Hækkandi iðgjöld með lækkandi hagnaði!

Já það er alltaf sama sagan með TM, Sjóvá og VÍS að á endanum þarf almenningur að borga arðinn sem stjórnendur þessara einokunartryggingafélaga með hækkuðum iðgjöldum! Því miður þá getur Íslenskur almenningur ekki tryggt sín ökutæki og aðrar tryggingar erlendis út af klíkuskap og eiginhagsmunastefnu auðvaldsins sem er með dulið eignarhald í ýmsum félögum! Og nú set ég spurningamerki við eignarhald allra Lífeyrissjóða í Íslenskum tryggingarfélögum er það mikið eða lítið, eða eiga lífeyrissjóðirnir kannski 65% eða? Og af hverju berjast Íslensku Tryggingafélögin með kjafti og klóm saman að það komi ekki erlent Tryggingarfélag sem getur boðið lægri tryggingar og iðgjöld? Nú kannski hætta þau að græða á almenningi? En því miður gleymist hjá þessum tryggingarfélögum að UPPLÝSA ALMENNING UM AÐ þau eru BAKTRYGGÐ ERLENDIS FYRIR TJÓNUM!

Olíufélögin!

Eitt dæmi með erlenda eigendur IRVING sem boðuðu komu sína til Íslands og jú viðræður gengu vel en ekkert varð úr komu þeirra til Íslands en ÖLL OLÍUFÉLÖGIN ÞÁ keyptu IRVING út úr samkeppninni fyrir ca 850 milljarða á núvirði sem lentu á almenningi með hækkandi eldsneytisverði og álögum og ónýta vegi!! Hverjir stjórnuðu verðsamráði og hverjir voru í ríkisstjórn? Nú margir sem ráða ríkjum í dag á Íslandi og feður þeirra!! Og af hverju var Verðlagseftirlitið lagt niður? 

ÖRNINN


mbl.is Hagnaður TM lækkar um 2,4 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Opin spurning til stjórnvalda!

Hvernig getur það verið í sambandi við verðtrygginguna,okurvexti sem að Seðlabankinn viðheldur er það út af afarkostum Auðvaldsmafíunnar þar með talda erlenda eigendur sem eiga hluti í Íslenskum bönkum og aflandskrónueigeindur sem fengu afslátt með því að gefa 1% upp til Ríkisskattstjóra? Eða eru það einhverjir aðrir þættir sem spila inn í sem að Íslenska þjóðin veit ekki um? Sá frétt í gærkvöldi um sýningu sem að var opin til klukkan 23 í gærkvöldi og öllum boðið! Almenningur fékk ekki að vita af þessum viðburði með heilsíðuauglýsingu í blöðunum, en allavegana sá ég í fréttunum að ein gullstöng? var sett á stall og kostaði sú yfir 200 millur í mynd og viðtalinu! Nú það er flott ef að gullsjóðurinn okkar sé yfir 800 milljarða+ og er þá ekki kominn tími til að ljósmyndarar fái að mynda gullforðann sem kannski er ekki ti? En allavegana fyrir utan þetta þá er kominn tími til fyrir fólk að fara að vakna og síðustu fréttir um verðlagningu á innfluttum vörum er komið í það sama og löngu fyrir hrun og innflytjendur og heildsalar ásamt Ríkinu að það hækkaði alltaf allt  í HAFI! Þetta er nákvæmlega sem olíufélögin hafa gert í gegnum áratugina og gera ennþá hækka STRAX en lækka ekki verðið strax eins og á að vera! Enda hafa olíufélögin haft af Íslenskum neytendum síðastliðið ár 350 milljónir+? í ofgreidd olíugjöld og ríkið 560++ milljónir? í GRÓÐA með hjálp Seðlabankans! Verðtrygging hvað af hverju má ekki hækka skatta á auðvaldið, auknar álögur á vildarvini innan sjávarútvegsins og AF HVERJU BERST BJARNI BENEDIKTSSON HATRAMMLEGA GEGN KENNITÖLUFLAKKINU? ÞVÍ VILDARVINIRNIR VILJA GRÆÐA SEM MEST OG ALMENNINGUR ÞARF AÐ BORGA SEM MEST!

Örninn

 


Höfundur

Örn Ingólfsson
Örn Ingólfsson

Er í mjög góðri vinnu. En get verið með ýmsar hressilegar skoðanir sem öðrum finnst stangast á við þeirra skoðanir og ég virði skoðanir annara þrátt fyrir bölv og ragn!

Feb. 2019
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 108
  • Frá upphafi: 9822

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 102
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband