Færsluflokkur: Umhverfismál

Skuldahalinn vex

Nú er kominn tími til að lækka kostnað almennings, fyrir flokkun alls úrgangs! Og fjölga ferðum einkarekinna fyrirtækja til að ná í lífrænan úrgang og annars sem er til staðar, tala nú ekki um Djúpgámana!  Það væri gott fyrir almenning að fá opnberar upplýsingar hver samdi við hvern um Sorphirðu síðastliðin 6 ár! Kannski má ekki upplýsa um leyndarmálin?

Blessaðir bitlingarnir, sem hafa kostað Reykjavíkurborg 1,3 milljarða, og ennþá bætist við! Það mætti segja upp í hópuppsögn sirka 2/3 af aðstoðarmönnum ( konum, og eða hvaða nöfnum á að nefna ) sem hafa ekkert að gera og hefur sumt af þeim ekkert að gera, því enginn veit hvað sá eða sú , eða nafnlaust á að vinna við! Skuldirnar hækka, nýtekið lán til hvers? Borga lífeyrir næstu áratugina, og eða að þrengja götur? Mislæg gatnamót sem má víst ekki því miður til að stjórna umferðarflæði! Td, mislæg gatnamót Breiðholtsbrautar og Bústaðarvegar! Nei Blessað fólkið innan borgarinnar vildi það ekki út að Laxveiðiánni! En litla lækjarsprænan sem þau hafa aldrei séð og ekki kynnst, vegna þess að 98% af borgarfulltrúum sem fólkið kaus veit ekki neitt? Hafa jafnvel aldrei vitað og hafa ekki gengið yfir lækjarsprænuna okkar í Blesugrófinni ( Laxveiðiánni ) ! Þá væri frábært að senda borgarstjórnarfólkið í vettvangskönnun! Ekki veit ég á hvaða lyfjum þetta fólk hefur verið, og sá sem var villtastur í mótmælum gegn mislægum gatnamótum þá Holu Hjálmar, var fluttur til í starfi, en hefur samt áhrif með borgarstjóra í dag, ásamt sitjandi konum ofl, sem vilja ekki missa launin og stólana! En mislægu gatnamótin sem ég minntist á fyrr hefðu kostað þá 290 milljónir, í dag þá uppreiknað 5-6 milljarðar! Einn vinur minn Verkfræðingur sem kom í heimsókn fyrir 8 árum síðan frá Kanada spurði mig af hverju ertu að bíða á ljósi! Nú ég var á rauðu ljósi og ,og hann spurði mig hvað er að, engin umferð frá vinstri og þú á rauðu ljósi. Ég svaraði, bannað að beygja til hægri þó svo að það sé rautt ljós! Hann sagði bara crasy Icelanders!

Margt skrítið í ýmsum hausum í borgarstjórn!

ÖRNINN


mbl.is Segir borgina græða á afhendingu lóða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verndarstefna grænpúnga og WWF

Jæja nú eru Hvalveiðar að hefjast að nýju sem betur fer því þá eykst fiskigengd og átan í hafinu líka! Því miður gera þessir grænpúngar og forsprakkar WWF og Náttúruverndarsamtök Íslands sér ekki grein fyrir því að hvalir af öllum tegundum borða, það er svif ( áta, síli ofl) sem að sjófuglar lifa á og hefur komið í ljós hrun í þeim stofnum út af fæðuskorti og einnig ef að blessaðir fræðingarnir hafa lært eitthvað í skóla að það eru aðrar hvaltegundir sem borða fisk! Nei örugglega ekki því þessir svokallaðir náttúruverndarsinnar hljóta að lifa á landsins gæðum og vera grænmetisætur og vilja örugglega friða sauðkindina líka svo að sú fái að borða í friði fyrir mannfólkinu! Svo þegar að grasið og sinan er búin þá fellur sauðkindin, svínin og restin af búfénaði og eftir stendur horaður ALMÚGINN!En svo kemur að því að þessir blessaðir friðunarsinnar fái nú allt í einu engann fisk, útgerðin hrunin út af aflabrest því enginn er fiskurinn! Nú það er ekkert mál þessir blessaðir öðlingar innan þessara samtaka geta verið áhyggjulausir með styrki frá ríki og grænpúngum ásamt WWF og þá verður bara grænmeti á boðstólum. Því miður gerir þetta vesalings fólk sér ekki grein fyrir nema einu það er ofstæki sem kostuð eru af ýmsum sem nefndir eru að ofan! Það verður gaman að sjá forsprakkann hann Finn hjá Náttúruverndarsamtökum Íslands eftir fá ár ef að hvalveiðar verða bannaðar og hverjum ætlar hann að kenna um fiskleysi og fugladauða? Nú náttúrulega eftir heilaþvott hjá grænpúngum og WWF ásamt besta vini sínum Sigursteini kenna þeir ofveiði á hvalategundum en því miður þá vilja samtök þeirra ekki BIRTA skjöl til staðfestingar frá Alþjóða Hvalveiðiráðinu í sínum blöðum heldur kannski einhverja útúrsnúninga frá einhverjum fræðispekingum sem hafa jafnvel aldrei migið í saltan sjó? Því miður segja þessir verndunarpúngar ekki frá OFVEIÐI Á HVAL við Vesturströnd Bandaríkjanna því þessir verndunararpúngar eru hræddir við að styggja Bandaríki Norður Ameríku! Af hverju? Jú því miður eru svo margir Bandaríkjamenn sem að grænpúngar og WWF græða á út af því að sumt fólk borgar offjár  fyrir að hafa hval í fóstri þó svo að hvalurinn sé hákarl og eða eitthvað annað sem hefur víst komið í ljós að fólki eru sýndar myndir af Hnúfubökum með ýmsum litbrygðum og háhyrningum og boðið að taka þá í fóstur fyrir vissa upphæð í 600-15000 $.  Sea Sheperd gera þetta sama nema að þeir eru bannfærðir á ýmsum hafsvæðum eftir aðgerðir sínar og þetta er ekki til framdráttar verndarstefnu heldur er þetta ofstæki Því miður þá er þetta í sumum tilfellum fjárplógsstarfsemi og hvað skyldu mörg af þessum svokölluðu hvalaverndarsamtökum vera í Bandaríkjunum? Gaman væri að vita það og ættu þá Íslensku samtökin að geta upplýst alþjóð um það ásamt styrktaraðilum eða berast greiðslur í gegnum Paypal? Er þá ekki kominn tími til fyrir skattmann að samkeyra gögn við IRS í Bandaríkjunum?

ÖRNINN

 


mbl.is Leyft að veiða 154 langreyðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Örn Ingólfsson
Örn Ingólfsson

Er í mjög góðri vinnu. En get verið með ýmsar hressilegar skoðanir sem öðrum finnst stangast á við þeirra skoðanir og ég virði skoðanir annara þrátt fyrir bölv og ragn!

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband