Færsluflokkur: Dægurmál

Engin furða

Skiljanlega vill manneskjan ekki fara í fangelsi í heimalandinu. Veit ekki um aðstæður í Rúmeníu með afbrotamenn í fangelsum? Gætu verið slæmar og eða hryllilegar? Því víða á okkar jarðkringlu eru fangar í fangelsum til að afplána dóm (a) og margir hverjir koma verri út eftir vistina. Smáafbrotamenn á Íslandi fá marga dóma á sig og geðþóttarákvörðun dómara ræður ásamt sækjanda hversu langur dómurinn eigi að vera! Mjög oft er ekki hlustað á sakborning, sem hefur bætt sitt ráð þegar að dómur fellur kannski eftir 2-3 ár! Fangelsisvist upp á? Jú það má kannski sækja um samfélagsþjónustu fyrir einhvern hluta af dómnum!

En tíminn sem fer í alla málsmeðferðina og sakborningur að lifa milli vonar og ótta, hvenær verð ég sóttur eftir opinbera plaggið frá Fangelsismálastofnun! Og annað er með Sýslumann ónefdan sem sendi bréf um að einstaklingur ætti að mæta til afplánunar í Fangelsið á Hólmsheiði klukkan 2 út af hraðasekt, og 6 dagar var refsingin! Nú einstaklingurinn mætti til afplánunar þann dag sem að Sýslumaðurinn tiltók og enginn kannaðist við neitt þar á bæ! Einstaklingurinn átti gott spjall við þá þar sem réðu og sýndi þeim bréfið frá Sýslumanninum undrunarsvipurinn og höfuðhristingurinn var víst í hámarki út af vitleysisgangi sýslumannsins,og einstaklingurinn kom heim til sín frelsinu feginn :):) En ég sá þetta bréf og varð hissa, einstaklingurinn sagðist ekki hafa borgað sektina, og þess vegna kom bréfið frá Sýsló! En hvað er að kerfinu, geta sýslumenn boðað manneskjur í afplánun í fangelsi, og Fangelsismálastofnun veit ekki neitt? 

Örninn

 


mbl.is Eftirlýstur glæpamaður dæmdur í farbann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spillingarlögregla?

Það væri nú gott að hafa svoleiðis Lögreglu á Íslandi! En því miður er þannig í pottinn búið að það er ekki hægt! Því það er svo innmúrað í Löggæsluna á Íslandi að setja undir teppið mál sem koma yfirvöldum og stjórnmálamönnum ílla! Og þá eru það ýmsir stjórnmálamenn sem hafa skipað hina og þessa yfir Löggæslumálum á Íslandi, ásamt ýmsum Hæstaréttardómurum! Tíkin hún pólitík er slæm, en þá má fá erlenda rannsakendur frá INTERPOL ofl erlendum Löggæslustofnunum til að rannsaka spillinguna á ÍSLANDI! En veit að þeim verður ekki hleypt inn í bananalýðveldið Ísland, því þá kemst upp um mafíustarfsemi fjármálafyrirtækjanna, bankanna, Seðlabankans og ættartengsl Fjármálaráðherra í sambandi við ýmsa gjörninga undan farin 15 ár!! Og það eru margir hissa erlendis að Fjármálaráðherra, og fleyri innan ríkisstjórnar Íslands skuli ekki fyrir LÖNGU síðan hafa sagt af sér út af spillingarmálum sem hafa verið í umræðunni síðan 2008!

Örninn


Peningavandræði

Jæja þá er naglinn kominn í kistu Dags og Einars. Ætla þessir vesalingar sem hafa þrengt hitt og þetta um alla borg að ráða þræla til að ferja vörur til fyrirtækja? Því eftir kl. 11 Þá mega ekki bílar með farm koma niðureftir nema með sektum! Hækkun Bílastæðagjalda fyrir almennan bifreiðaeiganda er algjörlega út úr kortinu! Að sögn fulltrúa Reykjavíkurborgar til að færa einkabílinn í bílastæðahúsin! Gott, en þá þurfa BÍLASTÆÐAHÚSIN að vera opin allan sólahringinn með strangri GÆSLU sem kostar peninga! En það er víst ekki hægt að treysta á vanvitið og útreikninga ýmissa nefnda Reykjavíkurborgar því margir hafa ekki hundsvit á sínum störfum, þó svo að meirihlutinn samþykki ýmis gerræði sem eru jafnvel óafturkræf! A og B hlutar gjalda og skulda Reykjavíkurborgar er ekki sama og 2350 milljónir sem ríkið skuldar sínum stóreignalífeyrisþegum!

ÖRNINN


mbl.is Að rukka á sunnudögum „ókristilegt í alla staði“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Almenningur?

Hver er veruleikafyrrtur almenningur eða Fjármálaráðherra? Blessaður gerir sér ekki grein fyrir vanda almennings, sem blessaður vildarvinurinn hans í Seðlabankanum hefur gert almenningi! Og frábært að minna kjósendur hversu mikið tjón sem ráðherran hefur valdið alþýðu með vesalingshætti, og aumingjaskap ásamt undirlægjuhætti með vildarvinum innan alls geira atvinnulífsins með að hafa ekki sett á stöðvun yfirgengilegra hækkana vildarvina í innflutningsgeiranum og líka eitt að hjálpa ekki almenningi með að styrkja kjör aldraðra og öryrkja! Sá blæs sér á brjóst um hitt og þetta en getur ekki svarað því með að kjör aldraðra og öryrkja hafa ekki fylgt almennum launakjörum síðan 2013! Katrín brosir og segir að allt sé í lagi! Fólk sem er á almennum leigumarkaði hefur þurft að borga 20-90+ þúsundum meira eftir síðasta gerræði Seðlabankastjóra! Mín leiga hækkaði um 32 þúsund! Þannig að það er gott að vera með milljón+ á mánuði í tekjur eftir skatt, en það er slæmt að vera með kannski 250 þúsund eftir skatt og húsaleiga 198 þúsund+ og geta ekki gefið börnunum að borða!!

Svona er raunveruleikinn sem því miður að margir milljónamæringarnir á Alþingi á sínum launum  sjá ekki og margir vilja ekki kannast við því að það er ekki til fátækt á Íslandi!!!! 

Örninn

 


mbl.is „Þá væri ég eini flokkurinn á Alþingi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært!

Þá falla laun hans niður sem þingmanns? Því ekki getur almenningur verið á fullum launum í 4-6 mánuði yfir sumatímann 30 dagar er hámark almennings á fullum launum mínus skattinn! Orlofs og desemberuppbót sem almenningur fær fer beint í ríkishýtina! Þess vegna eiga uppbætur að vera skattfrjálsar, en nei, aldraðir og öryrkjar fá kannski rukkun frá Tryggingastofnun um ofgreidd laun! Þetta er skömm í þessu landi sem Ríkistjórnin básúnar um víða veröld að það sé gott að búa á Íslandi, en vill ekki viðurkenna að það sé engin FÁTÆKT á Íslandi! Enda engin furða, því manneskjur sem eru með yfir 1,8++ milljónir á mánuði í laun þurfa ekki að berjast í bökkum við að borga lán ofl, sérstaklega með ofurvildarvin fjármagnsmafíunnar og ráðherra fjármála í eftirdragi sem er undir hælnum á þeim sem eiga Ísland!

Örninn


mbl.is Þingbóndinn farinn í sauðburðarfrí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verðbólgan og Seðlabankinn

Andskotans bölvaðir sauðir sem almennur launþegi er! Að sögn milljónamæringsins sem stjórnar Seðlabankanum þá er almenningi um að kenna VERÐBÓLGUNNI!! Og básúnaði um eyðslu almennigs og talaði um táslumyndir frá TENE í sambandi við bruðl almennings! En sá hinn sami sagði ekki frá eyðslu Seðlabankans og ráðuneyti fjármála í kostnaði ýmissa ferða erlendis á kostnað SKATTGREIÐENDA! Vonandi eru til opinberir reikningar fyrir öllum útgjöldum þannig að almenningur geti séð í hvað okkar skattpeningar fara! Það verður vonandi ekki einhver forseti alþingis sem vill ekki opinbera spillinguna samanber Lindarhvolsmálið, sem á víst að þagga niður, eins og var gert með ýmis skjöl sem mátti ekki birta, en eftir kosningar þá voru skjölin birt, og þá kemur það að ALÞJÓÐ mátti ekki vita um innihald skjalanna, því þá hefði þessi óríkisstjórn aldrei verið komið á koppinn! Og þess vegna segi ég það að í næstu kjarasamningum næsta haust, þá verður stríð, því almenningur er búinn að fá upp í kok á sinnuleysi Stjórnvalda gagnvart almenningi, og það versta er að hlusta ekki á Verkalýðsforystuna! Samtök Atvinnulífsins verða í harðri baráttu, en kannski setur ríkisstjórnin einhverja milljarða loforð um hitt og þetta sem verður svikið eins og venjulega! 25% síðustu 6 1/2 ár og restin á næstu 100 árum? Nei Bjarni Ben þarf að fara að girða sig í brók og ná í peningana frá vildarvinum og BÖNKUM!Því bankarnir græða með hjálp Seðlabankans, og ráðherra fjármála vill ekki hækka Bankaskattinn, því þá hætta vildarvinir ofl að græða! Sama með hátekjuskattinn, og auðlyndagjaldið!! Þá tapa allir vildarvinirnir og ekkert kemur í flokkssjóðinn ofl? Bara spyr?

Örninn  


Vinstri grænir?

Því miður virðist Katrín ekki gera sér grein fyrir undiröldunni í þjóðfélaginu! Verðbólgan sem hoppaði upp eftir gerræði fjármálaráðherra með hækkunum á almenning með ýmsum gjöldum! Og þá skal ég upplýsa blessaða kindina hana Katrínu að í gærkvöldi kostaði bensínlíter á sjálfsafgeiðslustöð í Halmstad í Svíþjóð 237 krónur Íslenskar eftir álagningu Svíaríkis! Og 85% af því verði fara til Vegagerðar! Enda mikill munur á vegakerfinu þar og á Íslandi! Á Íslandi fara peningarnir allir í einhverja óríkishýt þar sem að allir ráðherrar geta bruðlað með 250 milljarða í einhver gæluverkefni! En eitt skulu Íslendingar vita að helvítis pólitÍKIN og mafían er allsráðandi á Íslandi, því miður! Og ef að Íslendingar fengju að kjósa um aðild að Evrópusambandinu og yrði samþykkt sú umsókn þá yrði algjör sprengja, því það yrði allt rannsakað Seðlabankinn settur í Gjörgæslu og jafnvel ákærur gefnar úr vegna gengdarlausra vaxtahækkana sama banka, því fjárglæframenn ofl eiga banka og Íslenska stjórnmálamenn, og tala nú ekki um dómsmálin þar sem flokksskipaðir dómarar eru vilhallir einhverjum! Enda hafa vilhallir sýslumenn komið þúsundum heimila eftir hrun í hendur fasteignahrægamma sem hafa keypt eignir á nauðungaruppboðum fyrir spottprís, og leigja sumir út á okurleigu! Samanber leigufélagið Alma!


mbl.is „Þátttaka í ríkisstjórn kostar ávallt sitt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er dómsmálaráðherra starfi sínu vaxinn?

Vegatolls Jón ætlar að skera niður kannski með hjálp Sigurðar vegatolls? Hvernig væri það að hyskið í Ríkisstjórn færu að hugsa um almenning, ekki vildarvini sem eiga Ríkisstjórnina! Það má víst ekki mótmæla fjármálaráðherra, svo hann reiðist ekki! Útlendingarfrumvarp sem háttvirtur dómsmálaráðherra setti fram og hefur tekið tíma Alþingis vegna ágreinings um frumvarp Dómsmálaráðherra! Það er ekki í lagi með Ríkisstjórnina, því verðbólgan sem hækkar allt í boði Ríkisstjórnarinnar, þá vogar fjármálaráðherra að segja það opinberlega að hækkanir um síðustu áramót séu bara 0,02% af Verðbólgunni! Kaupmáttur launa hefur ekki batnað hjá almenningi heldur þvert á móti!Sá kaupmáttur launa sem fjármálaráðherra vísar alltaf til er EKKI kaupmáttur almennings sem er ekki á Elítuplánetunni! Af hverju má þá ekki hækka skatta á þá sem eiga peninga,og af hverju má þá ekki hækka auðlyndagjald og hækka bankaskattinn? Og af hverju druslast fjármálaráðherra ekki til og segir Alþjóð sannleikann með Sjóvá ævintýrið ásamt fléttum í sambandi við Engeyjar gjaldþrotin! Nei það má víst ekki! Enda hræddur við að sannleikurinn komi í ljós þegar að allt verður rannsakað eftir hans ofl tíma er lokið á þingi! ESB bíður eftir að komast í gögnin hjá Seðlabankanum ofl og þá kemur kannski eitthvað skítugt í ljós? Ríkisstyrktir stjórnmálaflokkar?

Örninn

 


mbl.is Ákvörðun um söluna verði mögulega dregin til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjúklingar

Heilsugæslustöðvar ráða ekki við fjölda fólks vegna manneklu! Og að allir sjúklingar leiti þangað með ýmsar kvefpestir ofl, þá verða biðraðirnar andskoti langar! Það má kenna manneklu í heilbrigðiskerfinu um þetta, þó svo að ráðherra heilbrigðismála segi annað að allt sé í frábæru lagi! Ráðherra fjármála segist vera búinn að dæla samkvæmt fjárlögum hans meira fjármagni til Landspítala Háskólasjúkrahúss! Samt flýja sérhæfðir læknar og hjúkrunarfólk! Er þá ekki kominn tími til að fjármálaráðherra fari að vinna sjálfboðaliðastarf á Bráðamóttökunni og sjái með sínum augum hvernig vandinn er og endilega ætti hann að taka Villum Þór með sér ásamt Katrínu á eina sólahringsvakt svo að þeir geti séð með eigin augum hvernig ástandið er!En það er borin von að fá þau þangað, því það má ekki skíta út fötin og glottin!!

Einhversstaðar eru arðgreiðslur útgerðafyrirtækja,faldar, sem að ríkið skuldar almenningi í auðlindarskatt, ásamt hátekjuskattinum sem var lækkaður að kröfu auðmanna sem eiga Ísland! Og tala nú ekki um það sem á að renna til Vegagerðarinnar 80% af gjöldum af eldsneyti!

Örninn


mbl.is Allt of margir sjúklingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rafurmagnsvæðing Lögreglunnar!

Jæja þá er komið að því að Jón Vegatollur sem var fluttur úr því embætti í Dómsmálin! Og það má setja Rafbyssur í hendur þeirra sem eru margreyndir,með sérstakri ÞJÁLFUN? En Jón hefur ekki neinar opinberar tölur frá Löggæsluyfirvöldum á NORÐURLÖNDUNUM hversu margir hafa fengið hjartaáfall eftir rafstuð úr slíku verkfæri! Og til þess að fá tilhlýðilega þjálfun ERLENDIS,ekki frá sérsveitinni, þá er það svolítið dýrt fyrir þjóðarbúskapinn að senda ýmsa Lögreglumenn til Ameríku ofl landa í þjálfun! Allir eiga að spara sérstaklega Almúginn en ekki RÍKIÐ sem lætur prenta peninga eftir þörfum!

En svona er þetta ríkið bruðlar og hverjir blæða og þurfa að borga nema almenningur fyrir ýmsa glæpi sem viðgangast á Íslandi með hjálp vildarvinakennitöluflakks sem má ekki afnema og hefur kostað almenning síðan 2013, 1045 milljarða sem hefði verið hægt að stoppa, en nei það má ekki hrófla við vildarvinum ofl! Tala ekki um stórútgerðina og arðgreiðslur er ekki bara best að gefa skít í allt útgerðar kjaftæðið þjóðnýta Auðlyndina og ef þessir blessaðir vilja ekki hlýta því þá geta sumir farið til Namibíu!

Örninn

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Örn Ingólfsson
Örn Ingólfsson

Er í mjög góðri vinnu. En get verið með ýmsar hressilegar skoðanir sem öðrum finnst stangast á við þeirra skoðanir og ég virði skoðanir annara þrátt fyrir bölv og ragn!

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 11
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 9872

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband