Ísland í dag, Seðlabankinn og Löggæslan!

Hvenær í andskotanum ætla kjósendur þá meina ég gamla hækjuliðið sem styður vissa flokka og Innprentar sínar pólítísku skoðanir til barnanna sinna ennþann dag í dag með Hörku að sleppa því? Nú er búið að kynda undir Löggæslumálum undanfarið ár, milljónatugir settir í að þagga niður í einum svo sá kjaftaði ekki frá! Og svo kemur eitt nýlegt, og miðað við blöðin þá kostar brottrekstur einhvers tugi milljóna! Og þá vona ég að Dómsmálaráðskonan taki sig til og REKI ALLA svo friður skapist! En ef ekki þá senda alla í Lögregluskólann því ég veit að þolprófin ásamt fleyru myndu fella kyrrsetufólkið Og að manneskjur sem hafa aldrei kynnst af eigin raun Löggæslustörfum og tekið þátt í einhverjum ógeðslegum aðstæðum og kannski kunna ekki skyndihjálp 1-3+ ! En ef að almennur launþegi er rekinn eða sagt upp starfi þá er ekki sömu kjörin hjá hinu opinbera! Enda er Lífeyrissjóður Opinberra Starfsmanna gjaldþrota bæði A og B hlutar! Því þar skuldar ríkissjóður ca 620 milljarða sem að eru teknir hægt og rólega af Almenningi sem aukagjöld á hinu og þessu! Og núna semur Sigurður vegatollur ( vinur Jóns vegatolls) við hina og þessa um framkvæmdir! En í dag vantar 929 milljarða sem áttu að renna til Vegagerðarinnar síðan 1991 en fóru í Ríkishýtina eða eitthvað annað! Og Seðlabankinn í dag er undir hælnum á einhverjum sem þykir vænt um aurana sína og tíma ekki að láta eitt né neitt nema kannski brauðmola til almennings! Munið kjósendur fögru loforðin og gleiðbrosandi gjéllan hefur ekki getað svarað fyrir sig nema með að Kóveit spili inní! Sama segir ráðherra fjármála sem vill ekki tala um og eða upplýsa Íslendinga um Raunverulega skuldastöðu Íslands og Lántökur síðustu 7 ár! Það virðist vera leyndó í gangi, en Íslendingar hafa heimtingu á að vita þessa hluti opinberlega án þess að þurfa að fara á Internetið og kannski væri það gott ef að rauntölur birtust þar dag frá degi ásamt öllum útgjöldum þingmanna (kvenna ) því ekki getur almenningur fengið eldsneyti ofl á kortum Alþingis og fengið dagpeninga, dreifbýlisstyrk og alla aðra styrki! Hvernig væri nú að þessir sem einhverjir kusu yfir sig færu fram á að þeir sem einhverjir kusu út af loforðum færu fram á við Alla alþingismenn ( konur ) að lifa í einn mánuð á lágmarkslaunum án húshjálpar ofl í lítilli leiguíbúð ca 45 fermetrar, hjón  með kannski 2 börn, og leigan kannski 180-230 þúsund á mánuði! Vaknið Íslendingar!

Örninn

 


Icelandair?

Jæja nú fór stjórnin hjá Icelandair fram úr sér með að rifta samningum við tiltekið félag og að ætla að semja við eitthvað ótiltekið félag? En í Alþjóða Loftferðalögum frá IATA þá mega flugmenn ekki vera og eða vinna sem ÖRYGGISVERÐIR þó svo að þeir séu skikkaðir í svoleiðis vinnu til að vinna sem Flugþjónar!! Því það er sérstök þjálfun, sem að Flugmenn hafa ekki og hafa ekki hlotið þjálfun í!! Og það verður gaman að sjá fréttir að utan frá IATA og Evrópusambandinu með gönuhlaup Forstjóra Icelandair ef að allar flugvélar verða kyrrsettar! En Ég á hluti í Icelandair í gegnum minn Lífeyrissjóð ásamt tuga þúsunda Íslendinga og við Lífeyrisþegar sem eigum hlut í Icelandair sættum okkur ekki við hroka og yfirgang með hótunum um að semja við hitt og þetta huldukompaný! Það sem að Forstjórinn er að fara fram á verður BANABITI Icelandair, því Íslenskur almenningur þarf að borga það sem var lánað til Icelandair síðast með hjálp sem heitir Ríkisábyrgð?  Og er þá ekki það sem sagt hefur verið undanfarin 3 ár að stjórnin á sínum ofurlaunum er vanhæf hjá Icelandair? Íslenskur almenningur er búinn að borga 995þúsund gallon af eldsneyti svo hægt væri að bjarga vildarvinafiski ásamt fleiru til Amríku! Og gott að Lífeyrissjóðirnir séu að athuga málin með hlutafjáraukninguna, og veit að þetta síðasta útspil Icelandair er komið út fyrir landsteinana til tilvonandi lánadrottna! En 500 milljarða innspýting er ekkert mál þó þeir milljarðar hverfi eins og gerðist einhverntímann fyrir einhverjum árum þegar að Seðlabankinn lak og lekur ennþá??

Örninn


Höfundur

Örn Ingólfsson
Örn Ingólfsson

Er í mjög góðri vinnu. En get verið með ýmsar hressilegar skoðanir sem öðrum finnst stangast á við þeirra skoðanir og ég virði skoðanir annara þrátt fyrir bölv og ragn!

Júlí 2020
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband