6.7.2013 | 11:48
Bölvað kjaftæði!
Gera þessir menn sem að vilja láta leggja sæstreng sér ekki grein fyrir því að LAUN OG LAUNAKJÖR eru allt önnur á Íslandi en í NOREGI? Nei þetta hljóta að vera vanvitar því að hvernig á venjulegur Íslendingur með mánaðarlaun upp á kannski 250 þúsund krónur íslenskar að fara að borga fyrir kílówattstundina með flutningskostnaði yfir 200 íslenskar krónur? Þá spyr ég bara er þá ekki ráð að fara að hækka launin úr 195 þúsund krónur sem eru lágmarkslaun upp í 420 þúsund á mánuði og ekki hækka skatta ofl, og ef það verður gert sem verður aldrei á meðan einokunar og lokunarstefna ríkisstjórnarinnar gagnvart betri kjörum almennings þá kemur það ekki til mála að hugsa eins og Hörður gróðapungur Landsvirkjunar sem að er í EIGU ÍSLENSKU ÞJÓÐARINNAR! Og ef að þessir menn eins og Hörður gróðapungur ætlar að fara að semja um eitthvað gerræði þá er ágætt að fá ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLU svo að peningar almennings fari ekki á fárra manna hendur! Eru einhversstaðar faldir peningar í þessu sæstrengsmáli sem má ekki segja frá??? Íslendingar eru búnir að fá upp í kok á Einkavæðingarbraski sem komu Íslandi á hausinn með tilstilli vissra flokka og Seðlabankastjóra þá í EINKAVÆÐINGUNNI! Við Íslendingar kusum nýja ríkisstjórn 2013 en ekki flokkspólítískt skipaða gæðinga heldur á að fá inn menn með reynslu en ekki með kannski já hvað? Nýja flokksvanvita með hroka og yfirgang sem ekkert kunna og eða vita? Samanber Íbúðalánasjóðinn þá. Kannski bara jók til að spila inn á hinn óvenjulega Íslending sem vill láta allt yfir sig ganga með mánaðarlaun yfir 650 þúsund á mánuði á manneskju en ekki með samanlögð laun lágtekjufólks upp á krónur 550 þúsund sem eru í láglaunastörfum með kannski 2-3 börn og vinna myrkranna á milli og hafa ekki frítt eldsneyti á bílinn og ekki einkabílstjóra og ferðapeninga og svo miklu meira á kostnað hins VENJULEGA Íslendings!! Hugsið ykkur um hversu gott þið hafið það Íslendingar í dag en ef að þessu gerræði verðurmeð lagningu sæstrengs njótið þess rafmagns sem þið hafið í dag því það verður erfitt að elda mat með rafmagni því það kemur til skömmtunar á rafmagni til hins almenna notanda eins og er í Noregi og sumstaðar í Evrópu!
Örninn
Meginflokkur: Dægurmál | Aukaflokkar: Bloggar, Fjármál, Kjaramál | Facebook
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Kjaramál
- Lífstíll
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Samgöngur
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 57
- Frá upphafi: 11716
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 56
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.