10.10.2020 | 05:44
Sjúkdómur efasemdarmanna vina Brynjars ofl? Geðveiki?
Nú margt hefur forseti USA sagt vitlaust og eða rangtúlkað út af getuleysi þekkingar? En því miður eru margir Íslenskir stjórnmálamenn á spena ýmissa fyrirtækja og Ríkisins og fleyri sem vilja halda í gróðann, skítt með heilbrigði almennings! Nú þekki ég ekki Brynjar neitt nema af einu að vera andskoti oft á öndverðu meiði við lagatúlkanir á hinu og þessu á vissum fjölmiðlum þar sem að hugnast ekki hans húsbændum, og gerir lítið úr ýmsum dómum sem hafa fallið gagnvart hans flokksbræðrum, og hann ætti þá að minnast á alla sem hafa fengið náðun undanfarin 15 ár að beiðni vissra ráðherra! En svona er Ísland í dag og með puntudúkkuna sem er Dómsmálaráðskona er óstarfhæf! Og það þarf að fá eftirlit að utan til að athuga allt, því það yrði þvílík skömm erlendis að Íslenskur almenningur hafi látið þetta viðgangast út af spillingu þá og ennþann dag í dag og að vera kúgaðir af atvinnurekendum með hótunum þá yrði allt brjálað erlendis! Nema á Íslandi þar sem að fólk þorir ekki og eða vill ekki standa uppi á móti Auðvaldinu sem á Ísland og kúgar almenning til hlýðni með hótunum! Hundruðir milljarða farnir eitthvað út í buskann í vildarvinafyrirtæki, en það má ekki setja einhverja milljarða í að halda almenningi í gangi, tala nú ekki um ellismelli og öryrkja! Nú um næstu áramót eiga skattar á millitekjufólk að hækka sem er með tekjur yfir 450 þúsund til 900 þúsund en ekki á þá sem eiga peningana yfir milljón á mánuði í laun! Svo hækka öll gjöld útvarpsskatturinn hækkar, orkugjaldið ( bensín og dísill ) Og svo gleiðbrosir Bjarnabófi að kaupmátturinn hafi aukist! Satt er það hjá fólki sem er með yfir eina og hálfa milljón á mánuði og þarf ekki að hugsa um hvað eigi að vera í matinn! Það væri ágætt að senda BB í Samhjálp og láta hann borða og eða Betla fyrir mat á götunum, en það hefði enga þýðingu því sá er samviskulaus gagnvart almúganum! Því miður þekkir sá ekki alvöru lífsins og hefur aldrei þurft að leggja á sig að fá hjálp frá öðrum sem eiga lítið sem ekki neitt en samt deilir það fólk á milli sín því litla sem er til að borða!
Örninn
Segir Ragnar hrokafullan grilllækni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Kjaramál
- Lífstíll
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Samgöngur
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 57
- Frá upphafi: 11716
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 56
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þessir vísindamenn hljóta auðvitað að vera geðveikir líka. Nú ætla ég ekki að halda því fram að þeirra viðhorf séu þau einu en það eru nefnilega uppi margskonar viðhorf sem eiga öll rétt á sér og fólk þarf að vera meðvitað um að leiðirnar eru fleiri en ein.
https://www.youtube.com/watch?v=rz_Z7Gf1aRE&fbclid=IwAR0TVDz1yWI0bPcJl8vh-R5tewS6gbWvwvj__KnGjJJxgCnv2-EVjbYevnY&ab_channel=UnHerd
https://unherd.com/2020/10/covid-experts-there-is-another-way/?pt
Þöggunartilburðir hafa aldrei verið mankyninu til bóta
Stefán Örn Valdimarsson (IP-tala skráð) 10.10.2020 kl. 09:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.