ASÍ og formaðurinn.

Jæja nú ætlar formaður ASÍ jafnvel sverfa til stáls í komandi kjaraviðræðum!! En því miður þá hefur formaðurinn ekki sýnt dug til að standa á móti vinum sínum í SA, heldur þvert á móti gefið eftir með tilheyrandi Gróða fyrirtækja innan SA og umbjóðendur ASÍ fengu að ég segi skítlegar launahækkanir á móti Rosa launahækkunum og Arðgreiðslum félaga innan SA, og þá þagði formaður ASÍ afsakið en svona er þetta bara! Nú formaður ASÍ hefur ekki sýnt hug sinn til Launalækkunar ásamt yfirstjórn ASÍ vegna þess að það er erfitt að sleppa því sem unnist hefur en almennur Launþegi innan ASÍ hvað hefur hann grætt á ASÍ undanfarin 4 ár í prósentutölum launa á miðað við td: Kennara og svo mætti lengi telja!! Nú ekki er almenningur á launum allt sumarið nema bara þessa lögbundnu orlofsdaga, og ef að almenningur er ekki á sínum vinnustað fyrir utan orlofið þá er það fólk rekið eftir áminningu eða áminningar út af mætingu(m) Nú ASÍ samþykkti á árum áður að taka út atriði í samningum að atvinnurekendur Þyrftu ekki að gefa Neina skýringar á uppsögn hjá starfsmanni BARA til að bjarga já HVERJU? Nú það hefur ekki komið neinsstaðar til tals hjá formanni ASÍ að KOMA ÞESSU INN Í KJARASAMNINGANA tilvonand AFTUR því formaðurinn hefur sagt hitt og þetta við félagsmenn og svo allt í einu engar efndir!!! En þá víkur sögunni til dæmis að kennurum er ekki nein viðveruskylda hjá þeim? Nei hef reynt að ná í kennara að sumri í skóla og eins í vetrarfríum líka en NEI. Því miður er kennarinn ekki við hann er að ég segi út um hvippinn og hvappinn! Nú allt í lagi hvernig væri þá að koma viðveruskyldu á kennara og fleyri aftur því á ekki jafnt yfir alla Launþega að ganga? Vildi óska þess að ég fengi laun í vissa mánuði frá Ríki eða borg og geta svo unnið í sumarstoppinu í skólunum eins og Flestallir kennarar gera og svo Kvarta þeir blessaðir. Nei ég hef sko ekkert á móti kennurum því þeir gera gott starf og búnir að læra sín fræði! En er þetta ekki Súrt fyrir almenning að horfa upp á svona dæmi, nú Vonandi verður formaður ASÍ ekki með sömu Loforðin sem hann getur ekki staðið við eftir sína kosningu. Það er ekki nóg að kjafta eins og okkar alþingismenn með Loforðin heldur að koma sér upp úr helv... skrifstofustólnum og fara að berjast í fremstu Röð með Almúganum, því það er af sem áður var að formenn Verkalýðsfélaganna Börðust með sínu fólki á Vettvangi en ekki inni á SKRIFSTOFU!! LAUNIN ÞÁ VORU EKKI TIL AÐ HRÓPA HÚRRA YFIR HJÁ VERKALÝÐFORKÓLFUNUM!!!  EN Í DAG ERU LAUNIN JA HVERSU MARGFÖLD VERKAMANNALAUNIN HJÁ FORMANNI ASÍ OG ÖLLU BÁKNINU HJÁ ASÍ? BARA SPYR???

ÖRNINN


mbl.is ASÍ krefst stöðugleika
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 22. október 2010

Höfundur

Örn Ingólfsson
Örn Ingólfsson

Er í mjög góðri vinnu. En get verið með ýmsar hressilegar skoðanir sem öðrum finnst stangast á við þeirra skoðanir og ég virði skoðanir annara þrátt fyrir bölv og ragn!

Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.10.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband