Harðfiskurinn okkar!!!

Jæja góðir Íslendingar nú er sumstaðar verð á harðfisk komið frá 8000 krónur kílóið og upp í 14000 krónur! En það versta við þetta er okrið því það er sumstaðar verið að selja sama kílóverð á þorski eins og ýsu og eitt veit ég að það er ágætt að kaupa 170 kíló af slægðum þorski á 295 kr.kg sem gera Kr: 50150 og inniblástursþurrkaður í einhverjum maskínum og fá svo út úr því um 25-30 kíló og selja svo ca 27 kíló á: Dæmi: 27 kíló x ca 4500kr eftir sölu til byrgja þá gerir það: 103500 og svo stighækkar verðið sem seljandi fær og svo leggst álagning seljanda á þannig að þá geta neytendur áttað sig á verðinu en fyrir utan það þá er inniblásturþurrkaður harðfiskur ekki nærri því eins góður og sá sem er gerður á gamla mátann Hjallþurkaður við Vestfirskan eðal blástur ! En það tekur 2 vanar manneskjur ekki langa stund að flaka og beinhreinsa flökin!

Örninn


Er þá Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu undanþegin?

Jæja nú er ég hissa því ég veit ekki betur en að trúnaðarskjöl eigi ekki að liggja á glámbekk á einhverju tölvudrifi og allra sýst að senda til einhvers sem hefur ekki umboð til að æskja eftir svoleiðis upplýsingum þó svo að manneskjan í þessu máli hafi sagt að þetta mál hafi verið hjá Innanríkisráðuneytinu og ég veit ekki hvað! En allavegana ef að ÉG STARFSMAÐUR FYRIRTÆKIS SENDI GÖGN MEÐ UPPLÝSINGUM UM SKULDASTÖÐU OG EÐA EITTHVAÐ ANNAÐ TIL ANNARS FYRIRTÆKIS OG ÞAÐ KÆMIST UPP ÞÁ YRÐI ÉG REKINN SAMSTUNDIS!!! Í ÞESSU MÁLI ER KOMIN UPP SAMA STAÐAN MEÐ ÞANN SEM SKIPAÐI VINKONU SÍNA SPILLING ? KANNSKI TIL AÐ REYNA AÐ FELA EITTHVAÐ ?? Nú Stefáni var bolað burt af vinkonu Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og skiljanlega vildi Stefán ekki sitja undir einhverri pressu um eitthvað sem að kom svo í hausinn á hans fyrrverandi yfirboðara. En eitt skal jafnt yfir alla ganga og þá er tími til að Lögreglufrúin á höfuðborgarsvæðinu segi af sér með sóma áður en að eitthvað verður grafið upp af einhverjum blöðum !!! Því það eru alltaf til uppljóstrarar þó svo að þeir fái ekki borgað fyrir upplýsingarnar!!

Örninn


mbl.is Gerðist ekki brotleg við lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hæstaréttardómur yfir 4um svikahröppum með hjálp!

Jæja loksins er kominn dómur í Althanimálinu eftir öll þessi ár!

Allir lýstu sig saklausa fram á síðustu stundu. Og allir hissa yfir dómunum skrítið? Nei allir þessir 4 voru með færustu lögspekinga á sínum snærum og þá er það bara eitt sem kemur út úr því með lögspekingana að þeir eru öngvir Guðir sem dómstólar eigi að óttast! Samanber þegar að 2 lögspekingar sögðu sig frá málinu með tilheyrandi álishnekki og sekt og á almenningur að trúa svona lögspekingum sem hafa varið ótalmarga ótýnda glæpamenn? Má þá ekki fara að athuga Íslensk Hegningarlög sem eru mörg upprunnin frá Danaveldi og alveg aftur til Grágásar? Því miðað við dóma síðustu 350 árin þá hefur alltaf fallið sá dómur að lítilmaginn hefur alltaf þurft að lúffa ( hætta við málssókn )  fyrir yfirvaldinu út af misjöfnum varnaraðilum þá í dag heita þetta lögfræðingar sem margir eru ekki starfi sínu vaxnir og kannski hafa sumir skjólstæðingar þeirra fengið strangari dóm heldur en að ef að einhver verulega löglærður hefði séð um málin en það er bara að þar skipta peningar máli því 10.000+ krónur á klukkutímann skipta máli fyrir almenning en ekki hjá þessum sem hafa peningana! En svo vona ég það að þessir blessaðir svikahrappar fari á Litla Hraun eins og ótíndir glæpamenn því almenningur hefur þurft að fara á Litla Hraun fyrir 10000 faldari minni skuld og er þá ekki kominn tími til að hvítflibbaglæpamennirnir kynnist Litla Hrauni áður en að nýja fangelsið verður tekið í gagnið? Og vonandi verður í nýja fangelsinu engin nettenging og ef að einhver skólastofa verður nettengd þá verði lokað fyrir allt nema námsefni í viðeigandi fjarnámi enda grasserar allt út frá Litla Hrauni allt skipulagt út á við þar! En það svíður þjóðinni að almenningur skuli taka þátt í því að borga hlut í málsvörn Ólafs og það sýnir bara hversu rotið það er ekki fær almenningur nema kannski í klíkunni svona niðurfellingu allt skal borgað í topp!!!

Örninn

 


Höfundur

Örn Ingólfsson
Örn Ingólfsson

Er í mjög góðri vinnu. En get verið með ýmsar hressilegar skoðanir sem öðrum finnst stangast á við þeirra skoðanir og ég virði skoðanir annara þrátt fyrir bölv og ragn!

Feb. 2015
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.9.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 12599

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband