Færsluflokkur: Bloggar
15.6.2024 | 10:30
Skuldahalinn vex
Nú er kominn tími til að lækka kostnað almennings, fyrir flokkun alls úrgangs! Og fjölga ferðum einkarekinna fyrirtækja til að ná í lífrænan úrgang og annars sem er til staðar, tala nú ekki um Djúpgámana! Það væri gott fyrir almenning að fá opnberar upplýsingar hver samdi við hvern um Sorphirðu síðastliðin 6 ár! Kannski má ekki upplýsa um leyndarmálin?
Blessaðir bitlingarnir, sem hafa kostað Reykjavíkurborg 1,3 milljarða, og ennþá bætist við! Það mætti segja upp í hópuppsögn sirka 2/3 af aðstoðarmönnum ( konum, og eða hvaða nöfnum á að nefna ) sem hafa ekkert að gera og hefur sumt af þeim ekkert að gera, því enginn veit hvað sá eða sú , eða nafnlaust á að vinna við! Skuldirnar hækka, nýtekið lán til hvers? Borga lífeyrir næstu áratugina, og eða að þrengja götur? Mislæg gatnamót sem má víst ekki því miður til að stjórna umferðarflæði! Td, mislæg gatnamót Breiðholtsbrautar og Bústaðarvegar! Nei Blessað fólkið innan borgarinnar vildi það ekki út að Laxveiðiánni! En litla lækjarsprænan sem þau hafa aldrei séð og ekki kynnst, vegna þess að 98% af borgarfulltrúum sem fólkið kaus veit ekki neitt? Hafa jafnvel aldrei vitað og hafa ekki gengið yfir lækjarsprænuna okkar í Blesugrófinni ( Laxveiðiánni ) ! Þá væri frábært að senda borgarstjórnarfólkið í vettvangskönnun! Ekki veit ég á hvaða lyfjum þetta fólk hefur verið, og sá sem var villtastur í mótmælum gegn mislægum gatnamótum þá Holu Hjálmar, var fluttur til í starfi, en hefur samt áhrif með borgarstjóra í dag, ásamt sitjandi konum ofl, sem vilja ekki missa launin og stólana! En mislægu gatnamótin sem ég minntist á fyrr hefðu kostað þá 290 milljónir, í dag þá uppreiknað 5-6 milljarðar! Einn vinur minn Verkfræðingur sem kom í heimsókn fyrir 8 árum síðan frá Kanada spurði mig af hverju ertu að bíða á ljósi! Nú ég var á rauðu ljósi og ,og hann spurði mig hvað er að, engin umferð frá vinstri og þú á rauðu ljósi. Ég svaraði, bannað að beygja til hægri þó svo að það sé rautt ljós! Hann sagði bara crasy Icelanders!
Margt skrítið í ýmsum hausum í borgarstjórn!
ÖRNINN
![]() |
Segir borgina græða á afhendingu lóða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.3.2024 | 17:46
ÚTBOÐ HVAÐ
Það þarf ekkert útboð, koma þessu fólki af stólunum til að sinna sinni vinnu, og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar með hversu marga starfsmenn og aðstoðarmenn ( konur) á fullum launum sem hafa svo kanski ekki hundsvit á Heilbrigði! Það þarf bara eitt að Íslenska ríkið taki yfir þennan málaflokk fyrir allt landið,ekki einhverja sem hafa ekki hundsvit á hvernig á að meðhöndla kjöt, fisk og vinna við afurðirnar! Efast um að starfsmenn hafi komið nálægt því að þurfa að taka upp og meðhöndla hræ að dýrum, kannski aðstoðarmenn (konur)sjái um skítverkin? Nei upp úr stólunum, og Einar borgarstjóri segðu stopp við kjéllingarnar hans DAGS. Láttu þær fara að vinna útávið með almenningi, sópa götur ofl! En ææ nýju 200 þúsund króna neglurnar brotna óvart!
Komið nóg Einar með bruðlið og ósómann, fækkaðu aðstoðarfólkinu svo hægt sé að spara, húsleigan hjá mér hækkaði um nokkur þúsund um mánaðarmótin! Hefði kannski ekki hækkað nema fyrir eymingjaskap og dugleysi, hræðslan við kjérlingarnar hand Dags? Bara spyr? Kjarasamningarnir nýyfirstaðnir!!
Örninn
![]() |
Kerfi heilbrigðiseftirlitsins úrelt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.3.2024 | 07:18
Skelfilegur atburður
Hryðjuverk eru skelfilegir atburður, og líka þegar að þjóðir ráðast inn í önnur ríki bæði Lýðræðisríki og Ríki sem hafa ekki umráð yfir sínu landi! Því miður þá er það í dag með 2 menn sem vilja halda áfram manndrápum annar á Vesturvígstöðvunum, og hinn á Austurvígstöðvunum! Og það sem ég hef lesið og skilið með þá báða Einræðisherrana undanfarna áratugina er að útrýma mótspyrnu gegn Lýðræði! Og ef að einræðisherrann sem vill ráða í ameríkunni og verður kannski kosinn forseti, þá bið ég Guð að hjálpa öllum Heiminum! Því stækt stuðningsfólk innan hans flokks vill ekki neinar breytingar fyrr en að foringinn með sinn kjaft, öfgaskoðanir, ofl sem hans flokksbræður og konur aðhyllast, og vilja halda fólki heima hjá sér og banna hitt og þetta helst að loka Bandaríkjunum fyrir öllum! Ætla ekki að telja upp sum ummæli fyrrverandi forseta Bandaríkjanna sem sýna hversu fáránleg þau eru, þau eru til á öllum samfélagsmiðlum!
Örninn
![]() |
Alþjóðasamfélagið fordæmir hryðjuverkin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.3.2024 | 01:19
Er gróðafýknin að drepa lónið?
Nú er komið að því að jarðvísindamenn og stjórnvöld: Almannavarnir loki lóninu í ótilgreindan tíma! Nógu mikið af almannafé fóru í að byggja varnargarða,og það svíður mest að bjarga lóninu til að bjarga stöðvarhúsi með famhjáhlaupi í varnargarði svo lónið yrði ekki fyrir skemmdum! Vonandi í framtíðinni borgar eigandi lónsins til baka þá fjármuni sem hann fékk frá Ríkissjóð í formi ýmissa hlunninda og niðurfellingu á VSK! En það er borin von að Íslenskur almenningur fái eitthvað til baka frá lóninu nema? Má bjóða yður 5% afslátt?!
Svona er sala á eignum sveitafélaga og Ríkisins , og peningapúkarnir stökkva á bitann og okra svo á almenningi og ferðamönnum!
Örninn
![]() |
Skammur fyrirvari veldur áhyggjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.3.2024 | 07:25
Birta
Jæja horfði á Íslensku myndina Birtu,sem vakti upp gamlar minningar sem einstætt foreldri! Og ég segi bara að þessi mynd ætti að vera skylduáhorf eftir þingstetningu svo þingmenn og konur geri sér grein fyrir alvarleika peningarleysis, 65-90% í húsaleigu, börnin í einhverjum lörfum, liggur við húngumorða borðandi pasta ofl! Vonandi eru þurfalingarnir sem lifa á almenningi með sín laun yfir 2 milljónir++ á mánuði sáttir, því þurfalingarnir græða meira á MOLBÚUNUM! En því miður eru sumir háttsettir á Íslandi sem voru með erlent þrifafólk hjá sér, hverrar þjóðar verður aldrei gefið upp! Og alls ekki gefið upp til skatts! Tala nú ekki um aðstoðarfólk þingmanna þar má spara( konur, hán eða? )
Feginn verð ég þegar að ég yfirgef Ísland og okrið sem Íslendingar vilja, og Tryggingastofnun kemst ekki í minn vasa þá!
Örninn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.2.2024 | 04:52
Hvað varð um aðgreiðslunrnar?
Nú á að klára sölu Íslandsbanka, hvað sem heitir! Vellygni Bjarni var saklaus af sínum syndum, og skipti um stól, en gleymdi alltaf áður en að hann settist á ráðherrastól að gera grein fyrir eignarhaldsstengslum við fyrri sölu til ættingja og vildarvina! Nú skal ganga hart fram í sölu HLUT ALMENNINGS á ÍSLANDSBANKA TIL VILDARVINA! ER EKKI KOMIÐ NÓG? 28 milljarðar sem voru greiddir í ARÐ til svokallaðra hluthafa í Arionbanka, 30 milljarðar í arð í Íslandsbanka, því miður er Seðlabankinn sem er fjárhirðir Landsbankans ekki kominn með opinberar tölur fyrir arðgreiðslur 2023 og opinber laun þingmanna og fleiri bitlinga í stjórnarsetu LANDSBANKANS!!
Þjóðaratkvæðagreiðslu um sölu á Bönkum ofl!!
Kjérlíngin tók við af Púngnum til bjargar ættinni!!
Nei enga sölu á einum né neinum bönkum, 98 milljarðar tapaðir af sölu BANKAHLUTA til erlendra fjárfesta undanfarin 3 ár sem ALMENNINGUR VARÐ AF MEÐ EINOKUN BANKAÞJÓNUSTU OFL!Engin furða að Seðlabankinn sé með vextina í hæstu hæðum, því ERLENDIR AUÐKÝFINGAR EIGA ÍSLENSKA BANKAKERFIÐ MEÐ HJÁLP ÞINGMANNA OG RÁÐHERRA SEM BYRJUÐU AÐ SELJA OG VILJA SELJA MIKLU MEIRA, LANDSBANKINN FER KANNSKI UNDIR EINHVERJA AÐRA GREIÐSLUMIÐLUN SEM VERÐUR UNDIR SEÐLABANKANUM OG EÐA ERLENDUM BÖNKUM?
KOMINN TÍMI TIL AÐ ALMENNINGUR VAKNI OG FARI AÐ HÆTTA AÐ NOTA DEBIT OG EÐA KREDITKORT TIL GREIÐSLU, ÞVÍ Á ÞESSU GRÆÐA BANKARNIR! En eitt gott ráð fyrir þá sem komast ekki í banka og nota ekki nein kort er að fara í bankaútibúið sitt, ef þú kemst ekki,fá hjálp frá bankanum til að sinna erindinu í gegnum símann,sem kostar peninga: Númer 295 í röðinni!!
Það versta er að þá koma ribbaldarnir sem margir eru til að sigta út þá sem eiga peningana falda undir koddanum! Því miður er seðlabankanum ekki treystandi fyrir mínum krónum, jú kannski ef að ég ætti eitthvað erlendis í skattaskjólum og tala nú ekki um kennitöluflakk!!
Örninn
![]() |
Stefnir á útboð í Íslandsbanka í ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.2.2024 | 12:16
Ellismellir!
Jæja elsku ellismellir! Ætlið þið að samþykkja áframhaldandi skerðingar, sem að ýmsir þingmenn sem að sumir ellismellir kusu og hafa haldið kjafti, með það sem kosið var og eða verið kveðnir í kútinn á Alþingi til breytinga? Nú þá er kominn tími til að við ELLISMELLIRNIR stofnum nýjan Stjórnmálaflokk,og við getum notað okkar ársgjöld til þess! Við erum skilin eftir með ólöglegum skerðingum frá Íslenska Ríkinu ( Og ekkert gert til að laga okkar kjör, vegna Fjárþurrðar Ríkissjóðs 500 milljarðar sem hurfu í Lán til einhvers banka ) og almenningur borgar ennþá!
Það skiptir miklu máli að vera í réttum flokki og Ríkisstarfsmaður ( Bitlingur með 1,5 milljónir á mánuði í lifeyrisgreiðslur ) og hefur ofan í sig og á, og ENGAR SKERÐINGAR!!!!
Munið þetta þegar að þegar að þið skoðið seðlana og endilega birtið opinberlega hvað þið borgið í leigu, þjónustugjöld ofl ef fólk er í þjónustuíbúð!
Því gylliboðin eru ekki það sama og Leiga!! 45 fermetrar kostar kannski 130 þúsund fyrir utan húsaleigubætur, svo kemur allur annar kostnaður++
Örninn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.7.2023 | 23:04
Spillingarlögregla?
Það væri nú gott að hafa svoleiðis Lögreglu á Íslandi! En því miður er þannig í pottinn búið að það er ekki hægt! Því það er svo innmúrað í Löggæsluna á Íslandi að setja undir teppið mál sem koma yfirvöldum og stjórnmálamönnum ílla! Og þá eru það ýmsir stjórnmálamenn sem hafa skipað hina og þessa yfir Löggæslumálum á Íslandi, ásamt ýmsum Hæstaréttardómurum! Tíkin hún pólitík er slæm, en þá má fá erlenda rannsakendur frá INTERPOL ofl erlendum Löggæslustofnunum til að rannsaka spillinguna á ÍSLANDI! En veit að þeim verður ekki hleypt inn í bananalýðveldið Ísland, því þá kemst upp um mafíustarfsemi fjármálafyrirtækjanna, bankanna, Seðlabankans og ættartengsl Fjármálaráðherra í sambandi við ýmsa gjörninga undan farin 15 ár!! Og það eru margir hissa erlendis að Fjármálaráðherra, og fleyri innan ríkisstjórnar Íslands skuli ekki fyrir LÖNGU síðan hafa sagt af sér út af spillingarmálum sem hafa verið í umræðunni síðan 2008!
Örninn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.5.2023 | 00:48
Almenningur?
Hver er veruleikafyrrtur almenningur eða Fjármálaráðherra? Blessaður gerir sér ekki grein fyrir vanda almennings, sem blessaður vildarvinurinn hans í Seðlabankanum hefur gert almenningi! Og frábært að minna kjósendur hversu mikið tjón sem ráðherran hefur valdið alþýðu með vesalingshætti, og aumingjaskap ásamt undirlægjuhætti með vildarvinum innan alls geira atvinnulífsins með að hafa ekki sett á stöðvun yfirgengilegra hækkana vildarvina í innflutningsgeiranum og líka eitt að hjálpa ekki almenningi með að styrkja kjör aldraðra og öryrkja! Sá blæs sér á brjóst um hitt og þetta en getur ekki svarað því með að kjör aldraðra og öryrkja hafa ekki fylgt almennum launakjörum síðan 2013! Katrín brosir og segir að allt sé í lagi! Fólk sem er á almennum leigumarkaði hefur þurft að borga 20-90+ þúsundum meira eftir síðasta gerræði Seðlabankastjóra! Mín leiga hækkaði um 32 þúsund! Þannig að það er gott að vera með milljón+ á mánuði í tekjur eftir skatt, en það er slæmt að vera með kannski 250 þúsund eftir skatt og húsaleiga 198 þúsund+ og geta ekki gefið börnunum að borða!!
Svona er raunveruleikinn sem því miður að margir milljónamæringarnir á Alþingi á sínum launum sjá ekki og margir vilja ekki kannast við því að það er ekki til fátækt á Íslandi!!!!
Örninn
![]() |
Þá væri ég eini flokkurinn á Alþingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.4.2023 | 07:09
Verðbólgan og Seðlabankinn
Andskotans bölvaðir sauðir sem almennur launþegi er! Að sögn milljónamæringsins sem stjórnar Seðlabankanum þá er almenningi um að kenna VERÐBÓLGUNNI!! Og básúnaði um eyðslu almennigs og talaði um táslumyndir frá TENE í sambandi við bruðl almennings! En sá hinn sami sagði ekki frá eyðslu Seðlabankans og ráðuneyti fjármála í kostnaði ýmissa ferða erlendis á kostnað SKATTGREIÐENDA! Vonandi eru til opinberir reikningar fyrir öllum útgjöldum þannig að almenningur geti séð í hvað okkar skattpeningar fara! Það verður vonandi ekki einhver forseti alþingis sem vill ekki opinbera spillinguna samanber Lindarhvolsmálið, sem á víst að þagga niður, eins og var gert með ýmis skjöl sem mátti ekki birta, en eftir kosningar þá voru skjölin birt, og þá kemur það að ALÞJÓÐ mátti ekki vita um innihald skjalanna, því þá hefði þessi óríkisstjórn aldrei verið komið á koppinn! Og þess vegna segi ég það að í næstu kjarasamningum næsta haust, þá verður stríð, því almenningur er búinn að fá upp í kok á sinnuleysi Stjórnvalda gagnvart almenningi, og það versta er að hlusta ekki á Verkalýðsforystuna! Samtök Atvinnulífsins verða í harðri baráttu, en kannski setur ríkisstjórnin einhverja milljarða loforð um hitt og þetta sem verður svikið eins og venjulega! 25% síðustu 6 1/2 ár og restin á næstu 100 árum? Nei Bjarni Ben þarf að fara að girða sig í brók og ná í peningana frá vildarvinum og BÖNKUM!Því bankarnir græða með hjálp Seðlabankans, og ráðherra fjármála vill ekki hækka Bankaskattinn, því þá hætta vildarvinir ofl að græða! Sama með hátekjuskattinn, og auðlyndagjaldið!! Þá tapa allir vildarvinirnir og ekkert kemur í flokkssjóðinn ofl? Bara spyr?
Örninn
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Kjaramál
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Samgöngur
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar