Laun Þingmanna og frítími á fullum launum ofl

Mikið væri nú gott að þingmenn hugsi um kjör aldraðra og öryrkja á sínum ofurlaunum með AÐSTOÐARMENN og KONUR sem við almenningur borgum fyrir!! Ekki var gert fyrir öllum aðstoðarmönnum ( konum, hvár osfrv )þegar að ríkisstjórnin byrjaði annó 2013! En það er gott að hafa bitlingana ( vini, ættingja ofl ) sem á eftir að kosta RÍKISSJÓÐ í ellilífeyri til bitlinganna allra 560 milljónir, og veit ekki hvort að Tryggingastofnun gangi rosalega hart gegn bitlingum stjórnarflokkanna, eins og Tryggingarstofnun gengur hart fram gagvart ALMENNINGI! Því miður þá eru ÞINGMENN ( Sumar Kjérlingar ) ekki að vinna fyrir ALMENNING, heldur vildarvini oG AUÐVALDIÐ ÞAR MEÐ TALIÐ BANKANA!! Og spurning af hverju er auðvaldið sem á Ísland á móti Þjóðaratkvæðagreiðslum  um ýmis mál, og Þjóðin fékk ekkert um það að segja Þegar að Gunnar Bragi Sveinsson flaug óvænt út til Brussel með bréf og ætlaði að enda aðildarumsókn Íslendinga um aðild að Evrópusambandinu! Sem tókst ekki, og þá kom í ljós að jarðskjálfti varð innan Auðvaldsmafíunnar, og Seðlabankans! Því ef að við værum í ESB, þá hefðum við ekki verið í þessum sporum í dag, með óstjórn í Fjármálum! Því það má ekki kafa í gjörninga og spillingu sem er ennþá, og almenningur borgar ennþá til Auðvaldsmafíunnar sem á Ísland, eftir hrunið 2008 og græða ennþá! Ábyrgð? Nei það hefur enginn þurft að taka ábyrgð á sig, og 500 milljarða lán til banka, hvert fóru þeir? Kannski upp á Hádegismóa og eða Sviss, Tortóla, Bresku Jómfrúareyja bara skattaskjól! Þá er kominn tími til að nýtekin við Fjármálaráðskona fái óháða erlenda rannsakendur til að kanna hvað varð um 500 milljarða ásamt því sem hefur lekið út út fjárhirslum ríkisins allt fram á daginn í dag! Þarf Íslenska þjóðin að fara í mál gegn Ríkinu? 

Og ef svo er þá verða ekki keyptir Lögfræðingar sem fara í þá vinnu, og það verður dýrt fyrir Íslenska Ríkið, og þá verður sá kostnaður borgaður úr A og B hluta í LSR sem almenningur er að borga í út af handvömm einhvers sem gleymdi einhverju, og skrifaði upp á pappíra fyrir Pabba, og sá hinn sami er kominn með elligöp, því það má ekki segja FRÁ!! Gamla Sjóvá 15 milljarðar hver veit?

 

 

 


Stýrivextir og bankarnir

Nú það sama sagan, Seðlabankastjórinn hleypur upp til handa og fóta þegar að BANKARNIR tjá sig um vexti! Þá kemur gerræðisákvörðun Seðlabankastjóra með hækkun STÝRIVAXTA! Og frábært fyrir banka og fjármagnseigendur,tala nú ekki um eigendur fasteigna sem ekki hafa selst, en eru í útleigu á okurprís! Nú þarf að fá Evrópusambandið inn til að athuga hverslags stjórn er á fjármálum á Íslandi! Þá kemur að spurningunni? AF HVERJU VILL RÍKISSTJÓRNIN EKKI FARA Í ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLU UM AÐILD AÐ ESB? Gunnar Bragi fór með bréf til ESB og tjáði þeim að aðildarviðræðum væri slitið, en samt erum við ÍSLENDINGAR ennþá í umsóknarferli, því þjóðin sagði ekki upp!! Svarið er hræðsla við að öll spillingin innan alls kerfisins komi í ljós undanfarna áratugi! Seðlabankinn ekki undanskilinn, með þann sem vildi ekki að almenningur hefði það of gott!! Krónan er góð fyrir suma, en allir aðrir gjaldmiðlar eru betri fyrir þá sem eru í SEÐLABANKAKAUÐVALDSLÍKUNNI!!

ÖRNINN


mbl.is Spá því að stýrivextir hækki um 0,5%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin furða

Skiljanlega vill manneskjan ekki fara í fangelsi í heimalandinu. Veit ekki um aðstæður í Rúmeníu með afbrotamenn í fangelsum? Gætu verið slæmar og eða hryllilegar? Því víða á okkar jarðkringlu eru fangar í fangelsum til að afplána dóm (a) og margir hverjir koma verri út eftir vistina. Smáafbrotamenn á Íslandi fá marga dóma á sig og geðþóttarákvörðun dómara ræður ásamt sækjanda hversu langur dómurinn eigi að vera! Mjög oft er ekki hlustað á sakborning, sem hefur bætt sitt ráð þegar að dómur fellur kannski eftir 2-3 ár! Fangelsisvist upp á? Jú það má kannski sækja um samfélagsþjónustu fyrir einhvern hluta af dómnum!

En tíminn sem fer í alla málsmeðferðina og sakborningur að lifa milli vonar og ótta, hvenær verð ég sóttur eftir opinbera plaggið frá Fangelsismálastofnun! Og annað er með Sýslumann ónefdan sem sendi bréf um að einstaklingur ætti að mæta til afplánunar í Fangelsið á Hólmsheiði klukkan 2 út af hraðasekt, og 6 dagar var refsingin! Nú einstaklingurinn mætti til afplánunar þann dag sem að Sýslumaðurinn tiltók og enginn kannaðist við neitt þar á bæ! Einstaklingurinn átti gott spjall við þá þar sem réðu og sýndi þeim bréfið frá Sýslumanninum undrunarsvipurinn og höfuðhristingurinn var víst í hámarki út af vitleysisgangi sýslumannsins,og einstaklingurinn kom heim til sín frelsinu feginn :):) En ég sá þetta bréf og varð hissa, einstaklingurinn sagðist ekki hafa borgað sektina, og þess vegna kom bréfið frá Sýsló! En hvað er að kerfinu, geta sýslumenn boðað manneskjur í afplánun í fangelsi, og Fangelsismálastofnun veit ekki neitt? 

Örninn

 


mbl.is Eftirlýstur glæpamaður dæmdur í farbann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spillingarlögregla?

Það væri nú gott að hafa svoleiðis Lögreglu á Íslandi! En því miður er þannig í pottinn búið að það er ekki hægt! Því það er svo innmúrað í Löggæsluna á Íslandi að setja undir teppið mál sem koma yfirvöldum og stjórnmálamönnum ílla! Og þá eru það ýmsir stjórnmálamenn sem hafa skipað hina og þessa yfir Löggæslumálum á Íslandi, ásamt ýmsum Hæstaréttardómurum! Tíkin hún pólitík er slæm, en þá má fá erlenda rannsakendur frá INTERPOL ofl erlendum Löggæslustofnunum til að rannsaka spillinguna á ÍSLANDI! En veit að þeim verður ekki hleypt inn í bananalýðveldið Ísland, því þá kemst upp um mafíustarfsemi fjármálafyrirtækjanna, bankanna, Seðlabankans og ættartengsl Fjármálaráðherra í sambandi við ýmsa gjörninga undan farin 15 ár!! Og það eru margir hissa erlendis að Fjármálaráðherra, og fleyri innan ríkisstjórnar Íslands skuli ekki fyrir LÖNGU síðan hafa sagt af sér út af spillingarmálum sem hafa verið í umræðunni síðan 2008!

Örninn


Peningavandræði

Jæja þá er naglinn kominn í kistu Dags og Einars. Ætla þessir vesalingar sem hafa þrengt hitt og þetta um alla borg að ráða þræla til að ferja vörur til fyrirtækja? Því eftir kl. 11 Þá mega ekki bílar með farm koma niðureftir nema með sektum! Hækkun Bílastæðagjalda fyrir almennan bifreiðaeiganda er algjörlega út úr kortinu! Að sögn fulltrúa Reykjavíkurborgar til að færa einkabílinn í bílastæðahúsin! Gott, en þá þurfa BÍLASTÆÐAHÚSIN að vera opin allan sólahringinn með strangri GÆSLU sem kostar peninga! En það er víst ekki hægt að treysta á vanvitið og útreikninga ýmissa nefnda Reykjavíkurborgar því margir hafa ekki hundsvit á sínum störfum, þó svo að meirihlutinn samþykki ýmis gerræði sem eru jafnvel óafturkræf! A og B hlutar gjalda og skulda Reykjavíkurborgar er ekki sama og 2350 milljónir sem ríkið skuldar sínum stóreignalífeyrisþegum!

ÖRNINN


mbl.is Að rukka á sunnudögum „ókristilegt í alla staði“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Almenningur?

Hver er veruleikafyrrtur almenningur eða Fjármálaráðherra? Blessaður gerir sér ekki grein fyrir vanda almennings, sem blessaður vildarvinurinn hans í Seðlabankanum hefur gert almenningi! Og frábært að minna kjósendur hversu mikið tjón sem ráðherran hefur valdið alþýðu með vesalingshætti, og aumingjaskap ásamt undirlægjuhætti með vildarvinum innan alls geira atvinnulífsins með að hafa ekki sett á stöðvun yfirgengilegra hækkana vildarvina í innflutningsgeiranum og líka eitt að hjálpa ekki almenningi með að styrkja kjör aldraðra og öryrkja! Sá blæs sér á brjóst um hitt og þetta en getur ekki svarað því með að kjör aldraðra og öryrkja hafa ekki fylgt almennum launakjörum síðan 2013! Katrín brosir og segir að allt sé í lagi! Fólk sem er á almennum leigumarkaði hefur þurft að borga 20-90+ þúsundum meira eftir síðasta gerræði Seðlabankastjóra! Mín leiga hækkaði um 32 þúsund! Þannig að það er gott að vera með milljón+ á mánuði í tekjur eftir skatt, en það er slæmt að vera með kannski 250 þúsund eftir skatt og húsaleiga 198 þúsund+ og geta ekki gefið börnunum að borða!!

Svona er raunveruleikinn sem því miður að margir milljónamæringarnir á Alþingi á sínum launum  sjá ekki og margir vilja ekki kannast við því að það er ekki til fátækt á Íslandi!!!! 

Örninn

 


mbl.is „Þá væri ég eini flokkurinn á Alþingi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært!

Þá falla laun hans niður sem þingmanns? Því ekki getur almenningur verið á fullum launum í 4-6 mánuði yfir sumatímann 30 dagar er hámark almennings á fullum launum mínus skattinn! Orlofs og desemberuppbót sem almenningur fær fer beint í ríkishýtina! Þess vegna eiga uppbætur að vera skattfrjálsar, en nei, aldraðir og öryrkjar fá kannski rukkun frá Tryggingastofnun um ofgreidd laun! Þetta er skömm í þessu landi sem Ríkistjórnin básúnar um víða veröld að það sé gott að búa á Íslandi, en vill ekki viðurkenna að það sé engin FÁTÆKT á Íslandi! Enda engin furða, því manneskjur sem eru með yfir 1,8++ milljónir á mánuði í laun þurfa ekki að berjast í bökkum við að borga lán ofl, sérstaklega með ofurvildarvin fjármagnsmafíunnar og ráðherra fjármála í eftirdragi sem er undir hælnum á þeim sem eiga Ísland!

Örninn


mbl.is Þingbóndinn farinn í sauðburðarfrí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verðbólgan og Seðlabankinn

Andskotans bölvaðir sauðir sem almennur launþegi er! Að sögn milljónamæringsins sem stjórnar Seðlabankanum þá er almenningi um að kenna VERÐBÓLGUNNI!! Og básúnaði um eyðslu almennigs og talaði um táslumyndir frá TENE í sambandi við bruðl almennings! En sá hinn sami sagði ekki frá eyðslu Seðlabankans og ráðuneyti fjármála í kostnaði ýmissa ferða erlendis á kostnað SKATTGREIÐENDA! Vonandi eru til opinberir reikningar fyrir öllum útgjöldum þannig að almenningur geti séð í hvað okkar skattpeningar fara! Það verður vonandi ekki einhver forseti alþingis sem vill ekki opinbera spillinguna samanber Lindarhvolsmálið, sem á víst að þagga niður, eins og var gert með ýmis skjöl sem mátti ekki birta, en eftir kosningar þá voru skjölin birt, og þá kemur það að ALÞJÓÐ mátti ekki vita um innihald skjalanna, því þá hefði þessi óríkisstjórn aldrei verið komið á koppinn! Og þess vegna segi ég það að í næstu kjarasamningum næsta haust, þá verður stríð, því almenningur er búinn að fá upp í kok á sinnuleysi Stjórnvalda gagnvart almenningi, og það versta er að hlusta ekki á Verkalýðsforystuna! Samtök Atvinnulífsins verða í harðri baráttu, en kannski setur ríkisstjórnin einhverja milljarða loforð um hitt og þetta sem verður svikið eins og venjulega! 25% síðustu 6 1/2 ár og restin á næstu 100 árum? Nei Bjarni Ben þarf að fara að girða sig í brók og ná í peningana frá vildarvinum og BÖNKUM!Því bankarnir græða með hjálp Seðlabankans, og ráðherra fjármála vill ekki hækka Bankaskattinn, því þá hætta vildarvinir ofl að græða! Sama með hátekjuskattinn, og auðlyndagjaldið!! Þá tapa allir vildarvinirnir og ekkert kemur í flokkssjóðinn ofl? Bara spyr?

Örninn  


Vinstri grænir?

Því miður virðist Katrín ekki gera sér grein fyrir undiröldunni í þjóðfélaginu! Verðbólgan sem hoppaði upp eftir gerræði fjármálaráðherra með hækkunum á almenning með ýmsum gjöldum! Og þá skal ég upplýsa blessaða kindina hana Katrínu að í gærkvöldi kostaði bensínlíter á sjálfsafgeiðslustöð í Halmstad í Svíþjóð 237 krónur Íslenskar eftir álagningu Svíaríkis! Og 85% af því verði fara til Vegagerðar! Enda mikill munur á vegakerfinu þar og á Íslandi! Á Íslandi fara peningarnir allir í einhverja óríkishýt þar sem að allir ráðherrar geta bruðlað með 250 milljarða í einhver gæluverkefni! En eitt skulu Íslendingar vita að helvítis pólitÍKIN og mafían er allsráðandi á Íslandi, því miður! Og ef að Íslendingar fengju að kjósa um aðild að Evrópusambandinu og yrði samþykkt sú umsókn þá yrði algjör sprengja, því það yrði allt rannsakað Seðlabankinn settur í Gjörgæslu og jafnvel ákærur gefnar úr vegna gengdarlausra vaxtahækkana sama banka, því fjárglæframenn ofl eiga banka og Íslenska stjórnmálamenn, og tala nú ekki um dómsmálin þar sem flokksskipaðir dómarar eru vilhallir einhverjum! Enda hafa vilhallir sýslumenn komið þúsundum heimila eftir hrun í hendur fasteignahrægamma sem hafa keypt eignir á nauðungaruppboðum fyrir spottprís, og leigja sumir út á okurleigu! Samanber leigufélagið Alma!


mbl.is „Þátttaka í ríkisstjórn kostar ávallt sitt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er dómsmálaráðherra starfi sínu vaxinn?

Vegatolls Jón ætlar að skera niður kannski með hjálp Sigurðar vegatolls? Hvernig væri það að hyskið í Ríkisstjórn færu að hugsa um almenning, ekki vildarvini sem eiga Ríkisstjórnina! Það má víst ekki mótmæla fjármálaráðherra, svo hann reiðist ekki! Útlendingarfrumvarp sem háttvirtur dómsmálaráðherra setti fram og hefur tekið tíma Alþingis vegna ágreinings um frumvarp Dómsmálaráðherra! Það er ekki í lagi með Ríkisstjórnina, því verðbólgan sem hækkar allt í boði Ríkisstjórnarinnar, þá vogar fjármálaráðherra að segja það opinberlega að hækkanir um síðustu áramót séu bara 0,02% af Verðbólgunni! Kaupmáttur launa hefur ekki batnað hjá almenningi heldur þvert á móti!Sá kaupmáttur launa sem fjármálaráðherra vísar alltaf til er EKKI kaupmáttur almennings sem er ekki á Elítuplánetunni! Af hverju má þá ekki hækka skatta á þá sem eiga peninga,og af hverju má þá ekki hækka auðlyndagjald og hækka bankaskattinn? Og af hverju druslast fjármálaráðherra ekki til og segir Alþjóð sannleikann með Sjóvá ævintýrið ásamt fléttum í sambandi við Engeyjar gjaldþrotin! Nei það má víst ekki! Enda hræddur við að sannleikurinn komi í ljós þegar að allt verður rannsakað eftir hans ofl tíma er lokið á þingi! ESB bíður eftir að komast í gögnin hjá Seðlabankanum ofl og þá kemur kannski eitthvað skítugt í ljós? Ríkisstyrktir stjórnmálaflokkar?

Örninn

 


mbl.is Ákvörðun um söluna verði mögulega dregin til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Örn Ingólfsson
Örn Ingólfsson

Er í mjög góðri vinnu. En get verið með ýmsar hressilegar skoðanir sem öðrum finnst stangast á við þeirra skoðanir og ég virði skoðanir annara þrátt fyrir bölv og ragn!

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 9846

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband