Færsluflokkur: Dægurmál
23.8.2014 | 04:07
Kaupmáttur láglaunafólks á matvælum!
Það stakk mig mikið þegar að Pétur Blöndal þingmaður viss flokks furðaði sig á því í útvarpi að mikill hluti launa lágtekjufólks færi í matarinnkaup! Og vísaði hann í einhver dæmi með humar ofl! En það er því miður þessi saga með þá sem hafa háu launin eins og Pétur sem að þarf kannski ekki að hugsa um hverja krónu samanber láglaunamanneskja þá td. einstætt foreldri með 2 börn útborguð laun eftir skatta 160 þúsund svo kemur húsaleiga +rafmagn, hiti+ kannski sjónvarp og eða misdýr internettenging með síma þá verður ansi lítið eftir kannski 30-50 þúsund til að lifa af mánuðinn og kannski getað borgað smá bíóferð fyrir börnin en gerist ekki! Nú svo talar maður ekki um út að borða en nei samt sér maður sumstaðar tryggða kennitöluflakkara í boði einhverra borða nægju sína með börn og buru með hátekjufólkinu sem tímir ekki að borga mannsæmandi laun og þiggur ofurarð frá hinum og þessum! Nei þetta er SKÍTT og Íslendingar þurfa að fara að hugsa sig um vill það óbreytt ástand með flokkspólítískri spillingu eða persónum sem hægt er að treysta eða vill það hafa landið á hausnum eins og nánast gjaldþrota Seðlabanki þegar að hrunið varð út af misvitrum flokksgæðing því í dag eru ekki aðrir kostir í stöðunni en að kollvarpa öllu og fá nýtt fólk sem hefur þekkingu á hlutunum ekki einhverja flokksgæðinga í sendiherrastöður ofl!
Þetta leiðir að því orði SPILLING sem að má víst ekki uppræta á Íslandi því það sást með einkavæðingu bankanna og svo á að halda áfram eftir að sömu flokkar sem ollu hruninu komust til valda aftur!!
Örninn
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.8.2014 | 10:24
Öfgamenn Íslam
Þvílíkt gerræði þetta er öfgamenn sem vilja eyða trúarbrögðum sem aðhyllast ekki Íslam! Nú þetta framferði er Íslam ekki til framdráttar myrðandi börn, konur og karlmenn með ógeðslegum hætti og ég er hissa á því að þjóðir sem aðhyllast Íslam skuli nú ekki snúa bökum saman til að uppræta þessa öfga! Kannski eru öfl í þeim ríkjum sem vilja kannski ekki styggja hryðjuverkamenn svo að sömu ríkin lendi ekki í svipuðu og er að gerast í Írak? En ég hef lesið bækur eftir Tom Clancy heitinn og voru skrifaðar fyrir nokkrum árum og í sumum bókum hans hafa komið fram svipuð dæmi sem að hafa gerst undanfarin ár! Þannig að mér kemur ekkert á óvart þó svo að það verði allsherjar stríð á milli Írans og Íraks aftur því Íranar eru orðnir hræddir við þessa öfga Íslamista. Og þá verður kannski stutt í kjarnorkustríð því ógn þessara slátrara breiðir úr sér. Og því miður hefur komið í fréttum að margir Norðurlandabúar sem aðhyllast Íslam sækja í það sem þeir kalla heilagt stríð til að útrýma þeim sem aðhyllast ekki Íslam því miður. En vonandi fara þjóðirnar sem aðhyllast Íslam að vakna sem fyrst því það getur verið of seint þegar að öfga Íslamistarnir eru komnir inn í landið!
Örninn
Myrtu áttatíu jasída í Írak | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.8.2014 | 04:19
Hækka gjöld á sjúklinga ofl? Áframhaldandi niðurskurður þýðir sjúklingadauði og mistök!
Allt í lagi Kristján Þór ráðherra Heilbrigðismála!
Nú er komið nóg ef að sjúklingar, öryrkjar og eldra fólkið á að fara að taka á sig auknar Álögur út af lækkun gjalda til vildarvina samanber veiðileyfagjaldið af ÞJÓÐAREIGN ÍSLENDINGA, og Samherji er að fara að láta byggja 3 nýja togara líka auðlegðarskatturinn sem örfáir vildarvinir þíns flokks grenjuðu yfir þegar að síðasta ríkisstjórn var við völd og þinn flokkur beitti málþófi svo að ekki kæmust í gegn umbætur á ýmsum málum sem þínum flokk þóknaðist ekki ! Og það sýnir sig í dag hvers þið eruð megnug með bölvaðan málflutninginn það er að halda áfram að skara gróðann að sínu fólki alveg síðan 1918 því þinn flokkur með þeim grænu hafið tröllriðið þjóðfélaginu í áratugi með einokun, og valdníðslu gagnvart launafólki með því að halda niðri launum með hótunum um að verðbólgan sem að ykkar flokkar sköpuðu með ofurlaunum atvinnurekenda undanfarna áratugi með gengdarlausum innflutningi vildarvina með ívilnunum til vissra aðila sem höfðu markaðsráðandi stöðu. En þetta er sama sagan í dag hver græðir mest á svikum og prettum samanber vildarvinir sem byggðu hús og blokkir og hafa ekki verið sóttir til saka út af illa byggðum og lekum húsum sem að kaupendur þurfa að sitja uppi með skaðann því það er ekki hægt út af kennitöluflakkinu sem að einhverjir vildarvinir komu á kannski einhversstaðar í lagaglufu og hundruðir milljarða horfnir sko fyrir utan einkavæðingu banka að ná sínum rétti til skaðabóta!
Svona verður þetta áfram í BANANALÝÐVELDINU ÍSLANDI á meðan að spillingaröflin, vinskapur og klíkan ræður það er ekki langt í setningu Alþingis en allavegana miðað við fréttir undanfarna mánuði má búast við hörðum mótmælum!!!
Ps: Nú sjúklingar sem þurfa á hjálp að halda veigra sér í dag við að leita sér hjálpar út af niðurskurði það er kannski það sem að þið viljið að hafa hálfdauða eða dauða sjúklinga fyrir utan spítala sem að fá ekki hjálp út af kannski manneklu eða einkavæðingartilburðum samanber USA en mikið hefði ég vilja halda áfram gamla kerfinu Sjúkrasamlaginu því þá var maður með trygga læknisþjónustu en í dag þá er búið að yfirsprengja alla skala á öllu sem að heitir hjúkrunargögn og vélakostur því vissir vildarvinir sem eru innflytjendur notuðu sér óðaverðbólguna sem að þinn flokkur notfærði sér því miður of oft og þess vegna er staðan á Íslandi svona í DAG!!
Örninn
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.7.2014 | 07:42
Kominn tími til!
Jæja þá er komið að því að almenningur fari að borga fyrir börnin! Af hverju jú það eru barnmargar fjölskyldur af erlendu bergi brotnar sem að hafa tröllriðið Ikea á Íslandi þannig að venjulegar Íslenskar fjölskyldur hafa ekki einu sinni komist nálægt svæðinu og það hefur oft legið við að börn hafi liggur við verið troðin niður í æsingnum til að aðrir fengju sitt! Er búinn að versla í mörg ár við Ikea en síðasta ár hefur verið kvalræði um helgar því þá er ég eins og almennur vinnadi maður sem að hefur frí um helgar reynt að versla en það er voðalega erfitt því yfirgangur hjá sumum er svo svakalegur.Því miður þá hafa erlendir atvinnulausir einstaklingar og Íslenskir líka sem koma keyrandi á sínum bílum ofl stólað á fría matinn hjá Ikea fyrir börnin. Þannig að ég fór í júní að snúa mér að öðrum þó það sé aðeins dýrara og jú þar er ekki frír matur en samt betri þjónusta og enginn troðningur!
ÖRNINN
Maturinn ekki lengur frír | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
12.7.2014 | 07:35
Hallalaus fjárlög á kostnað almennings!
Jæja hæstvirtur ráðherra fjármála lofar hallalausum fjárlögum! Og hvernig hann fer að því þá verður það svoleiðis að hækka álögur á allt þar með talinn mat, lækkanir á td barnabótum ( eins og síðast hjá flokk hans og tekjutengja 2003-2008) lækka bætur eins og hægt er skera niður til allra embætta, sameina jafnvel þó að lítið sé hægt að sameina! Og það er bara til þess að almenningur þarf að borga vildarvinum fyrir allan gjafakvótann ofl undanfarna áratugi. Og þar sem að háttvirtur ráðherra fjármála lækkaði hin og þessi gjöld fyrir sína vildarvini því ekki máttu þessir blessaðir vildarvinir fara á hausinn ( með milljarðagróða og arðgreiðslur) svo að ekki yrði hungursneyð á þeim örfáu höndum! En við þurfalingarnir fáum bara skarnið og horfum upp á fólkið sem eru vilhallir þeim hinum sama kaupa inn fyrir nokkur hundruð þúsundir í mat og vín í hverri viku og ekki skemmir fyrir að hafa glæsibílana við innkaupin á kostnað almennings! Held bara að þessir vesalings þurftarmenn sem ráða ríkjum á Íslandi ættu að prufa að lifa á 70-80 þúsundum á mánuði eftir skatta og borganir af hinu og þessu og lægri upphæð hjá sumum! Því ekki fær almenningur frítt rafmagn, síma, bíl, styrki sem nema 300-500 þúsundum á mánuði ofl eins og svo margir sem ráða ríkjum fá og eru allir þingmenn meðtaldir með sína styrki og á launum allt sumarið við að gera ekki neitt nema að skemmta sér og sínum!Því ekki fær almenningur frí í marga mánuði á fullum launum eins og sumir við að gera ekki neitt er þá ekki kominn tími til að jafna orlofið á milli stétta? Og allir hafi sama orlof það er engin furða að hallinn sé svona rosalegur hjá LSR sumir með milljón í lífeyri á mánuði?? Því það er erfitt að finna þingmann á Alþingi eftir slit en er þá ekki hægt að setja upp stimpilklukku þar sem að alþingismenn fái borgað eftir viðveru því Öllum Íslendingum finnst það óvirðing að sjá svo til tóma þingsali því almennur launþegi þarf að stimpla sig inn og ef ekki mætt eftir klukkunni þá dregst það frá LAUNUM! Þetta er staðreynd og á þá ekki jafnt yfir þá sem að sumir kusu á þing að ganga enda er ágætt að vitna í upptökur úr þingsal undanfarin 6 ár hversu duglegir þingmenn hafa verið þar!!!
ÖRNINN
Stefnir að hallalausum fjárlögum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.7.2014 | 08:09
Ísland á Heljarþröm!
Jæja nú er gott í ári hjá ríkisstjórninni, allir græða (?) og fylgifiskur Landsvirkjunar sem er eign ALLRA ÍSLENDINGA kemur fram með einhverjar kannski keyptar fullyrðingar um gróðasemi rafmagnssæstrengs til Bretlands með gróða sem er hærri heldur en allur olíugróði Norðmanna! Því þá verður voðalega lítil olía eftir ef einhver! Jú kannski eftir 50-200 ár en í dag og næstu 30 árin nei og þeir blessaðir gróðapungarnir bæði Íslenskir og erlendir sækja svo eftir rafmagnssæstreng með forstjóra Landsvirkjunar (Gróðapúngur auðvaldsins ekki almennings?) í fararbroddi sem dásamar allt í sambandi við raforkusæstreng og ef að þessu sæstrengsslysi yrði munu Íslendingar þá fá orkuna sína á yfirverði eftir geðþóttarákvörðunum einhverra? Nei það verður aldrei því Íslenskir neytendur með miklu lægri laun og kaupmátt samanber Noreg munu aldrei ráða við þá hækkun á raforkuverði sem varð í Noregi eftir lagningu rafmagnssæstrengs til Bretlands og því miður þá er það leyndarmál frá Landsvirkjun hvað hverjir borga en það er minnsta mál fyrir Landsvirkjun að upplýsa orkuverð til almennings í dag á Íslandi per KW stund og sama í Noregi KW stund miðað við laun og kaupmátt þá held ég að við yrðum ansi neðarlega og hvað það myndi verða þá með óskadraum útvalinna þegar að almenningur fengi að vita sannleikann!! Því að við erum á Íslandi ekki á meginlandi Evrópu og jú fjárfestar vilja leggja strenginn upp á 230 milljarða og hver borgar? Nú Íslendingar næstu 65 árin með hækkuðum álögum + ýmsar sposlur sem ekki koma fram nema kannski á Tortóla, Cayman og eða? Bölvuð helvítis skítalykt af þessu ásamt fleiru frá flokksskipuðum stjórum en ekki ráðningum af fólki sem þekkir og kann á hlutina!
ÖRNINN
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.7.2014 | 21:30
Umræða Bjarna Ben um sölu í Landsbankanum og geðþóttarákvörðun flutninga hjá samstarfsflokki hans!
Jæja nú er Bjarni Benediktsson að íhuga að selja hlut í Landsbankanum. Og ég spyr sem Íslendingur er ekki í lagi með BB? Fengu Íslendingar ekki hrun yfir sig eftir ákvörðun sömu flokka í ríkisstjórn með fulltingi flokks BB að einkavæða bankana með þessum hörmulegu afleiðingum þar sem að vissir vildarvinir fengu bankana á slikk og jafnvel borguðu lítið sem ekki neitt eða hvað? Nei nú ætti BB að gangast í það að gera upp fortíðina og viðurkenna mistök síns flokks og fyrrverandi Seðlabankastjóra og líka formaður hins flokksins í ríkisstjórn vegna þess að sá hluti Íslendinga sem kaus þá ekki er ekki búinn að gleyma og kokgleypti ekki loforðin eins og sumir molbúar sem eru tryggir sínum málstað og vilja bara einkavæðingu og einokun eins og hefur verið viðloðandi báða þessa flokka alveg síðan annó 1918 og sérstaklega eftir 1944 og þá komst það á að borga sem minnst til launþega á meðan að við atvinnurekendur græddum og enda Samtök atvinnulífsins í dag með í því allavegana miðað við samninga! Og ekki tala ég um vöruverðið sem er í hæstu hæðum innflytjendur hækka og hækka og benda á alheimsverð þó svo að varan hafi komið til Íslands og borguð fyrir einhverjum mánuðum á undan! Sama með vildarvini beggja flokka sem eiga innflutningsfyrirtæki á sviði olíu og bensín þeir hækka strax þó svo að búið sé að borga farminn og mega því samkvæmt lögum ekki hækka en því miður þá er gott að hafa hauka í horni breyta kannski einhverjum reglugerðum! Þetta er skítt en svona er þetta og Íslendingar segja ekki neitt! En að öðru samstarfsflokkur BB ætlar að færa Fiskistofu norður og ætla ég ekkiað fara út í umræðuna en mikil djöfulsins pólitík er þetta og samanber flokkin hans SDG sem setti milljónir í verkefni með sms án nokkurs tilefnis þeir fengu sem þóknuðust honum! Hann er orðinn alveg eins og pabbi sinn útsmoginn og sem hefur komið fram misvísandi lygari eða hvað bara spyr? Nei nú er komið nóg og Íslendingar farið að vakna upp því milljarðarnir eru að renna frá okkur á meðan að þessir jólasveinar ráða og það er ekki langt í næsta hrun og þá er hægt að kenna molbúakjósendunum um hrunið ásamt BB og SDG!! Ég er ekki að bera í bætifláka fyrir fyrri ríkisstjórn en það var farið að sjást til sólar þá en núna er að verða almyrkvi! Sjáið til!
Örninn
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.6.2014 | 23:02
ASÍ og lagasetningar
Jæja ósköp heyrist lítið í forystusauð ASÍ út af lagasetningum ríkisstjórnarinnar þar sem að Samtök Atvinnulífsins ráða ríkjum! Þá meina ég að hafa heila ríkisstjórn á valdi sínu svo vildarvinir geti grætt meira! En nú er komið nóg því það eru andskoti mörg lög sem að ríkisstjórn flokks innanríkisráðherra hefur sett undanfarna áratugi að beiðni LÍÚ ofl gróðapúnga sem græða á lágum launum og halda þeim niðri með erlendu starfsliði. Því miður þá komu hinir sömu á launaleynd í sem atvinnurekendur komu á í samningum sem hefur orðið til þess að laun hafa ekki hækkað eins og þau ættu að hafa hækkað allavegana miðað við launavísitölu SA og LÍÚ þar sem að laun hafa hækkað hjá stjórnendum um 100+ prósent á miðað við almennan launþega! Og ofsagróði sem að fyrirtækin sýna þá má ekki láta launþega fyrirtækjanna njóta þess heldur eiga launþegar að hanga á horriminni og það með atbeina ríkisstjórnarinnar sem vill halda láglaunastefnunni til streitu svo að almenningur verði ofurseldur sínum atvinnurekanda því viðkvæðið er ef að þú biður um hærri laun þá er nóg til af fólki!! Þannig halda þeir sinni láglaunastefnu með fulltingi ASÍ sem virðist sleikja einhvern enda á SA og LÍÚ. Og svo ætlar forystusauður ASÍ að bjóða sig fram aftur! Guð hjálpi verkafólki þá og vonast ég til þess að framboðin verði fjölmörg og að það verði almenn kosning ekki útvaldir félagar á þingi ASÍ! Þannig fór um síðustu kosningu hjá ASÍ það voru þeir í trúnaðamannaráði sem réðu úrslitum og það voru þeir innan ráðsins sem að kusu forystusauðinn með sínum atkvæðum þó svo að margir innan vinnustaða þeirra vildu ekki forystusauðinn en þeir snérust gegn sínum umbjóðendum gegn gylliboðum ASÍ og enda margir trúnaðarmenn sem verða ekki kosnir áfram og hafa haft skömm fyrir á sínum vinnustað! En nú er komið nóg og vonandi láta launþegar í sér heyra og launþegi vill ekki eymingjaskap heldur hörku sem að síðustu ár hefur verið engin með forystusauð ASÍ í forsvari því miður. Farið að tala um hlutina opinberlega en ekki kjafta hver í sínu horni og svo þegar að til kastanna kemur þá gerir enginn neitt eða þorir því miður hefur þetta verið viðkvæði hjá launþegum í góðærinu 2003-2008 og eftir það líka því fólkið er svo dofið að það þorir engu! Sjáið Evrópu þar mótmælir fólk og þar er hlustað á fólk en hérna á Íslandi NEI! Því við erum ennþá molbúar og þannig lítur fólk úti í heimi á okkur því við kunnum ekki að standa á okkar rétti og þorum ekki að láta heyra almennilega í okkur út af hræðslu við GRÓÐAPÚNGANA sem EIGA ÍSLAND Á OKKAR KOSTNAÐ OG HRÆÐSLU VIÐ YFIRVALDIÐ SEM ER UNDIR OKKAR STJÓRN MEÐ MISVITRUM STJÓRNENDUM OG ALÞINGI!!!!
Örninn
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.6.2014 | 08:19
Svínabændur og geldingar!
Jæja las Fréttablaðið 12 júní 2014 og þar eru svínaræktendur að gera athugasemdir við störf yfirdýralæknis! Nú það er í lagi að gera athugasemdir en þá er eitt sem að svínaræktendur hefðu átt að framfylgja eins og yfirdýralæknir benti á Lögum! En því miður þá eru svo margir fjársterkir eigendur svínabúa sem vildu alls ekki að þessi umræða kæmi til tals en sem betur fer þá kom þetta fram í dagsljósið. Og jú svínaræktendur urðu hræddir við umræðuna um að almenningur sniðgengi svínakjöt og þá allt í einu vöknuðu þeir upp við vondan draum að svínakjötsokrið hryndi! Nú jú svínakjöt hefur hækkað í verði langt yfir allar hækkanir á fóðurverði( sem er lítið því allur úrgangur er notaður) launakostnaður ( lágmarkslaun fyrir erlent vinnuafl) og svo ofurlaun eigenda! Það væri þá kominn tími til fyrir svínaræktendur og svínabú að upplýsa alþjóð um eignatengsl svo að almenningur fari nú ekki að ímynda sér eitthvað því Td Ali þá eru þeir helvíti dýrir á sínum afurðum þó svo að þeir ráði yfir 80% af markaðinum! Skrýtið nei því Ali á í flestöllum svínabúum á Íslandi reyndar undir krosseignartengslum! Og má þá ekki athuga þau mál? Kannski en það verður lítið úr rannsóknum vegna krosseignatengsla og klíkuskapar í ráðuneytinu sem ræður öllu eða hvað?
Örninn
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.6.2014 | 08:03
Vegagerðin og ríkishýtin!
Jæja veit ekki betur en að síðustu 23 ár og öll árin þar á undan þar sem að gjald á eldsneyti hefur hækkað um 840 prósent sem áttu að fara til Vegagerðar! Og með þeim fjármunum sem skiluðu sér aldrei nema í hýtina þá hefði verið hægt að malbika hringinn í kringum landið 10 sinnum, laga hálendisvegina og svo mætti lengi áfram telja. En nei skýtt með vegina og samgöngurnar það er annað sem þarf að borga! Og hvað skyldi það vera annað en óráðssía síðustu 23 ára eða fleyri ára til að borga fyrir kennitöluflakk vissra vildarvina og milljarðatap einkavæðingarvina? Kannski en allavegana að þá fannst mér persónulega það ALVEG FRÁBÆRT af ríkisstjórninni með sína vildarvini að hafa GETAÐ LÆKKAÐ BENSÍN OG OLÍUGJALDIÐ UM HEILA KRÓNU sem HÆKKAÐI DAGINN EFTIR og SVO LÆKKAÐ ALLT Á SÍNA VILDARVINI bæði í ÚTGERÐ og OLÍUGEIRANUM og svo SKILA ÞESSI FYRIRTÆKI MILLJARÐAGRÓÐA!!!ER EKKI Í LAGI MEÐ HEILABÚIÐ Á KJÓSENDUM? NEI EKKI ÖLLUM EN KANNSKI VERÐUR EINHVER UPPLYFTING ÞAR NÆSTA HAUST ÞEGAR AÐ HRUNIÐ ER BYRJAÐ!
VAR BÚINN AÐ AÐVARA FÓLK!
Örninn
Þúsundir lítra af mjólk helltust niður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Kjaramál
- Lífstíll
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Samgöngur
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 118
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 111
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar