18.4.2014 | 03:28
Snjóstál!
Jæja þetta er enginn nýlunda fyrir vestfirðinga að þurfa að vera utan snjómoksturs frá Vegagerðinni því sá landshluti hefur alltaf setið á hakanum hjá Vegagerðinni enda sést það á sumrin því það hefur ekki fengist fjármagn! En því miður þá fer mikið af því fjármagni í þéttbýliskjarna sem að þurfa ekki á neinum snjómokstri að halda bara til að friða einhverja alþingismenn og þeirra slekti! En núna er komið nóg og Bjarni fjármálaráðherra ætlar að lækka skattinn af bensín ofl um 1% er þá ekki kominn tími til að allur skatturinn sem að átti að renna til Vegagerðar 1996 og ríkishýt flokks hans ofl tók til sín með gengdarlausum hækkunum á olíugjaldi svo að olíugreifarnir og ríkið gætu grætt meira skiluðu 120 milljörðum í vegakerfið sem hafa verið teknir af almenningi það eru þeir fjármunir sem eftir eru því síðustu 25 ár hafa farið ca 5 milljarðar og spyr nú einhver fóru peningarnir til einkavildarvina í einhverjum rosaframkvæmdum?Er spillingin og fleira ennþá alsráðandi með vildarvini allstaðar og Lífeyrissjóðirnir fengu skellinn með stjórnarmenn sem gömbluðu ( Spiluðu ) með fjármuni lífeyrisþega því þar sitja ennþann dag í dag atvinnurekendur í stjórnum okkar Lífeyrissjóða sem þeim kemur ekkert við en þetta var gert því miður og mörg skjöl má ekki birta fyrr en að margir þeirra eru komnir yfir móðuna miklu svo ekki sé hægt að lögsækja þá fyrir þann gerning sem að hefur kostað lífeyrisþega til dagsins í dag ca, 198 milljarða enda engi furða að bætur séu skertar svo að hinir háu herrar geti lifað fínt samanber hrunkarlana því í þeirra fyrirtæki fóru andskoti margir milljarðar með aðstoð atvinnurekenda í sjóðunum. Rétt eða ekki lesið skýrslur og leggið saman 2 og 2 og fáið út 4 en ekki 5 eins og vildarendurskoðunarfyrirtæki hrunkarlanna gerðu!!!
ÖRNINN
![]() |
15 metra snjóstál á heiðinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.4.2014 | 09:26
27.438 í alvarlegum vanskilum!
Jæja nú getur sá gamli ekki orða bundist um þessar tölur frá Creditinfo!
Þar kemur ekki fram það sem að almenningur hefur þurft að taka á sig til að reyna að standa í skilum með því að semja við lánastofnanirnar allar sem að hefur kostað fjölskyldur það mikið að börnin hafa ekki einu sinni nægju sína í morgunmat og fjölskyldan getur ekki leift sér eitt né neitt og þá er ég að meina 2 fullorðnar manneskjur með tvö börn á lágmarkslaunum í leiguhúsnæði c.a 85 fermetrar og samanlagðar tekjur um 400 þúsund á mánuði! Leiga ca 150-170 þúsund+ einn bíll+ tryggingar og rekstur þegar búið er að draga allt frá með öllum reikningum og búið að semja við lánadrottna sem gefa ekkert eftir þá verða þeir aurar sem eftir verða um það bil 45-60 þúsund til ráðstöfunar! Þannig að það má tvöfalda þessa tölu svo að vitringar ríkisstjórnarinnar fari að hugsa það munar um að geta keypt sér fína steik og vín? á 30-40 þúsund krónur á kostnað okkar skattborgaranna og svo kaupir almenningur kannski einn lítinn pylsupakka og síður pasta með til að drýgja! En það er eins og einn flokksbróðir fjármálaráðherra sagði í den að það væri engin Fátækt á Íslandi! Og annað sagði sá hinn sami líka að það ætti að flytja fólkið í vissu byggðarlagi fyrir Vestan í eina stóra blokk í Reykjavík svo ekki þyrfti að gera göng! Enda hrapaði fylgi floksins við þessi ummæli fyrir vestan og það væri kannski ágætt að spyrja forseta Alþingis um þau mál! En allavegana því miður þá hafa þessir sem réðu þá og eru núna allsráðandi í ríkisstjórn ekki græna glóru í hausnum í sambandi við almannahagsmuni því þessir sömu aflögðu hitt og þetta til að SKÓFLA miklu meira undir VILDARVINI sína. Nú það verður annað hrun og þá hverjum verður það um að kenna? Ekki ég ekki ég veit ekki neitt þetta er sama sagan með blessaðan bláskeiðunginn og með gæruflokkinn á eftir sér og skilja svo ekkert í því að fylgið hrynur! Skrítið? Nei gæruflokkurinn með sína ráðherra er búinn að missa alla tiltrú almennings og bláskeiðungurinn með einn ónefndann aftursætisbílstjóra líka!
Örninn
![]() |
27.438 í alvarlegum vanskilum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.3.2014 | 04:31
Einkavæðing, kvóti og kennitöluflakk!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.1.2014 | 12:27
Schengen samstarfið hvað!!
Nýjasta dæmið og þetta vildi ríkisstjórn DO og BB á þeim tíma og enda hefur það sýnt sig með glæpaöldu erlendra glæpagengja undanfarin ár sem valsa óáreittir um okkar land! Skil ekki af hverju er ekki löngu búið að segja upp þessum Schengensamning og þá myndi mikið af eiturlyfjasmygli ofl detta út vegna vegabréfaskoðunar því það valsa ýmsir um landið eins og fréttin ber með sér og þá mætti auka löggæsluna ásamt tollgæslunni með auka hátekjuskatti á þá sem hafa yfir 20 milljónir á ári í laun og gera svo eins og Frakklendingar 75 % skatt á þá sem eru með yfir td 60+ milljónir á ári!! En það má víst ekki hrófla við kvótakóngum og elítunni sem að á Ísland enda hefur það sést með ákvörðunum ríkisstjórnarinnar sem er við völd í dag!! Láta láglaunafólkið borga fyrir óráðssíuna þeyrra eins og vanalega!!
Örninn
![]() |
Stal peningum úr söfnunarbauk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.12.2013 | 08:40
Formaður ASÍ að þenja sig!
Jæja vaknaði álfurinn upp við vondan draum og skilur ekki neitt í því að kjarasamningar eru lausir! En þá hefði blessaður álfurinn átt að fara að vinna vinnuna sína frá A-Ö þó fyrr hefði verið og fara út á meðal fólksins og Hlusta á fólkið og Taka mark á því en ekki bara einblína á sín kjör og kjarabætur og Jakinn er örugglega búinn að margsnúa sér við í gröfinni bara út af launum álfsins og konungsríkis hans því það er kominn tími til að ASÍ fari nú að spara með t.d fækkun starfsfólks, minna húsnæði og svo mætti lengi telja! Það væri gaman að álfurinn upplýsti alþjóð hversu margir störfuðu á skrifstofum ASÍ, hlunnindi ofl!! Því konungsríki álfsins hefur blásið út við hans yfirtöku á stólnum og virðist ekki vera lát á því álfurinn virðist ekki hafa neinar tennur og eða bein í nefinu til að Berjast fyrir nema kannski svokallaða millistétt en þeir sem lægstu hafa launin hafa það jafn skítt eftir hrun eins og fyrir hrun! Nú það er kannski ágætt að hækka laun álfsins meira en lágtekjufólkið fær því það er erfitt fyrir félagsmenn innan ASÍ með álfinn við konungsvöld að malda í móinn og heimta almennileg og mannsæmandi laun því það má ekki og álfurinn segir bara við SA já og amen það er engin engin harka lengur því ef svo hefði verið þá hefðu Íslendingar það miklu betra en í dag því SA og aðrir atvinnurekendur eru búnir að græða hundruðir milljarða á almenningi út af gunguskap Verkalýðshreyfingarinnar við kjarasamningaumleitanir undanfarna 2 áratugi enda hefur allt hækkað um tugi ef ekki hundruðir prósenta því ekkert bein er í nefinu á hreyfingunni til að sporna við þessu öllu bara já og amen! Fá nýtt blóð inn í ASÍ ekki einhvern álf sem lætur aðra vinna vinnuna sína og sést ekki nema sjálfur í fréttum en ekki á úti á meðal fólksins!!
Örninn
![]() |
Ekki komið til móts við óskir ASÍ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kjaramál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.10.2013 | 02:39
Smáís ofl!
Jæja sýslumaður hafnaði lögbannskröfu gegn fjarskiptafyrirtækjunum vegna beiðni um lokun á vissar skráarskiptasíður! En ég hlustaði á viðtal á Bylgjunni þar sem rætt var við Snæbjörn framkvæmdastjóra Smáíss en í því viðtali kom ekkert fram hversu mikið öll samtökin sem standa að kröfunni hafa fengið frá ríkinu í formi skatta sem að voru settir á alla skrifanlega diska, spólur ofl og áttu að vega á móti niðurhali, kópíeringu ofl! Nú er þá ekki kominn tími til að ríkisstjórnin láti þá skatta renna til réttlátra ef að þeir hafi ekki fengið sinn skerf nokkur hundruð milljónir frá byrjun? Þá er kominn tími til að blessaðir rukki ríkið um skattinn því með þennan skatt hefur verið svolítið skrítið að örfáir menn ( peningamenn?) hafi getað haft svo mikil ítök á þingmenn sem samþykktu þetta að það er kominn tími til að athuga um mútugreiðslur samanber fréttir í kvöld á ljósvakamiðlum að Ísland sé eftirbáti ýmissa þjóða í sambandi við rannsókn á mútum og þá verðum við að fá erlenda rannsóknarmenn til að kafa eftir spillingunni ekki neina sérskipaða flokkspólítíkusa á fullum launum kannski til að fela eitthvað!
Örninn
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.9.2013 | 06:22
Gæti kostað mannslíf !
Já þetta er satt því að við niðurskurð undanfarin ár eftir hrun til bjargar Íslandi þá hefur því miður Landhelgisgæslan lent í miklum niðurskurði sem hefði ekki þurft! Í því sambandi hefðu stjórnmálamenn, þingmenn og starfsmenn ráðuneyta þurft að taka á sig almenna kjaraskerðingu, en því miður þá er til apparat stjórnskipað sem heitir Kjara(ó)ráð sem skammtar launin! Og hversu marga flugtíma á TF-LÍF hefðu fengist fyrir síðustu óráðshækkun? Dæmi ca 175000 afturvirk launahækkun í 2 ár per manneskju= 4,2 milljónir+105000 í vexti fyrir utan dráttarvexti? Það eru ansi margir flugtímar og nokkuð margir lítrarnir af olíu á varðskipin okkar! Nú LÍÚ á heiður skilinn fyrir fjárframlag til þyrlukaupa ásamt Íslensku þjóðinni og væri þá ekki upplagt að nota afrakstur Veiðigjaldsins til að fjármagna nýjar Björgunarþyrlur og Lækna líka! Kannski verður ríkishýtin að hirða allt til að borga fyrir mistök undanfarinna tveggja áratuga en þessi málaflokkur má ekki verða útundan og þá ætti ríkishýtin að fara fram á tryggingu á alla ferðamenn svo að tryggingarnar borgi kannski neyðarhjálp því það er dýrt fyrir fyrirtæki sem að styðja sína starfsmenn sem eru björgunarsveitamenn að missa þá úr vinnu en fyrirtækin sjá alls ekki eftir því sem betur fer. Það væri þá gott ef að Ríkisstjórnin sú nýja tæki nú upp nefskatt á efnamikla fólkið( með yfir 1 milljón á mánuði) og stórútgerðirnar sem nýta þjóðareignina okkar allra og kannski láti niðurfellingu veiðileyfagjaldsins renna til Landhelgisgæslunnar og á fleiri staði sem sinna öryggi!!
ÖRNINN
![]() |
Gæti kostað mannslíf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.8.2013 | 05:08
Skammarleg og hneykslanleg brot!
Frábært að Biskup kaþólsku kirkjunnar segir frá að misnotkun hafi átt sér stað. En nú kemur spurning til Íslensku þjóðkirkjunnar hversu margir Biskupar, prestar og prelátar hafa verið sýknaðir af skírlífsbrotum sem að víst þóttu eðlileg eftir siðaskipti að sumir kirkjunnar menn á visitasíu sem voru að kenna umgmeyjum ofl hitt og þetta sem að í dag myndi kallast nauðgun? En þá er kominn tími til að Þjóðkirkjan fari nú að grafa upp tengdir við kirkjunnar menn við núlifandi Íslendinga og segja alþjóð frá saurlifnaðinum og hótunum um missi leiguplássins innan kirkjujarðanna sem að fólk var að hokra á og borga allt sitt undir og bóndinn í þá daga fór í kaupstaðarferð með afurðir og 90 % fóru til prestsins! Og ef að bóndinn fórst þá varð ekkjan að taka við eða segja sig á sveitina með börn og buru á meðana að kirkjunnar höfðingjar (ekki allir því margir prestar gáfu af sínum búum mat sem að kom þeim illa því ölmusan við fólk því biskupsdæmið átti sitt og prestum bar að skila sínum tekjum og margir prestar voru flæmdir af jörðum sínum fyrir ölmusuna) lifðu í vellystingum! Það er ekki furða að prestarnir græddu í þá daga en sem betur fer þá er þetta breytt í dag. En samt má þá ekki halda áfram að segja frá nema einhverjir vilji fela eitthvað? Og líka að fá einhverja sem tíma aurunum sínum múltímilljónerana (ekki almenning) að gefa eitthvað af sér í staðinn fyrir að kaupa sér nýjan bíl, nýtt innbú osvfrv til að styrkja eitthvað forvarnarstarf eða líknarstarf? Spurning því hver milljón skiptir máli almenningur hefur gefið 890 milljónir á síðustu 4 árum af sínum litlu tekjum er þá ekki kominn tími til að Auðvaldið bæti um betur með sinn OFSAGRÓÐA OG NIÐURFELLINGU SKULDA?
Örninn
![]() |
Skammarleg og hneykslanleg brot |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.8.2013 | 06:37
Treysta höftum og einokun?
Seint verður blessuðum honum Jóni þakkað fyrir almannaþágu! Lok lok og læs fyrir öllu sem að er ekki framleitt á Íslandi og þá mátti í hans tíð hækka allt vöruverð með yfirgengilegum tollum þannig að Landbúnaðurinn bæri ekki skaða af! Nú blessaður kallinn ekki veit ég um það hvort að hann hafi verið sjómaður kannski gerfisjómaður? En það sem að Sigurður Ingi kollegi Jóns þarf að gera það er að gera það sama og frændur okkar Færeyingar að einhliða ákveða okkar makrílkvóta og síldina líka og benda á stórgrossera sem að eiga fiskiskip sem hafa verið að moka upp bæði síld og makríl og kvarta yfir rányrkju okkar! Nú því miður virðist ráðherra vera kjarklaus og sætta sig við eitthvað sem að alþjóð veit ekki um? Er kannski verið að semja undir borðið og kannski fela eitthvað? Sko Þorskastríðin voru slæm en getum við ekki staðið þetta af okkur án einhverra sem að þekkja jafnvel ekki sjóinn? Nei því miður verður einokunin og haftastefnan allsráðandi og td að kaupa kíló af grísakótilettum á 14-1500 krónur, heill kjúklingur frosinn á 750-800 kr kílóið og fá sömu vörur með kaupmætti og launum eins og í td Svíþjóð á 300-400 kr á kíló svínakótilettur og kjúllinn á 300-450 kr per kíló! Er þetta það sem að einokunarsinnar og haftamenn vilja eða samkeppni en það skal tekið fram að td vatnsmagn í frosinni kjötvöru í Evrópu er 15-25 % minna og þá er bannað að drýgja kjötvöru með kartöflumjöli og svo mörgum öðrum efnum sem að Íslenskir framleiðendur hafa fengið að nota í skjóli einokunar til að stela af neytendum í skjóli td gamla verðlagseftirlitsins sem að voru undir stjórn hverra? Kannið það. Nei nú er komið nóg og kominn tími fyrir innflytjendur að fara að láta almenning njóta milljarðagróðans sem að hafður hefur verið af fólki af fjármagnspungunum sem að fengu sína milljarðahundruðir afskrifaða og héldu sínu!
Ps. Nú eru að koma að samningaviðræðum launþega og þá vonandi fær almenningur afturvirka launahækkun samanber hið opinbera og annað þá er kominn tími til að SKERÐA Lífeyri þeirra sem að eru í LSR afturvirkt til jafns við skerðingar almennra lífeyrisþega og líka að FELLA NIÐUR RÍKISÁBYRGÐ LSR og gera hann gjaldþrota þannig að þá næst jöfnuður á lífeyrisréttindum og Íslendingar þurfa ekki að borga skuld sem að YFIRSTÉTTIN samdi um samninga sem að komu svo í ljós að voru Faldir fyrir alþjóð! Það er flott að hafa milljón í LÍFEYRI á mánuði á meðan almúginn hefur ekki í sig að borða!
Örninn
![]() |
Treystir Sigurði Inga í makríldeilunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.8.2013 | 06:48
Nýtt skip til Samherja?
Jæja það er ágætt að þeir kaupi nýtt skip og það kannski fyrir greiðslu sem annars hefði farið til þjóðarbúsins sem afnotagjald af auðlind Allra Íslendinga en ekki nokkurra sægreifa sem kvarta sáran og grenja svo eins og þeir gerðu í tíð fyrri ríkisstjórnar og voru með allt á hornum sér og krossbölvuðu auðlindagjaldinu! Man ekki betur en að útgerðir sendu skipin sín í land til að mótmæla! Svo geta þessir hinir sömu greitt sér stóran og feitan arð og tala samt um að útgerðin beri sig ekki. Skrýtið. En þá er líka kominn tími til að taka út úr samningum sjómanna þær greiðslur sem að þeir þurfa að taka þátt í samanber olíugjald og svo margt fleira og grátkór LÍÚ verður ekki stætt á því að setja LÖG á sjómenn ef að þeir hóta að fara í verkfall eins og þeir létu handbendi sína innan ríkisstjórna á þeim tímum ítrekað og sömdu ekki við sjómenn nema með afarkostum eins og samningar sjómanna eru í dag. Því það var og er líka viðkvæðið hjá útgerðarmönnum innan LÍÚ að það væri nóg af mannskap í landi. En það er ágætt að sjómannaforystan veit hvers á að krefjast í næstu samningum og það þýðir ekkert að ráða einhverja útlenska sjómenn því þá myndi skrattinn fyrst hitta Ömmu sína!!
Örninn
![]() |
Samherji kaupir línuveiðiskip frá Noregi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Kjaramál
- Lífstíll
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Samgöngur
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar