Lífeyrissjóðirnir

Sigmundur vill hitt og þetta en eina sáttin verður þegar að Samtök atvinnulífsins ásamt spilltum forystusauðum Verkalýðsfélaga segi sig frá Lífeyrissjóðakerfinu! SA fékk því frmgengt í samningum fyrir hrun að koma að sjóðunum og einhver verkalýðsforkólfur fyrir hönd sinna félaga samþykkti það því annars stefndi í verkföll sem að SA hótaði að það yrðu FJÖLDAUPPSAGNIR! Nú það var sleikt rassgatið á þeim samtökum og jú 230% hækkun hjá þeim samtökum síðan þá og ekki tók betra við með svokallaða Ánauðarsamninga SALEK sem að einn sem að ofan greinir vill hafa ásamt fyrrverandi VR forystugjéllu, sem hefur kostað í dag miðað við Kjararáð 65% launahækkun sem verður í komandi kjarasamningum en vonandi verður forystusauðurinn ekki við völd þá með sína bitlinga!!Og tala nú ekki um bankana sem Lífeyrissjóðir eiga í ásamt einkahlutafélögum og kennitöluflökkurum um víða veröld!

Örninn


Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi!

Nú kvarta sægreifarnir ofl um tekjutap! En þá skal minnast þess að missirinn af Rússlandsmarkaði eru andskoti margir milljarðar! Og hverjum er um að kenna öðrum en Gunnari Braga Sveinssyni Framsóknarmanni og eru Íslendingar HISSA Á ÞVÍ að Sjálfstæðisflokkurinn hafi samþykkt svona gerræði!!Og svo bitnaði þetta frumhlaup á öllum Íslendingum tala nú ekki um sjómennina okkar og svo ætlar fólk að kjósa einhverja vitleysinga!Sjálfstæðisflokkurinn er í krísu eftir allar upplýsingar undanfarinna vikna skoðanakannanir gefa þó annað til kynna sem er skrítið! En það kemur í ljós þegar að upp úr kjörkössunum er talið, kannski vill almenningur hærri skatta,en lægri skatta á auðmenn? Vilja Íslendingar eiga auðlyndirnar og fá arð af þeim eða allt að fara á fárra hendur kannski 10% þjóðarinnar sem á Ísland? Hvað með mannréttindi Aldraðra og öryrkja af hverju er ekki búið að lögfesta ýmis mál sem varða ýmsa hópa? Hver veit.

Örninn


Höfundur

Örn Ingólfsson
Örn Ingólfsson

Er í mjög góðri vinnu. En get verið með ýmsar hressilegar skoðanir sem öðrum finnst stangast á við þeirra skoðanir og ég virði skoðanir annara þrátt fyrir bölv og ragn!

Okt. 2017
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 114
  • Frá upphafi: 9828

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 108
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband