30.11.2012 | 19:37
Vaðlaheiðargöng eða Tækjaþurrð Landsspítala Háskólasjúkrahúss!!
Jæja þá fær Íslenska þjóðin það beint í æð aðFjársvelti Landspítalans verður næstu árin með þessum voða gerningi því ég held að þessi ríkisstjórn samþykki það alveg örugglega þegar að þessi göng verða tilbúin að gjaldið verði 2000-3500 krónur hið minnsta!! Nei hefði þessi hauslausa ríkisstjórn með þingmenn sína í þessu kjördæmi gert það sem rétt var að kaupa ný tæki fyrir Landsspítalann þá hefði þjóðin verið sátt en þetta helvítis kjördæmapot þingmanna kjördæmisins er gengið út í öfgar! Ætli að þessir þingmenn hafi hótað stjórnaslitum ef göngin kæmu ekki? Mikið grunar mig það og annað að fólki sem ég hef rætt við finnst þetta sama. Endilega dragið þetta til baka því það verða einu atkvæðin sem þessi hauslausa Ríkisstjórn fá af svæðinum í kring ef að það verður þá er búið að bjarga göngunum! Helvítis fokking fokk segi ég bara því að nú halda líka hækkanirnar hans Okurgríms? áfram það er eins og að þessi hauslausa ríkisstjórn geri sér ekki grein fyrir því að fólk hættir að kaupa hitt og þetta með okursköttum Okurgríms og hans kollega! ÞAÐ ÞÝÐIR EKKERT AÐ BERA LAUNAKJÖR, KAUPMÁTT OG SKATTA VIÐ NORÐURLÖNDIN ÞVÍ ÞAR ERU LAUNIN MIKIÐ HÆRRI OG MIKLU MEIRA FÆST FYRIR LAUNIN EN HÉR Á OKURLANDINU! NEI NÚ VERÐUR ALGJÖRT HRUN Í ÞESSU LITLA FYLGI SEM EFTIR VAR OG ÞÁ KEMST HÆGRI STJÓRNIN AÐ AFTUR EINS OG VAR FYRIR HRUN ÞAÐ ER EINS OG AÐ ríkisstjórnin VILJI ÞAÐ MEÐ SÍNU HÁTTALAGI!!!!
SKAMMIST YKKAR OG FARIÐ AÐ NÁ Í STOLNU PENINGANA SVO AÐ FÓLK FÁI TRÚ Á KERFINU AFTUR!
ÖRNINN
![]() |
8,7 milljarðar tryggðir í Vaðlaheiðargöng |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.11.2012 | 03:09
Ísland, spilling? og samanburður við kaupmátt og kannski laun?
HUGLEIÐING
Af hverju stoppar Ríkisstjórnin ekki okur Innflytjenda vöru eða milliliða er það skattmann sem er að auka álögur sínar?
Nei Innflytjendur og Íslenskar afurðastöðvar kjöts hækka gengdarlaust sínar afurðir í skjóli hækkandi aðfanga á hinu og þessu og þess vegna væri það þjóðráð að þessir aðilar Sýni alþjóð hversu mikið þeir kaupa viðkomandi vöru á með öllum gjöldum síðustu 4 ár og þá með hækkunum líka þá er ég að meina Vörureikninga og Innflutningspappíra sem kannski mega ekki koma fyrir almenningssjónir til að sýna fram á lögmæti allra þessara gengdalausu hækkana og eða græðgi með hjálp kannski vissra innan sumra flokka með ítök ennþá á Alþingi sem vilja ekki viðurkenna neitt misjafnt hafi skeð fyrir bankahrun og eftir! Nú SS hefur hækkað sínar vörur all hressilega síðasta ár og ASÍ tók ekki eftir því, ostar hafa hækkað, svínakjöt í hæstu hæðum og samt er ASÍ og Samtök Atvinnulífsins með atbeina Ríkisstjórna síðustu 30 árin að segja alþjóð að við borgum miklu minna og eða sambærilegt við aðrar Norðurlandaþjóðir og Kaupmátturinn sé sambærilegur og eða sami!! Djöfulsins bull og kjaftæði ef að ég sem einstætt foreldri hefði flutt út til Norðurlanda eftir Hrun þá ætti ég upp nærri því nýtt einbýlishús á Íslandi með tekjurnar eftir Skatta þar!! Nú það er engin furða að skattpíningin á Íslandi sé svona rosaleg því það þarf að borga fyrir einkavæðingu bankanna og fjármálasukkið í kringum sukkið sem að vissir aðilar innan vissra stjórnmálaflokka högnuðust á og svo vill enginn innan þessara vissu flokka koma nálægt einhverri SPILLINGU? Og sverja svo af sér afglöpin og eru bara með Geislabauginn og deila á þá sem eru í kröggum með sitt en félagar vissra flokka fá hundruðir milljarða afskrifaða en ég fæ ekki sem almúgi afskrifaðar 25-30 þúsund krónur því ég skuldaði ekki svo mikið bara 250 þúsund Íslenskar gatakrónur! Og svo stofna þessir afskrifuðu ný fyrirtæki og með jafnvel milljarðaafskriftir á bak við sig? Og eignir upp á fleiri hundruð milljónir!! Nei SKÍTALYKTIN er svo svakaleg og það á eftir að verða uppreisn í þjóðfélaginu út af því af hverju var ekki gengið að öllum eignum og kannað ofan í kjölinn málamyndargerningur með eiginkonur, börn, frændur, ungabörn og jafnvel börn í móðurkviði óskýrt!!!!????
Ég bara spyr fyrir hönd þeirra sem töpuðu öllu sínu og nú munu skjólstæðingar viss hjúkrunarheimilis súpa seiðið af óráðssíu þeirra sem að voru kannski í vissum stjórnmálaflokk?? Ekki neitt nýtt eða hvað?
Örninn
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.11.2012 | 04:57
Ja hérna hárlengingar!
Nú er sá gamli kvumsa um að sumar konur þurfi í hárlengingar! Nú það er öldin önnur núna að fyrir fáeinum árum voru síðhærðar Íslenskar konur allstaðar á ferðinni þá með náttúrulegt samgróið hár með ýmsum litamismun og ekki þurftu þessar turtildúfur að kaupa sér hár til lengingar! En svona er bara tískan og kannski hafa sumar konur látið snoða sig í góðærinu og horfa svo á mynd af sjálfri sér í dag stuttklipptri og vilja endurvekja útlitið fyrir tugi þúsunda! Nú þetta er ákvörðun sem að konurnar tóku en þá ber þessum konum að fara eftir því sem að blessaðir hárlengingarmeistararnir vonandi með virðisaukaskattsnúmer á hreinu og allt löglegt og allar kvittanir í lagi svo hægt sé að fá leiðréttingu á hárinu þegar að það fer að flækjast og enda kannski svo inni á löglegri hárgreiðslustofu með allt í óefni og missa jafnvel hárið þannig að 4-6 millimetrar verða eftir og þá er kannski kominn tími til að kaupa sér hárkollu upp á 150-300 þúsund bara til að fela!! Hafa allt sitt á hreinu og hafa Löglegar Nótur!!
Ps: Fór sjálfur í snoð um daginn en því miður held ég að ekkert fáist fyrir grömmin mín og eða ekki nothæft::))
Örninn
![]() |
Hvaðan koma hárlengingarnar? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Kjaramál
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Samgöngur
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.10.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 12605
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar