Færsluflokkur: Dægurmál

Almenningur hefur ekki mátt missa tímann og launin!

Nú skýtur skökku við að HBÞ sé að heimta frá okkur( Ríkinu ) að Almenningur þurfi að taka ábyrgð á ástandinu! Er þá ekki kominn tími til að hann hristi upp í hausnum á vildarvinum sínum að kennitöluflakkarar vildarvina borgi svolítið til baka, sirka 520 milljarða!Því Ekki vill háttvirtur fjármálaráðherra koma í veg fyrir svoleiðis gjörning, sem hefur kostað Íslenskt atvinnulíf síðan annó 2013, 2500 milljarða sem hafa lent á almenningi og ekki sér til endann á bölvuðu kennitöluflakkinu! Allir að vinna en margir með erlent þjónustufólk á lágmarkslaunum í Garðabæ og ekki með atvinnuleyfi?

Örninn   


mbl.is „Íslenskt atvinnulíf má engan tíma missa“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver á Mílu?

Er Míla ekki gamli Póstur og Sími sem heitir í dag Síminn sem að hundruð þúsunda Íslendinga(Mikill hluti kominn í Sumarlandið)borguðu til með sínum SKÖTTUM og gjöldum? Og ef að það á að fara að einkavinavæða Mílu þá væri frábært að fá nöfn á umboðsmönnum þess fyrirtækis á Íslandi!Nei kannski má ekki ljóstra upp neinu það gæti komið einhverjum í koll, en Íslendingar sem hafa borgað sitt vilja ekki að einhverjir fái sitt með græðgi, og það væri gaman að vita hversu marga milljónatugi+ Orri Hauksson fengi í sinn hlut ef að sölu verður! Það virðist vera að það sé EKKERT OPNBERT EFTIRLIT Í DAG MEÐ FJÁRGLÆFRUM ÞVÍ MIÐUR, VEGNA ÞESS AÐ ÞAÐ MÁ EKKI, ENDA EFTIRLITIÐ VAR Á VEGUM? ÞÁ!! 


mbl.is Ardian kaupir Mílu af Símanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjördæmaklúður eða hvað?

Meiri hringlandahátturinn í þessum kosningum, með klúður sem hefur ekki farið framhjá erlendum fréttamiðlum, sem fylgjast grannt með úrslitum þessa klúðurs! Og að það taki miklu lengri tíma að telja atkvæði sem á ekki að þurfa ef stafrænar kosningar væru tiltækar ( sem eru ) heldur á að nota úrelt kosningakerfi því þá er allt hægt ef einhver vill svindla! Límmiðarnir á kjörkössunum eru bara hlægilegir, það á að vera vírbundið innsigli sem enginn getur rofið nema kjörstjórn á hverjum stað, og ef ekki þá skal færa þá kjörkassa í hendur Lögreglunnar. Og að kjörgögn séu send með einhverjum sendibíl er fásinna! Engin Lögregla nálægt? Það er af sem áður var með Lögreglufylgdina, kannski verið að spara, ekki til nóg af peningum til eins né neins, nema í eitthvað bruðl og eða?

Örninn


mbl.is Ógilding gæti snert 16 þingmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kosningar 2021

Þar sem að kosningar eru framundan og allir lofa öllu þá sé ég mér ekki annað fært en að hallmæla kosningaloforðum viss flokks sem gefið var árið 2013 með að lagfæra kjör aldraðra, öryrkja ofl! Nú er sá sem lofar hinu og þessu Landi tækifæranna, en er það tækifæri fyrir þá sem minna mega sín? Nei, því það er safnað undir rassgatið á vildarvinum,sem að almenningur þarf að borga fyrir! Svokallaðar skattalækkanir hafa gefist 100% til stóreignarmanna og fólks, tala nú ekki um ráðherra sem hyglir sínum flokksbræðrum með hitt og þetta í útgerð ofl. Þannig að ef að ný ríkisstjórn sem tekur við að taka upp nýju stjórnarskrána sem ALMENNINGUR kaus um strax, því þá mun sumum bregða! Og annað ekki veit ég um aðra flokka um ESB, en einn ætlaði að tengja krónuna við Evruna. En það þýðir ekki vegna þess að við þurfum að klára umsóknarferlið sem að einn vitleysingurinn fór með bréf til Brussel og sá hinn sami olli hundraða milljarða tjóni með einhverjum stuðningi við refsiaðgerðir, og endaði á Klausturbarnum með fataleysi! Þetta er ekki gleymt og það er eins gott að fólk fari að vakna af doðanum og hugsa sjálfstætt, ekki láta einhverja pólítíkusa lofa upp í ermina á sér og allt svikið samanber kosningarnar 2013-2019, lán tekin til að bjarga hverju? Seðlabankinn spilar með, og það væri gaman að vita hvenær eftirlitsmenn ÖSE koma til landsins til að fylgjast með kosningunum og að Kjörkassar séu rétt inniglaðir? Farið að hugsa kjósendur!

Örninn


Hækkandi smit af veirunni!

Jæja nú mega þessir sem að galopnuðu landamærin að beiðni ýmissa stórra hagsmuna aðila fara að hugsa sinn gang! Því það virðist sem að heilsa Íslensks almennings og heilbrigðisstarfsfólks skipti engu andskotans máli svo fremi að allir gróðapúngar græði sem mest! Og þetta feilspor sem að gróðapúngar og jafnvel gróðapíkur gleymist ekki! Og að Katrín Jakobsdóttir skuli ekki rjúfa þing strax er hneyksli! En kannski er svo gott að hanga á stólnum ásamt þeim sem bera ábyrgðina að opna LANDAMÆRIN! Eilíf skal skömm blessaðrar vera að hlusta ekki á sína flokksmenn heldur vera puntudúkka auðvaldsins og segja bara JÁ! Það er komið að leiðarlokum hennar flokks og veit ekki um hina flokkana sem bera meiri ábyrgð með einn prins og puntudúkku sem veit varla neitt þrátt fyrir alla sína aðstoðarmenn! Sama með alla ráðherra og þingmenn, með ótalmarga aðstoðarmenn á fullum launum og fá alveg frábær lífeyrisréttindi! Sparnaður að fækka aðstoðarmönnum (konum) um kannski 75% yrði gífurlegur og gæti kannski orðið til þess að þingmenn færu að vinna vinnuna sína og hugsa sjálfstætt, og miðað við undanfarin ár þá eru þingmenn ekki að vinna fyrir almenning heldur helvítis kjördæmapoti og að athuga hverjir verði sendiherrar og margir af þeim sem verða settir í svoleiðis stöðu hafa ekki hundsvit á utnríkisþjónustunni! Flokksgæðingar allra flokka fá stöðu alveg sama hvaða flokkar eru í stjórn! Engin furða að fólk sé farið að vantreysta flokkakerfinu og eins og ég skrifaði að ofan þá er orðið skelfingarástand á kostnað ALMENNINGS á meðan aðrir segja bara að þetta sé allt í lagi! Kvarnirnar í sumum eru ekki í lagi, þannig að munið þetta Allir Íslendingar að gróðinn er hærri en heilsa fólks á Íslandi!

Örninn


Kosningaloforð flokka gömul og ný svikin!

Jæja nú lýður að kosningum í haust! Og kosningaloforðin hjá Ríkisstjórnaflokkunum 90% svikin! En það sem er það versta er að það átti að taka á almannatryggingakerfinu og afnema krónu á móti krónuskerðingum hjá öldruðum og öryrkjum! Nei það er ekki búið að því ennþá og ekki búið að innleiða nýju STJÓRNARSKRÁNA sem almenningur kaus um! Það þarf ekkert endurskoðaða stjórnarskrá Katrínar! Auðlyndaákvæðið sem fólk kaus um á að standa!Það er ekki eðlilegt að byggð séu ný skip upp á hundruðir milljarða fyrir auðlyndagjaldið sem er of lágt og tala nú ekki um milljarðaarðgreiðslurnar upp á einhverja milljarða til eigenda og barna! Það þýðir ekkert fyrir Kötu að breyta því, vegna þess að Íslenskur almenningur hefur tapað milljörðum vegna gúnguskapar og sleikjuháttar Kötu gagnvart auðvaldinu og útgerðarköllum sem jafnvel hafa safnað upplýsingum um hana sjálfa! Og kannski þorir hún ekki að taka af skarið að slíta stjórnarsamstarfinu út af einhverju? Því það eru margir fyrrverandi Lögreglumenn sem hafa kunnáttu og vinna bak við tjöldin til að klekkja á fólki með hjálp peninga! Og mér kvíðir fyrir að verða aldraður, því að þegar að ég fæ greiddan lífeyri upp á 290 þúsund fyrir utan skatt, þá á ég kannski eftir 198 þúsund, og þá er Tryggingastofnun eftir, þannig að þegar að upp er staðið þá verða eftir 110 þúsund fyrir húsaleigu og nauðsynjum með skerðingum sem má ekki afnema!

Örninn


Milljarða bati í mjólkuriðnaði!

Ekki hefur almenningur fundið fyrir batanum nema með sífelldum hækkunum á öllum mjólkurvörum! Fyrst að batinn er svona mikill þá er kominn tími til að Ríkisstjórnin athugi hvar batinn er, og launavísitalan er ekki rétt því í 95% tilfella er ekki talað við almenning sem margir hverjir eiga varla bót fyrir rassgatið á sér! Það er ágætt að fá keyptar kannanir til að fegra hitt og þetta og hafa meðal laun uppundir  eina milljón plús á mánuði en almennur launþegi samkvæmt könnunum hefur 600 þúsund á mánuði? Kannski hjá ríkinu hver veit?

Örninn


Reykjavíkurflugvöllur

Þar sem að Flugvöllurinn var gefinn Íslensku þjóðinni þann 9 júli 1946 og Ólafur heitinn Thors tók á móti gjöfinni, þannig að einhverjir stjórnmálamenn hafa selt fyrir góðann pening eign allra Íslendinga og eða breytt einhverju? Og þess vegna spyr ég af hverju liggur svo mikið á að fjarlægja Reykjavíkurflugvöll? Nú borgin setti inn skipulag fyrir Hlíðarendasvæðið og var samþykkt, en ekki af borgarbúum!Hversu margir milljarðar runnu til borgarinnar og renna á hverju ári í formi fasteignagjalda,frárennisgjalda, sorphirðu( einkaframkvæmd sem kostar) ofl? Það er ekkert opinbert því miður. Það er búið og verður miklu meiri skerðing á flugsamgöngum og Borgarlínan bjargar engu fyrir flutning innanlandsflugs nema peningalega séð með ríkisaðstoð! En eitt skal tekið fram að Reykjavíkurflugvöllur er í eigu ALLRA ÍSLENDINGA ekki bara lattelepjandi óhjólandi óborgarstjóra í 101 og óska eftir að Borgarstjóri fari fram á Þjóðaratkvæðagreislu um hvar Flugvöllurinn á að vera! En því miður er það borin von að sá borgarstjóri bakki með allt raupið og loforðin, en eitt skal vera ljóst að nýr flugvöllur verður ekki til í Hvassahrauni, fyrr en eftir 40-70 ár kannski,þannig að Skerjafjarðar uppbyggingin sunnan við flugbrautirnar verða ekki að veruleika enda þarf læknirinn að nota heilabúið til að taka ákvarðanir sjálfur og sleppa einhverjum aðstoðarmönnum(konum)sem kannski hafa ekki hundsvit á hlutunum! Því það kostar að hafa ótakmarkaða aðstoðarmenn 430 milljónir á ári hjá Reykjavíkurborg með öllum réttindum opinberra starfsmanna!Síðast þegar að ég vissi því það er voða erfitt að fá upplýsingar hversu margir aðstoðarmenn eru innan Borgarstjórnar!

Örninn


Vegakerfið

Jæja hvenær ætlar Ríkissjtórnin að girða sig í brók án þess að leggja frekari álögur á almenning með samgönguúrbætur! Samkvæmt gögnum hefur Vegagerðin verið svelt um rúmlega þúsund milljarða síðan árið 1991! Og þeir peningar sem að við skattgreiðendur höfum borgað með auknum álögum á eldsneytisgjald og bifreiðagjöld síðan þá og með hjálp ofurálagningar Eldsneytisala sem að Ríkisstjórnin lætur óátalið því ekkert er eftirlitið með einu né neinu svo fremi sem að allir græða sem hluthafar og með eignaraðild? En allavegana þá þarf Ráðherra samgöngumála og ráðherra Fjármála að skýra út fyrir almenningi hvers vegna hafa peningarnir ekki farið til Vegagerðarinnar eins og til stóð? Bjarga einhverjum ríkisfjármálum eða einhverju öðru? Þá er kominn tími til í dag að lækka álögur á eldsneyti svo almenningur  geti farið að ferðast innanlands og setja stopp á yfirgengilegar álögur eldsneytissala! Það má því miður ekki vegna hagsmunatengsla! En allavegana það þarf ekki að setja neina vegatolla á því almenningur er löngu búinn að borga fyrir vegabætur í gegnum áratugina! En kjósendur kjósa vitleysinga sem hafa sumir hafa ekki hundsvit á þeim málaflokkum sem snýr að þeim! Það væri gustukur að taka ráðherra samgöngumála í bíltúr á trukk með aftanívagni og láta hann kynnast að eigin raun hvernig ófærð getur verið í staðinn fyrir alla ráðgjafana sem hafa og vita ekki hvernig það er að vinna nema á skrifborðsstól!!

Örninn


Er Íslenska dómskerfið rotið enn þann daginn í dag?

Hvernig er þetta með Íslenska réttarkerfið,er það byggt upp fyrir sérstaka vildarvini eða almenning? Almenningur hefur ekki notið réttlátrar málsmeðferðar út af jafnvel fjárhagsstöðu sem að vildarvina lögfræðingar geta vísað í og fengið vildarvinalögfræðinga til að fá frávísun á málum til dómara upp á að sumir skjólstæðingar hefðu ekki efni á málsókn! 8900 íbúðir og hús sem að vildarvinir keyptu á spottprís eftir hrunið og græddu 1,9 milljarða beint í vasann á2mur árum en það má ekki segja frá hverjir keyptu eignirnar, kannski kennitöluflakkarar með skuldahalann á eftir sér sem við borgum ennþá í gegnum spillinguna hjá Íbúðalánasjóð? En það verður breyting á þegar að vildarvinalögfræðingarnir fá skellinn á öllum dómsstigum, og Hæstiréttur líka þegar að hópsmálssókn almennings gegn Íslenska Ríkinu um spillingu verður send til MDE því allir dómarar eiga að vera hlutlausir án PÓLÍTÍSKRA TENGSLA! Hæstiréttur Íslands er ekki hlutlaus heldur SÉRVALINN af Pólítískum toga!

Örninn


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Örn Ingólfsson
Örn Ingólfsson

Er í mjög góðri vinnu. En get verið með ýmsar hressilegar skoðanir sem öðrum finnst stangast á við þeirra skoðanir og ég virði skoðanir annara þrátt fyrir bölv og ragn!

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 66
  • Frá upphafi: 10169

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 58
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband