Færsluflokkur: Bloggar
9.2.2019 | 04:33
Opin spurning til stjórnvalda!
Hvernig getur það verið í sambandi við verðtrygginguna,okurvexti sem að Seðlabankinn viðheldur er það út af afarkostum Auðvaldsmafíunnar þar með talda erlenda eigendur sem eiga hluti í Íslenskum bönkum og aflandskrónueigeindur sem fengu afslátt með því að gefa 1% upp til Ríkisskattstjóra? Eða eru það einhverjir aðrir þættir sem spila inn í sem að Íslenska þjóðin veit ekki um? Sá frétt í gærkvöldi um sýningu sem að var opin til klukkan 23 í gærkvöldi og öllum boðið! Almenningur fékk ekki að vita af þessum viðburði með heilsíðuauglýsingu í blöðunum, en allavegana sá ég í fréttunum að ein gullstöng? var sett á stall og kostaði sú yfir 200 millur í mynd og viðtalinu! Nú það er flott ef að gullsjóðurinn okkar sé yfir 800 milljarða+ og er þá ekki kominn tími til að ljósmyndarar fái að mynda gullforðann sem kannski er ekki ti? En allavegana fyrir utan þetta þá er kominn tími til fyrir fólk að fara að vakna og síðustu fréttir um verðlagningu á innfluttum vörum er komið í það sama og löngu fyrir hrun og innflytjendur og heildsalar ásamt Ríkinu að það hækkaði alltaf allt í HAFI! Þetta er nákvæmlega sem olíufélögin hafa gert í gegnum áratugina og gera ennþá hækka STRAX en lækka ekki verðið strax eins og á að vera! Enda hafa olíufélögin haft af Íslenskum neytendum síðastliðið ár 350 milljónir+? í ofgreidd olíugjöld og ríkið 560++ milljónir? í GRÓÐA með hjálp Seðlabankans! Verðtrygging hvað af hverju má ekki hækka skatta á auðvaldið, auknar álögur á vildarvini innan sjávarútvegsins og AF HVERJU BERST BJARNI BENEDIKTSSON HATRAMMLEGA GEGN KENNITÖLUFLAKKINU? ÞVÍ VILDARVINIRNIR VILJA GRÆÐA SEM MEST OG ALMENNINGUR ÞARF AÐ BORGA SEM MEST!
Örninn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.1.2019 | 22:28
Mengun í Reykjavík
Það er alltaf verið að tala um mengun í Reykjavík út af svifriki og útblæstri bifreiða! En mesta mengunin kemur frá bílum í hægagangi á háannartímum á stofnleiðum ásamt öllum götum nálægt þeim sem fólk reynir að nota til að forðast umferðarteppur! Er búinn að vera bílstjóri í 43 ár og það vantar ekki mengunina! En sú mengun kemur frá bifreiðum í hægagangi og tala nú ekki um akstursleiðir Strætó þar sem að borgaryfirvöld hafa tekið af útskot Strætó á mörgum leiðum, með tilheyrandi stoppi fyrir umferð með mengun! Held að þessir sem ráða í Reykjavík hafi ekki hundsvit á samgöngum og hvað þurfi til að bæta þær! Það er ekki nóg að vera með milljónir í laun og vera eins og kvartvitar, og Grensásvegurinn er eitt dæmi í mengun eftir að sá vegur var þrengdur þá hefur borgin ekki viljað setja upp mengunarmælir þar og allrasýst í Borgartúninu ásamt Hofsvallagötunni! Nei geðþóttarákvarðanir sem byrjuðu á Hofsvallagötunni með Gnarrinum því hann bjó þar á þeim tíma, þá hafa hinir lapið vitleysuna úr honum og skánar ekki. Sá sem réði þá eyddi óvart öllum sínum tölvupóstum, ásamt fleyri starfsmönnum sem voru undir hans stjórn en kannski finnst ekkert um skrif á tölvurnar hjá Reykjavíkurborg ALLT DELETE!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.12.2018 | 19:18
Hvert fóru hundruðir milljarða í vegamál ?
Já stórt er spurt,allavegana ekki í vegamál þeir áttu að fara! Og hafi fyrrverandi Ríkisstjórnir skömm fyrir sín afglöp! Það þýðir ekki að borga upp skuldir allt í einu sem eiga að borgast 2025 og seinna bara til að ganga í augun á kjósendum og láta allt annað sitja á hakanum! Og líka annað það má kenna þeim sem að ofan greinir fyrir lélegt vegakerfi, hálfónýtar brýr og svo má lengi telja! Íslendingar vilja enga helvítis vegatolla því óríkisstjórnin sem er við völd í dag vill einkvinavæða gjaldheimtuna! SKILIÐ ÞVÍ SEM VEGAGERIN ÞARF OG ÞAÐ ERU 230 MILLJARÐAR SEM RÍKIÐ SKULDAR VEGAGERÐINNI! Og er þá ekki kominn tími fyrir ríkið að lækka lífeyrisgreiðslur opinberra starfsmanna til að ná upp í skuldahallann þar? Almenningur hefur þurft að blæða fyrir fjármálaafglöp vildarvina sumra flokka með lækkuðum lífeyrisgreiðslum og er þá ekki kominn tími fyrir hópmálsókn gegn ríkinu til að krefjast bóta og réttlætis í lífeyrisgreiðslum afturvirkt því ekki töpuðu þeirra lífeyrisþegar krónu eftir hrun? Einn lífeyrissjóð á Íslandi og allir fá sama lífeyri 250 þúsund eftir skatt!!
Örninn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.11.2018 | 18:32
Jæja kæru Íslenskir vátryggingartakar iðgjöldin hækka!!
2 Stórbrunar því miður með hörmulegum afleiðingum á Selfossi og í dag í Hafnarfirði! Því miður hafa sum tryggingarfélög sent út viðvörun til Íslendinga að nú þurfi að HÆKKA iðgjöldin út af tjónum! En af hverju að hækka iðgjöldin? Nú svo að arður verði greiddur út til Lífeyrissjóðanna ofl! EN ÞVÍ MIÐUR SEGJA TRYGGINGAFÉLÖGIN EKKI FRÁ ÞVÍ AÐ ÞAU ERU BAKTRYGGÐ ERLENDIS MARGFALT SEM ÖLL SLYS OFL HAFA KOSTAÐ OG SAMT ER ÍSLENSKA RÍKIÐ MEÐVIRKT Í ÞESSARI HÝT ÁSAMT LÍFEYRISSJÓÐUNUM OG ENGIN FURÐA AÐ EKKI MEGI TRYGGJA SÍN ÖKUTÆKI HJÁ ERLENDU TRYGGINGAFYRITÆKI SEM KOSTAR BROT AF EINOKUNNI Á ÍSLANDI OG ÉG VEIT AÐ TRYGGINGAFÉLÖGIN KÆMUST EKKI UPP MEÐ KJAFTÆÐI Í SAMBANDI VIÐ TJÓN Í EVRÓPU VEIT UM DÆMI AÐ EITT ÍSLENSKT VIRT TRYGGINGARFÉLAG RUKKAÐI EIGANDA BÍLS UM SJÁLFSÁBYRGÐ FYRIR TJÓN SEM AÐ KOM HONUM EKKI VIÐ ÞETTA VAR AFTANÁKEYRSLA OG KASTAÐIST BÍLLINN HANS ÁFRAM Á NÆSTA BÍL! MÁLINU VAR LOKIÐ Á STAÐNUM BÍLARNIR FLUTTIR BURT!En allavegana þá verður þetta prófmál í réttarkerfinu hérna heima gegn Tryggingafélögunum og sönnunarbyrðin færist á Tryggingafélögin þannig að Árekstur.is verður óþarfur!! Bara Lögreglan!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.11.2018 | 23:54
Rannsókn á Íslenskum stjórnmálamönnum fyrir hrun og eftir ofl!
Jæja kæru kjósendur aftur takk fyrir ykkar framlag til þjóðargjaldþrots hundruða fjölskyldna! Nú þeir sem að vilja halda krónunni áfram eru þeir sem græða mest: Stórfjármagnseigendur sem keyptu krónu á undirverði eftir hrun við fall bankanna og sölu! En því miður er Íslenskur almenningur ekki upplýstur um eignarhald bankanna því það á að heita bankaleynd! En Seðlabankinn ásamt fjármálaeftirlitinu og Seðlabankinn mega ekki leyna GÖGNUM sem varða almannahag um jafnvel fjármálagjörninga sem viðhafðir voru fyrir hrun og eftir það ástand sem að kom þúsundum heimila á vonarvöl! Enda berjast sumir með kjafti og klóm til að fela sitt ennþann dag í dag! Enda eru dómar fallnir og þá ber Seðlabankanum að setja sín skjöl fram ÓRITSKOÐUÐ og óyfirstrikuð því sannleikurinn þarf að koma fram og friða þjóðina! Nú Stundin fór að birta fjármálagjörninga einnar ættar og sett lögbann á rétt fyrir kosningar og jú Glitnir Holdco ásamt Logos höfðu ekki síðast þegar að ég vissi áfrýjað töpuðu máli!En hvað á þá að gera við stækann sýslumann sem setti lögbannið á? Hann stjórnaði ásamt sínum undirmönnum nauðungarsölum fjölda fasteigna ásamt jarða sem að Bankarnir fóru fram á vegna þess að vildarvinir ásamt fleyrum kennitöluflökkurum ásældust vissar eignir og fengu á SPOTTPRÍS! Nú barasta að setja hann á eftirlaun upp á 1,7 milljónir á mánuði ríkistryggður sem opinber embættismaður og þarf ekki að hugsa um þá sem eiga ekki á milli hnífs og skeiðar og misstu allt sitt út af þeim gjörningum!
En svona vilja Íslenskir kjósendur hafa þetta og þora ekki að segja eða mótmæla út af helvítis hræðslu við afleiðingarnar að MÓTMÆLA SPILLINGU heldur TRÚA LOFORÐUM LYGARA aftur og aftur!Af hverju eru Íslendingar hræddir við mótmæli? Ég veit út af hræðslu við sína vinnuveitendur því að ef þú mótmælir þá missir þú vinnuna! Nú en ef að tugþúsundir Íslendinga geta mætt á Austurvöll beint úr vinnu þá er ekki hægt að reka alla en kannski suma þá fara atvinnurekendur að hugsa sinn gang þegar að fólk stormar út til mótmæla og það er sannarlega kominn tími til í dag því ekki viljum við selja raforku úr landinu ásamt fleiru! Er ennþá að bíða eftir þjóðaratkvæðagreiðslunni hans Vellygna Bjarna um ESB! Ef svo yrði að Ísland gengi í ESB þá væri allt sett í rannsókn allir fjármálagerningar fyrir hrun og eftir og Seðlabankinn settur í GJÖRGÆSLU!!
Takk kjósendur fyrir spilltar ríkisstjórnir síðan 1918!!!
Örninn
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.10.2018 | 01:57
Glitnir Holdco, alias Logos gagnvart Stundinni!
Jæja í þessu máli sem hefur tekið alveg ár með hjálp fjársterkra aðila sem má ekki segja frá og það var þaggað niður í Stundinni rétt fyrir síðustu kosningar sem því miður héldu áframhaldandi yfirráðum yfir þjóðarauð okkar Íslendinga áfram! Og með fulltingi auðvaldsmafíunnar á Íslandi með Seðlabanka Íslands í fararbroddi sem heldur Íslenskum almenningi í skuldaánauð og hefur gert sérstaklega eftir hrun til að bjarga auðvaldsmafíunni með að lækka ekki vexti sem gætu komið almenningi til góða en það má ekki því auðvaldsmafían vill græða meira! Og þá er eins gott að vesalings ráðherra fjármála sem er farið að hitna undir með sínum rassasleikjumfari að athuga sinn gang því álögur á almenning sem hafa verið lagðar á síðan 2013 og hafa hækkað um 48% það er um í dag fyrir einstætt foreldri með lækkun barnabóta tekjutengdum sirka nnig að Bjarni Ben eða ríkið græðir á öllum hvort sem það séu aldraðir, öryrkjar eða einstætt foreldri! Og tala nú ekki um hátekjuskattinn sem var lækkaður á þá ríkustu, eignaskatturinn líka og ekki er það ríka fólk elt yfir gröf og dauða eins og fólk sem á lítið til handanna þá eru ættingjar þeirra dauðu lögsóttir fyrir að koma ættingjum sínum í gröfina ef ekki er greitt á réttum gjalddaga og engin milljónaveisla til heiðurs þeim dauða eins og tíðkast í ríkimannasamfélaginu á ÍSLANDI!!!
ÖRNINN
Ps:
Því miður eru einhverjir stjórnendur á blogginu sem stjórna og rugla skrifum því það er erfitt að breyta innan færslunnar ýmsu!Þannig að sumu þarf að breyta en þá þarf að taka út heilu setningarnar og halda svo áfram! Nema að ég sé ekki í réttum flokki?Ég prufaði þetta hjá einum vildarvinabloggara og þá gekk það flott!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.8.2018 | 02:49
Sjálfboðaliðabjörgun númer?
Mikið skuldar Íslenska Ríkið undanfarna áratugi Björgunarsveitum á Íslandi öllum saman sem eru undir nafninu Landsbjörg í dag! Því það kostar óhemju peninga að vera með Björgunarsveitir um allt land með allan sinn búnað og hugsið um að ef að búnaðurinn er ekki fyrsta flokks þá getur sá búnaður skilið á milli lífs og dauða! Margir stjórnmálamenn hafa notið góðs af óvæntri þjónustu Björgunarsveita um allt land og lofað hinu og þessu! Efndirnar hafa verið 5% af 100%sentum! En það væri gaman að vita hversu margir þingmenn kunni skyndihjálp 1 sem að ég held bara að ansi fáir því ekki fékk ég hjálp fyrir 3mur árum síðan þegar að ég þurfti að hnoða og blása og 3 þingmenn stóðu og horfðu á þangað til að manneskja hjálpaði við blásturinn þangað til að Neyðarbíllinn kom! Það kannski kom þeim ekkert við en samkvæmt lögum ber okkur skylda til að hjálpa í neyð og öllum björgunaraðilum er heimilt að æskja manneskju um aðstoð og ef sú manneskja neitar aðstoð og getur ekki gefið haldbærar skýringar á neituninni þá er hægt að sækja þá manneskju til saka!
ÖRNINN
![]() |
Vélarvana bátur sóttur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.5.2018 | 12:15
Æji já gleymdist?
Því miður höfðu stóru félögin sem keyptu eignir á slikk hjá Íbúðalánasjóði eftir að almenningur missti þær út af fautaskap og offorsi ýmissa sýslumanna eftir HRUN og hafa þau ekki haft rænu á að athuga kannski sína eign vestur í Hnífsdal? En hefði þessi eign verið í lattelepjandi 101 Reykjavík þá hefði þessi eign farið á 120 milljónir eða meira STRAX, og ef Dagur og Holuhjálmar réðu þá yrði rifið og sett kannski hótel eða þrengt að bílum?
Skítalyktina leggur af Íbúðarlánasjóði og flokksgæðingum MAFÍUNNAR!!
Örninn
![]() |
Einbýlishús gleymdist í Hnífsdal |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.3.2018 | 04:11
Mjólkursamsalan
Jæja kæru Íslendingar þá er ýmislegt að hverfa af markaðnum hjá Mjólkursamsölunni! Allir hafa tekið eftir hvarfi stóru fernanna eins og hálfs líters og eftir þá breytingu þá hækkaði líter af mjólk um 3 krónur! Nú ekki tala ég um Létt og Laggott sem er hætt að framleiða ásamt ýmsu öðru til að koma áherslum á í sambandi við ÍSEY! Mikið grunar mig að gróðaáherslur á almennt viðbit sem seldist gríðarlega til að koma Smérinu á aftur sem er því miður allt of dýrt og þarf að vera lengi á borði svo linist upp og endist illa án kælingar! Þar sem að ég frétti um vélbúnaðinn fyrir stóru fernurnar að þær væru svo gamlar að það fengjust ekki VARAHLUTIR í þær en samt í mörgum Þróuðum ríkjum eru þær ennþá notaðar! Kannski átti að selja þessar gömlu vélar til 3ja heims ríkis til að losa pláss fyrir Ísey eða eitthvað annað, því gróðinn er mikill á kostnað ÍSLENDINGA OG allir kokgleypa allt sem allir stjórnendur segja samanber lygalaupa og panamaprinsa ásamt skatt og kennitöluflökkurum tala nú ekki um vildarvini prinsins sem gerði ekki neitt og man ekki neitt og skuldar ekki neitt en merkilegt almenningur er lögsóttur út yfir gröf og dauða af LOGOS!!!
Örninn
Bloggar | Breytt s.d. kl. 04:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.11.2017 | 08:16
Af hverju skrifað endurrit?
Fyrst að endurrit af þessu víðfræga samtali milli Davíðs og Geirs birtist í Morgunblaðinu þá er ekkert að marka það því þetta endurrit GÆTI VERIÐ RITSKOÐAÐ! Af hverju má ALÞJÓÐ ekki heyra upptökuna óritskoðaða og óklippta? Leyndarmálin eru svo STÆK hjá DAVÍÐSFLOKKI þannig að óvenjulegur Íslendingur kýs ekki flokk Davíðs! En þeir hinir venjulegu ca 10% með fjármagnsmafíuna bak við sig geta það og nota öll sín áhrif til að fá sem flest atkvæði! En því miður þá má ekki segja frá leyndarmálum og ég geri það ekki því þá fengi ég LÖGBANN Á MIG og útilokaður frá ýmsum miðlum ásamt fjölskyldumeðlimum! Svona er Fjármagnsmafían á Íslandi sterk ræður öllu samanber tjáningafrelsi Fjölmiðla og það er gott að hafa Sýslumenn og Dómara undir sínum verndarvæng, en samt er flokkur þeirra á vonarvöl skrítið! Samt fékk flokkurinn frá okkur 350 milljónir í fyrra og hækkar upphæðin fyrir þetta fjárlagaár! Hver er og var ráðherra peninganna? Skattalækkanir fyrir almenning nei það verður aldrei almenningur sem kokgleypir gífuryrðin situr eftir með sárt ennið verr statt en fyrir síðustu kosningar!
Ps: Sægreifarnir með mestann KVÓTANN barma sér en samt keypt ný skip og greitt sér milljarða í ARÐ og hver er skattprósentan af arðinum? 1-2-3% eða ekki neitt?
Örninn
![]() |
Gerðu ýtrustu kröfur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Kjaramál
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Samgöngur
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.9.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 12589
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar