem aðhilltust kvótafrumvarpinu þá RÉÐU þeir!! Og margir íhaldssamir útgerðarmenn ásamt gömlu klíkunni (LÍÚ) sem heitir víst öðru nafni í dag, þá hlustaði ríkisstjórnin og Seðlabankinn fór eftir þeim tilmælum að fella gengi krónunnar til að bjarga Sjávarútveginum þá! Þessar aðgerðir Ríkistjórnarinnar endurtóku sig margoft, ef að (LÍÚ) missti krónur, þá var Íslenska Ríkið tilbúið að hjálpa stórgrosserunum þá,eins og gert er ennþá dag í dag! Almenningi blæddi!! Gott að hafa Seðlabankann undir sér, því ekki horfir sá banki á almenning, heldur Stóreignamenn og kerlingar, og fyrrverandi ríkisstjórnir hafa alls ekki viljað hækka hátekjuskattinn!!Og helvítis gjaldþrotin, það er sárt að sjá manneskjur sem voru með fyrirtæki skulda almenningi hundruðir milljóna++ keyrandi á glænýjum bílum og gefa almenningi puttann, þá virðist þetta má! Stofnaðu kennitölu fyrir nýtt fyrirtæki, keyptu undir öðru nafni,og verslaðu og ekki gefa neitt upp og þú verður bara sendur á Kvíabryggju ef þú skuldar 500 milljónir++! Ekkert fangelsi, þannig að vítahringurinn fyrir almenning heldur áfram að borga fyrir þurfalingana! Munum eitt Fólk, þeir sem fóru verst með okkar forfeður, voru þeir sem græddu mest, og átu mest og tímdu ekki að gefa þurfalingunum smá matarbita þá, og almenningur nýtur lítils af öllum 230 milljarða arðgreiðslum síðastliðin 12 ár til ættingja ogfl, kannski arðurinn greiddur út í EVRUM? Þó þau hafi borgað kannski 10 milljarða í veiðigjöld? En Seðlabankinn er spilltur, því ef að almenningur getur ekki sett inn sínar krónur og umbreitt þeim á erlenda reikninga í Evrur, erlendis, þá er ekki réttlátt að einhver útgerðarfyrirtæki séu með sérstaka reikninga í dollurum eða Evrum með opna reikninga erlendis, kannski á Jersey, Tortola++ Ennþá vantar útskýringar hvað varð um 500 milljarða svokallað Neyðarlán til Arionbanka sem Seðlabankinn veitti með samþykki Seðlabankastjóra Davíðs Oddsonar?

En ágætis spurning hversu margir þingmenn(konur)hafa verið á línuveiðum í brjáluðu veðri?

Örninn 

 


« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Hver er summan af sex og fjórtán?
Nota HTML-ham

Höfundur

Örn Ingólfsson
Örn Ingólfsson

Er í mjög góðri vinnu. En get verið með ýmsar hressilegar skoðanir sem öðrum finnst stangast á við þeirra skoðanir og ég virði skoðanir annara þrátt fyrir bölv og ragn!

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 38
  • Sl. sólarhring: 38
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 12433

Annað

  • Innlit í dag: 25
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 24
  • IP-tölur í dag: 24

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband