19.6.2014 | 23:02
ASÍ og lagasetningar
Jæja ósköp heyrist lítið í forystusauð ASÍ út af lagasetningum ríkisstjórnarinnar þar sem að Samtök Atvinnulífsins ráða ríkjum! Þá meina ég að hafa heila ríkisstjórn á valdi sínu svo vildarvinir geti grætt meira! En nú er komið nóg því það eru andskoti mörg lög sem að ríkisstjórn flokks innanríkisráðherra hefur sett undanfarna áratugi að beiðni LÍÚ ofl gróðapúnga sem græða á lágum launum og halda þeim niðri með erlendu starfsliði. Því miður þá komu hinir sömu á launaleynd í sem atvinnurekendur komu á í samningum sem hefur orðið til þess að laun hafa ekki hækkað eins og þau ættu að hafa hækkað allavegana miðað við launavísitölu SA og LÍÚ þar sem að laun hafa hækkað hjá stjórnendum um 100+ prósent á miðað við almennan launþega! Og ofsagróði sem að fyrirtækin sýna þá má ekki láta launþega fyrirtækjanna njóta þess heldur eiga launþegar að hanga á horriminni og það með atbeina ríkisstjórnarinnar sem vill halda láglaunastefnunni til streitu svo að almenningur verði ofurseldur sínum atvinnurekanda því viðkvæðið er ef að þú biður um hærri laun þá er nóg til af fólki!! Þannig halda þeir sinni láglaunastefnu með fulltingi ASÍ sem virðist sleikja einhvern enda á SA og LÍÚ. Og svo ætlar forystusauður ASÍ að bjóða sig fram aftur! Guð hjálpi verkafólki þá og vonast ég til þess að framboðin verði fjölmörg og að það verði almenn kosning ekki útvaldir félagar á þingi ASÍ! Þannig fór um síðustu kosningu hjá ASÍ það voru þeir í trúnaðamannaráði sem réðu úrslitum og það voru þeir innan ráðsins sem að kusu forystusauðinn með sínum atkvæðum þó svo að margir innan vinnustaða þeirra vildu ekki forystusauðinn en þeir snérust gegn sínum umbjóðendum gegn gylliboðum ASÍ og enda margir trúnaðarmenn sem verða ekki kosnir áfram og hafa haft skömm fyrir á sínum vinnustað! En nú er komið nóg og vonandi láta launþegar í sér heyra og launþegi vill ekki eymingjaskap heldur hörku sem að síðustu ár hefur verið engin með forystusauð ASÍ í forsvari því miður. Farið að tala um hlutina opinberlega en ekki kjafta hver í sínu horni og svo þegar að til kastanna kemur þá gerir enginn neitt eða þorir því miður hefur þetta verið viðkvæði hjá launþegum í góðærinu 2003-2008 og eftir það líka því fólkið er svo dofið að það þorir engu! Sjáið Evrópu þar mótmælir fólk og þar er hlustað á fólk en hérna á Íslandi NEI! Því við erum ennþá molbúar og þannig lítur fólk úti í heimi á okkur því við kunnum ekki að standa á okkar rétti og þorum ekki að láta heyra almennilega í okkur út af hræðslu við GRÓÐAPÚNGANA sem EIGA ÍSLAND Á OKKAR KOSTNAÐ OG HRÆÐSLU VIÐ YFIRVALDIÐ SEM ER UNDIR OKKAR STJÓRN MEÐ MISVITRUM STJÓRNENDUM OG ALÞINGI!!!!
Örninn
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.6.2014 | 08:19
Svínabændur og geldingar!
Jæja las Fréttablaðið 12 júní 2014 og þar eru svínaræktendur að gera athugasemdir við störf yfirdýralæknis! Nú það er í lagi að gera athugasemdir en þá er eitt sem að svínaræktendur hefðu átt að framfylgja eins og yfirdýralæknir benti á Lögum! En því miður þá eru svo margir fjársterkir eigendur svínabúa sem vildu alls ekki að þessi umræða kæmi til tals en sem betur fer þá kom þetta fram í dagsljósið. Og jú svínaræktendur urðu hræddir við umræðuna um að almenningur sniðgengi svínakjöt og þá allt í einu vöknuðu þeir upp við vondan draum að svínakjötsokrið hryndi! Nú jú svínakjöt hefur hækkað í verði langt yfir allar hækkanir á fóðurverði( sem er lítið því allur úrgangur er notaður) launakostnaður ( lágmarkslaun fyrir erlent vinnuafl) og svo ofurlaun eigenda! Það væri þá kominn tími til fyrir svínaræktendur og svínabú að upplýsa alþjóð um eignatengsl svo að almenningur fari nú ekki að ímynda sér eitthvað því Td Ali þá eru þeir helvíti dýrir á sínum afurðum þó svo að þeir ráði yfir 80% af markaðinum! Skrýtið nei því Ali á í flestöllum svínabúum á Íslandi reyndar undir krosseignartengslum! Og má þá ekki athuga þau mál? Kannski en það verður lítið úr rannsóknum vegna krosseignatengsla og klíkuskapar í ráðuneytinu sem ræður öllu eða hvað?
Örninn
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.6.2014 | 08:03
Vegagerðin og ríkishýtin!
Jæja veit ekki betur en að síðustu 23 ár og öll árin þar á undan þar sem að gjald á eldsneyti hefur hækkað um 840 prósent sem áttu að fara til Vegagerðar! Og með þeim fjármunum sem skiluðu sér aldrei nema í hýtina þá hefði verið hægt að malbika hringinn í kringum landið 10 sinnum, laga hálendisvegina og svo mætti lengi áfram telja. En nei skýtt með vegina og samgöngurnar það er annað sem þarf að borga! Og hvað skyldi það vera annað en óráðssía síðustu 23 ára eða fleyri ára til að borga fyrir kennitöluflakk vissra vildarvina og milljarðatap einkavæðingarvina? Kannski en allavegana að þá fannst mér persónulega það ALVEG FRÁBÆRT af ríkisstjórninni með sína vildarvini að hafa GETAÐ LÆKKAÐ BENSÍN OG OLÍUGJALDIÐ UM HEILA KRÓNU sem HÆKKAÐI DAGINN EFTIR og SVO LÆKKAÐ ALLT Á SÍNA VILDARVINI bæði í ÚTGERÐ og OLÍUGEIRANUM og svo SKILA ÞESSI FYRIRTÆKI MILLJARÐAGRÓÐA!!!ER EKKI Í LAGI MEÐ HEILABÚIÐ Á KJÓSENDUM? NEI EKKI ÖLLUM EN KANNSKI VERÐUR EINHVER UPPLYFTING ÞAR NÆSTA HAUST ÞEGAR AÐ HRUNIÐ ER BYRJAÐ!
VAR BÚINN AÐ AÐVARA FÓLK!
Örninn
![]() |
Þúsundir lítra af mjólk helltust niður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Kjaramál
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Samgöngur
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.10.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar