26.6.2013 | 02:06
Eiturlyf og dómarnir!
Jæja það er nú vonandi að núverandi ráðherra dómsmála leggi fram á Alþingi okkar Íslendinga? tillögu um breytingar á hegningarlögum þannig að allir sem rækta, meðhöndla og flytja inn eiturlyf verði dæmdir í mestu mögulegu refsingu ekki minna en 6 ára fangelsi! Því þetta böl hefur tröllriðið Íslandi undanfarna áratugi og því miður hafa höfuðpaurarnir sloppið alveg vegna þess að dómarnir eru svo fáránlegir hérna á Íslandi og til dæmis burðardýrin fyrir peningamennina myndu ekki kjafta frá fyrr en að þeim væri gerð grein fyrir td. 6 ára fangelsi hið minnsta! Það er óopinbert leyndarmál að peningakallar spila stórt hlutverk í innflutningi eiturlyfja því ekki hefur almenningur efni á því að senda einhvern til að kaupa svona magn og kannski miklu meira! Því miður virðist það vera að sterku efnin séu notuð af efnameira fólki sem hafa yfrið nóg af peningum svokallað tískan að taka í nös! Og annað að ræktendur kannabis fá væga dóma en samt tröllríður kannabis öllu á Íslandi því ætli að innflutningur hafi bara ekki lagst af bara út af vægum dómum, því ræktendur kunna víst orðið á Lögregluna því það er kannski engin Lögregla til að fylgjast með út af niðurskurði. Og annað þá mætti alveg fresta framkvæmdum með nýtt fangelsi á Hólmahálsi og byggja við Litla Hraun því þar er nóg plássið til viðbygginga. Og líka má nefna það að Hótelfangelsin eru liggur við eftirsótt af erlendum glæpamönnum fyrir Lúxusinn og vilja alls ekki láta framselja sig til síns heimalands þar sem að enginn lúxus er þar með talið tölvur með netsambandi og svo miklu meira eins og föngum býðst hérna heima!! Það væri kannski gustukur að koma svipuðu kerfi í fangelsismálunum eins og er úti í Ameríku enginn lúxus! Nei herða lögin og þá kannski fara þessir ólánsmenn að segja frá en kannski má ekki herða lögin til að hlífa einhverjum peningaköllum sem kannski hafa ráðið einhverju og ráða ennþá?? En eins og er í öðrum löndum tekið harkalega á eiturlyfjasmygli og í sumum löndum er dauðarefsing samanber fréttir af konu frá Bretlandi nýlega og í þeim löndum þá er þetta lítið vandamál því það er upprætt strax. Þannig að það má eins og að ofan greinir herða löggjöfina hressilega og þá kannski koma ýmis nöfn í ljós sem hafa verið falin undanfarna áratugi! Hvað finnst ykkur Íslendingum réttlátt að klappa á öxlina og dæma í 2-3 ára fangelsi eða sex ár hið minnsta því með að breyta lögunum þá væri hægt að bjarga fleiri hundruðum ungmenna frá fíkniefnasölum sem tröllríða Íslandi og veigra sér ekki við að selja grunnskólabörnum fyrir utan skólalóðir! Þess vegna Íslendingar verið vakandi og tilkynnið allt óeðlilegt sem að þið þekkið ekki í kringum skóla og einnig heimili og takið niður útlit og kannski bílnúmer því þetta hefur hjálpað Lögreglunni mikið þó fámenn sé og upplýst marga glæpi! En þetta eru mín skrif og vonandi lesa einhverjir þennan pistil og fólk fari að hugsa sig tvisvar um að hlífa einhverjum sem að kannski selur eiturlyf og þorir ekki að segja frá af ótta við hefndaraðgerðir en það er bara til að þagga niður Vandamálið! Svo endilega hringið og látið vita um eitthvað grunsamlegt! Og ég veit að þessi pistill á eftir að rata í hendur einhverra og veit að ég á kannski? eftir að fá eitthvað? Hver veit.
Örninn
![]() |
Mynstur í innflutningi kókaíns |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
19.6.2013 | 18:35
Launajafnrétti!
Jæja launajafnrétti kynjanna! Það var sett frumvarp að lögum sem urðu að lögum 27 mars 1961. Meginefni laganna voru: Að greiða skal sömu laun fyrir sömu störf, laun kvenna skulu hækka til jafns við laun karla, og á að ná fullum launajöfnuði í áföngum á sex árum! Þetta geta spekúlantar athugað og séð svo fram á hverjir voru í ríkisstjórnum til dagsins í dag. Vildi bara benda fólki á þetta því þetta virðist vera eitthvað feimnismál í þeim ríkisstjórnum sem ráðið hafa. En það skal tekið fram að ég las þetta í Öldinni okkar fyrir árið 1961 og ef að rétt er þá hafa konurnar blessaðar verið sviknar í áratugi og hverjum er það að kenna nema atvinnurekendum og tannlausri verkalýðsforystu.
Ps. Þetta var frumvarp sem varð að lögum!
Örninn
![]() |
Munum ekki láta staðar numið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.6.2013 | 06:53
Ofsagróði bankanna út af þjónustugjöldum!
Jæja það þýðir ekkert að vera að nöldra í þjónustugjöldum bankanna fyrir færslur af Debet og eða Kreditkorti! En þá er eitt sem að allir bankar skulda innlánsþegum alveg frá innleiðingu þjónustugjalda það er leiðrétting á innlánsvöxtum því reikningseigandi í viðkomandi banka á ekki að þurfa að borga þjónustugjöld umfram innlánsvexti sem að hafa verið ca 6% lægri heldur en þjónustugjald er! Þannig að þá er kominn tími til að málin verði skoðuð og metin af hlutlausum aðilum án flokka og innheimtulögfræðinga og fá vonandi út réttar tölur fyrir almenning. Ég átti fyrir hrun árið 2005 65405 krónur á bankabók og í dag þá átti ég bara 28192 á sömu bók svo hvað varð um mismuninn? Kannski í gróðahýtina hjá einkavæðingunni? Veit ekki en samt þá er kominn tími til að fólk fari að láta í sér heyra og taka þá frekar út pening í bankanum hjá gjaldkera því ein færsla í posa kostar og líka í hraðbanka en ekkert hjá gjaldkera sem er lifandi en tölva stjórnar hinu skrýtið!!
Örninn
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Kjaramál
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Samgöngur
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.10.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar